Morgunblaðið - 29.08.1952, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLABIÐ
Föstudagur 29. ágúst 1952
KALLI KULA
Skáldsaga eftir FALSTAFF FAKIR
imtniiifmuiiiHiitiiMmKiiiiiitniiiiiiiiMifiiHiimiimnnii
Framhaldssagan 6
Tveim dögum síðar var Ása-
trúin einráð í Ásaþorpi — aðeins
tveir menn voru enn utan liins
nýja safnaðar. Annar var baptist
inn og húsmaðurinn Mats. En
hefndin fyrir þessa sérvizku hans
lét ekki bíða iengi eftir sér. Hann
átti hund, sem elskaði að bíta fé.
Og dag einn fannst hrútur, sem
Kalli Kúla átti, bitinn til dauðs
úti í haganum.
Almenningsálitið, er einkum
kom fram gegnum Lantz, benti
strax á hund Mats sem sökudólg.
Bæði Mats og hundurinn neituðu
ákærunni. Kalli Kúla setti þá
Mats tvo kosti af salómonískri
visku sinni: annaðhvort að greiða
myrta hrútinn fullu verði, en það
var sextíu og sex krónur (þar
sem hrúturinn var af ágætu kyni)
og komast þannig hjá málaferl-
um — eða ganga undir „járn-
skýrslu“ til að sanna sakleysi
hundsins. Þar sem Mats átti ekki
sextíu og sex krónur bauðst hann
til að taka skýrsluna. En er hann
fékk að vita, að hún færi þannig
fram, að hann skyldi ganga ber-
fættur yfir hvítglóandi plógjárn,
varð hann bljúgur og bað um að
fá að tala við Kalla Kúlu i ein-
rúmi.
Þá er hann kom frá samninga-
borðinu, var hann sýknaður af
hrútsmorðinu og nafn hans stóð
í hinni miklu bók. En auk þess
hafði hann tvær silfurkrónur í
vasanum.
Nú vantaði aðeins einn —
Mömmu Grétu, þá sömu, sem
stundi mest undir fyrirlestrinum.
Hún hélt dauðahaldi í sína gömlu
villutrú, en þar sem hún var hölt
og þurfti alltaf einhvern til að
fylgja sér til kirkjunnar á sunnu-
dögum, og auk þess sárvanhagaði
hana um yfirhöfn, þá tók hún
með gleði á móti notuðum kam-
garnsbuxum sem efni í hátíða-
kápu — og nafn hennar var inn-
ritað í hina miklu bók Kalla
Kúlu.
Og nú voru allir íbúar Ása-
þorps orðnir ásatrúarmenn og
líkaði það mætavel.
Fyrstu dagana gekk allt með
ró og spekt. Fyrsti sunnudagur-
inn var einkum ljómandi dagur.
Þá lét Kalli Kúla fara fram forn-
norræna bardaga- og knattleika
á stóra grasblettinum bak við
aðalbygginguna og lét Lantz til-
kynna það á laugardeginum.
Þetta varð til þess að allir ása-
trúarmenn vanræktu kirkjuna
algerlega og köstuðu spjótum í
þess stað, hoppuðu yfir snúru og
glímdu allan fyrripart sunnu-
dagsins. Auðvitað varð kirkjan
mjög illa sótt vegna þessa. Leti-
garðsmeðlimirnir höfðu allir
mætt og séra Jóhannsson þrum-
aði um hryllilega refsidóma yfir
skelfdum höfðum þeirra, og var
með óhugnanlegar illspár, enda
var hann i slæmu skapi yfir að
sjá engan mann frá Ásaþorpi við
guðsþjónustuna.
Leíkarnir voru mjög vel sóttir
og það var leikið af kappi fram
yfir hádegi. Stórkostlegar ölkönn
ur gengu á milli manna og slökkti
ekki einungis þorsta þátttakenda,
heldur og áhorfenda — en þetta
var örlæti, sem vakti kærleika,
ásamt aðdáun til hins gjafmilda
áss, Kalla Kúlu.
Erfiðara veittist að setja skálda
leikina í gang. Ekki einn einasti
í hópnum gat kveðið um stór-
dáðir forfeðranna, en Kalli Kúla
hafði bent á það" sem viðeigandi
efni fyrir norræna gleðihátíð. Að
síðustu mannaði undirforinginn
sig upp, hinn ágæti Lantz, þrátt
fyrir fimmtíu vetra hættulegar
Kvennaveiðar. Hann gekk afsíðis
og skrifaði dálitla stund, sýndi
Kalla Kúlu dálítin pappírsmiða
og var feimnislegur á svipinn.
Kalli Kúla las það sem á mið-
anum stóð. Það var stutt en kjarn
gott og gaf góða innsýn í hið
leynda tilfinningalif skáldsins:
Ég elska hina litlu
villtu
Valkyrju Pernillu.
Þetta, að nokkru leyti nýtízku-
lega Ijóð, var þakkað með
ánægjulegu klappi og hrósyrðum.
Pernilla valkyrja — ein af hinum
þjónandi stúlkum Ásaþorps —
roðnaði af feimni og hrifningu og
nafn Lantz var á allra vörum.
Kalli Kúla afhenti stríðsmann-
inum skáldalaunin — feita gæs
— og gaf honum nafnbótina
skáld, á staðnum.
Eftir hátíðina gekk nýjasti á-
hangandi trúarinnar, Mamma
Gréta, til Kalla Kúlu og talaði til
hans sem ,,Þórs“ og skýrði honum
frá því að hún væri gift eineygða
húsmanninum, honum Páli, en
héðan í frá hefði hún ákveðið að
gefa honum nafnið Höður.
— Hvers vegna? spurði Kalli
Kúla.
— Jú, hann er nærri blindur
— og það var Höður, herra Þór!
Eftir nokkra umhugsun og efa-
semdir samþykkti Kalli Kúla
uppástungu hennar, enda þótt
honum þætti nóg um þessa ása-
æsingu. Eftir þetta hefndi hann
þau Mömmu Grétu og Höður
„hin ásaheilögu" til aðgreiningar
frá þeim, sem voru veikari í
trúnni, þegar hann ræddi við
Lantz.
„Norræn goðafræði" naut svip-
aðrar virðingar og hinar fimm
bækur Móse. Sem „apokrýfar" og
þó áreiðanlegar bækur töldu
menn „Friðþjófs sögu“ og nokk-
uð af ritum Lings, einkum kvæð-
ið „Æsirnir", sem hafði djúp
áhrif á fólk vegna hins íburðar-
mikla orðskrúðs — og sennilega
líka vegna lengdasinnar.
Oll þessi rit voru lesin og rædd
á kvöldin, þegar striti dagsins var
lokið.
Lantz hlaut mikla aðdáun er
hann uppnefndi organtroðann, en
hann var ekki sérlega vinsæll, og
kallaði hann Hrímþursa. Séra
Jóhannsson var oft nefndur
Fernisúlfurin, en ekki fór það
hátt. Mamma Gréta kallaði sókn-
arprestinn Miðgarðsorminn og
nokkrir tóku það eftir henni.
Sama klíka leit á kirkjuna sem
eitthvert óhugnanlegt Ginnunga-
gap.
Allt hið daglega líf komst þann-
ig undir áhrifavald Ásatrúarinn-
ar.
Undrun og reiði séra Jóhanns-
son, þegar hann komst að þess-
ari hræðilegu vantrúarhreyfingu,
var alveg takmarkalaus. Hann
var utan við sig yfir þessari frek-
legu afneitun trúarinnar, sem vel
gat haft það í för með sér að hann
fengi ekki aðra áheyrendur en
fátækralimi, þegar hann boðaði
orðið í kirkjunni. Hann kvartaði
sáran, og ásakaði sóknarprestinn
fyrir þetta. Séra Andrés stundi,
en lét í ljós þá von sína, að þetta
myndi lagast. Þetta haldlausa
svar jók á reiði Jóhannssons, svo
að hann þaut út í skóg og eigraði
þar ráðalaus í átta klukkutíma,
einna líkastur brjáluðum manni.
Svo fór hann á safnaðarfund, sem
átti að halda þennan sama dag
Honum var tekið með ískaldri
kurteisi. Ástæðan til slíkrar mót
töku var sú, að eftir að Kalli
Kúla hafði komizt á snoðir um
Akkillesarhæl prestsins: hina
slæmu einkunn í kirkjusögu,
unni hann sér engrar hvíldar
fyrri en hann hafði boðað nokkra
menn heim til sín og sagði, eins
og utan gátta, við hina áhrifaríku
bændur, sem mættir voru: Það er
ákaflega leiðinlegt að séra Jó
hannsson er svo illa að sér í hinni
þýðingarmiklu grein prestsktarfs-
ins, því, sem við nefnum kirkju-
sögu!
En er bændurnir komu með
forvitnar spurningar um þetta
efni, dró hann sig í hlé, andvarp-
aði aðeins og sagði: Við skulum
ekki tala um það. Nei, við skul-
um ekki tala um það. Skál! Skál!
11L SÖI.U . .' D ERBER-GI
« -frflnihrétlí ásamt =«#nÍ:lÁeÓ- ’ til leígu •■’ÞJÍl'fBbæbiíri fyrh-
um á Ford ’37. Uppl. Skipa reglusama stúlku. — Hvít
- sundi 71 í kvöld milli kl. 8 amerísk kápa til sölu á sama
o o 1 stað. Uppl. í síma 81615.
SOFASETT
með rauðu áklæði, hreint og
vel með farið til sölu. Tæki
færisverð. Upplýsingar í
síma 6949 í dag kl. 2—4.
IBUO
Barnlaus hjón. óska eftir 1
—2 herb. og eldhúsi strax.
Atvinna: húsasmiður. Skil-
vís greiðsla og góð um-
gengni. Sími 81947.
STULKA
óskast til léttrar vinnu. —
Uppl. á Barónsstíg 20 frá
kl. 2—5 í dag.
Maður í fastri atvinnu og
með góðar tekjur óskar
eftir
15—20 þús. kr. láná
í 3 ár. — Skilvís greiðsla.
" Tilboð sendist afgr. Mbl.
jS/ fyrir 1. sept. merkt: „Far-
maður — 127“.
Fuglinn Griff
eftir Grimmsbræður
Hann sagði mér til dæmis, að hann hefði komið í höll, þar
sem lykillinn var týndur af peningaskápnum."
„Þetta eru nú meiru heimskingjarnir,“ sagði þá Griff. „Lyk-
illinn er undir eldiviðarstaflanum í skemmunni.“
„Hann kom einnig við í annarri höll,“ sagði frú Griff. „Og
þar var veik stúlka, sem virtist vera með ólækpandi sjúk-
dóm. Hefir þú nokkra hugmynd um, hvort nokkur ráð eru
til, svo að hún verði heilbrigð?“
„Ekkert er auðveldara,“ sagði Griff. „Undir kjallarastigan-
um í höllinni er froskamóðir, sem gert hefir sér hreiður úr
hári af stúlkunni. Ef stúlkan fær nú þetta hár aftur, þá mun
hún verða heilbrigð aftur.“
„Að lokum sagði hinn kristni maður mér fcé því, að hann
hefði komið að vatni, þar sem maður hefði verið, sem yrði
að bera alla á bakinu yfir það. Manninn langaði aítur á móti
mjög til þess að losna við þessa vinnu, en hann vissi ekki
hvernig hann ætti að fara að því.“
„Það er leikur einn,“ sagði Griff. „Hann þarf ekki annað
en að láta einhvern mann niður í mitt fljótið, og þá mun
hann losna við starfið.“
Snemma næsta morgun flaug fuglinn Griff að heiman, og
þá skreið Bárður undan rúminu. Hann hafði nú náð fjöðr-
inni, sem var mjög falleg og sömuleiðis hafði hann tekið
eftir öllu, sem Griff hafði sagt um /hóttina. En til þess að
íullvissa sig um, að hann hefði ekki gleymt neinu, þá end-
urtók frú Griff allt það, sem fuglinn Griff hafði sagt.
Svo lagði Bárður af stað heimleiðis. Hann kom fyrst til
mannsins við fljótið. Maðurinn varð mjög glaður þegar hann
sá Bárð, og spurði, hvað hann ætti að gera til þess að
losna við starfið. Bárður vildi hins vegar ekki segja honum
það, fyrr en hann hefði borið sig yfir vatnið. Maðurinn bar
Ibúð oskast
2—5 herbergja íbúð óskast
1. okt. eða fyrr. Mjög góð
umgengni. — Fyrirfram-
greiðsla getur komið til
greina. Uppl. í síma 7524.
TRETEX
14” trétex, fyrirliggjandi.
\Jerzi. Urijnja
'_ Sími 4160.
Sem ný 3ja hellna Rafha
ELDAVÉL
til sölu. Verð 1200 kr. Einn
ig einhólfa stálvaskur, 44x
36 cm. (án borðplötu). Verð
400 kr. Til sýnis á Fossvogs
blett 35 við Bústaðaveg frá
kl. 10—4 e.h. í dag.
Kanarifug!
Gulur kanarifugl tapaðist
frá Freyjugötu 25. Finn-
— andi gjöri svo vel og gjöri
aðvart í síma 5612.
e
í dag 89 RS
110 cm. kr. 14.90. — Mol-
skinn, rifflað, kr. 37.90 og
kr. 45.00. — Borðdúkaplast
munztrað, kjólastrig í mörg
um litum.
DÍSAFOSS
Grettisgötu 44. Sími 7698.
Dodge ’47
einkabifreið til sölu við
Sundhöllina kl. 6—8. Skipti
á eldri bíl koma til greina.
TIL SOLU
slcúr úr timbri, klæddur
með bárujárni, stærð ca.
614-—314. Til niðurrifs eða
flutnings. Hentugur sem
bílskúr. Uppl. í sima 80280
eftir kl. 1.
Deiidsalar
Við óskum eftir sambandi
við stór heildsölufyrirtæki,
sem hafa áhuga á að seija
norsk kerti, sápur og snyrti
vörur, af hinni viðurkenndu
framleiðslu vorri.
S. Mauritzens Sönner A/ S
EtaUert 1878.
Stavanger — Norge.
Fyrsti vélstjóri á milli-
ferðaskipi óskar eftir
3-4 herbergja íbúð
á hitaveitusvæðinu. Fyrir-
framgreiðsla á húsaleigu
kemur til greina. Uppiýsing
ar í síma 6284.
Árni Thorlacius.
Vil selja lítið hús
viðbótarteikning, byggingar-
og fjárfestingarleyfi fyl'gja
og hálfan hektara erfða-
festulands. Samkvæmt skipn
lagi 5 lóðir, allt sléttað. —
Tilboð skilist á afgreiðslu
blaðsins fyrir 5. sept. merkt
„Kópavogur — 119“.
Bifreiðast|óri
Bifreiðastjóri sem hefur
ekið leigubifreið í 12 ár hér
í bæ óskar eftir góðum bíl
til að aka frá stöð. Keyra
á móti öðrum kemur líka til
greina. Tilboð sendist blað-
inu fyrir hádegi á laugar-
dag merkt: „9-10 — 115“.
íbú.ð — Gjaldeyrir
2ja til 3ja herbergja íbúð
óskast í Reykjavík eða Hafn
arfirði. Þrennt í heimili. —
Gæti útvegað stúlku í vist.
Fyrirframgreiðsla ef óskað
er. Tilboð leggist á afgr.
Mbl. fyrir 5. september, —
merkt: „íbúð — 114“.
í fjarveru minni
næsta mánuð gegnir hr.
læknir Skúli Thoroddsen,
sjúkrasamlagsstörfum mín-
um. Lækningastofa hans er
í Bankastræti 6. Viðtalstími
1—3. Sími 5459, heimasími
3704. —
Óskar Þ. Þórðarson dr. med.
íbúð öskast
Hjón með eitt barn óska eft
ir íbúð 1—2 herbergi og eld
hús, helst í Kleppsholti eða
Laugarneshverfi. — Tilboð
merkt: „Góð umgengni —
117“ leggist inn á afgr.
Mbl. fyrir næstkomandi
þriðjudagskvöld.
GÆFA FYLGIR
trúlofunarhring
unum frá
SIGURÞÓR
Hafnarstræti 4
— Sendir gegn
póstkröfu —
— Sendið ná- )
kvæmt mál — J