Morgunblaðið - 25.06.1953, Page 16

Morgunblaðið - 25.06.1953, Page 16
Veðurútlif í dag: SA og A gola, skýjað en víðast úrkomulaust. 139. tbl. — Fimmtudagur 25. júní 1953 BLÓÐFERILL kommúnismans. Sjá bls. 6. IJTIFLIMDIJR Fundur síldar- raimrannsókna- Síðasti kjósendafundur Sjálfstæðis -jmamia austur á manna fyrir þessar alþingiskosningar (Seyðisfirði í dag verður haldinn annað kvöld kl. 9 við Mlð- hæjarskólann. Flullar verða stullar ræður og ávörp. Málefnayiirburðir SjáHstæðismanna 1 útvarpsumræðunum í ÚTVARPSUMRÆÐTJNUM í gærkvöldi báru ræðumenn Sjálf- stæðisflokksins af andstæðingum sínum um málefnaflutning, rök- vísi og stefnufestu, svo sem fyrra kvöldið. SEYÐISFIRÐI, 24. júní: — Hing- að er komið hið danska hafrann- sóknaskip, Dana, en á morgun koma hingað þrjú hafrannsókna- skip önnur, en þau hafa öll verið við síldarrannsónkir. Munu fiski- fræðingarnir bera saman gögn sín og athuganir. Skipin hafa verið um nokkra vikna skeið við athuganir í haf- inu hér austur af Iandinu. Nú hafa Svíar tekið þátt í þessum síldarrannsóknum og mun rann- sóknaskip þeirra koma hingað ásamt Dana, G. O. Sars og Maríu Júlíu. — Benedikt. Bjarni Benediktsson, utanríkis- ráðherra flutti framúrskarandi rökfasta ræðu. Gegndi furðu hversu miklu efni hann þjappaði saman í stutt mál. Hann rakti meginkjarna íslenzkra stjórn- mála síðustu ára og vék síðan að minnihlutaflokkunum. • Sýndi hann fram á missagnirn- ar í málflutningi þeirra, hvernig allt ræki sig á annars horn, svo sem hjá hinum tvíklofna Lýð- veldisflokki. Þar hefði Ásgeir frá Fróðá heimtað í ræðu sinni í fyrrakvöld algjört varnarleysi landsins. Síðar um kvöldið sá Jónas Guðmundsson sig tilneydd- an að biðja afsökunar á slíkri ósk og tók orð Ásgeirs aftur. Þá mælti Jónas og þau spak- legu orð, að sérhver þjóð sem hefði marga flokka lenti í öng- þveiti og því væri nauðsynlegt að stofna nýjan flokk til að greiða úr því! Eina ráðið til að tryggja ís- lenzku þjóðinni frið og farsæld. um ókomin ár, sagði ráðherrann, er að efla Sjálfstæðisflokkinn og fá honum meirihlutavald í hend- ur. Vitnaði ráðherrann í orð eins elzta þingmanns flokksins, Pét- urs Ottesens, en hann markaði stefnu flokksins með þessum þremur orðúm: Öryggi, frelsi og framfarir. Gunnar Thoroddsen borgar- stjóri rakti hvernig útsvörin í Reykjavík hefðu lækkað undir meirihlutastjórn Sjálfstæðis- manna á bænum, en skattar af hálfu ríkisins aftur á móti ekki. Þá minntist hann og á Iðnbank- ann, sem Sjálfstæðismenn hafa haft forgöngu um,. og þýðingu hans fyrir atvinnulíf þjóðarinn- ar. Vék hann að lokum að tilraun Alþýðuflokksins að hlaða undir sig með nafni Ásgeirs Ásgeirs- sonar og vítti það harðlega. Að lokum flut.ti Jóhann Haf- stein bráðsnjalla ræðu. Svaraði hann andstæðingunum í upp- hafi og sýndi hann fram á í stórum dráttum, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði ávallt frá stofnun sinni verið kvaddur til, þegar hætta hefði steðjað að í þjóðmálunum og ævinlega met- ið þjóðarhag meira en flokkshag. Leiddi Jóhann rök að því, að festu og öryggi yrði því aðeiffs komið í íslenzkt stjórnarfar með því, að fá Sjálfstæðisflokknum meirihlutavald í hendur. Góðar heyskapar- horfur í | Fljótsdalnum SKRIÐUKLAUSTRI, 24. júní: — . Hér í Fljótsdalnum hefur júní- mánuður verið svo hagstæður, að slík ágætis veðrátta hefur ekki verið um margra ára skeið. I dag er heitasti dagur ársins, 20 stig, en síðustu daga hefur hitinn ver- ið um 15 stig. Undanfarið hefur ringt nokkuð og hefur sprottið mjög vel og grasvöxtur með bezta móti. — Teljum við hey- skaparhorfur góðar, en hér á j Skriðuklaustri og að Hamborg og Hrafnkelsstöðum er byrjað að slá. Þessa dagana er verið að smala og ryja, en margt er farið til af- réttta. Á mánudaginn var ég á Vopna- firði og var þá sláttur hafinn í (kauptúninu. Á heiðum uppi er vel gróið og snjólítið. — J. Kosningaskrifstofur Sjálfstæðisflokksins KOSNINGASKRISTOFUR Sjálfstæðisflokksins í Rvík eru í Sjálfstæðishúsinu. Sími 7100 og í VR, Vonarstræti 4 (utankjör- staðakosning. — Símar 7100 og 2938. Skrifstofurnar eru opnar frá 9 árd. til 10 síðd. daglega. Utankjörstaðakosningin fer fram í skrifstofu borgarfógeta í Arnarhvolí (nýja húsinu) frá 10 til 12, 2 til 6 og 8 til 10 dag hvern. Á öðrum stöðum á landinu er kosið hjá hreppstjórum, sýslumönn- um og bæjarfógetum. Þeir kjósendur, sem búast við að dvelja fjarrl lögheimilum sín- um á kjördag, eru minntir á að kjósa sem allra fyrst. LISTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS ER D-LISTINN. , ,J* Fundur í Samlgerði á föstudagskvöld SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN boðar til stjórnmálafundar í sam- koniuhúsinu í Sandgerði kl. 9 síðd. föstudaginn 26. þ. m. Frummælendur: Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins, «g mun hann ræða um landhelgismálið og Ásgeir Pétursson, lögftæðingui'. Komst til liafnar hjálparlaust BÁTURINN, sem bræðurnir tveir voru á og lýst var eftir í fyrra- kvöld, komst heilu og höldnu hingað til Reykjavíkur um kl. 2 í fyrrinótt. Hafði þá nokkru áður farið út til að leita hans, annar bátur. Sunnan hvassvirði, sem var á daglangt, hafði tafið .þá. „Hitahylgja44 r O \* f* \* a ðeyoisnroi - 25 stiga hiti FRÉTTARITARI Morgunblaðsins á Seyðisfirði símaði í gær, að þar væru nú hinir mestu hitar, ósvik- in hitabylgja síðustu daga. Fréttaritarinn kvað hitann á þriðjudag hafa komizt upp í 25 stig í forsælunni og í fyrrinótt var þar 20 stiga hiti. í gær var þar sama góða veðrið, glampandi sólskin og steikjandi hiti, 24 stig og hægviðri. Þar eystra hófst túnasláttur í gærmorgun, en tún bænda eru vel sprottin og álíka grasgefin og við júlílok á undan- förnum árum. Sjálfslæðismenn! SJÁLFSTÆÐISMENN, sem vilja vinna við skriftir í sjálf- boðaliðsvinnu í dag, eru beðn- ir að hafa samband við skrif- stofu flokksins, sími 7100. HAFTASTEFNAN hér á landi náði hámarki sínu 1949, en fyrir tveimur áratugum hafði samstjórn Framsóknar og Aiþýðuflokksins tekið höftin upp sem allsherjarmeðal við gjaldeyrisskorti, sem reyndist þó alls óhæft eins og öllum Iandsmönnum er kunnugt. Fram að árinu 1950, þegar Sjálfstæðismcnn mynduðu ein- ir stjórn, ríkti hér svartur markaður í algleymingi, skömmt- un, biðraðir, bakdyraverzlun og vöruokur, innflútningur var bundinn og allt efnahagslífið ströngum Ieyfum háð. Sjálfstæðismenn báru fram viðreisnartillögur sínar 1950, og á grundvelli þeirra og undir stjórn þeirra á viðskipta- málum þjóðarinnar, hefur einokun haftanna horfið úr ís- lenzku þjóðlífi og á aldrei þangað afturkvæmt meðan Sjálf- stæðismenn fara með völdin. Skömmtunin var afnumin, viðskiptanefnd lögð niður, vöruinnflutningur gefinn 75% frjáls á frílista, svartur markaður hvarf með öllu og verzl- anir fylltust af vörum. Dómur þjóðarinnar bezti dómurinn um stefnu Sjálfstæð- ismanna í verzlunarmálum. Sjálfstæðismenn munu sporna við því af alefli, að verzlun landsmanna verði aftur hneppt í fjötra nefndavalds og skriffinnsku, sem Framsókn og Alþýðuflokkurinn brugðu henni. — Stefna verzlunarfrelsis, en ekki svarta- markaðar og biðraða er stefna hans. Utanríkisráðherrann ræðir stjórn- málaviðhorfið á fundi í Njarðvíkum SJÁLFSTÆÐISMENN á Keflavíkurflugvelli héldu samkomu í Njarðvíkum (Rauða krossinum) á mánudagskvöldið. Bjarni Bene- diktsson, utanríkisráðherra, flutti þar ræðu. Svo mikið fjölmenní var á fundinum að varla komst það fyrir í samkomuhúsinu, sem þo er hið stærsta í byggðarlaginu. „Tómar flöskur" MJÖG hafa menn orð á því, að mikið vasapelafyllirí hafi verið á útiskemmtun kommúnista s.l. laugardagskvöld. Minnir það menn á, að þegar kommúnistar héldu slikt mót 1950 auglýstu þeir sérstaklega eftir tómum flöskum. „Þeir félagar og aðrir velunn- arar flokksins, sem gætu iánað okkur hvaða magn sem væri af ofangrcindri vöru eru vinsam- lega beðnir að hringja í síma 7511 “ ' Utanríkisráðherra flutti langa og ítarlega ræðu og var henni tekið með miklum fögnuði. i VAXANDI VINSÆLDIR Okkur Sjálfstæðismönnum þyk- , ir því meira til Bjarna Benedikts- I sonar koma, mikilhæfni hans Og málflutnings alls, sem við kynn- ! umst honum betur. Okkur er það gleðiefni, hversu áberandi vin- sældir þessa manns, sem mest er rægður af andstæðingunum, fara vaxandi hér á Suðurnesjum. Ætti þó óhróðurinn, ef við rök ætti að styðjast, hvergi að falla í betri jarðveg, því hér þekkja menn bezt af eigin raun margt af því, sem harðast er deilt á ráðherrann að ósekju fyrir. Öll fór samkundan hið bezta fram. D-LISTINN er listi Sjálfstæðisflokksins Sjálfslæðisflokkurinn vill leggja Fjárhagsráð niður VERKEFNI Fjárhagsráðs, eins og nú standa sakir, er aðeins eftirlit með fjárfestingu ásamt fjárfestingar- leyfum og leyfisveitingar í sambandi við tæp- an þriðja hluta innflutningsins. Þegar haftaskipulag Framsóknar og Alþýðuflokksins náði hámarki sínu 1949 var Fjárhagsráð nauðsynleg stofnun, en eftir að Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft forgöngu um að gefa verzlunina frjálsa og aflétta helsi banna og boða af þjóðinni, er Fjárhagsráð orðin óþörf stofnun. Björn Ólafsson hefur fyrir hönd Sjálfstæðisflokks- ins í ríkisstjórninni lagt til að ráðið yrði lagt niður, og er það stefna Sjálfstæðisflokksins. Breyting þessi mundi hafa í för með sér um 600 þús. kr. sparnað á ári, enda er óverjandi að halda uppi svo stórri stofn- un að nauðsynjalausu. Slíkt spor myndi verða ríkur þáttur í herferð Sjálf- stæðisflokksins gegn hverskonar nefndavaldi, höml- um og óþörfum takmörkunum á frelsi borgaranna. Veitið Sjálfstæðisflokknum vald til að fram- kvæmda þá stefnu!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.