Morgunblaðið - 25.06.1953, Side 12

Morgunblaðið - 25.06.1953, Side 12
12 MORGJU N BLAÐIÐ Fimmtudagur 25. júní 1953 Guðrún Á. Símonar syngur inn á plötur hjá nor- rænum Austurríska landsliðið er skipað völdum mönnum MEÐAL farþega með millilandaflugvél Loftleiða frá Hamborg á sunnudaginn kemur, verða 20 Austurríkismenn. Eru það 17 knatt- spyrnumenn, sem hér munu leika landsleik gegn íslendingum á mánudaginn kemur og þrjá aðra leiki auk hans. Með knatt- spyrnumgönnunum verður þriggja manna fararstjórn. GUÐRÚN Á SÍMONAR hefur vakið hrifningu söngfróðra manna' STERKT LIÐ á Norðurlöndum og hlýtur viðurkenningu þeirra á þann hátt, að gefnar verða þar út plötur, sem hún hefur sungið inn á. c*>- Forsaga þessa máls er þannig, að á síðastliðnum vetri sömdu ísjenzkir Tónar við Guðrúnu um, að hún syngi inn á 2 plötur, sem séldar skyldu hér á landi. Upp- takan var framkvæmd af Ríkis- útvarpinu og tókst vel. ♦>- Guðrún A. Símonar. Þegar svo plöturnar komu til Óslóar,þar sem þær átti að herða, vakti söngur Guðrúnar slíka að- dáun hinna norsku tónlistarsér- fraeðinga, sem á hlýddu, að hljómplötufélagið Nera A/S hóf þegar samningaumleitanir við Islenzka Tóna um útgáfurétt á plötunum í Noregi. Og eftir að samningar höfðu tekizt, var Nera þess mjög hvetjandi að leitað yrði stærri markaða fyrir plöt- urnar og taldi víst, að fleiri en það mundu sjá sér hag í því að gefa þær út, svo góðar sem þær væru og vel seljanlegar. Má geta þess m. a., að sérfræð- ihgum íélagsins Nera, farast orð á þessa leið um söng Guðrúnar í bréfi til íslenzkra Tóna: „Vér höfum haft ánægjuna af að hlusta á hina ágætu söngkonu, sem túlk- ar ljóð og lag á þann hátt, að vart verður á betra kosið. Ósenni- legt er, að hérlendis sé nein slík söngkona, sem hefur þá rödd, að líkist á nokkurn hátt hinum undurfagra sópran hennar“. Sökum þessara vinsamlegu bendinga svo og hinna ágætu dóma, sem plöturnar höfðu hlot- ið í Noregi, varð það úr, að ís- lenzkir Tónar buðu hljómplötu- félögunum Cupol í Stokkhólmi og Dansk Telefunken A/S í Kaup mannahöfn útgáfurétt á plötun- um í Svíþjóð og Danmörku. Arangurinn af þessum umleit- unum varð hinn ánægjulegasti, alveg eins og í Noregi, en auk þess sem Cupol hefur fengið út- gáfurétt í Svíþjóð, hefur það og tryggt sér sölurétt á plötunum í Finnlandi. Og Dansk Telefunk- en A/S hefur fengið útgáfurétt- inn í Danmörku og mun annast söluna bæði þar og í Færeyjum. Þannig verða plöturnar gefnar út og seldar á öllum Norðurlönd- um. Á annarri plötunni eru þessi ; lög: „Svörtu augun“, rússneskt þjóðlag, og „Af rauðum vörum“, eftir Peter Kreuder, og hinni: „Svanasöngur á heiði“, eftir Sig- valda Kaldalóns, og „Dicitencello Vuie“, eftir R. Falvo, og eru þrjú fyrst töldu lögin sungin á íslenzku. Fyrri platán er þegar komin hingað og mun sala á henni hefjast einhvern næstu daga, en hin mun væntanlega verða seld hér á hausti komanda eða fyrir næstu jól. Það er vissulega mikill sigur fyrir Guðrúnu Á. Símonar, að öll þessi velþekktu, erlendu hljómplötufélög hafa svo ein- róma sýnt henni slíka viðurkenn ingu, sem nú hefur verið skýrt frá, en sigur hennar er því meiri og glæsilegri, að því athuguðu, að hún hefur aldrei til Norður- landa komið og er því óþekkt þar. Viðurkenningin grundvall- ast eingöngu á list hennar, sem hinir erlendu sérfræðingar telja sanna og mikla. Og þetta fram- lag Guðrúnar til aukinnar kynn- ingar á þjóðinni erlendis, munu Islendingar vissulega kunna að meta. MÁLFLUTNINGS- SKRIFSTOFA Einar B .GuSmnndsion Guð'laugur Þorláksson Guðmimdur Pétursson Austurstræti 7. Símar 3202, 2002. Skrif stof utími: kj. 10—12 og 1—5. I LLU kryddvörur erú ekta og þess vegna líka þær bezt. Við á- byrgjumst gæðin. — Biðjið um LILLU-KRYDD þegar þér gerið innkaup. Farþegar sem pantað hafa far með Heklu til Glasgow 29. júní n. k., sæki far- miða sína síðdegis í dag. Liðið sem til landsleiksins kem ur er mjög sterkt, að dómi austur- rískra blaða og þeirra annarra er til þekkja. Lönd Mið- og Suður- Evrópu hafa á að skipa bæði at- vinnumanna- og áhugamanna- landsliðum. Liðið sem hingað kemur er áhugamannalandslið en sumir leikmannanna eru svo sterkir að þeir eru valdir í aðal- landsliðið, sem þó að langmestu leyti er skipað atvinnumönnum. liÍÍillll Kölly úth. Lemberger bakv. Má þar til nefna markmennina báða, Gilly og Lindenberger, en þeir eru m. a. valdir til þess að •æfa með austurríska landsliðinu sem leika á í heimsméistarakeppn inni. Af öðrum mönnum, sem hingað koma og leikið hafa marg sinnis í landsliði Austurríkis og úrvalsliðum má nefna bakverð- ina báða, Kandeln og Lemberger og framherjana Halla og Kölly. Tveir af leikmönnunum sem hingað koma léku í liði Austur- ríkis á Olympíuleikunum. Er annar þeirra Grohs miðfram- herji liðsins. FARARSTJÓRN Fararstjórn skipa H. Rauscher varaforseti austurríska knatt- spyrnusambandsins, Walch verk- fræðingur, form. knattspyrnu- sambandsins í Steier og þjálfari liðsins Victor Hierlánder, sem er gamalkunnur landsliðsmaður austurrískur og lék þá útherja, en hefur nú verið þjálfari um langt skeið og nýtur trausts. FJÓRIR LEIKIR Liðið leikur hér fjóra leiki. Landsleikurinn verður á mánu- daginn, 2. leikurinn á miðviku- dag 1. júlí, síðan á föstudag 3. júlí og loks á mánudag 6. júlí. Ekki er fullráðið hverjir leiki þessa leiki gegn Austurríkismönn um en líklegt er að það verði KR, Akranes og úrvalslið Reykjavík- urfélaganna. lElft UMMÆLI KÖHLERS Köhler þjálfari ísl. landsliðs- ins, sem er Austurríkismaður og þekkir knattspyrnumennina, tel- ur þetta lið mjög sterkt. Hann er einnig ánægður með skipan hins íslenzka liðs og telur að þó íslendingana muni sennilega skorta leikni á við Austurríkis- mennina muni þeir búa yf ir meiri hraða og vera sterkari. Hann tel-' ur bæði liðin hafa möguleika til sigurs — en vonar að ísland sigri. Köhler er eftirsóttur þjálfari. Héðan fer hann til Hollands í ágúst tii að þjálfa hollenzka lið- ið er leika á í heimsmeistara- keppninni. Mun hollenzka liðið verða sent til India til æfingaó Skeyti barst frá hollenzka sam- bandinu í gær þar sem spurzt er fyrir um það hvort Köhler geti ekki losnað fyrr en í ágúst. En hvað sem því líður mun hann dvelja hér þar til landsleikjun- um við Danmörku og Noreg er lokið — vonandi með sigri Islend inga. Siggeir Bjamason sexhigur í DAG verður sextíu ára Siggeir Bjarnason verkstjóri hjá Reykja- víkurbæ. Hann er fæddur og uppalinn á Eyrarbakka, og dvaldi þar og í nærsveitunum framan af æfinni. Stundaði hann ýmsa vinnu bæði til sjós og lands. Og þótti vana- lega það rúm vel fyllt, sem hann skipaði. Hingað til bæjarins flutti hann fyrir 28 árum, og hefur búið hér síðan. Lengst af hefur Siggeir unnið hjá Reykjavíkurbæ. Fyrst almenna verkamannavinnu, en nú á seinni árum hefur hann ver- ið verkstjóri hjá gatnagerðinni. Það er nú svo, að verkstjóra- starfið er ekki alltaf vinsælt starf, því margt þarf verkstjór- inn að framkvæma, sem öðrum kann að líka miður. Fer það jafnan eftir mannkostum hvers og eins, hvernig á er haldið. En Siggeir hefur haldið vel á sínu starfi. Ákveðin en prúðmannleg framkoma hans við alla, er til fyrirmyndar. Enda nýtur hann bæði vinsælda og traust, hjá yfir- og undirmönnum sínum. Siggeir er giftur Guðrúnu Guðjónsdóttur. Mestu ágætis og myndarkonu. Eiga þau 4 börn, öll uppkomin. Búa þau á heimili foreldra sinna í hinu vistlega húsi þeirra í Stangarholti 30. Ég vil enda þessar fáu línur með hugheilum árnaðaróskum um bjarta og gæfuríka framtíð til Siggeirs og fjölskyldu hans. J. Ó. Framh. af bls. 7 og húsmæður fengu sjálfar að sauma flíkur fyrir stórum minni kostnað. Þrátt fyrir þetta hefur þó starfsmannafjöldinn í þriðju stærstu starfsgreininni, iðnaðin- um, ekki minnkað nema um 4,7% 1949—1953. Allar fullyrðingar Alþýðu- blaðsins um fjandskap Sjálfstæð- isflokksins í garð iðnaðarins eru því hreinn uppspuni frá rgtum. Framhald af bls. 0 uj, kippi í Alþýðublaðinu í hvert skipti, sem peningamennirnir við Varðberg toga í hann. Hannibal hefur fátt vel gart frá því að hann tók við forysiu Alþýðuflokksins. Kjósendur mega- þó vera honum þakklátir fyrir ábendingarnar um raun- verulegt eðii og tilgang Varð- bergs framboðsins. Áhrif þess geta orðið þau ein, að efla völd vinstri flokkanna svo, að þeir geti magnað höft, látið fjárhags- ráð fá meiri yfirráð og komið öðru því illu til leiðar, sem upp- lesarinn í fyrsta sæti flokks þessa lýsti sig sérstaklega andvígan. Óskar Norðmann hefur að vísu gert sitt til að kalla yfir sig og aðra þann ófarnað, sem hann var að vara við. Reykvízkir kjósend- ur munu þó áreiðanlega hafa vit fyrir honum og greiða Sjálfstæð- isflokknum svo mörg atkvæði, að unnt verði að afnema fjárhags- ráð ,auka verzlunarfrelsið og tryggja athafnalíf í landinu. Framhald af bls. 10 manninn, sem hrópár til and- stöðuflokksins ,í angist sinni, að hann hjálpi sér og styðji svo að hann ekki falli, gegn þvi aftur á móti að útvega þeim flokki rýflega tölu atkvæða. Af því, sem hér hefur verið sagt, má það ljóst vera, hversu | tilgangslaust það er að láta at- kvæði sitt á Benedikt, frambjóð- anda AlþýÁuflokksins, þar sem í fyrsta lagi, að það er víðs fjarri, að hann hafi nokkra möguleika á því að komast á þing, og svo annað hitt, að kæmist hann á þing, sem uppbótarþingmaður, þá myndi hann bara afhenda þeim næsta umboð sitt fyrir þing mennsku sinni. Þess vegna m.a. munu nú borg- firskir kjósendur hafna honum algjörlega, en fylkja sér fastar en nokkru sinni fyrr um þing- mann sinn, Pétur Ottesen, og votta honum þannig verðugt traust sitt. Jökull. Ám^rískar Skápslæsingar Höldnr Smekklegar — lágt verð. BEYHJAVÍR MARKÚS Eftir Ed Dodd ÍI THINK yOU'D BETTER TAKe) a look at frankie, eia s HEART... HE'S NOT FEELING ) 1) — Franklín, þú ættir að lítal á Farnk. Það gengur eitthvað aðl honum. 1 2) — Seinna. 3) — Franklín, hvað er að hon- um? — Ég veit það ekki enn. 4) Um miðnætti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.