Morgunblaðið - 30.11.1952, Page 8

Morgunblaðið - 30.11.1952, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagu^' 30. nóv. 1952 m: Útg.: H.Í. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Ámi Garðar Kristinssoou Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Askriftargjald kr. 20.00 6 mánuði, innanlanda. t lausasölu 1 krónu eintakið. A MORGUN er 1. desember. Yfir þeim degi hvílir hugþekk- ur bjarmi í hugum íslendinga. Þann dag árið 1918 öðlaðist ís- land viðurkenningu fullveldis síns. Eitt hundrað ára þrotlausri baráttu lítillar þjóðar var iokið með glæsilegum sigri. Eftir var aðeins að stíga síðasta skrefið tíl endanlegrar frelsistöku. Veg- urinn lá beinn framundan. Að 25 árum liðnum voru dyrnar opn- ar til skilnaðar við yfirþjóðina. íslenzka þjóðin hefur neytt þess réttar síns og stofnað lýð- veldi í landi sínu. En hvernig er umhorfs hinn 1. desember að þessu sinni í þjóð- félagi okkar? Ef við lítum um öxl til síð- ustu áratuga getur engum dul- izt að þjóðin heíur sótt fram, full bjartsýni og áræðis til betri lífskjara og fullkomnari þjóðfélagshátta. í þeirri fram- sókn hefur enginn viljað láta sinn hlut eftir liggja. í dag eigum við þessvegna betri tæki til þess að bjarga okkur með en nokkru sinni fyrr. Um það þarf því ekki að efast, að vinnusöm og dug- mikil þjóð getur lifað góðu lífi í þessu norðlæga iandi. Að þessu leyti má því segja, að framtíðarhorfur þessarar þjóðar séu bjartar. Landkostir og atvinnuhættir eru að visu þannig, að fólk, sem landið bygg- ir þarf meira á sig að leggja en margar aðrar þjóðir, sem eiga lönd, er auðugri eru að náttúru- gæðum og búa við hagstæðara loftslag. En íslendingar hafa sýnt að þá skortir hvorki þrótt né áræði til þess að skapa sér skil- ýrði bjargálna og menningar- lífs. Það mál, sem ber hæst i hug- um íslendinga í dag er vernd fiskimiðanna. Þær ráðstafanir, sem rikisstjórnin hefur á þessu ári gert i þá átt eru fyrst og -fremst sjálfsvörn lítillar þjóðar, byggð á skýlausum rétti hennar, lagalegum og siðferðilegum. Um þær aðgerðir stendur öll hin ís- lenzka þjóð saman sem einn maður. Óbilgjarnar ofbeldisað- gerðir brezkra útgerðarmanna fá þar engu um þokað. íslendingar munu aidrei láta hrekja sig með ofbeldi frá rétti sínum. Landhelgismálið er í dag stærsta fullveldismál þessar- ar þjóðar. Sú barátta, sem þar er háð fyrir fullkomnum sigri er hin öriagaríkasta. Úr- slit hennar munu sýna, hvort má sín meira, helgur réttur smáþjóðar eða skefjalaust of- beldi sérhagsmunaklíku með- al stórþjóðar. íslendingar mega ekkert spor stiga, sem spillir aðstöðu þeirra í þessari baráttu. ★ ! En þótt þessi þjóð hafi sótt fram til betri lífskjara undan- farin ár eru þó ýmsar óheilla- vænlegar blikur á lofti í þjóð- lífi hennar. Margt bendir til þess að við kunnum síður að hagnýta okkur unna sigra en að vinna þá. >að er ekki nóg að eiga góð tæki til þess að bjarga ser með. Það verður að vera hægt áð reka þessi tæki og halda uppi 1 Varanlegri atvinnu fyrir almenn- ing í landinu. Okkur skortir ennþá skilning á því grundvall- ar atriði, að við getum ekki eytt meiru en við öflum. Lífskjörin verða alltaf að miðast við arð framleiðslu ol.kar. Á þessu hafa nálægar lýðræðis- þjóðir fullan skilning. Þessvegna miða launþegasamtök þeirra kröfur sínar um kaup og kjör við afkomu bjargræðisvega sinna. Þennan skilning verðum við einnig að öðíast. Ella er voð- inn vís. Við megum ekki drekkja þeim sigrum, sem unnizt hafa í baráttunni fyr- ir bættum lífskjörum í skiln- ingsvana dægurbaráttu, sem rænir almenning öryggi um afkomu sína og lífskjör. Það ólán má ekki henda íslenzku þjóðina, að hún láti flugu- I menn erlendrar ofbeldis- stefnu ginna sig til óhappa- verka gagnvart sjálfri sér. Alls þessa er hollt að minn- ast á þeim dögum, sem ,rísa | úr daganna fábreyttu fylk- ingr“. Framtið þessarar þjóð- I ar byggist enn sem fyrr á heiíbrigðri skyr.se mi og þroska fólksins. Það mótar sjálft lífskjör sín og ham- ingju . I Orðinn að viðundri HALLDÓR á Kirkjubóli er nú orðinn að algeru viðundri fyrir brennivínsskrif sín í Tímann. — Þau hafa sannað, að þessum eld heita andstæðingi Bakkusar ligg ur í léttu rúmi, hversu mör; vínveitingaleyfi hans eigb flokkssamtök hafa fengið o; kunna að fá. Barátta hans snýs öll um það, að fólk í öðrur stjórnmálasamtökum eigi ekk að neyta víns eða fá leyfi ti vínveitinga. Er þetta einhvei bágbornasti málflutningur, sen um getur í íslenzkri blaða mennsku. Þegar við þetta bætist að skri umrædds blaðamanns eru full a blekkingum og rangfærslum verður auðsætt, hversu ógagnle{ þau eru fyrir málstað heiðar- legra bindindissamtaka. S. 1. þriðjudag ræðst hann t. d. á Bjarna Benediktsson dómsmála- ráðherra fyrir það, að ekki skyldi fram fara atkvæðagreiðsla um héraðabann í Vestmannaeyj- um. I TIL/EFNI af skrifúm „Þjóðvilj- ans“ í leiðara í gær, þar sem' staðhæft er að vinnuveitendur hefðu ekki viljað taka upp við- ræður við hina sameiginlegu samninganefnd verkalýðsfélaga þeirra, sem nú hafa sagt upp samningum, snéri blaðið sér í gær til Vinnuveitendasambands Is’ands og fékk þar eftirfarandi upplýsingar. TILMÆLI VINNUVEITENDA Eins og kunnugt er sögðu á milli 60 og 70' verkalýðsfélög víðsvegar á landinu upp kaup- og kjarasamningum við vinnu- veitendur fyrir s. 1. mánaðamót og falla þeir því úr gildi í kvöld kl. 24. Þrátt fyrir tilmæli Vinnuveit- endasambandsins um að fá kröf- ur verkalýðsfélaganna sem fyrst í hendur, bárust þær ekki fyrr en eftir kl. 12 á hádegi laugar- daginn 15. þ. m. Vinnuveitendasambandið tók þegar til óspilltra málanna og oð Slýta fyrír snmningaviðræðiiiii ræddi kröfurnar við vinnuveit- endur hér í Reykjavík og við deildir VSÍ út á landi, eftir að VSÍ hafði sent þeim afrit af kröf- um verkalýðsféaganna. Þrátt fyrir það að eðlilegum undirbúningi af hálfu Vinnuveit- endasambandsins væri naumast lokið, bauð VSÍ samninganefnd verkalýðsfélaganna með bréfi dags. miðvikudaginn 19. þ. m. til viðræðufundar föstudaginn 21. þ. m. kl. 16.30 til þess að enginn tími færi til ónýtis. Á þeim fundi voru mættir auk fulltrúa VSÍ, fulltrúar frá Reykjavíkurbæ, Fél. ísl. iðnrekenda, Mjólkursamsöl- unni, Vinnumálasambandi sam- vinnufélaganna og Landssam- bandi ísl. útvegsmanna. Þorsfeinn Kjarval gefur Nátf- úrufræðingnum sférgjöf SVO SEM mörgum mun kunn- ugt, er tímaritið Náttúrufræðing- urinn eina tímaritið um náttúru- fræði, sem út kemur hérlendis. Hefur ritið átt við fjárhagslega örðugleika að striða síðustu ár- in vegna vaxandi útgáfukostn- aðar, en þó hefur verið reynt að slaka ekki á kröfum urn vand- aðan frágang og myndskreytingu ritsins. Á síðasta ári var m. a. ráðizt í að hafa í hverju hefti um í ritinu næstu árin, og er tímaritinu að þessu hinn mesti fengur. Stjórn Hins íslenzka náttúxu- fræðifélags og ritstjóri Náttúru- fræðingsins þakka Þorsteini Kjarval af heilum hug hina stór- höfðinglegu gjöf. VÍSAÐ TEL SÁTTASEMJARA Þar sem svo mjög bar á milli deiluaðila, að samkomulag virt- ist útilokað, lögðu vinnuveitend- iUr til að málið yrði strax falið sáttasemjara ríkisins til meðferð- ar til þess að ekki yrði eitt tíma að óþörfu, þar sem skammt værí til mánaðamóta en þá falla samningarnir úr gildi. | Eftir nokkrar mótbárur féll- ust fulltrúar verkalýðsfélaganna á þetta. 1 Síðan hefur sáttasemjari hald- ið tvo fundi með deiluaðilum og 2 fundir hafa verið haldnir með ríkisst j órninni. Allan þennan tíma hafa fulltrúar vinnuveit- enda verið viðbúnir að mæta til samningafunda hvenær sem var, en fulltrúar verkalýðsfélaganna hafa ekki gefið sér tíma til að sitja fleiri samningafundi. STAriUEYSUR „ÞJÓÐVILJANS' * Það er því augljóst mál, að „Þjóðviljinn“ fer með staðleysur er hann sakar vinnuveitendur um að hafa komið í veg fyrir að samningum yrði hraðað. Þvert á móti er það samninganefnd verkalýðsfélaganna sem sökina á, þó Þjóðviljinn sé að reyna að losa hana við ábyrgðina á hinu óvinsæla og yfirgripsmikla verk- falli, sem nú stendur fyrir dyrum. Velvakandi skrifai: UB DAGLEGA LÍFINU Þessari ásökun svaraði Ey- steinn Jónsson fjármálaráð- herra í Tímanum tveim dög- um seinna. Lýsti hann því yfir, að afskipti dómsmálaráð- herra af því máli hafi verið í fullu samráði við sig. Um framkvæmd laganna um héraðabönn, sem sett voru árið 1943 er það enn að segja, að eng- inn dómsmálaráðherra, sem setið hefur síðan, hefúr talið fært að láta þær atkvæðagreiðslur fara fram, sem lögin gera ráð fyrir. Eru þó allar aðstæður gersam- lega óbreyttar síðan þau voru sett. Svo ræðst Halldór á Kirkju- bóli á Bjarna Benediktsson fyrir vanrækslu í þessu efni og það enda þótt hann hafi haft fuRt samráð við ráðherra Framsókn- arflokksins um afstöðu sína til þessarar löggjafar!! Nei, málstað heiðarlegra bind- indismanna er áreiðanlega eng- inn greiði gerður með slíkum skriftun. Þau eru til þess eins fallinn að afhjúpa Htilmennsku þess manns, er fyrir þeim stend- ur. — myndaseríu prentaða á sérstakan myndapappír. Hefur þetta mæizt mjög vel fyrir meðal áskrifenda ritsins. En að þessu er allmikill kostnaðarauki og hefur verið tví- sýnt um það, hvort hægt yrði að halda því áfram. En nú hefur hér úr rætzt. Hinn 26. nóvem- ber s. L kom Þorsteinn Kjarval til ritstjóra Náttúrufræðingsins og kvaðst *~9fa lesið það í „rit- stjórarabbi’* hans, í ritinu, að það ætti við fjárhagslega örðug- leika að stríða. Kvað hann sér þykja leitt, að slíkt rit þyrfti að berjast í bökkum í landi, þar sem út kæmi fjöldi ómerkilegri rita, hefði hann því ásett sér að styrkja útgáfu þéss með peninga- gjöf, að upphæð fjörutíu og fimm þúsund krönur. Afhenti hann þegar þessa upphæð. Gef- andi ákvað, í samráði við rit- stjóra Náttúrufræðingsins, að fé þessu skyldi „einkum varið til að kosta birtingu myndaflokka í ritinu“. Nú verður því örugglega hægt að halda áfram myndaserí- MEKKU, 29. nóv. — Snemma á næsta ári fá íbúar hér í borg raf- morgun fylkja þeir liði við skóla 1. desember AMORGUN, hinn 1. desember, eru 34 ár liðin síðan íbúar ninnar íslenzku höfuðborgar söfn uðust saman fyrir framan stjórn- arráðshúsið til þess að fagna þráð am atburði: Fullveldisviðurkenn- mgu hins íslenzka rikis. Þennan dag var veður hið feg- ursta, skýlaus himinn, frostlaust og kyrrt. Forsætisráðherrann, sem þá var Sigurður Eggerz í forföllum . óns Magnússonar, er var erlend- is, flutti stutta raaðu. Komst hann m.a. að orði á þessa leið: „— — Þessi dagur er mikill dagur í sogu þjóðar vorrar. Hpnn | er runninn af baráttu, sem háð hefur verið í þessu landi allt að því heila öld. Baráttan hefur þroskað okkur um leið og hún hefur fært okkur að markintt. Saga hennar verður ekki sögð í dag. Húit lifir í hjörtum þjóðar- innar. Þar lifir einnig mirmingin um þá, sem með mestri trú- mennsku hafa vakað yfir málum vorum-------■" Hátíðahöld stúdenta SÍÐAN þetta gerðist heíur ís- lenzka þjóðm jafnan minnzt hins 1. desember. Háskólastúdent ar hafa haft forgöngu um minn-i ingu hans hér í Reykjavík. — Á magnsljós, en það er alger nýj- ung, því að rafmagnsljós hafa ekki verið notuð hér áður. smn og ganga til Alþingishússins en á svölum þess flytur vinsæl- ( lasta núlifandi ljóðskáld fslend- inga, Davíð Stefánsson frá Fagra- skógi, ræðu. Stúdentar, eldri og yngri, ættu að fjölmenna til þessara hátíða- halda. Saga úr viðskiptalífinu EFTIRFARANDI saga gerðist hér í Reykjavík fyrir nokkr- um dögum: Unglingstelpa kemur í verzlun og kaupir þar stormjakka á bróð- ur sinn. Hún tekur flíkina með sér heim og færir drenginn í hana. Þá kemur það í ljós að jakkinn er of þröngur og drengurinn get- ur ekki notað hann. „►Telpan fer með jakkann aftur í verzlunina, þar sem hún gerði kaupin og óskar þess að fá að skila honum. En þeirri beiðni hennar var svarað neitandi. Hún varð að fara með hina ónothæfu ■flík heim aftur. Að visu var henni gert það tilboð, að hún mætti kaupa eitthvað annað úr verzluninni fyrir svipaða upp- hæð og jakkinn kostaði. En á bví þurfti heimili hennar ekki ao halda. Þess vegna var sá kostur einn fyrir hendi að sitja uppi með stormjakkann, sem var of þröngur. Ótrúlegur stirðbusaliáttur SLÍKIR verzhmarhættir sýna alveg sérstakan stirðbusa- hátt. Getur sá verzlunarmaður, sem þannig kemur fram, gert sér von um að halda viðskiptum þess fólks, sem hann keiriur þannig fram við. Áreiðanlega ekki. Eng- inn, sem orðið hefur fyrir slíkri framkomu kemur nokkru sinni aftur inn í þá verzlun, sem þann- ig leikur hann. En sem betur fer eru það ekki margir verzlunarmenn, sem þannig haga sér. Yfirleitt fær fólk að skila aftur fötum, sem ekki henta því, eru annað hvort of stór eða of þröng.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.