Morgunblaðið - 22.05.1953, Síða 14
14
MORGVNBLAÐIB
Föstudagur 22. maí 1953.-
JULIA GREER
SKÁLDSAGA EFTIR DOROTHEU CORNWELL
Framhaldssagan 13
í ruslakörfuna. Svo brosti hann
með sjálfum sér, stakk reikni-
' rtokknum ofan í skúffu og fór
út í eldhúsið til að fá sér matar-
bita. Brauð og kaffi. Fjögur egg
í ísskápnum og ostur til að búa
til eggjaköku. Agæt máltíð fyrir
inann, sem þurfti að hugsa alvar-
ieg mál.
Eiginlega snérust hugsanir har.s
um tvær stúlkur. f>orði hann að
Jeggja þá spurningu fyrir sjálfan
;' sig, hvers vegna hann hafði snúið
inn í blindgötu í kvöld til að rifja
upp gamlar endurminningar og
iiorfa á grátt hús á milli fölnaðra
: trjáa?
Hann horfði á eggin sjóða á
; pönnunni og hugsaði málið. Hann
iiafði fundið til þess hve hjálpar-
þurfi Júlia var, um leið og augu
; þeirra mættust í speglinum hjá
Cole. Annað orð var ekki til yfir
það. Hún var hjálparþurfi, enda
þótt hún væri orðin fullvaxta
;; /itúlka í allt of stórum kjól.
Þegar hann hafði fengið að vita
nafn her.nar og þegar hann hafði
frétt að hún mundi koma heim
til Trudu, hafði hann dregið skjót
ar ályktanir. Sú Júlía Greer, sem
hann hafði þekkt, hlaut að verða
einhvern veginn svona, þegar hún
yrði fullorðin. Það var skylda
hans (skylda hvers sem væri,
bætti hann við með sjálfum sér)
að stöðva þessa rás viðburðanna.
Þess vegna hafði hann gert það
sem í hans valdi stóð til að vekjá
hana til lífsins.
Hann brosti um leið og hann
snéri eggjakökunni við. Mike
Walton .. hinn miskunnsami
. Samverji .. sem elskaði mann-
fólkið yfirleitt en lét aldrei sínar
cigin tilfinningar ráða.
Scott læknir hafði tekið hana
til Trudu af ásettu ráði. Hann
þóttist þekkja þann gamla ref
nógu vel til þess að vita það.
Mike smakkaði á kökunni og
hellti kaffi í bolla úr sótugri
kaffikönnu. Hver mundi ásaka
: hann, þótt hann stæði fyrir því
að þeir þremenningarnir
skemmtu sér saman í sumar? Til
dæmis gætu þau borðað saman
fíádegisverði hér. Leikið tennis í
ídúbbnum. Farið á dansleiki, ef
■ móðir hennar leyfði það þá.
Læknirinn gat verið með, sem
nokkurs konar varaskeifa. Truda
mundi ekki þurfa að kvarta.
TrUdá Vildi losna úr þessum kunn
ingsskap á viðeigandi hátt. Sam-
kvæmt kvenlegri eðlisávísun
ííinni hafði hún ráðið að rétt væri
að koma til Sherryville einmitt af
þeirri ástæðu. Það mundi hjálpa
\þeirn báðum, ef þau hjálpuðu
ÍJúlíu í sameiningu.
; Hann ýtti frá sér diskinum og
\ tók sér sígarettu með út á pall-
íi j.nn fyrir framan húsið. Þar settist
liann.á bekk og sökkti sér niður í
endurminningarnar.
Hann hafði hitt Trudu fyrir ná
kvæmlega fimm árum .. í af-
greiðslusalnum hjá ,,New York
Record“. Þá var hann ráðinn
hjá „Todd og Irwing“ og þegar
búinn að fullvissa sig um að hann
gat staðið undir því starfi, sem
hann hafði valið sér.
Hann hafði farið þennan dag
yfir á skrifstofu blaðsins til að
_ lesa próförk af grein í sunnudags
blaðið, en í greininni var farið
Iofsamlegum orðum um það verk
sem Mike Walton hafði innt af
hendi við byggíngu á stíflu í
j Colorado.
* Truda vann á skrifstofunni hjá
;| aðalritstjóranum. Hún hafði sótt
’;j próförkina og sat vi(| hliðina á
!| honuni á meðan hann strikaði út
* og bætti ínn í.
„ÞaS ér' r.æstum áfaíþ þítt^
Joks mann, sem er ekki blindað-
ur af sinni eigin velgengni“, hafði
hún sagt, þegar hann tók að strika
út lofið um sjálfan sig og bætti
við öðrum staðreyndum.
„Eg er nú heldur ekki frægur“. |
„Þér ættuð að sjá úrklippurn-
ar um yður í skápunum okkar“,
sagði hún. „Þér eruð auðsjáanlega
einn af þeim sem verða ekki
montnir af hverju sem er“.
„Þá hef ég víst ekki meira við
þessa grein að athuga. Þér hafið
gengið vel frá henni fyrir mig“.
„Það er mitt starf að sjá um
próíarkalestur“, sagði hún. „En
1 ég leyfi mér að bæta því við að
þér eruð einmitt eins og ég vildi
gjarnan vera. Það eru svo fáir
sem vita hvað þeir vilja og hafa
hugsað sér það rétta alveg frá
upphafi14.
Hann leit undrandi á hana. H¥m
var frekar hversdagsleg stúlka,
meðalstór, allt of grönn í pilsi og
blússu. Einkennisbúningi vélrit-
'unarstúlkunnar, hvar sem var í
heiminum. Og þó var hún ekki
útlits eins og hver önnur vélrit-
unarstúlka. Hann hugsaði með sér
að sennilega hefði hún tekið þessa
stöðu í von um að komast að sem
blaðamaður þótt síðar væri. Hann
þóttist sjá það á frágangi hennar
á próförkinni, að hún hefði hæfi-
leika í þá átt. A einum stundar-
fjórðungi hafði hún hjálpað hon-
um að gera góða og fróðlega grein
úr yfirJætislegu orðfjálgi.
„Hvaða takmark eigið þér?“,
spurði hann. „Er það staða við
fréttastofuna í París?“
„Ég mundi taka lögreglufréttir
! í einhverju umdæminu hérna ef
ég fengí þær“, sagði Truda. Svo
stóð hún þreytulega á fætur og
stákk prófarkarblöðunum undir
handlegginn. „Eins og er er starf
mitt fólgið í því að sjá um þessar
leiðréttingar komist niður í setj-
arasalinn“.
Mike stóð líka á fætur. „Það
er kominn tími til að fá sér há-
degisverð", sagði hann. „Eigum
við að koma saman út og spjalla
um framtíðaráætlanir?“
Hann sá að augu hennar urðu
snögvast hvöss. —
„Til hvers ætlist þér af mér?“
,.Það hef ég þegar sagt“, sagði
hann glaðlega. „Engar gildrur og
ekkert grín. Þér verðið að koma
til að sannfæra yður um að ásetn
ingur minn er heiðarlegur“.
Hún var komin að dyrunum inn
í innri skrifstofuna og hélt um
hurðarhúninn eins og til að styðja
sig.
„Er þetta fastur siður hjá
yður?“
„Ég hef ekki gert neitt hingað
til“, sagði hann. „Ef hugboð mitt
er rétt, þá nefni ég yður við
Phile Avery á morgun. Jæja, ætl-
ið þér að sækja hattinn og koma
með mér?“
Phil hafði verið við Kolumbía-
háskólann með Mike, en var nú
aðstoðarritstjóri við sunnudags-
blað „Records". Hann sá um ljós-
myndir og niðurröðun í blaðið og
starf hans var eitt af þeim sem er
nauðsynleg við hverja blaðaút-
gáfu, enda þótt hann skrifaði ekki
beínlínis neinar greinar. Hann
setti upp tortryggnissvip, þegar
Mike nefndi Trudu við hann
næsta dag.
„Hvenær hefur þú byrjað á því
að fara á bak við aðalritstjórann,
til að útvega einhverri stúlku-
kínd atvinnu. Og hvað hefur þú
haft þennan skjólstæðing lengi?“
„Ég legg það ekki fyrir mig að
hafa skjólstæðinga“, sagði Mike.
„Mér lízt bara þannig á þessa
stúlku, að það séu einhverjar
töggur í henni til blaðamennsku.
Langar þig ekkert til að kynna
þér málið af eigin reynd?“
Avery var renglulegur ungur
maður og allt annað en ákveðinn
á svipinn. Það voru ekki nema
nánustu vinir hans sem vissu að
hann hafði mjög ákvgðnar skoð-
anir á hlutunum yfirleitt og hon-
um skjátlaðist sjaldan.
„Hringdu til hennar og segðu
henni að ég skuli tala við hana
næst þegar aðalritstjórinn er ekki
við“, sagði hann. „Ég get ekki
huesað í samhengi þegar hann
EINU SINNI var veiðimaður nokkur. sem átti sér einn
son. Dag nokkurn fór drengurinn með föður sínum til fisk-
veiða.
Þegar þeir feðgar voru komnir á staðinn, þar sem þeir
ætluðu að veiða, en það var í á nokkurri, renndi veiðimaður-
inn færinu og hafði þau orð vfir um leið, að fiskurinn, sem
hann fengi fyrst, skyldi vera fyrir velferð drengsins. Veiði-
maðurinn dró svo hvern fiskinn á fætur öðrum. Og þegar
komið var langt fram á dag sagði hann við son sinn:
„Nú fer ég heim og sæki körfu undir fiskinn. Þú verður
að líta eftir fiskunum á meðan — og alveg sérstaklega eftir
fiskinum, sem ég dró fyrst.“ En sá fiskur var öðruvísi en
hinir — hann var blóðrauður. og að öðru leyti frábrugðnari
hinum fiskunum.
I Þegar faðir drengsins var farinn, tók drengurinn rauða
fiskinn upp, klappaði honum og gældi við hann.
„Það er sannarlega glæpur að drepa svona fallegan fisk,“
'sagði hann við sjálfan sig. „Það er bezt, að ég sleppi hon-
um.“ Og hann hafði ekki fyrr sagt þetta, en fiskurinn stakkst
í vatnið og synti örlítinn spöl frá ströndinni. Hann sneri
þó bráðlega við og synti aftur til drengsins.
t Hann þakkaði drengum fyrir lífsbjörgina. Síðan tók hann
beir.'Uridan tálknupum pg kastaði því til hans.
Dansleikur
í Breiðfirðingabúð í kvöld klukkan 9
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 8
Sex manna hljómsveit
VIC ASH
skipuð fremstu jazzleikurutn Engiandbs.
Söngkonan: JUDY JOHNSON
og híjómsveit hússins
BREIÐFœBINGABÚÐ
■i
Örjóstahaldarar
Corselett
Lístykki
Magabelti
★
Takið mál sjálfar
Sendum í póstkröfu.
Skólavör'ðustíg 3
Soffía Karlsdóttir.
SNODDAS
Flottarkárlek
Charlie Trunk.
Jens Book Jensen
Half As Much
Sing a little Song.
Tino Rossi
Bonjour Amis
Les Yeux Angelina
Alice Babs
Be my lives Companion
Regnbásgránd
Lcs Paul & Mary Ford
My Baby’s Commin' Home
Lady of Spain
Ilelcn O’Conncll
S’n<í a little Song.
Body and Soul
3Níý]Oí
ilaflisplottir
SOFFÍA
KARLSDÓTTIR
Tígulkvartettinn
& Kvintett
Jan Moráveks.
Réttarsamba
Bílavísur
Kurt Foss &
Reidar Böe.
Det Ringer,
Det Ringer,
Glade Joachim.
Georg Sbearing kvintettinn
Life with Fether
Moon over Miami
Charlie Parker kvintettinn
Don’t Blame Me
Lover Man
Dizzy Gillespie
Lullaby of the Leaves
On the Allamo
Kay Starr
Comes’-A-Long-Love
Three Letters
Dean Martin
You belong to Me
Hominy Gritz
Sugar „Chile“ Robinson
Christmas Boogie
Rudolph.
Einnig nýkomið mikið úrval af 33 snúnings plötum,
DRANGEV
Laugavegi 58.
Sítrénur — Greipaldin
Höfura fyrirliggjandi dálítið af góðum sítrónum og mjög
ódýrum greipaldinum,
Síðustu forvöð að gera pantanir.
Magnús Kjoron, heildverzlun