Morgunblaðið - 29.08.1952, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.08.1952, Blaðsíða 2
MOKGUNBLAÐ1Ð Föstudagur 29. ágúst 1952 ^ T2 Furðuleg blaðamenska TÍMINN birti s.tl miðvikudag forsíðuírétt um það, að stúlka í fytgd með hermanni í Vest- mannaeyjum „hafi skyndilega kastað ktæðum að verulegu leyti og tekið að hafa i frammi Við hermanrJnn hina bneyksl- anlegustu tilburði í viðurvist fólks.“ u-Síðar hefur blaðið það eftir heimildarmanni sínum, að ekki hefði verið ljóst, „hvort stúikan hefði verið til muna drukkin eða aðrar eiturverk- inir kynnu að hafa átt þátt í binu furðulega framferði hennar -----“ f gær skýrir Timinn svo frá því að dómsmálaráðuneytið hafi fyrirskipað rannsókn í máli þessu. Um hana segir blaðið: „Það mun hafa komið fram við rannsóknina, að tilburðir stúlkunnar hafi ekki verið hneykslanlegir (Svo!!!), en á annan veg en fólk hér á að venjast á almannafæri. Er því eltki .ástæða til þess að setja þetta mál í samband við notk- un eitúrlyfja, að því er séð verður “ Bláðið ber með öðriun orð- um þess,a fregn sína til baka. •EN „Þ'JÓÐVILJINN“ hefur ekiki vitjað missa af þessari gléðifregn. í gær birtir hann miðvikudagsfrétt Tímans orð- réíta á forsíðu sinni undir fvrirsögninni: „EITURBYRL- ARARNIR AÐ VERKI í V ÉSTMÁNN AE YJ UM“. ðlikik er gleði kommanna við þessa æsifregn. í sæluvím- uqni dettur þeim ekki í hug að' 'rannsaká sannleiksgildi í hehnar. í>eir gleypa hana ó- melta upp úr Tímanum, sama daginn .seip-liún er borin þar t:l baka!! Þettá^er nú blaðamenr.ska í lagi. Mbl. hcfur aflað sér upp- lýkinga um, að rannsókn máls þessa er lokið og hefur hún > verið send dómsmálaráðuneyt inu. Verður að telja sjálfsagt a5 það skýri frá niðurstöðum hennar. KJaðið hefur einnig fengið fregnir frö Vestmanna- eyjum^ 'fim, að s.l. sunnudag . hafi hópur bandariskra her- manna komið þangað í flugvél og í fylgd með þeim nokkrar stúlkur,v'sem hétu erlendum nöfnum og töluðu enska tuligu. Gisti þetta fólk í Eyj- um á mánudagsnóttina á gisti- hqsi þar. Ekki er fullvíst, hvort stúlka sú, sem umrædd- ; ar fregnir snerust um, var ís- lehzk "éðá erlend. En líkur i bendaJ til' að hún hafi verið amerísk. Morrænt tryggÍRfamót á Helsingfors í september NORRÆNT tryggingarnót verður haldið'í Helsingfors dagana 9.—11. sept. Er það þriðja almenna tryggingamótið, en þau eru haldin á fjögurra ára fresti og til skiptis á Norðurlöndunum. Síðasta mót var haldið í Stokkhólmi 1948, en hið fyrsta í Kaupmannahöfn 1939. <!> Á fundum þessum mæta full- trúar frá hinum ýmsu greinum trygginganna á Norðurlöndum,, sjúkratrygginganna, elli- og ör-j orkutrygginganna, slysastrygg- Ræða viðskiptamálaráðli. [ Framh. af hls. t er innflutningsloyfum og kéypt- Ronnie Scctf vakfi gíiurlega hrifningu DJASSUNNENDUR urðu áreið- anlega ekki fyrir vonbrigðum í Gamla-bíói s.l. miðvikudags- kvöld, en þá ’ék þar hinn þekkti enski saxófónleikari, Ronnie I Scctt, sem talinn er vera einn j fremsti djassleikari Evrópu. Ronnie Scott. Það, sem mér fannst einkum einkenna leik hans, var hin gífur- lega tækni og sömuleiðis mýkt, sem aðeins fáir saxófónleikarar bera í eins ríkum mæli og Ronnie. Það fer ekki milli mála, að mjög fáir saxófónleikarar standa hon- um jafnfætis. Tríó Árna Elfars aðstoðaði hinn fræga djassleik- ara með hinni mestu prýði. Mátti heyra það á undirtektum hlust- enda, að þeir áttu miklum vin- sældum að fagna. Aðrir, sem léku, var kvintett Eyþórs Þorlákssonar, og leysti hann hlutverk sitt af hendi með ágætum. — Þá söng Haukur Morthens með tríói Kristjáns Magnússonar, og hefir þeim sjald an tekizt eins vel upp. Hljómleikar þessir voru haldn- ir á vegum Djassklúbbsins, og var Svavar Gests kynnir. — G. inganna og atvinnuleysistrygg- j inganna og stofnana þeirra, seml hafa þessar tryggingar með hönd Eitt aðalumræðuefnið á trygg- ingamótinu nú verða ráðstafanir til að gera öryrkjum, sem hafa einhverja vinnugetu, fært að vinna fyrir sér, svo og samvinna, samstarf og gagnkvæm réttindi innbyrðis milli trygginganna. í sambandi við þennan fund er í ráði að ganga að fullu frá; samningum um gagnkvæm rétt- j indi milli sjúkrasamlaganna á Norðuriöndum, en síðan munu ríkisstjórnirnar ákveða, hvenær j samningarnir verða undirritaðir. J Fulltrúi Tryggingarstofnunar ríkisins á mótinu verður Gunnar Möller, formaður tryggingaráðs. gjaldeyri. Af þessum sökum eru erfiðleikar miklir að verzla við þessi lönd í stórum stíl. HAGNÝTING MARKAÐANNA Ýmsar ráðstaíanir hafa fyrr og síðar verið gerðar til þess að not- færa sér þessa markaði eftir föng- um, án þess þó aö leggja of þunga byrði á þjóðina með of háu vöruverði og óhentugum vör- um. En eins og nú cr ástatt með gjaldeyrisöflun landsins, er lífs- nauðsyn að gera ítrustu tilraun til að notfæra sár þá markaði, sem vilja kaupa freðfiskinn og þurrfiskinn. Afleiðingar þeirra erfiðleika, er ég nú hefi nefnt, síldveiði- brestsins og sölutregðu freðfisks- ins, verða óhjákvæmilega þær, að spara verður um stundarsqkir hinn frjálsa gjaldeyri og jafn- framt beina viðskiptunum íyrst um sinn, eftir því sem tök eru á, til þeirra landa er vilja kaupa fiskinn gegn vörum á jafnvirðis- grundvelli. Hafa þess vegna verið gerðar þær ráðstafanir, að fram til ára- móta verði eftir föngum óregið Júr þeim innflutningi sem háður Úr Austur-Skagafjar5arsýs!ti> Heyskapur sæmilegur - Garðagróður rýr - Slórhugur með iramkvæmdir - Fé flntt úr Málmey - Sjósókn - Sumarið 2III3 vikur RÓMABORG — Nýfundin eru lík 5 ítalskra Alpahermanna, sem fórust í stríðinu 1914—1918. — Komu lík þeirra í ljós, er ís leysti úr hlíðum Adamelló-fjalls. Koim úr námsferð á vegutn AljijóððviiHiumálasto f nunarinnar EINS OG skýrt var frá í fréttatilkynningu félagsmálaráðuneytis- ms i jan/r”s.lÁfór Páll S. Pálsson, framkvæmdastjóri Félags ísl. iðnrekenda“ til Alþjóðavinnumálaskrifstofunnar í Genf í Svisslandi í byrjun fehrúar. Stofnunin hafði ákveðið að kosta námsdvöl hans í Englandi um sex mánaða skeið, og hélt hann til Englands eftir skarama kynnisdvöl hjá Alþjóðavinnumálastofnuninni Námið fjáílaði einkum um vinnulöggjöf, samband atvinnu-( rekenda og verkamanna, öryggi, heilbrigði og velferð verkafólks á vinnustöðum, vinnumiðlun, at- vinnuleysisskýrslur, leiðbeining- ar um stöðúval, iðnnám o. fl. áþekk efni. j Námið fór fram undir hand-j leiðslu Vinnumálaráðuneytisins (félagsmálaráðuneytisins) brezka.1 Fyrstu þrjá mánuði námstímans dvaldi Páll í London, kynnti sérj starfsemi ráðuneytisins hjá aðal- stöðyum þess,”hlýddi daglega á erindi og átti viðtöl um náms- efnið við fulltrúa frá ráðuneyt- inu, * verkalýðssambandinu og vinnjuveitendasamtökum. Að því Joknu dvaldi hann um sjo Vikna; skeið á vegum deildar Vinnu- málaráðuneytisins í Suðvestur- Englandi, til þess að kynnast starfsemi ráðuneytisins í fram- kvæmd og félagslegu samstarfi atvinnurekenda og launþega í þeim landshluta. Síðasti þáttur námsins í London í júlímánuði fjallaði um ráðstaf- anir hins opinbera til þess að auka framleiðsluafköst og vöru- vöndun hjá verksmiðjum. Mánaðarlega gaf Páll Alþjóða- vinnumálaskrifstofunni og dé- lagsmálaráðuneytinu skýrslu um nám sitt. (Frá Félagsmálaráðuneytinu). BONN — Þjóðverjar hafa gerzt aðilaf að alþjóðabankanum. BÆ á Höfðaströnd, 23. ágúst. —' Frá mánaðamótum júlí—ágúst heíur verið einmuna heyskapar- tíð og hey því náðst eftir hendi, en 19. þ. m. brá til rigninga og hefur nær því óslitið rignt síð- an. Tjarnir eru á hörðum túnum Jog hey, sem úti var á útengi, er sjáanlega á floti. Er því hætt við að hey ódrýgist eða jafnvel tap- ist, þar sem blautar engjar eru. | Töðufall er líklega undir með- allagi, þar sem sáralítil spretta var fram eftir öllu sumri, en nú hefir sprottið nokkuð upp á tún- um, sérstaklega þar sem hægt var að bera á aftur. I Garðagróður verður rýr þetta árið. Seint var sett niður og kuldarnir fyrri hluta sumars kypptu mjög úr vexti. Víða var þó sett meira niður en undanfar- in ár. I . STORHUGUR MEÐ FRAMKVÆMDUM Vorið og sumarið er aðalfram- kvæmdatími okkar Norðlend- inga. Má því segja, að allt sé í fullum gangi eins og hægt er. Skurðgrafa fer um sveitina og undirbýr landið til ræktunar. — Jarðýta og dráttarvélar eru einn- ig á þönum, því allir vilja sem mest gera þennan stutta bjarg- ræðistxma. Jarða- og húsabætur eru unnar mjög mikið. Jafnvel má segja, að margur maður reisi sér ef til vill hurðarás xun öxl, þar sem stórhugurinn ber get- una ofurliði. Allvíða standa yfir byggingar, en að nokkru er þar þó verið að fullgera hús, sem tekin voru í smíði s.l. ár. Nú næstu daga á að byrja á símalagningu á HöCðaströndina. Verður lagður sími um Höfða, Vatn, Mannskaðahól, Mýrkot og Litlu-Brekku í símalínu á Bæ til Hofsóss. Verður þetta mikill hægðarauki fyrir sveitina og þá bæi, sem þarna komast í síma- samband. NÝ VATNSMIÐLUN Undanfarið hefur verið unnið að því að fullgera vatnsmiðlun fyrir Höfðakauptún. Er það 15 m hár turn steyptur á hól um miðja vegu milli fjalls, þar sem vatnið er tekið, og Hofsóss. Á turni þessum er stálgeymir, sem tekur 60 smálestir af vatni. Jafnframt því að vera miðlun, á vatnið, sem þarna er geymt, að gefa jafnari þrýsting á kerfið og öryggi við brunavarnir. — Á Hofsósi eru einnig nokkur hús í smíðum. BEINAVERKSMIDJAN Beinaverksmiðjan, sem tók til starfa í júní í sumar hefur reynzt vel og er nú búin að vinna um 80 tonn af mjöli. Er það hagfellt miðað við að fleygja öllum þeim úrgangi, sem þarna hefur verið unninn. FÉ FLUTT ÚR MÁLMEY Nú er verið að flytja í land úr Málmey allt fé og aðrar skepnur, sem þar hafa verið. Verður fénu slátrað og sett á sumarmarkað. Er þá lokið einum þætti í sögu Málmeyj- ar, þar sem búskapi þeirra Erlendar og Þormóðs, sem þar bjuggu siðast, er nú lokið. Varð hann á köflum allsögu- legur og viðburðaríkur. Nú taka við vitagæzlu tveir bænd ur úr Sléttuhlíð, sem áður höfðu vitann, þeir Pétur Jó- hansson, Glæsibæ og Hcrbert Ásgrímsson, Þrastarlundi. NOKKUR SJÓSÓKN Sjósókn hefur töluvert verið stunduð frá Hofsósi í vor og sumar, en afli verið frekar rýr. |Þó er nokkur fiskur kominn á jland vegna góðra gæfta og öt- ullar sjósóknar. Stærri þorskur Ihefur verið saltaður, en ýsa og smærri fiskur flakað og hrað- fryst. SUMARIÐ VAR 2—3 VIKUR Heilsufar hefur verið mjög kvillasamt og hefur héraðslæknir verið ó sífelldum þönum. Engar alvarlegar farsóttir hafa þó geng- ið, kíghósti er þó að verða all- útbreiddur, aðallega á Hofsósi. Fólk vill kenna sólarleysi van- heilsu manna, því segja má að sumarið hafi nú verið hér hálfur mánuður til þrjór vikur. Þeir svartsýnustu segja, að sumarið sé búið, en allir vonast eftir sól og sumri fram á vetur. — B. ur 'er í frjálsum gjaldeyri, en jafnfi-amt verður reynt að auka innflutninginn fró clearing-lönd- unurn. Ennfremur verður ekki veittur gjaldeyrir til ferðalaga nema um sé að ræða bráðnauð- synleg erindi. Gjaldeyrir vegna námskostriaðar verður bundinn við nauðsynlegt nám, ssm ekki cr hægt að stunda hér eða nám, sem menn stunda nú erlendis og er ckki lokið. VIöSKIPTI VID CLEARING- LÖNDIN Til þcss að greiða fyrir við- skiptum við clearing-löndin verð ur kaupum á eftirfarandi vörum, sem nú eru á frílista, beint til þessara landa. Hafa bankarnir heimild til að synja um frjálsan gjaldeyri fyrir þessum vörurrx fyrst um sinn: 1. Fatnaðarvörur og vefnaður 2. Tunnur og tunnustafir , 3. Girðingarefni 4. Búsáhöid 5. Gúmmískófatnaður (gúmmí- sjóstígvél undanskilin) 6. Rafmagnsvörur 7. Dráttarvélar 8. Verkfæri [ 9. Málning 10. Kolavélar og ofnar 11. Mjólkurbrúsar r 12. Mjólkurflöskur 13. Ullargarn I Eftir því sem hægt er: 14. Haframjöl (Tékkóslóvakía) j 15. Rúgmjöl (Pólland) 16. Sykur (Pólland) 17. Kol (Pólland) 18. Salt (Spánn) Hömlur verða ekki að öðru leyti lagðar á innflutninginn og eiga innflytjendur að geta feng- ið clearing-gjaldeyri eftir þörf- um fyrir þessum vörum. Munur- inn er sá, að frjáls gjaldeyrir fæst ekki fyrir þeim fyrst urrj sinn. i TALSVERÐ BREYTING Að sjálfsögðu er þetta í svip- inn talsverð breyting, sem að- steðjandi erfiðleikar hafa gert nauðsynlega. Þetta er ekki aftur- hvarf til haftanna, eins og við höfum þekkt þau síðustu tvo áratugi, og þetta er engin grund- vallarbreyting á þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar að losa verzl- unina undan oki haftanna. Er* þegar erfiðleika ber að höndum stoðar ekki að loka augunum fyr- ir afleiðingum þeirra né að aka sér undan þeim ráðstöfunum sem ástandið krefst. Tilgangur þessara ráðstafaná er að nota til fullnustu innkaupa- möguleika í clearing-löndum fyr- ir vörur, sem eru háðar leyfis- veitingum og á frílista, og á þann hátt greiða fyrir afurðasölu til þessara landa. Margar vörur á hinum svokaliaða bátalista eru fáanlegar í clearing-löndum, er» þó fluttar inn frá öðrum lönd- um. Geta útflytjendur sjálfir, í sambandi við ákvörðun um báta- álagið, ráðið miklu um það, hvað an þessar vörur eru keyptar. En ég vil beina því til innflytjenda, j að þeir geri það sem í þeirra | valdi stendur til þess að auka I innkaup sín í clearing-löndun- Eldur í Herskóla- búðum SLÖKKVILIÐIÐ vann bug á eldi í fyrrinótt í bragganum númer 24 í Herskóla-búðum, en ekki slökktist eldurinn þó fyrr en miklar skemmdir höfðu orðið á bragganum, bæði af eldi og vatni. Þetta var um miðja nótt, klukk- an rúmiega hálf þrjú. Barðist slökkviliðið við eldinn í klukku- tíma. Tvær fjölskyldur bjuggu í bragganum og eyðilögðust innan- stokksmunir þeirra mjög. Ekki er víst um eldsupptök, en magn* aðastur virtist eldurinn hafa ver- ið í eystri forstofu braggans. }

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.