Morgunblaðið - 09.04.1953, Page 1
16 síður
40. árgangut
79. tbl.
Fimmtuda<uir 9. anríl 1953
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Horðanherinn hefur 600 fanga
úka og særða, her S.Þ. 5800
Lskur fyrir frekari fangaskiptum
PANMUNJOM, 8. april. — Samninganefndir deiluaðila komu sam-
sn til fundar tvívegis í dag. Lögðu þær fram skýrslur yfir þá fanga,
eem hvor aðili um sig telur að eigi að sendast heimleiðis sam-
kvæmt samningi um skipti á særðum og sjúkum föngum.
Kom i ljós að Norðanherinn gerði ráð fyrir að senda 600 fanga
heim til sín, en herstjóm S. Þ. kvaðst hafa undir höndum
5800 fanga er væru særðir eða sjúkir.
FREKARI SKIPTI LIKLEG
Formaður samninganefndar S.
Þ., John Daniel, lét þá skoðun
sína í Ijós að tala særð>a og
sjúkra fanga í höndum Norðan-
hersins væri ótrúiega lág. £n
hann lét einnig það álit sitt í Ijós
að mikhr möguleikar væru á víð-
tækari fahgaskiptum en þeim, er
þegar væri um samið.
4% OG 5%
Af þeim 600 föngum, sem
Norðanherinn vildi skipta á voru
450 Suður-Kóreumenn. 5100 af
föngum S. Þ. voru Norður-Kóreu
menn. Þegar þessi fangaskipti eru
um garð gengin hafa Norðan-
menn sleppt 4% af þeim föng-
um, sem þeir hafa í haldi, en
herir S. Þ. hafa sleppt 5% af
þeim föngum er þeir hafa tekið.
ÁKVEÐID
ANNARS STAÐAR
Daniel stakk upp á því á samn-
ingafUndinum að hugtakið ,,særð-
ir og sjúkir“ yrði rýmkað nokk-
uð en Norðanmenn svöruðu að
þessi tala þeirra væri byggð á
hákvæmum rannsóknum. Banda-
ríkjamenn buðust og til að reisa
hermannabúðir á hlutlausa svæð
inu við Panmunjom þar sem fram
kvæma mætti skiptin á föngun-
Ádenauerí Banda-
ríkjunum
WASHINGTON, 7. marz — For-
sætisráðherra Vestur-Þýzkalands
Konrad Adenauer, kom í dag til
Washington í einkaflugvél Eisen-
howers forseta Bandaríkjanna.
Mun hann dveljast í Washing-
ton í 3 daga og ræða við Eisen-
hower, John Foster Dulles, utan-
ríkisráðherra Bandarikjanna og
aðra stjórnmálamenn þar. — í
dag gekk hann á fund Eisen-
howers í Hvíta húsinu og átti
Við hann alllangar viðræður.
________—Reuter-NTB.
Heimsmet í
krmglukasti
LOS ANGELES, 7. apríl. — Sam
Innes setti í dag nýtt heimsmet
í kringlukasti, kastaði 57,78 m.
Gamla heimsmetið átti Fortune
Gordien 56.99 m.
Sam Innes er aðeins tvítugur
að aldri, en mjög glæsilegur
kringlukastari. Vakti hann sér-
staka athygli á Olympíuleikun-
um í Helsingfors, er hann lenti í
keppni við alla beztu kringlu-
kastara heims, heimsmethafa,
Evrópumethafa og Olympíumeist
ara. En þeirri keppni lauk með
glæsilegum sigri Innes og setti
hann þá nýtt Olympíumet. Hann
var þá annar tveggja er ekkert
kast gerði ógilt í úrslitakeppn-
inni. Kastsería hans þá var þessi:
53,47; 54,60; 55,03 ; 53,49; 54.13;
52,83. Talar hún sínu máli um
öryggi hans og getu.
Brezkir togaraeigendur neita beiðni
Edens um að aflétta löndimarbanninu
krifgis kist. fundur
varð áucngurslaui
BLAÐIÐ Grimsby Evening Telegraph staðhæfði það fyrir nokkrum
dögum, að Anthony Eden utanríkisráðherra hefði beðið brezka
togaraeigendur að aflétta löndunarbanni á íslenzkum fiski i brezk-
um höfnum. Segir blaðið, að togaraeigendur hafi hafnað þeifri
beiðni algerlega. j
Hýft áform
NEW YORK, 8. rpril. —
Bandaríkjastjórn hefur nú
hafið rannsókn á því hvernig
árangursríkast verður að
bregðast við þeim vandamál-
um, sem upp kunna að koma
þann dag, er fjárveitingar til
landvarna verða skornar nið-
Ilinn kunni bandaríski
blaðamaður, James Reston,
skrifar grein um þetta mál í
New York Times í dag. Hann
segir að Bandaríkjastjórn
flýti þessom athugunum sin-
um í og með vegna breyttrar
stjórnmálastefnu Rússa.
^ Stjórnmálasérfræðingar í
Bandaríkjunum, segir Reston,
líta þannig á, að eitt af mark-
miðunum með stjórnarbreyt-
ingu Rússa sé að fá vestrænar
þjóðir til að draga úr land-
vörnum. Þannig komi aftur
upp atvinnuleysi og örbirgð,
sem auki fylgi kommúnism-
ans. — Reuter-NTB.
Minni veiði
ÁLASNDI, 7. apríl — Um 1,3
millj. kg minna af fiski hafa nú
veiðzt í Suðurmæri og Romsdal
en á sama tíma í fyrra, að því
er nýjustu skýrslur herma.
ENVER IIOXHA — Hann er for-
sætisráðherra Albaníu og er tal-
inn eiga erfitt verk fyrir höndum
við að halda þjóð sinni í skefjum
eftir andlát Stalíns.
ar kveðja Trygve Lie
ALLSHERJARÞING Sameinuðu
þjóðanna kvaddi Trygve Lie s.l.
mánudag. En hann hefur eins og
jkunnugt er verið aðalritari sam-
takanna allt frá stofnun þeirra.
Margar ræður voru fluttar og
Lie þakkað hið mikla starf hans
í þágu samtakanra. Méðal þeirra,
sem töluðu var Thor Thors, for-
maður íslenzku sendinefndarinn-
ar á allsherjarþinginu. — Talaði
hann fyrir hönd Noregs, Dan-
merkur, Svíþjóðar, Hollands,
Belgíu, Luxemburg og íslands.
Allir ræðumenn luku miklu
lofsorði á starf Trygve Lie nema
fulltrúar Rússa og leppríkja
þeirra.
Hinn fráfarandi aðalritari
þakkaði þjóðum samtakanna
samvinnuna á undanförnum ár-
um og árnaði þeim heilla í fram-
tíðinni.
Christie svaraði ekki, er
hann var ákærður um morð
Starði aðeins úi í lcilið annars hugar
LUNDÚNUM. — Fjöldi fólks var saman kominn fyrir framan lög-
regluréttinn í vestur hluta Lundúnaborgar, er farið var með hinn
55 ára gamla skrifstofumann, John Christie, til yfirheyrslu. —
Voru það aðallega kvenmenn, sem fýsti að sjá eigin augum hinn
grunaða kvennamorðingja.
.
Fjölmargir lögregluþjónar voru
í fylgd með honum, er hann var
leiddur inn í réttarsalinn.
SVARAÐI EKKI
Christie var aðeins til yfir-
heyrslu í 5 mínútur. Hann var
náfölur, er hann var leiddur inn
í salinn og andvarpaði þunglega,
þegar hann settist niður. — Hafði
hann áður ekki svarað neinum
spurningum, sem Scotland Yard
hafði lagt fyrir hann.
NÁFÖLUR
OG ANNARS HUGAR
Christie féll hókstaflcga niður
á stólinn, er honum var sagt að
setjast, án þess að líta fram í
salinn sem var troðfullur af for-
vitnum áhorfendum og frétta-
mönnum. — Allan tímann meðan
á yfirheyrslunum stóð, sat
Christie á stól sínum án þess að
hreyfa legg né lið og starði i sí-
fellu út í loftið eins og hann væri
ekki með sjálfum sér. Er dómar-
inn hafði gefið út tilskipun þess
efnis, að hann ætti að vera í fang-
elsi, þangað til réttarhöldin yfir
honum hæfust stóð hann upp og
fór út úr salnum í lögreglufylgd
jafn annars hugar og hann hafði
I verið undir yfirheyrslunni.
Viðurkcnna BrsSar
LONDON. — Erezka stórblað-
ið News Chronicle skýrir svo
frá, að það þyki sennilegt, að
brezka stjórnin muni bráðlega
birta tilkynningu, þar sem hún
viðurkennir hina nýju 4ra
mílna landhelgi íslands og
jafnframt að brezka stjórnin
skori á brezka togaraeigcndur
að létta löndunarbanninu.
Blaðið segir að Bandaríkja-
menn séu áhugasamir um
lausn þessa deilumáls og bend
ir blaðið samtímis á það, að
ísland hafi vegna legu sinnar
mikla hernaðarlega þýðingu.
•— Reuter.
Melbourne og
Ólympíuleikarnlr
MELBOURNE, 8. apríl. — Bæj-
arstjórn Melbourne í Ástralíu
hefur ákveðið að senda tvo full-
trúa á fund alþjóða Olympíu-
nefndarinnar, sem haldinn verð-
ur í Mexikoborg 17. apríl n.k. —
Tilgangurinn með þessu er sá að
reyna að koma í veg fyrir að
annari borg en Melbourne yrði
falið að sjá um Olympíuleikana
1956. — NTB-Reuter.
Sildarvertíðinni
lokið í Noregi
NORSKA síldveiðin í vetur nam
alls 7.100.000 hl. Af því voru 6
millj. hl stórsíld og 1.1 millj hl
vorsíld. Er áætlað, að verðmæti
aflans nemi um 130 milljónum
norskra króna. — Vertíðin hófst
hinn 26. janúar s.l. og lauk henni
hinn 31. marz. — Á þeim tíma
létu alls 19 manns lífið við síld-
veiðarnar.
í fyrra veiddust um 8.8 millj.
hl og árið þar áður 9.5 millj. hl.
Hefur því síldveiðin í vetur geng-
ið heldur treglega miðað við
fyrri ár, og kenna norskir sjó-
menn veðrinu aðallega um það.
Stórsíldarveiðin var góð, en vor
síldin brásta aftur á móti gjör-
samlega. Fylgdist að gæftaleysi
og aflaleysi. Áberandi var, hve
gömlu síldveiðisvæðin við Hörðu-
land og Rodaland brugðust algjör
lega. Nokkur veiði var í Sogni og
Fyrðafylli. — Síldarinnar varð
fyrst vart 46 mílur út af Sunn-
mæri, en aðal veiðin byrjaði 16.
'ebrúar.
Á allan veiðiflotann er afli
mjög misjafn. Fengu nokkur
skip góðan afla, en önnur engan.
Meira var veitt i snurpunót en
minna í rcknet og landnætur.
FULLTRÚAR
STJÓRNARINNAR OG
ÚTGERÐARMANNA
Anthony Eden hafði þriggja
klst. fund með fulltrúum togara-
eigenda. Auk utanríkisráðherra
sátu fundinn fyrir hönd brezku
stjórnarinnar, Anthony Nutting,
varautanríkisráðherra, Mr. Nug-
ent, fulltrúi fiskimálaráðuneyt-
isins og Henderson Stewart, full-
trúi ráðuneytis þess, sem fer með
Skotlandsmál. Um 12 fulltrúar
togaraeigenda og fiskkaupmanna
mættu á fundinum.
BEIÐNI EDENS
Utanríkisráðuneytið boðaði til
fundarins, og hefur ekkert verið
skýrt opinberlega frá umræðu-
efninu, en Grimsby Evening Te!e
graph segist hafa sannar fregnir
af því að tilefni fundarins hafi
verið að Eden, utanríkisráðherrá,
bar fram tilmæli um að löndun-
arbanninu væri aflétt þegar í
stað.
TOGARAMENN 7>VERIR
Að því er blaðið segir frá
var tilætlun Edens með tillög-
unni að leitast við að koma
viðræðum við íslendinga um
þcssi mál á vingjarnlegra svið.
Er viðræðurnar höfðu staðið
yfir í á þriðja klukkutíma
geng>i stjórnarfulltrúar út úr
fundarsalnum og munu full-
trúar útgerðarmanna þá hafa
rætt einslega um tillögur
stjórnarinnar.
Það er ljóst, segir blaðið, að
úteerðarmennirnir neituðu
að þessu loknu með öllu að
fallast á beiðni brezku stjórn-
arinnar, um að aflétta lönd-
unarbanninu.
7 ára þrælkun
NÆROBÍ 8. apríl. — Afríkumað-
urinn Jomo Kenyatta var í dág
dæmdur til 7 ára þrælkunar-
vinnu fyrir að hafa stjórnað og
skipulagt Mau-Mau ógnarhreyf-
inguna. Fimm menn aðrir hlutu
einnig þyngsta dóm fyrir slík af-
brot, eða 7 ára fangelsi.
— NTB-Reuter.
Hammarskjöld
á biðinni
STOKKHÓLMI, 8. apríl —
Hammarskjöld, hinn nýkjörni
aðalritari S. Þ. hélt í dag flug-
leiðis áleiðis_til New York þar
sem hann tekur við hinu nýja
embætti sínu. Tage Erlander for-
sætisráðherra, Ur^áen utanrikis-
ráðherra o. fl. fylgdu honum til
flugvélar. —Reuter-NTB.
MADRID — 50 farþegum og 85
mönnum af áhöfn brezks skips,
sem strandaði við suðurströnd
Spánar í dag, var bjargað aí
spaenskum sjómönnum.