Morgunblaðið - 09.04.1953, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLABIÐ
Fimmtudaginn 9. apríl 19í>3
Lnuprvatiisskólmn
í NOKKRUM dagblaðanna í
Reykjavík var þann 28. marz s.l.
sagt frá brottför nemenda úr
Laugarvatnsskóla. Og nú í dag
kom í Morgunblaðinu a. m. k. all-
mikil greinargerð frá kennurum
skólans um málið. Virðist þar lagt
á tæpasta vaðið, til þess að verja
gerðir skólastjórans.
í tilefni af skrifum þessum
þykir ástæða til þess að segja
nokkur orð til varnar hinum unga
manni, sem rekinn var, og leið-
rétta missagnir og dvl«iur. Hefði
hið virðulega kennaralið vel mátt
gæta sin nokkru betur í skýrslu
sinni en raun ber vitni I frá-
sögn eins blaðsins er komist þann
ig að orði, að skilja má að skóla-
stjórnin hafi talið piltinn óreglu-
saman. Greinargerð kennaranna
er einkum vitnisburður um það,
sem skólastjóra og hinum burt-
vikna pilti, hefur farið á milli,
enda þótt vitað sé, að kennarar
hafa ekki verið viðstaddir sam-
töl beirra.
Þá er í þessari greinargerð lát-
ið í það skína, að skólastjórinn
hafi ekki rekið piltinn heldur hafi
hann tekið það upp hjá sjálfum
sér að íara. En hverjn voru þá
bekkjarbræður hans að mótmæla
með brottför sinni úr skólanum?
Er þetta ekki allt nokkuð mót-
sagnakennt, og bendir til þess, að
hér hafi verið rasað um ráð fram
og að samvizkan sé ekki góð? Um
óreglusemi hins brottrekna 15 ára
pilts er það að segja, að hann er
alger bindindismaður á vín og
tóbak. Hitt kann vel að vera, að
hann hafi ekki verið ástundunar-
samur við nám sitt og er það vit-
anlega vítavert.
Út úr greinargerð kennara má
lesa það. að fyrst fóru að verða
brögð að slælegri skólasókn af
hans hálfu eftir að hann var þó
búinn að vera í skólanum í
nokkra mánuði. Virðist svo sem
uppeldisáhrifin hafi ekki verið í
bezta lagi. Mættu hinir vísu skóla *
menn athuga það.
Þrátt fyrir yfirklór kennaranna ,
um brottrekstur piltsins verður |
að líta svo á, að skólastjóri hafi
vikið honum úr skóla, enda verð- j
ur varla hægt að skilja tilkynn-
ingu til föður piltsins á annan
veg. Ekki er vitað, að stjórn skól-
ans, hvorki skólanefnd né kenn- ;
arafundur, hafi haft afskipti af
málinu, fyrr en kennararnir láta (
nú til sín taka eftir á. Þá reyna
kennararnir að gera sem minnst
úr veikindum piltsins, virðist
^fara betur á því, 'að héraðslækn-
irinn talaði í því máli. Mun og
nánari rannsókn leiða í ljós, hvort
hér er um tilraun af hálfu kenn-
aranna að ræða, til þess að breiða
yfir mistök skólastjórans.
Því skrifar skólastjórinn ekki
undir greinargerð kennaranna,
þar sem meginefni hennar er eft-
ir honum haft og enginn til frá-
sagnar nema hann og pilturinn,
scm rekinn var?
Það að félagar piltsins fyígja
honum allir úr skólanum bendir
til þess, að þeir teiji hann röngu
beittan, annaðhvort hafðan að
einhverju leyti fyrir rangri sök,
eða aðra nemendur eins seka eða
sekari.
Vitanlega verða nemcndur að
hlita skólareglum — og skólar j
verða að gera kröfur til nemenda ^
sinna og veita þeim nauðsynlegt j
aðhald. Brottrekstur er nauðvörn |
sepa hlýtur að værða að beita með
nokkurri varúð — og að yfirlögðu
ráði. Eins sýnist vera nauðsyn- |
legt að slíkum virðuriögum sé
beitt hlutdrægnislaust, án gremju
og stórbokkaskapar.
J þessu sambandi er ástæða til
að spyrja: Voru ekki fleiri nem-
epdur, sem vanræktu nám sitt en
þessi eini piltur?
Á að skilja ummæli í greinar-
gerð kennaranna um hvarf bekkj
arbókarinnar svo, að hinn brott-
rekni piltur hafi verið valdur að
hvarfi hennar, en bekkjarbræður
hans einungis tekið sökina á sig? ^
Er ekki bókarhvarfið það mik-;
il sök, að orkað geti tvímælis,
hvort hægt sé að ganga á eftir
þeim, sem gerðu það að koma
aftur í skólann, en víkja úr skóla
eiiium nemenda, af fleirum, sem
vanræktu nám sitt?
Var ekki öðrum pilti vikið úr
skólanum fyrir sömu sakir — og
auk þess aðrar — en hann siðan
tekinn í sátt og fluttur heim aftur
í skólann af sjálfum skólastjóran-
um? Foreldrar og aðrir aðstand-
endur senda börn sín í þessa skóla
í trausti þess að vel og sómasam-
lega sé stjórnað. Skólavistin kost-
ar fé og tíma. Er ekki ástæða til
að aðstendendur fái að fylgjast
með þessu starfi skólanna fyrr en
komið er að skólalokum — að allt
er unnið fyrir gíg — og nemand-
inn brottvikinn og úthrópaður í
blöðum landsins af sjálfum læri-
feðrunum?
Fimmtán ára drengur, þótt
ákærður sé og sekur fundinn,
hlýtur að hafa rétt til að verja
mál sitt. Gagnvart svo ungum
manni getur skólinn ekki leyst
vandann á svo einfaldan hátt að
loka dyrum sinum. Nemendi hlýt-
ur að eíga'rétt sinn. Hlutdrægni
gagnvart nemendum er vitaverð.
Er ekki nokkur ástæða til að
ætla, að stjórn Laugarvatnsskóla
sé ekki eins traust og vera ber?
Virðist vera fullkomin ástæða
til að fræðslumálastjórnin láti
rannsaka þetta brottrekstrarmál
og stjórn skólans að öðru leyti.
Leyfi ég mér að beina þessu til
hlutaðeigandi yfirvaida, og að
birt verði um þetta mál skýrsla
að rannsókn lokinni, er sýni það
sanna, hver sé sekur eða saklaus
af þeim mistökum, sem fyrirvara
lítil brottför ungra nemenda úr
skóla verður að teljast.
Reykjavík, 31. marz 1953
Bolli A. Ólafsson.
Sífelldir stormar hafa' Tvær leiðréttingnr
leiitiilaWinnuleysis . ,<
áKornafirði 11™ tOnllSlöfMlll
Kirkjukór Akureyrar
héll hljóntleika
á skírdag
AKUREYRI, 7. apríl. — Kirkju-
kór Akureyrar hélt hljómleika í
Akureyrarkirkju á skírdag og
endurtók þá svo aftur á páska-
daginn á sama stað. Söngstjóri
var Jakob Tryggvason, kirkju-
organleikari. Við hljóðfærið var
frú Margrét Éiríksdóttir, píar.ó-
leikari. í kórnum eru 30 manns.
karlar og konur.
Á söngskrá voru alls 12 lög,
öll kirkjulegs efnis, eftir íslenzk
tónskáld, þá Björgvin Guðmunds
son, Áskel Siforrason, Sigvalda
Kaldalóns, Helga Helgason. Af
erlendum tónskáldum voru lög
eftir Bach, Cesar Frank, Beet-
hoven, Mendelsohn, Brahms og
íleiri.
Einsöngvarar voru Jóhann Kon
ráðsson og Kristinn Þorsteinsson.
Fullyrða má að söngurinn
væri víðasthvar með glæsibrag.
Ýmsar góðar raddir eru í kórn-
um og stjórn söngstjórans var
nákvæm og auðheyrt að kórinn
var vel samæfður. Þá var og
undirleikur frú Margrétar prýði-
legur svo sem vænta mátti.
Állmörg viðfangsefnanna voru
endurtekin, þar á meðal lög ein-
söngvaranna. — H. Vald.
HÖFN, Hornafirði, 2. apríl. —
Eins og annars staðar á landinu
var veðrátta hér einmuna góð til
landsins og mátti heita að jörð
væri fiostlaus að verða. Mikið
var farið áð grænka, en með
Maríumessu breytti um með
frosti og snjókomu. Eru nú vegir
allir í héraðinu illfærir.
GÆFTIR MJÖG STIRÐAR
Gæftir hafa verið hér með fá-
dæmum stiróar aiian marzmánuð.
Sífelldir suðvestan stormar og
hvert stórviðrið rak annað. All-
vei leu ut meo aliaDrogö í byrjun
mánaðarins, en allt verða að engu
í hinum mikla veðraham. Loðna
hefur alltaf verið næg í firðinum,
en ekki notast vegna veðranna.
Enginn fiskur veiddist á línu. Af
öliu þessu hefur leitt til atvinnu-
leysis hér í plássinu. Þrír bátar
hafa stundað netjaveiðar og afli
værið fremur litill. Skemmdir
hafa orðið miklar á veiðarfærum
í veðrunum.
Sidastuöinn þriðjudag, 31.
marz, voru þrír bátar á sjó með
línu og aðrir þrír með net. Skipti
þar nokkuð í tvö horn. Línubát-
arnir voru með 32 skippund niður
í tvö. Netabátarnir aftur á móti
með 32—38 skpd. Mun það vera
metafli hér á Hornafirði. Allt að
^ helmingur af lans var ufsi.
ENN HALDA VEÐRIN ÁFRAM
Enn halda stórviðrin áfram
þótt skipt hafi um vindátt. Svo
var veðurofsinn mikill í gær, að
ekki var við neitt ráðið Trossur
slitnuðu og hvað eina. Einn netja
bátanna kom þó með 22 skippund
af fiski úr tveim trossum, sem
hann gat dregið áður en veðrið
skall á. Aðrir bátar fengu einnig
góðan afla í það af netjunum,
sem þeir náðu upp.
BÚAST ÚT MEÐ NET
Bátar þeir, sem ekki eru með
net, eru nú að afla sér þeirra —
Eru á því miklir erfiðleikar, þar
sem sækja verður mikið af því
sem til þess þarf langt, en skipa-
samgöngur slæmar og strjálar.
Gera menn sér vonir um það hér,
að netjaveiðin geti orðið til að
bæta upp þá hörmungarútkomu,
sem veríð hefur á Hnirveiðinni á
vertíðinni. — Gunnar.
VEGNA ummæla í Morgunblað-
inu 1. april, vill undirritaður
leyfa sé rað taka fram eingöngu
þetta:
1) Fyrir liggja skrifleg vottorð
frá opinberum ábyrgum aðilum
í Þýzkalandi og Bretlandi um að
undirritaður og tónverk hans
Voru i banni á „svörtum lista“
í Þýzkalandi frá 1937 og hjá
brezka útvarpinu til 1946. Eftir
blaðaárásir í sænskum blöðum
1950 í anda þessara bannfær-
inga gaf m. a. öll stjórn Tón-
skáldafélags íslands út nauð-
synlega yfirlýsingu til árétting-
ar, og amerísk yfirvöld gáfu
1951 út ferðaleyfi (visum) handa
undirrituðum með aðstoð ís-
lenzkra stjórnarvalda. Þetta
eyddi stjórnmálalegri andstöðu
erlendis gegn undirrituðum.
2) Páll ísólfsson hefir af ásettu
ráði eða af ófyrirgefanlegu
skeytingarleysi hindrað út-
breiðslu íslenzkrar tónlistar með
I því að stöðva bréfaviðskipti við
tónlistarnefnd UNESCO í París
og American Scandinavian
Foundation í New York. Með
þessu og öðru hefir hann brugð-
ist því tarusti, sem undirritaður
og aðrir stéttarbræður hans
sýndu honum, og verður oss ekki
láð að vilja ekki treysta honum
Ilengur.
3) Aðalfundur Tónskáldafélags
íslands var löglega boðaður
löngu áður en ferðalag Páls til
Bretlands varð kunnugt og var
ekki hægt að fresta fundinum
, vegna ferðarinnar, þó að mönn-
um hefði dottið slíkt í hug.
j Bréf um 1. og 2. lið þessarar
leiðréttingar verða birt, ef menn
óska. — Undirritaður ber hins-
veear ekki ábyrgð á skrifum
„tónlistarmanna" og annara nafn-
leysingja gegn Páli og tónlistar-
deild Ríkisútvarpsins.
Reykjavík, 1/4. 1953
Jón Leifs.
hann til í stofnuninni. Eg bauðst
til að semja lista yfir öll íslenzk
tónskáld með yfirliti yfir helztu
verk þeirra. Varð hann þakklát-
ur mér fyrir þetta og undrandi,
er listinn kom, yíir því, hversu
mörg tónskáld væri til á ís’.andi.
Ég hafði dálítið af verkum ísl.
tónskálda meðíerðis, þó því mið-
ur of lítið, og gaf stofnuninni
þau, sem byrjun að safni. Eftir
að ég kom heim, urðu formanns-
skipti í Tónskáldafélagi íslands
og tók hr. Jón Leifs við af mér.
Taldi ég þá rétt, að hann og fé-
lagið héidi sambandinu við A. Si
F., því það er mikilvægt, en þar
sem formaðurinn er jafnan lang-
dvölum erlendis, er ekki hægt um
vik að ná til hans. Hafði ég feng-
ið bréf og fyrirspurnir frá A.
| S. F. Sendi ég símskeyti og bréf
til baka og beið þess að form:
. Tónskáldafélagsins kæmi heim
I til að sjá um afgreiðslu þessa
! máls. Tel ég sjálfsagt að þau séu
nú í góðurn^ höndum hjá hohum,
og að séð verði um, að verk sem
flestra ísl. tónskálda verði send
til A. S. F.
1 Ég tel mig í engu hafa brugð-
izt stéttarbræðrunum í störfum
mínum. Ég hef aldrei lagt stein
í götu þeirra, en reynt af fremsta
megni að greiða þeim götuna.
I Tel ég mér það jafnan skylt. Hins
'vegar hef ég aldrei beðið um
’ „traust" hr. Jóns Leifs og mUn
væntanlega ekki gera það. Harma
ég það mjög, ef aðrir stóttar-
bræður minir telja að ég hafi
brugðist trausti þeirra.
Læt ég svo útrætt um þetta
mál.
Páll ísólfsson.
Selfyssingar unnu
Hafnfirðinga
HAFNARFIRÐI. — í skír-
dag fór fram bridge-keppni
milli Bridgefélags Hafnarfjarðar
og Bridgefélags Selfyssmga. —
i Keppt var um fagran bikar, sem
Kaupfélag Árnesinga gaf. — Sel-
fyssingar unnu keppnina, sigr-
uðu á 1., 3. og 4 borði, en Hal'n-
firðingar á 2. og 5. Þetta er í
fimmta sinn, sem þeir vinna, og
unnu þar með bikarinn til eignar.
I í gærkv. hófst tvenndarkeppni
hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar.
—G.
Þrír ncrskir skíða-
ménn lélu lífið
OSLO — Á skírdag létu lífið
þrír Norðmenn er dvöldu á fjöll-
um við skíðaiðkun. Vorn Norð-
mennirnir allir skammt frá skíða
skála þeim er þeir dvoldu í, er
óveður skall á. Viltust þeir og
létu lífið er þeir í blindhríðinni
hrcpuðu fyrir björg. — Tveir
mannanna voru víðkunmr menn
Halfdan Hansen farmkv.^tj. og
Boman-Hansen framkv.stj. Conti-
nentalhótelsins í Oslo.
Reykjafoss haffær
á ný
VONIR stóðu til að Reykjafoss
gæti lagt úr höfn í gærkv. en sem
kunnugt er, varð stýri skipsins
fyrir skemmdum í Patreksfjarð-
arhöfn og varð það að leita hafn-
ar hér til viðgerðar, með aðstoð
varðskips. — Mestar skemmdir
urðu á svonefndum stýrisramma.
Héðan fer Reykjafoss á hafnir á
' Norðurlandi til að lesta vörur og
' siglir frá Húsavík beint til Ham-
i borgar þar sem lestaður verður
áburður. Þaðan verður siglt til
Svíþjóðar og tekið efni í fisk-
hjaila.
RITSTJ. Mbl. hefir boðið mér
að svara framanritaðri „Leið-
réttingu um tónlistarmál“ frá hr.
Jóni Leifs. Undanfarnar vikur
hafa birzt i dagblöðum bæjarins
greinar um mig, ýmist til lofs
eða lasts og get ég ekkert að því
gert. Hafði ég ákveðið að láta
slíkt afskiptalaust með öllu. En
við framanritaða „leiðréttingu“
hr. Jóns Leifs tel ég mér skylt
að bæta nokkrum skýringum, því
jafnan er hætt við að sagan sé
aðeins hálfsögð þegar einn seg-
ir frá.
Þess mun á sínum tíma hafa
verið óskað að tilnefndur væri
fulltrúi af hálfu ísl. tónlistar-
manna í tónlistarnefnd UNESCO,
sem er ein af þeim stofnunum,
sem tengdar eru Sameinuðu þjóð-
unum. Ég mun hafa verið til-
J nefndur, án minnar vitundar í
[byrjun. Hef ég síðan oft með-
• tekið ýms rit frá þessari stofn-
un. En þar sem ísland er ekki
' aðili að stofnuninni og vafasamt
1 að það verði það í framtíðinni,
eftir því sem mér hefur verið
tjáð, þá taldi ég mig ekki eiga
neinu hlutveri að gegna í þessu
sambandi, en mótmælti þegar í
byrjun, eða eftir að mér var
kunn útnefning mín, útnefning-
unni, sem ég taldi að ekki gæti
komið að verulegu gagni fyr en
ísland gerðist aðili að UNESCO.
Um „American Scandinavian
Foundation" í New York, og af-
skipti min við það góða fyrir-
tæki, er þetta að segja: A. S. F.
hefur með höndum útbreiðslu
þekkingar á skandinaviskri tón-
list í ýmsum formum. Á ferð
minni til USA fór ég persónulega
á fund forstjórans, Mr. David
Hall, og ræddi mörgum sinnum
við hann um tónlistarmál al-
mennt, og sér í lagi íslenzk. Ég
spurði hann hvort nokkuð væri
til af íslenzkri tónlist í stofnun-
inni og tjáði hann mér að hann
þekkti eitt íslenzkt tónskáld, Jón
Leifs, og væri nokkur verk eftir
Norræna bindindis-
þingið í Rvík 1953
EINS og fyrr helir verið getið,
XIX. norræna bindindisþingið
hér í Reykjavík 31. júlí í sumar
og stendur til 6. ágúst. Er nú
vitað að nokkuð á þriðja hundr-
að fulltrúa frá hinum Norður-
i löndunum sækir þingið og verður
þeim fagnað með móttökuhátíð
I í Þj óðleikhúsinu fcstudaginn 31.
íjúli kl. 19,30. Annars fara þing-
j fundir fram í Gagnfræðaskóla
í Austurbæjar. Tvær skemmti-
ferðir verða farnar í sambandi
l við þingið, önnur að Gullfossi og
Geysi, hin til Þingvalla. Auk
þess verður farið eitt kvöldið
upp að Jaðri.
Enn er óvíst hve margir fs-
lendingar sitja þingið, en
skemmtilegt væri að þeir geti
orðið sem flestir. Fer nú hver
að verða síðastur að tilkynna
þátttöku, því að umsóknarfresfur
er út runninn um miðjan apríl.
Er undirbúningsnefnd nauðsyn-
j legt að fá að vita sem fyrst hve
margir ætla að sækja þingið og
skorar hún því á menn að til-
I kynna þátttöku sína nógu tíman-
lega. Um kostnaðinn skal þeíta
| tekið fram, að þátttaka í þing-
>nu sjálfu kostar 50 krónur, ferð-
in að Geysi 121 kr. og ferðin til
Þingvalla 34 kr. Er mönnum í
sjálfsvald sett hvort þeir taka
þátt í skemmtiferðunum, en það
verða þeir að tilkynna fyrirfram,
svo vitað sé hve mikinn bílakost
*þarf til ferðanna og hve mörg-
um þurfi að sjá fyrir veitingum.
Dragi menn að tilkynna þátt-
töku'sína, geta þeir átt á hættu
að komast ekki með í skemmti-
ferðirnar.
Tilkynningar sendist Árna
Óla, ritstjóra, Langholtsvegi 77,
Reykjavík.
GAF SIG FRAM
KARLSRUHE, 7. apríl — D
Friðrik Karl Sörnemann, sei
leitað var í Þýzkalandi, þar e
hann var samstarfsmaður Nav
manns, gaf sig fram við þýz
yfirvöld í dag. —Reuter-NTB.