Morgunblaðið - 28.03.1953, Síða 12

Morgunblaðið - 28.03.1953, Síða 12
12 MORGUTSBLAÐIÐ Laugardagur 28. marz 1953 Staðfesting Þjóðverja á Evrópu- herssamningnufli ilregst nokkuá Dómstóll fjallar um málið BONN 27. marz. — Vesturþýzka stjórnin gaf það skýrlega í skyn í dag að staðfesting Evrópuherssáttmálans og samningsins við her- námsveldin myndi ekki öðlast gildi fyrr en öll önnur aðildarríki, sem hafa ákveðið að gerast aðilar að Evrópuhernum, hafi löggilt samninginn. Hefur ákvörðun þessi verið tekin m. a. til þess að gefa dómstóli tíma til að skera úr um hvort ákvæði samninganna ganga í berhögg við stjórnarskrá landsins. Sunnudagsskemmf- anirnar í Þjóðleik- GILDISTÖKU FRESTAÐ & Eins og kunnugt er lýsti neðri deild þýzka þingsins stuðningi sínum við samningana 19. marz s.l. Daginn eftir fjallaði stjórnin um samþykkt þingsins og var þá ákveðið að fresta gildistöku samninganna þar til önnur ríki hefðu staðfest Evrópusamning- inn. FYRIR DÓMSTÓL Það voru jafnaðarmenn, and- Stæðingar stjórnarinnar á þingi, sem vildu fá úrskurð dómstóls lim það hvort gildistaka hans Væri heimil stjórnarskránni sam- kvæmt. — Brezkur iogari Framhaia af bls. 1 Uðu 4 uppgefnum sjómönnum, en skipstjórinn hélt sér dauðahaldi í björgunarbátinn ásamt nokkr- um af mönnum sínum og komust þeir þannig í land heilu og höldnu. TOKST AÐ SYNDA I LAND — EN------ Stýrimaðurinn, sem var beztur sundmaður af þeim félögum, var í bát þeim, sem hvolfdi. Hefur hann að öllum líkindum getað synt í land en dáið, er þangað var komið, úr þreytu og vosbúð. Öðrum sjómanni tókst að synda í land, en hann lézt er þangað Var komið. — Hinir fimm, sem létu lífið, drukknuðu, er björg- Unarbátnum hvolfdi. KALDHÆÐNI ÖRLAGANNA Morguninn eftir var prýðilegt veður á strandstaðnum, sól og logn. Var togarinn þá enn á rétt- um kili og vafalaust, að allri áhöfn hans hefði verið bjargað, ef hún hefði látið fyrmberast um borð um nóttina. D--------------------□ Ráðning gálunnar Ráðning gátunnar: Koddi. D----------------:---□ Fallegar hendur þurfa sér- lega góða hirðingu. — Séu hendumar blá-rauðar, gróí ar og þurrar, er bezta ráð- ið, í hvert sinn þegar hend- urnar eru þvegnar, að nota Rósól-Clycerin. Núið því vel inn í hörundið. Rósól-Glyce- rin hefur þann eiginleika, að húðin drekkur það í sig og við það mýkist hún. Rós- ól-Glycerin fitar ekki og er því þægilegt í notkun. Mikii- vægt er að nota það eftir hvem handþvott, við það verða hendurnar hvítar, húð in mjúk og falleg. Er einnig gott eftir rakstur. Rósól-Glycerin Sólborg landar á ísafirði ÍSAFIRÐI, 27. marz. — Togarinn Sólborg kom til ísafjarðar á mið- vikudaginn og landaði 225 tonn- um af fiski, sem aðallega fór í her?lu og frystingu. Sólborg fór á saltfiskveiðar í gær. — J.______________ Ókeypis sumarnám- arskólann í Osby FYRIR milligöngu Norræna fé- lagsins geta íslenzkir nemendur tekið þátt í sumarnámskeiðum við landbúnaðarskólann í Osby, Svíþjóð, hlotið ókeypis kennslu og heimavist og jafnvel 50 sænsk- ar krónur á mánuði í vasapen- inga. Námskeiðin, sem haldin verða í sumar, eru þessi: 5 mánaða námskeið, sem hefst 24. apríl. Kennsla og heimavist ókeypis. 6 mánaða námskeið í ræktun trjágarða, sem hefst 1. apríl. — Kennsla og heimavist ókeypis og auk þess 50 sænskar krónur á mánuði í vasapeninga. 5 mánaða verklegt og bóklegt námskeið, sem hefst 24. apríl. Kennsla og heimavist ókeypis og 50 sænskar krónur á mánuði í vasapeninga. Umsóknir skulu sendar Nor- ræna félaginu, Reykjavík, hið fyrsta. Meðmæli skulu fylgja. — Jón Þorkelsson Framhald af bls. 7 ir þessi latínuskrif verður hann flestum nútímamönnum torskil- inn. En skrif á latínu valda ekki þjóð né ættarbyggð Thorkillii sársauka, þegar litið er til sam- tíðar hans. íslendingar í þessu landi og vestan hafs munu fylgjast með þessu máli og hvaða framkvæmd það fær um að endurgjalda Jóni Þorkelssyni og minningu hans órofatryggð. Kristján V. Guðmundsson. EINS og kunnugt er, hefur und- anfarna sunnudaga verið flutt hljómlist og farið fram stutt skemmtiatriði í síðdegiskaffitím- anum í Þjóðleikhússkjallaranum. — Hefur þetta orðið mjög vin- sæit og verður haldið áfram. — Þar hefur jafnan eitthvað nýtt komið fram, nýir skemmtikraft- ar látið til sín heyra, en auk þess hafa ýmsir kunnir lista- menn skemmt með upplestri, stuttum gamanþáttum og fleira. Áfli netjabála í Hafn- arfirði að glæðasf HAFNARFIRÐI. — Afli netja- báta hefir verið heldur rýr það, sem af er vertiðinni, en er nú tekinn að glæðast. í gær kom Edda með tæp 30 tonn eftir um viku útiveru. Sömuleiðis var landað úr vélbátnum Valþór frá Seyðisfirði 35—36 tonnum eftir viku tíma. Og snemma í vikunni kom Fiskaklettur méð um 40 skippund eftir skamma útiveru. Einnig kom Síldin nú í vikunni með ágætan afla. Af línubátunum er það að segja, að þeir hafa'aflað allsæmi- lega í vikunni — allt upp í 10 tonn í róðri. — G. Tuttugu býli í Gaulverja- bæjarhreppi hafa fengið rafmagn frá Soginu — Hæstarélfardómur r ramn. ai Dls. b DÓMSTÓLAR VERDA Aö ÁKVEÐA BÆTUR Síðan segir í dómi Hæstarétt- ar. (Nokkuð stytt): í stjórnarskránni 1944 er ekki ákvæði um að eftirlaun skuli ákveðin með lögum, enda njóta embættismenn nú ekki sérstaks eftirlaunaréttar, en eftirlauna- rétturinn átti samkvæmt hugs- un upphaflega stjórnarskrárgjaf- ans að bæta embættismöiinum, er vikið var frá án sannaðra saka stöðumissinn. Leifar þessarar meginreglu finnast samt enn i stjórnar- skránni, þar sem segir í 20. gr., að embættismaður, sem fiytja á í annað embætti geti í þess stað kosið lausn frá embætti með iög- mætum eftirlaunum. Þetta ákvæði bendir til þess að stjórnarskrárgjafinn hafi ekki vitandi vits ætlað að svipta em- bættismenn þeim rétti, sem upp- haflegi stjórnarskrárgjafinn veitti þeim, er stjórnvaldið neytir heimildar sinnar til að víkja þeim úr embætti. Þegar litið er til þessa verða dómstólar að ákveða þeim embættismönnum, sem stjórn valdið neytir hcimildar sinn- ar til að víkja úr embætti, nokkrar bætur fyrir röskun á stöðu og högum, enda séu sak- ir ekki sannaðar á hendur þeim. Samkvæmt bessu telur Hæstiréttur rétt að dæma Erlingi Ellingsen bætur, sem þykja hæfilega áícveðnar S5 þús. kr. íbúar hreppsins minnt- ust þess með samkomu í félagsheimilinu síðastl laugardag. VORIÐ 1951 var hafin lagning háspennulínu frá Selfossi að Gaulverjabæ. Skyldu 20 býli í Gaulverjabæjarhreppi fá raf- magn frá línu þessari og einn bær i Hraungerðishreppi, auk þess kirkjan í Gaulverjabæ, barnaskóli sveitarinnar og félags- heimili. Nokkur töf varð á um lagningu línunnar og heimtaug- anna á bæina vegna ýmissa or- saka, svo sem efnisvöntunar o. fl. Var verkinu lokið nú fyrir skömmu og straumi hleypt á veit- una þann 14. marz s.l. Hefur síðan verið að því unnið að tengja rafkerfi bæjanna við veituna og er því verki nú senn að verða lokið. . í tilefai þessa merka viðburð- ar, að raforka hefur nú í fyrsta sinn verið leidd frá Soginu í Gaulverjabæjarhrepp og þar á meðal í félagsheimili sveitarinn- ar, gekkst húsnefnd félagsheim- ilisins fyrir samkomu sveitarbúa laugardagskvöldið 21. marz s.l. Samkomu þessa sóttu vel flestir íbúar sveitarinnar og nokkrir gestir í boði húsnefndar, þar á meðal Sigurður Óli Ólafsson al- þm, og frú. Dagur Brynjólfsson fyrrv. hreppstj. og frú o. fl. — Sezt var að sameiginlegri kaffi- drykkju, er samkomugestir voru mættir, um kl. 22. Formaður hús- nefndar Gunnar Sigurðsson, bauð gesti velkomna og skýrði tilefni þess, að til styrktarhátíðar væri efnt, stýrði hann síðan sam- komunni, en yfir borðum voru margar ræður fluttar og sungið þess á milli. Magnús Þ. Öfjórð, hreppstjóri í Gaulverjabæ, skýrði frá gangi verksins og kostnaði þeim, sem bændur hefðu greitt vegna hinna svonefndu heimtaugargjalda, er miðast við línu að húsvegg. Kvað hann upphæðina vera um kr. 8,500.00 á býli til jafnaðar, Aðrir er til máls tóku voru Stefán Jasonarson form. raforkumála-J nefndar hreppsins, Guðmundur Jónsson form. Búnaðarfélagsins, J frú Þórlaug Bjarnadóttir, Dagurl Brynjólfsson fyrrv. hreppstjórr og Sigurður Óli. Ólafsson alþm. j Ræðumenn allir létu í ljós ánægju sína yfir þeim áfanga,' er náðst hefði í raforkufram- j kvæmdum sveitarinnar og bentu( á hversu raforkan veitir þeim, | er hennar njóta aukin þægindi, og öruggari afkomu. Létu og allir í ljós þá von og trú að þeir ( aðrir i sveitinni, er eigi hafa, fengið rafmagn til býla sinna, ^ þyrftu ekki að bíða lengi enn þá þar til það yrði einnig leitt til þeirra. Að lokinni kaffidrykkju var sýnd kvikmynd „Síðasti bærinn í dalnum“. Óskar Gíslason ljós- myndari sýndi myndina, að því loknu var dansað nokkra stund, en síðan heim haldið frá þessari ljósahátíð íbúanna í Gaulverja- bæjarhreppi. G. Sig. Safnaðarfundur í Háteigssókn ALMENNUR safnaðarfundur var haldinn í Háteigssókn 22. marz. Formaður safnaðarnefndar, Þorbjörn Jóhannesson, kaupmað- ur, bauð fundarmenn velkomna og þakkaði sóknarprestinum, sr. Jóni Þorvarðarsyni, alúð í starfi síðan hann kom í sóknina, þrátt fyrir ýmis vandkvæði, er þyrfti að leysa til þess að eðlilegt safn- aðariíf gæti blómgast. ■— Síðan var kosinn fundarstjóri Ásgeir L. Jónsson, ráðunautur, og fundar- ritari Hannes Jónsson, endur- skoðandi. Formaður safnaðarnefndar tók síðan til máls aftur og rakti sögu safnaðarins. Skýrði hann síðan frá því, að þennan dag yrði kirkjukór Háteigssóknar stofnað- ur og Gunnar Sigurgeirsson verið ráðinn, organleikari. — Hann skýrði og frá því, að kvenfélag hefði verið stofnað innan safn- aðarins 17. febrúar og félag karla, Samherjar, 15. marz. Síðan bar hann fram af hálfu safnaðarnefndar tvær tillögur, er báðar voru samþykktar. — Var önnur þess efnis, að reynt yrði að fá 'samkomusal sjómannaskóla- byggingarinnar til messugerðar fyrst um sinn, og yrði hann inn- réttaður í því skyni. Hefur at- vinnumálaráðuneytið fallizt á þetta, enda fáist til þess auka- fjárveiting. Hin tillagan var um það, að hefja skyldi undirbún- ing að byggingu kirkju, og er nær fastráðið, að henni verði valinn staður suðvestur af sjó- mannaskólanum. Ymsir tóku til máls um kirkju- bygginguna og hvöttu til þess, að því máli yrði hraðað, og voru þeir yfirleitt meðmæltir þeim stað, er henni er ætlaður. Að síðustu þakkaði sóknar- presturinn hlýhug allan í sinn garð og áhuga safnaðarmanna á því að leysa vandkvæði þau, er stæðu í vegi fyrir kirkjulegri starfsemi og frjóu safnaðarlifi í hinni nýju sókn. Ný gerð sjóflugvéla SAN DIEGO — Ný gerð stórra flugbáta verður reynd í sumar. Verða þeir óvenju hraðskreiðir og ætlaðir til'ferða milli Kyrra- hafseyjanna. c—'S MARKÚS Eftir Ed Dodd »—Awc...To.v.., o “■ <rMk«*w»<LC, -N -.osröteN ontaeío -IW*AT Hi.CCJ&'itC i j} * vViT'rl HEB VEACLIKÍC ‘ CALV, * CAUTIOUSLY MOVIMG H50UGH WOLF COUNTCy ITHINKING CHERPV IS MARRIEO TO JEFF CPANE, MARK TRAIL 15 ELYIN6 NOPTH INTO CANADA... i , A U'V.kiÖ4:‘,.V/' l <ÍM->!vc£w 1) Markús heldur, að Sirrí sé gift Jafet. Svo að hann flýgur norður til Kanada. 2) — Jæja, Andi, þá förum við aftur norður í skógana. Til þess að reyna áð gleyma allri fortíð okkar. 3) Á meðan fer elgmóðir gegn- um úifalandið. Hún reynir að dyljast ásamt elgkálfi sínum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.