Morgunblaðið - 25.06.1953, Side 11

Morgunblaðið - 25.06.1953, Side 11
Fimmtudagur 25. júní 1953 MORGUNBLAÐIÐ 11 ÚTVARPSRÆÐA ÓLAFS THORS Framhald af bis. 2 Sá, sem er keyptur fær borgun, eða er það ekki? Við spurðum: líorgaði Fram- sókn okkur með því að ganga inn á að afgreiða greiðsluhalla- laus fjárlög, eða með þvi að gefa verzlunina frjálsa, eða með því að samþykkja bátagjaldeyrinn, eða með stuðningi við iðnaðar- bankann? eða með fylgi við víkk un landhelginnar? eða með því að styðja tillögu Péturs Ottesen um að verja hálfum mótvirðis- sjóðnum í þágu landbúnaðarins? Eða með einhverju öðru? og þá hverju? Það stóð á svari. Loksins kom það. Framsókn sagðist hafa borgað okkur með því að lofa okkur að vinna með sér. Þá var lengi hlegið og dátt. Mega menn og sjá það af Tím- anum, að samstarfið við Fram- sókn er engum til ánægju. Ekki eykur það heldur vinsældir þeirra, sem það gera. j Nei, sannleikurinn er sá, að Framsóknarmenn hafa aldrei þurft að kaupa fylgi Sjálf- stæðisflokksins við málefni; bænda og því heldur aldrei þurft að borga það með neinu, eins og líka játað er með þessu fyndna og frumlega svari þeirra. Bændurnir hafa sjálfir sýnt Sjálfstæðisflokkn- um traust og veitt honum fylgi, engu síður en Fram- sóknarfiokknum. Það traust höfum við endurgoldið með því að efla hag bænda af fremsta megni, og svo mun á- fram verða, hvort sem Fram- sókn fellur betur eða miður. Ofbeldisárás Hannibals eina tilraunin til að fella núverandi ríkissíjórn Að öðru leyti virðist mér kosn- ingabarátta Framsóknarflokks- ins bera þess vott, að hann kvíð- ir fylgishruni. Auðskilið er, að Framsóknarílokkurinn reyni, sem aðrir flokkar að auka kjós- endafylgi sitt. En það stýrir ekki lukku í lýðræðislandi, að gera Alþingi að skrípamynd af þjóð- arviijanum, en Framsóknarflokk urinn hefur lagt á það megin- áherzlu og gerir enn, að vinna sem flest smákjördæmi fyrir at- beina hlutfallslega fámenns kjós- enda hóps. Og þessari baráttu beinir Framsóknarflokkurinn fyrst og fremst gegn Sjálfstæðis- flokknum, þeim flokki, sem á- samt með Framsóknarflokknum stendur fastast að hagsmunamál- um sveitanna. Ég get svo ekki stillt mig um, um leið og ég skil við Framsókn- Stefna Sjálfstæðisflokksins Búsnæðismál Sjálfstæðisflokkurinn telur höfuðnauðsyn að tryggja eftir föngum, að allir landsmenn geti búið í viðunandi húsnæði. Sjálfstæðisflokkurinn telur skynsamlegustu leiðina til þess vera þá- að greiða fyrir því með hagkvæm- um lánum, að hver fjölskylda geti eignast sitt eigið heimili. Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft forystu um alla meiriháttar ráðsíafanir til lausnar þessu þjóðfélags- vandamáli, efnalítið fólk getur nú imnið sjálft að hyggingu íbúða sinna, án þess að verða að greiða skatt af þeirri vinnu og ráðstafanir hafa verið gerðar af hálfu Sjálfstæðisflokksins að veita lán til smá- íbúðabygginganna, sem þegar er byrjað að úthluta. Sjálfstæðisflokkurinn vill styðja eftir föngum byggingu verkamannabústaða og samvinnubygging- arfélög. Þá leggur flokkurinn ríka áherzlu á að efla Veð- deild Landsbankans, svo unnt verði að afla almennra fasteiguaveðlána, svo sem frumvarp þeirra Magnús- ar Jónssonar og Jóhanns Hafsteins fjallaði um. Sjálfstæðisflokkurinn lýsir því yfir, að hann er andvígur öllum óeðlilegum höftum á umráðarétti manna yfir húseignum sínum, nema á algjörum neyðartímum. Jafnvægi í byggð landsins 'fc Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft forystu um, að hafin er ítarleg rannsókn á því, hversu stuðlað verði bezt að jafnvægi í hyggð landsins, þannig að unnt verði að koma í veg fyrir* fólksflótta úr sveitunum, þar sem þó kunna að vera ágæt lífsskilyrði, ef nauð- synleg aðstaða er sköpuð til framleiðslu. Sjálfstæðisflokkurinn vill veita frumbýlingum, sem landbúnað vilja stunda hin liagstæðustu lán með lágum vöxtum til kaupa á bústofni og jörð. Er þetta eitt mesta hagsmunamálið, sem lýtur að endurbygg- ingu sveitanna. Skynsamlegar leiðir aðrar verður og að finna til að landið verði fullbyggt en íbúarnir safn- ist ekki allir á fáa staði. ■fa Sjálfstæðisflokkurinn telur sjálfsagt, að miða fjárveitingar rikisins við það að stuðla að jafnvægi byggðarinnar mun meir en hingað til hefur verið gert. — -jlf Sjálfstæðisflokkurinn vill mjög efla atvinnu- framkvæmdir í dreifhýlinu og hefur í því skyni borið fram frumvarp um atvinnubótasjóð. arflokkinn að minna á, að gerð hefur verið ein og aðeins ein til- raun til að fella núverandi ríkis- stjórn. Ekki þó með þingvaldi, heldur utan þings og með of- beldi. Það var í verkfallinu mikia um síðustu áramót. — Sá heitir Hannibal, sem fyrir því þrifaverki stóð. Hann hótaði að svifta höfuðstaðinn vatni og ljósi, og jafnvel að meina sjúk- um líknar. Hann helti niður mjólk bændanna og hótaði þeim líkamlegum refsingum. Og þegar svo þessi maður, sem nefnt hefur sjálfan sig foringja stjórnarand- stöðunnar,' leggst svo lágt að guða á glugga Framsóknar og biðja sér húsaskjóls, ske þau undur, að Framsókn tekur hann upp á sína arma og reynir að tryggja honum þingsæti á kostn- að okkar samstarfsmannanna, með því að bjóða ekki fram gegn honum, en biðja sína menn að kjósa hann. Sannarlega sýnir Framsókn, að verður ef verkamaður laun- anna, og vita nú þeir, sem síðar kunna að vilja berja bændur og hella niður mjólk þeirra, að verð launanna ber að vitja til Fram- sóknarmanna. Engin orð fá lýst undrun minni yfir vesaldómi og niður- lægingu Hannibals Valdimars- sonar né viðbröðum Framsóknar flokksins gagnvart liðsbón svo ó- giftusamlegs biðils. Hygg ég þetta allt með ein- dæmum í stjórnmálasögunni. Flokkur Jónasanna Um Lýðveldisflokkinn getur varla þurft að ræða. Flest getur nú komið fyrir, en þó varla það, að þeir tveir ís- lendingar, sem mest óvirtu Jón heitinn Þorláksson meðan hann stóð í fylkingarbrjósti, þeir Jón- as Jónsson og Jónas Þorbergs- son, geti með því að gefa út blað undir ritstjórn þriðja Fram- sóknarmannsins Egils Bjarnason ar, fyrir peninga, eins hins minnst vinsæla auðmanns fs- lands, Gunnars Einarssonar, lað- að að sér Sjálfstæðismenn, með því einu, að draga við hún mann, sem var meðeigandi í verzlunar- fyrirtæki Jóns Þorlákssonar. Jón Þorláksson var maður ó- venju vitur og framsýnn, en hann sá þó áreiðanlega ekki fram á það, að fé þess fyrirtækis, sem hann lagði í hendur ungum og lítt reyndum manni, yrði var- ið til að kvarna úr flokki Jóns Þorlákssonar, undir forystu Jón- asar Jónssonar. Þess var þá heldur ekki að vænta, því það mun aldrei lán- ast. Fortíð Sjálfstæðisflokksins glæsileg, hlutverk fram- tíðarinnar þó stærra Finnist mönnum ég hafi verið of mildur í garð andstæðinganna, er það mér til afsökunar, að ég vil ekki að Sjálfstæðisflokkurinn vaxi af smæð andstæðinganna heldur af eigin verðleikum. Við Sjálfstæðismenn munum halda áfram baráttunni fyrir at- hafnafrelsinu og fyrir því, að menn séu ekki sviftir allri arðs- von með ránshendi skuldheimtu rikisins, svo sem nú er gert í allt of ríkum mæli og eingöngu vegna þess, að Sjálfstæðisflokk- urinn styðst enn ekki við meiri- hluta vald. Sjálfstæðisflokkur- inn vill, að framtak og dugnaður fái notið sín. Með því verða að- drættirnir í þjóðarbúið mestir, og því mest til skiftanna milli þjóðfélagsþegnanna. En auðnist Sjálfstæðisflokknum að skapa dugnaði og framtaki á ný þessa aðstöðu, tékur við hið stóra höfuðverkefni hans, en það er að tryggja það, að öll íslenzk börn séu borin til sem jafnastrar að- stöðu til að njóta andlegra og veraldlegra lífsgæða. Með miðl- un auðæfanna fyrir atbeina al- mannavaldsins viljum við sjá þeim borgið, sem hlotið hafa minni hæfni til fjáröflunar í vöggugjöf. ★ Sjálfstæðismenn telja fortíð óbrotgjarni klettur í clduróti stjórnmálanna. Hann er hið sam- einandi afl allra stétta Jsjóðfé- lagsins. Hann er hinn eini flokk- ur, sem bugsanlegt er að geti rsáð’ meirihluta valdi á íslandi ©g mtö sína sterkan grundvöll undir ósk ! því veitt þjóðinni þá sterku og ina um meirihlutavald á Alþingi. | öruggu forystu, sem henni ríður Það er hugsjón Sjálfstæðis- | nú meir á en oftast áður. stefnunnar, sem árabátnum | breytti í vélknúinn knör, skóp j hinn mikla verzlunarfiota ís- 1 lendinga, kcm á fót innlend- um iðnaði, flutti verzlunina inn í landið, breytti örtröð rányrkjunnar í síbreiður hinn ar miklu nýræktar, og hófst handa um hagnýtingu jarð- hita og vatnsorku í þágu landsmanna. Það vorum við Sjálfstæðis- menn, sem frumkvæði áttum og forystu höfðum í hinni miklu nýsköpun, sem hófst upp úr styrjaldarlokum og enn stendur yfir. ! Það voru líka við Sjálfstæð ismenn, sem förinni stýrðum og hraðanum réðum við end- urreisn hins islenzka lýðveld- is, og vil ég ekkert um það staðhæfa, hvort lýðveldið væri ennþá stofnað, ef við hefðum nokkru sinni linað á takinu. Síðan höfum við óslitið stýrt utanríkis- og varnarmál um þjóðarinnar og farizt það ^ þannig úr hendi, að íslending- i ar hafa sóma af. Með kurteisi j án fleðuháttar, með festu og einurð, án ofstopa, hafa Is- lendingar áunnið sér vináttu og virðingu allra þeirra þjóða,' sem okkur eru skyldastar að ætt og uppruna, menntun, menningu, lífsskoðun, trú og skapgerð. Og það er fyrst og fremst Sjálfstæðishugsjóninni að þakka, að hér býr í dag fámenn þjóð í stóru landi, við betri lífskjör en flestum öðrum þjóðum hafa fall- ið í skaut. Ég lýk máli mínu með því að gefa þjóðinni það fyrirheit ’í nafni Sjálfstæðisflokksins, að efli hún okkur ti! meirihluía valds á Alþingi, munum víð nota það til þess að efna fyrií- heit þau, sem lýsa sér í lands- fundarsamþykktum flokksins. — En við þau fyrirheit, sem að sjáífsögðu eru háð fjárbagsget- unni, vil ég nú bæta einu, án afls fyrirvara, afdráttar- og skilyrfljs lausu: Veiti þjóðin Sjálfstæðisflokkp- um meirihluta vald á Alþinjn, munum vrð taka allt ríkisbáknSð til endurskoðunar með það fyrir augum, að koma tafarlítið á rót- tækum sparnaöi mcð breyttri löggjöf. Með því og því cinu móíi er mögulegt að létta svo nm muni þær drápsklyfjar skatt- anna, sem nú eru að sli.ga alla landsmenn. Við þetta loforð skal verða staðið, ef við fáum meirihluta valtl á Alþingi. Án meirihluta valds er þetta ekki framkvæman legt, einfaldlega vegna þess, að enda þótt engin ilirfist að nrsæla gegn nauðsyn þess sparnaðar, sem er skilyrði fyrir þvi, að hægt verði að iækka skattana svo um muni, verður aldrei hæ^t að semja um það milli flokka hvað það er sem spara skuli. Af þessum ástæðum, af mörg- um öðrum ástæðum, af öllum á- stæðum, eiga menn nú sjálfs sín vegna og vegna þjóðarinnar að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og gefa honum tækifæri til að sýna hvers hann er megnugur ef hann fær að ráða. En Sjálfstæðisflokkurinn læt- ur sér ekki nægja að lifa á fornri fræð. Hann ætlar sér enn stærra hlutverk í framtíðinni. Hann hefur fram að þessu haft forystuna í framfarabaráttu þjóðarinnar, og það ætlar hann sér að gera framvegis. — Hann glímir því við vanda líðandi stundar, en hvessir jafnframt andans sjónir langt fram á veg- inn. Hann gerir sér gleggri grein en aðrir flokkar fyrir því, með hverjum hætti sé hægt að leysa ' þann mikla þjóðarvanda, að halda jafnvægi í borg og byggð. Á næsta kjörtímabili mun hann leggja megináherzlu á að leysa hið mikla húsnæðisvandamál og ! jafnframt að efla atvinnuvegi þá, | sem íslendingar nú stunda. En j flokkurinn gerir sér ljóst, að á íslandi muni um næstu aldamót húa 3—400 þúsund manna þjóö. Hann hagar því öllu starfi sínu með það fyrir augum að búa í haginn fyrir komandi kynslóðir, svo að þær fái lifað við eigi verri og helzt miklu betri kjör en við gerum. Sjálfstæðisflokkurinn hef | ur ger.t sér mikla grein fyrir með hverjum hætti þetta skuli gert, og vísa ég um það til setnihgar- ræðu minnar á síðasta landsfundi Sjálfstæðismanna, og samþykkta fundarins. Með meirihlutavaldi á Alþingi lækkar flokkurinn skattana Ég minni menn nú á, að fram- undan eru tímar alvöru og ef til vill örðugleika. Við missum nú . hina ómetanlegu Marshallað- j stoð. Verðlag afurða okkar er ó- j tryggt og' sölumarkaðir óvissir. I Við það bætist svo viðskipta- styrjöld sú, sem vinir okkar Bretar hafa fært yfir okkur. — ! Okkur ríður því mikið á þjóðar- I einingu og umfram allt að forð- I ast glundroða í stjórnmálalífinu. 1 Sjálfstæðisflokkurinn er hinn ibúð óskast Einhleyp stúlka óskar eftir 2ja herbergja íbúð, hjá kyrrlátu fólki. ÖH þægindi áskilin. Skilvís greiðsla. — Kaup á íbúð gætu komið til greina. Tilboð merkt: —• „Reglusemi — 790“, sendist afgr. Mbl., fyrir 29. þ.m. Hafið þið reynt P4TR1A, 100% Perlon sokka. Sparið peninga, gangið aðeins í PATRIA Perlon sokkum Fallegir og sterkir. Verzlunin PF.IILON Skólavörðustíg 5. 1—2 ferðaíélagar óskast í mánaðarferðalag um Evrópu frá 1. ágúst. Ek- ið verður í einkabíl. — Má borgast í islenzkum krón- um. Far með skipum pant- að. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir sunnudagskvöld, merkt: „792“. . Ungur, reglusamur maður sem vinnur á Keflavíkur- flugvelli, óskar eftir HERBERGI með eða án húsgagna, sem næst Miðbænum. Aðgangur að síma æskilegur. Tilboð merkt: „Miðbær — 799“, sendist blaðinu fyrir laug- ardag. — D-LISTINN er listi Sjálfstæðisflokksins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.