Morgunblaðið - 28.04.1953, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 28. apríl 1953
Verzlimarskélanem-
endur kveðja Vilhj.
Þ. Gíslason
HIÐ árlega nemendamót Nem-
endasambands Verzlunarskólans
fer fram að Hótel Borg fimmtu-
daginn 30. apríl. Er þetta 15. mót
sambandsins.
Nemendamót þetta verður jafn
framt kveðjusamsæti gamalla
Verzlunarskólanemenda fyrir Vil
hjálm Þ. Gíslason skólastjóra og
konu hans. Er gert ráð fyrir að
hóf þetta verði mjög fjölsótt, enda
eru útskrifaðir nemendur Vil-
hjálms nú orðnir um eða yfir
fjórtán hundruð að tölu og starf-
andi í flestum stéttum þjóðfélags
ins.
Fjyrir tilstilli Vilhjálms var
Verzlunarskólanum árið 1934,
veitt heimild til að útskrifa
stúdenta og útskrifast níundi
stúdentaárgangurinn á þessu
vori.
— Ór daglega lífinu
Framhaid af bls. Ö.
eða háralitur kvenna þeim fellur
bezt. Ekki geta það talist merki-
leg fræði. Hinsvegar væri það
vissulega ómaksins vert (ef hægt
væri), að rannsaka hugarfar
Kiljans þegar hann situr að verki
og ennfremur athuga t. d. hversu
mikið rúm lús og önnur óþrif
skipa í heildarverkum skáldsins.
En í því efni mun Gerlpla taka
öllum ritum skáldsins fram.
Leikritið á laugardaginn
LAUGARDAGSKVÖLDIÐ
var flutt í útvarpið leikritið
„Hetjur11 eftir Philip Johnson,
Höfundurinn er enskur, fæddur
um síðustu alda-
mót. Hefur hann
samið fjölda ein
þáttunga og
stærri leikrit,
sem hafa hlotið
góða dóma. Leik
ritið ,,Hetjur“ er
ekki sérstaklega
skemmtilegt en
þó er þar margt
athyglisvert. Lár
us Pálsson hafði
leikstjórnina á
hendi og lék einnig eitt af meiri-
háttar hlutverkum leiksins. Aðrir
leikendur voru Þorsteinn Ö.
Stephensen er lék læknirinn,
Inga Þórðardóttir, er lék konu
hans, Herdís Þorvaldsdóttir, er
fór með hlutverk söngkonunnar,
Rúrík Haraldsson er lék lávarð-
inn og Hóimfríður Pálsdóttir er
lék vinnukonuna. Leikendur fóru
yfirleitt vel með hlutverk sín, en
einna bezt þau Inga Þórðardóttir
og Þorsteinn.
Útvarpsleikritin er mjög vin-
sæl út um byggðir landsins og
varðár því miklu að til þeirra sé
vandað. Til gamans og til þess að
sýna hve vinsæl útvarpsleik-
ritin eru, vil ég geta þess að
gáfuð og velmenntuð sveitakona
sagði mér fyrir skömmu, að hún
hefði það fyrir sið að búa sig
upp áður en hún settist við út-
varpstækið á laugardagskvöld-
um til þess að hlusta á leikritin
og á eftir gæfi hún jafnan heim-
ilisfólkinu gott kaffi og með því!
Slíku fólki á ekki að bjóða
annað en það allra bezta.
Til minnis:
EIR sem flytja erindi í útvarp-
ið ættu að gæta þess að ekki
skráfi hátt í blöðum þeirra. —
Þetta er því miður alltof algengt,
en ákaflega hvumleitt.
Lárus
Nýr hirðmeistari
TEHERAN, 24. apríl. — írans-
keisari hefur fengið sér nýjan
hirðmeistara. Heitir sá Baha Lal
Garagoscou. — Er þess getið, að
ekkert bendi til þess, að hinn
nýi hirðmeistari sé andstæðingur
Mosadekks, forsætisráðherra.
— Reuter.
Skerst í odda mell Peron
og stjórnarandstæðBregum
Peron lætur brenna aðalbæki-
stöðvar andstæðinga sinna
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
BUENOS AIRES, 27. apríl. — Lögreglan í Buenos Aires handtók
í dag formann og varaformann radikalaflokks Argentínu. Fóru
handtökur þessar fram fyrirvaralaust og var annar maðurinn á
gangi á götu úti er lögregian tók hann.
VILDU DRAGA SIG TIL BAKA
Landsfundur flokksins stend-
ur nú yfir og hafði komið þar
.fram ályktun þar sem skorað var
á alla þá félaga flokksins sem
sæti eiga á þingi eða í bæjar-
stjórnum að segja af sér í mót-
mælaskyni við stjórnarstefnu
Perons forseta.
Þó tillaga þessi væri felld með
91 atkv. gegn 70 tók Peron til
sinna ráða og hefur nú látið hand
taka flokksforingjana.
BÆKISTÖÐVARNAR
BRENNDAR
Annar flokkur í stjórnarand-
stöðu, hægri demokratar, hefur
samþykkt að fulltrúar flokksins
á þingi og bæjarstjórnum segi af
sér. — Aðalbækistöðvar beggja
flokkanna hafa verið eyðilagðar.
Lögðu stuðningsmenn Perons eld
að húsunum í hefndarskyni
vegna sprengjukasts meðan Per-
on hélt ræðu á útifundi.
Adenauer skiplir
um skoðun
BONN 27. apríl: — Hermt er að
Adenauer forsætisráðherra Vest-
ur-Þýzkalands sé fallinn frá fyrri
ákvörðun sinni um, að leggja
samninga um Evrópuherinn og
Þýzkalandssamninginn fyrir
Heuss forseta til undirskriftar á
morgun, þriðjudag.
Þess í stað hefur hann í hyggju
að reyna að fá samningana af-
greidda í efri deild þingsins, en
hún hefur áður frestað afgreiðslu
þeirra þar til dómstóll hefur
kveðið upp úrskurð um hvort
samningarnir brjóti í bága við
stjórnarskrá landsins.
—NTB-Reuter.
McCarran-lögin
WASHINGTON, 27. apríl.
Eisenhower forseti hefir
beðið bandaríska þingið að
taka McCarran lögin til end
urskoðunar. Lög þessifjalla
um innflytjendur til Banda
ríkjanna. Neitaði Truman
að skrifa undir þau á sín-
um tíma og 7 manna nefnd
er hann skipaði til að rann-
saka þau, lagði til að þau
yrðu numin úr gildi. Allt
kom fyrir ekki. Nú er spurn
ingin hvað þingmennirnir
gera fyrir Eisenhower.
-SvarRússa
Frh. af bls. 1.
ólíklegt að Vesturveldin taki
í sínar hendur frumkvæði að
fjórveldaráðstefnu. Hins veg-
ar er líkle.gt talið að Vestur-
veldin stingi upp á ráðstefnu
aðstoðarmanna utanríkisráð-
herranna, þar sem reynt verði
að komast að samkomulagi um
austurrísku friðarsamningana.
Yrði slík uppástunga rökrétt
afleiðing þess að Rússar hafa
ekki svarað tilboði Vesturveld-
anna um fund utanríkisráðherr-
anna sjálfra, en það tilboð var
þeim sent í októbermánuði s.l.
Ætti því frumkvæðið að slíkum
fundi að koma frá Sovétríkjun-
um.
EKKI SVO LEITT
SEM ÞEIR LÁTA
Þá er og bent á þá staðreynd
að samkvæmt þessari síðustu
stjórnmálayfirlýsingu Rússa
sé þeim kalda stríðið ekki eins
leitt og þeir vilja vera láta.
Þó að þeir segist fagna hverri
tilraun sem gerð verði til
lausnar deilumálunum, þá
setja þeir alls konar skilyrði
fyrir lausn þeirra. Ef ráðstefna
verði haldin með utanríkis-
ráðherrum landanna má þar
ekki ræða nema sérstök mál
samkvæmt þeirra skoðun, m.
a. á að halda utan veggja henn
ar umræðum um yfirgang
kommúnismans í Asíu. Það
mál vilja Vesturveldin ræða á
sama grundvelli og önnur
deilumál milíi vesturs og
austurs.
- Butler
Framhald af bls. 9.
halda áfram á þessari leið, ef
tilraun hans heppnast og hann
heldur völdunum.
Erfiðleikar hans verða að sjálf-
sögðu fyrst og fremst pólitískir.
Mjög er það auðvelt og áhrifa-
ríkt fyrir stjórnarandstæðinga að
telja hann „manninn, sem gert
hefur hið daglega brauð dýrara“
og gangi honum seinna að koma
hinni fjárhagslegu endurreisn á,
en hann væntir sjálfur að ó-
reyndu máli, að þá er það íil
þess að láta þjóðina sannfærast
um það af eigin raun, að þarna
er hún komin á rétta braut, að
endurreisa hið fyrra efnahagslíf
hennar með aukinni framleiðslu-
getu, svo hún verði samkeppnis-
fær á heimamarkaðinum.
Balslev Jörgensen.
ííu ára sfarfsafmæli
Fyrsta hljómsveitin, sem Albert Klahn lék með. Hann situr annar
til vinstri í fremri röð við hlið föður síns.
Svavar Markússon
sigurvegari í
Drengjahlaupinu
DRENGJAHLAUP Ármanns fór
fram á sunnudaginn. Hlaupaleið-
in var rúmir tveir km að lengd
að þessu sinni. Sigurvegari í
hlaupinu varð Svavar Markússon
KR. í sveitakeppni sigraði Ár-
mann. Hlaut þriggja manna sveit
félagsins 7 stig, en 5 manna sveit
félagsins hlaut 18 stig.
Aðeins 10 keppendur af 14
mættu til leiks. Komu þeir allir
að marki og urðu úrslit þessi.
1. Svavar Markússon KR,
6:35,8 mín, 2. Hreiðar Jónsson Á,
16:40,2, 3. Þórir Þorsteinsson, Á,
7:26,8, 4. Helgi Jónsson UMS
Kjalnesinga, 5. Leifur Björnsson
Á, 6. Theódór Óskarsson UMF
Reykjavíkur, 7. Pálmi Jóhanns-
son Á, 8. Halldór Guðnason Á, 9.
Hreiðar Grímsson UMSK, 10.
Pétur Lárusson UMSK,
JÓHANNESBORG — Malan for-
sætisráðherra er um þessar mund
ir á ferð með konu sinni og dótt-
ur um ýmis svæði lands síns. Er
honum alls staðar mjög vel tekið
og ferð hans líkust sigurför.
Sexlíu ára starfs-
afmæli Alberfs
Klahns
i TILEFNI af 60 ára starfsaf-
mæli Alberts Klahns, hljómsveit-
arstjóra í dag, vill Lúðrasveit
Stykkishólms senda honum
kveðju sína ásamt beztu framtíð-
| aróskum.
j Við engan mann utan Stykkis-
hólmslcauptúns stendur lúðra-
sveitin í jafnmikilli þakkar-
J skuld og Albert Klahn. Frá stofn
lun hennar fyrir níu árum hefir
hann verið boðinn og búinn að
vinna henni allt það gagn, sem
hann hefur getað.
Áhugi hans á lúðrasveitinni
hefir alltaf verið jafn og ánægja
; hans sönn yfir vexti og viðgangi
hennar.
Albert Klahn hef ir útsett
fjölda verka fyrir lúðrasveitina
og einnig komið til Stykkishólms
og hjálpað til við æfingar. Fyrir
1 þetta allt þakkar lúðrasveitin
honum. A. H.
Albert Klahn hefir starfað hér
í áratugi og leikur nú með Sin-
fóníuhljómsveitinni, m. a. á tón-
leikunum í Þjóðleikhúsinu í
1 kvöld.
Léttið yður störfin
og notið hið ágæta
sem hreinsar
og fægir
fljótt og vel.
«—'ð MARKCS Eftir Ed Dodd --?
—«. -«—\u MOTHetf g"
WE'RE GOINS TO kPEAD ME A Pl
LET YOU NAME ) STOEV ONCE
HIM, FCANKIE f jABOUT A MOOSE
v._-v ^ . /ÁN 'H NAMED "LITTLE
V %y, BBITCHES"/
AV.I V 6KJOVSM© Yf C
BEItra MECtr, VY,/
----- 6NTÉSTA!i.,|NG BIG ■ —
tca’lþ
...(■’E'G VECY
AND A 6IZ£AT OUT CC-ORiSMAN '
(V
A br-U' ...
WEC.2T/ i.
>
i INW
;\'voij
nc
Tr-.'iT
PECFECT
A
NAMf.
r WHAT*S
, HIS NAME,
L AAAPK ?
FEANKIE~,'
WE'LL CALL
HIM "LITTLP
BCITGHES"^
1) — Hvað heitir hann Markús?
.— Ég ætla að lofa þér að skíra
hann.
2) — Mamma sagði sagði mér
einu sinni ævintýri um lítinn elg,
sem hét Litli þytur.
— Þá skulum við bara kalla
hann það.
3) — Mér þykir ákaflega vænt
um heimsókn Markúsar hingað
til okkar Wabanang. — Hann er
svo skemmtilegur og afburða
snjall skógamaður.
4) Hann getur þrátt fyrir það
verið sendur út af örkinni sem
spæjari. Við skulum þá vona að
enginn Indiáni veikist alvarlega
meðan hann dvelst hérna.