Morgunblaðið - 28.04.1953, Qupperneq 6
6
MORGUTSBLAÐIÐ
f>riðjudagur 28. apríl 1953
verða í Austurbæjarbíói næstk. fimmtudag kl. 11,15 e.h.
og föstudag klukkan 7 e. h.
Aðgöngumiðar að báðum hljómleikunum, seldir í Hljóð-
færahúsinu og Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur.
LES5.SE I1U1CHSMS0I\1
trompetleikari
með aðstoð tríós
STEINÞÓRS STEINGRÍMSSONAR
dægurlagasöngvari
með aðstoð enska píanóleikarans
IIos*ry Pawson
félag enskumælandi manna
SÍÐASTI SKEMMTIFUNDUR
VETRARINS
verður haldinn í ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARANUM
fimmtudagskvöld 30. aprí! kl. 8,30.
(Húsinu lokað um leið og fundurinn hefst).
1. Hinn nýji sendiherra Breta á íslandi, Mr. J. Thyne
Henderson, ávarpar fundinn.
2. Þekktur brezkur fyrirlesari, Mr. Leslie J. Brice,
M.SC., F.I.M., talar um Lundúni.
3. Einsöngur: Jón Sigurbjörnsson.
4. Dans til kl. 1 e. m. Sigfús Halldórsson syngur
vinsæl dægurlög.
Félagsmenn mega taka með«sér gesti og eru gestakort
afhent í skrifstofu Hilmars Foss, Hafnarstræti 11.
Stjórn ANGLIA.
Óháði fríkirkjusöfnuðurinn
heldur
kvötdvöku og sumarfagnað
með sameiginlegri kaffidrykkju í Breiðfirðingabúð á mifr-
vikudagskvöld 29. þ. m. kl. 8,30 stundvíslega.
Agæt skemmtiatriði, t. d. syngur Einar Sturluson,
óperusöngvari. — D a n s a ð að lokinm kaffidrykkju
til kl. 1. — Þátttakendur skrifi sig á lista í Verzl. And-
résar Andréssonar fyrir hádegi á morgun.
y Aðgöngumiðar verða seldir við inngang'inn og kosta
25 krónur cg er kaffi innifalið í verðinu.
...............................................
| Msfoðarráðskoim
: óskast að vinnuheimilinu Reykjalundi.
Launakjör samkværnt launasamningi ríkisspítalanna.
Upplýsingar gefur
Z Matráðskonan
Reykjalundi.
...........................................r........................
— Morgunblaðið með morgunkaffinu
Áfsláttur á bílaiðgjöldum i
verðlaunaskyni er hættu-
legt og ber að afnema strax
Frá aðaifnstdi Félap ísl. bifreiðaeigenda er
m 20 ára skeið hefur unnið hagnýff sfarf
Stjórn Félags ísl. bifreiðaeigenda, ásamt ritstjóra timarits félags-
ins, Ökuþór, en það er Viggó Jónsson, og er hann fremst til vinstri,
við tilið hans er Aron Guðbrandsson, þá Magnús H. Valdimarsson.
Formaður félagsins, Sverrir Torfi Sveinsson, er fyrir enda borðsins,
þá er Axel L. Sveins, Sigurður Jónasson og Oddgeir Bárðarson.
Á myndina vantar Sig. Helgason. (Ljósm. P. Thomsen).
UM þessar mundir eru liðin 20
ár frá því að Félag íslenzkra bif’-
reiðaeigenda tók til starfa hér á
landi. Hefur félagið á undanförn-
um árum látið allmikið til sín
taka urn hverskonar áhuga- og
hagnsmunamál bílaeigenda, svo
og á sviði slysavarna. Þa hefur
félagið annast hvers konar fyr-
irgreiðslu fyrir þá, sem fara ut-
an með bíla sína, en mikill fjöldi
íslendinga fer nú árlega til út-
landa með bila sína.
ÚR 40 í 500 FÉLAGSMENN
Á styrjaldarárunum iá starf-
semi félagsins mikið til alveg
niðri, en er það tók til starfa á ný,
voru félagsmenn um 40. Nú eru
þeir um 500 og fer ört fjólgandi.
Dr. Helgi Tómasson yfirlæknir,
var aðalhvatamaður að stofnun
Fél. ísl. bifreiðaeigenda, og var
formaður félagsins um langt
skeið. Á síðasta aðalfundi var
dr. Helgi gerður að heiðursfélaga
ásamt þeim Bergi G. Gíslásyni,
er mjög hefur starfað fyrir fé-
lagið og Aron Guðbrandssyni, er
átti mestan þátt í því, að koma
fótunum undir félagið á ný. —
Hefir Aron' sýnt mikinn dugnað
sem form. félagsins fyrstu fimm
árin að stríðslokum.
Á aðalfundi Fél. ísl. bifreiða-
eigenda, sem haldinn var fyrir
nokkru bar mörg hagsmunamál
á góma og gerðar um það álykt-
anir. Verður þeirra getið hér á
eftir:
ÁLYKTANIR
AÐALFUNDARINS
Aðalfundurinn skorar á rikis-
stjórnina að láta útbúa fyrir
næsta Alþingi frumv. um að
tryggingargjöld af bifreíðum
verði miðað við að allt landið
sé eitt ti’yggingarsvæði, saman-
bsr frá 1. ág. n.k. verður eitt
verð á benzíni á öllu landinu.
Skorað var eindregið á útvarps
stjóra og menntamálaráðherra að
hlutast til um að afnotagjald af
útvarpstækjum í bílum félags-
manna þeirra, sem skráðir eru
fyrir útvarpstækjum á heímilum
sínum, falli niður.
Beint var þeim tilmælum til
lögreglustjóra að hann láti lög-
regluna afgreiða benzínleyfi í
verkföllum, en ekki verkfallsað-
ila, sem í síðasta verkfalli fengu
ótakmarkað benzín til sinna
þarfa.
Fundurinn skoraði eindregið á
vátryg-gingarfélög þau, sem bif-
reiðatryggingar hafa, að afnema
nú þegar afsláttarfyrirkomulag
(bónus) það sem nú gildir, þar
sem miklar líkur má telja fyrir
því að bifreiðastjórar, sem tjóni
valda, aki burt frá unnu tjóni,
vegna hættu við að missa af af-
slætti á iðgjaldgreiðslu sinni.
TRYGGINGAR OG
BÍLAINNFLUTNINGUR
Skorað var á starfandi bif-
reiðatryggingafélög hér á landi
og fjárhagsráð, að ábyrgðartrygg
ingar bifreiða félagsmanna gildi
jafnt innanlands og í ferðalögum
utanlands.
Fundurinn beindi eindregið til
ríkisstjórnarinnar þeirri ósk, að
við innflutning fólksbifreiða
verði fullt tillit tekið til einka-
bifreiðaeigenda, þar eð flestir
allir einkabílar eru að meira eða
minna Jeyti notaðir við dagleg
störf manna.
BÍLSKÚRAR
Aðalfundurinn skorar eindreg-
ið á Fjárhagsráð að leyfa nú
þegar bifreiðaeigendum að koma
sér upp skýlum fyrir bifreiðar
og nema burtu það bann sem um
langt skeið hefur verið og valdið
hefur bifreiðaeigendum milljóna-
tjóni. Þess skal getið að margir
bifreiðaeigendur munu geta kom-
ið sér upp skýlum sér að mjög
kostnaðarlitlu og án erlends gjald
eyris.
KATTARAUGU OG ANNAÐ
í STAÐ SALTS
Skorað var á dómsmálaráðu-
neytið að fyrirskipa n úþegar að
öll reiðhjól hafi rauðan spegil
,,kattarauga“ á afturbretti og sé
hann settur ó hvítan grunn. Tel-
ur fundurinn að slík ráðstöfun
gæti stuðlað mjög að auknu um-
ferðaröryggi.
Skorað var á bæjarstjórn
Reykjavíkur að vinna að því,
að útvega annað efni í stað salts
til að forðast hálku á götum borg-
arinnar, þar sem saltið tærir und-
irvagn og aurbretti bifreiða mjög
mikið. Sömuleiðis að athuga
möguleika á a ðútvega asfalt
bitumolíur til að sprauta göturn-
ar að sumarlagi í stað sjós.
Skorað var á bæjarráð
Reykjavíkur að veita bifreiða-
eigendum leyfi til þess að reisa
skýli fyrir bifreiðar sínar og
spari með þeim því þann mikla
kostnað og áhættu sem aí því
leiðir að hafa bifreiðar úti á
götum borgarinnar allan ársins
hring.
Aðalfundur F.Í.B. fól stjórn fé-
lagsins að undirbúa og stofna
deildir, innan vébanda félags-
ins, í stærstu kaupstöðum og
bæjum landsins, fyrst og fremst
á Akureyri, Akranesi, Hafnarfirði
ög Keflavík og e. t. v. víðar.
Slæin infiúenza
í HoHuni
MYKJUNESI, 19. apríl. — Eftir
þriggja vikna norðaustanátt og
kuldatíð er nú komin sunnanátt
með lítilsháttar rigningu. Vegna
þess að frost er á ný komið á
jörð eru vegir þegar teknir að
spillast aftur eins og æfinlega
vill verða þegar klaka leysir
snögglega. Ekki hefur snjóað
neitt að ráði hér þetta liðna
kuldatímabil og samgöngur allar
verið með eðlilegum hætti.
SLÆM INFLÚENZA
Slæm inflúenza hefur gengið
hér að undanförnu. Hefur hún
víða lagzt þungt á fólk, sums
staðar hafa allir legið í einu og
hafa af þessum sökum skapazt
óþægindi. Ýmsir hafa orðið að
fá hjálp nágranna sem betur stóð
á fyrir til að hægt væri að sinna
nauðsynlegustu verkum. Borið
hefur við að fólki hefur slegið
niður aftur og hafa ýmiss slæm
eftirköst látið á sér bera. Nú
virðist sóttin vera í rénun og er
vonandi að hún deyi út við svo
búið.
SAUMANÁMSKEIÐ
Saumanámskeið stendur nú
yfir að Laugalandi á vegum kven
félagsins í Holtahreppi. Kennari
er Guðrun Kristjánsdóttir. Vegna
inflúenzunnar hefur orðið minna
úr þátttöku en efni stóðu til.
SUMARIÐ
Nú nálgast sumarið óðfluga úr
þessu. Farfuglarnir heilsa hver
eftir annan. Þeir eru að vitja
æskustöðvanna. Ef til vill er ein-
hversstaðar blettur í móa eða
mýri, sem er sérstaklega kær
og leitar ósjálfrátt á endurminn-
inguna um sólríkt sumar, sem
leið fyrr en varði. Og minning-
in um hin góðu liðnu sumur gef-
ur okkur þá von að við kunnura
að eiga gott sumar í vændum.
Gleðilegt sumar.
M. G.
Togarar bæjarúi-
gerðarinnar
INGÓLFUR ARNARSON landaði
í Reykjavík 24. þ. m. 162 tonn-
um af söltuðum þorski og ísuð-
um fiski, sem hér segir: Þorsk-
ur 15,3 tonn, ufsi 3,8 tonn, ýsa 2,2
tonn og annar fiskur 1,3 tonn.
Skipið hafði ennfremur 13,5 tonn
af lýsi og 40 tunnur af gotu. Það
fór aftur á veiðar 25. þ. m.
Skúli Magnússon fór á salt-
fiskveiðar 16. þ. m.
Hallveig Fróðadóttir fór á ís-
fiskveiðar 15. þ. m.
Jón Þorláksson landaði 22. þ.
m. ísuðum fiski, sem hér segir:
Þorskur 169 tonn, ufsi 44 tonn,
ýsa 6,6 tonn, karfi 6,9 tonn, lúða
130 kg. Ennfremur hafði skipið
7,3 tonn af gotu, 8,9 tonn af lýsi
og 8,9 tonn af grút. Skipið fór
aftur á veiðar 23. þ. m.
Þorsteinn Ingólfsson landaði
24t þ. m. ísfiski sem hér segir:
Þorskur 229 tonn, ufsi 37,5 tonn,
ýsa 6,5 tonn, karfi og annar fisk-
ur 14 tonn. Ennfremur hafði skip
ið 6 tonn af gotu og 10,8 tonn af
lýsi og 3,9 tonn af grút. Það fór
aftur á veiðar 25. þ. m.
Pétur Halldórsson fór á salt-
fiskveiðar 10. þ. m.
Jón Baldvinsson landaði 20. þ.
m. sem hér segir: Saltaður þorsk-
ur 109,8 tonn, saltaður ufsi 19
tonn. ísaður þorskur 71,8 tonn,
ísaður ufsi 12,8 tonn, ný ýsa 2,2
tonn og 100 kg af stórlúðu. Enn-
fremur hafði skipið 16,6 tonn af
mjöli, 12,5 tonn af lýsi og 8,5
tonn af grút. Það fór aftur á veið-
ar 21. þ. m.
Þorkell máni fór á saltfisks-
veiðar 11. þ. m.
í fiskverkunarstöð Bæjarút-
gerðarinnar höfðu um 180 manns
atvinnu í þessari viku við ýmiss
framleiðslustörf.
A BEZT AÐ AUGLTSA
W t MORGUNBLAÐINU