Morgunblaðið - 26.06.1953, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.06.1953, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 26. júní 1953 — Ræða Bjarna Framhald af bls. 9. hina reyndari menn í Alþýðu- flokknum fýsir ekki til einhliða samvinnu við Framsókn. EYSTEINN ÍHALDSSAMASTI Enda hafði jafnvel Hannibal Valdimarsson á sínum tíma þau ummæli um Eystein Jónsson, að Sjálfstæðismenn liefðu gert hann að fjármálaráðherra í nú- verandi ríkisstjórn, af því að hann væri íhaldssamari en nokk ur sá, sem „íhaldið“ sjálft hefði upp á að bjóða. En skjótlega fór að þjóta öðru vísi í skjánum þeim, þegar hinn hýi formaður Alþýðuflokksins gerði sér grein fyrir, að hann af eigin rammleik flokks síns væri vonlaus um að ná kosningu í því kjördæmi, sem Alþýðuflokknum fram að þessu hefur verið talið tryggast á íslandi. Þá birtust honum skyndilega dásemdir Framsóknar, og hann fór að tala um þörfina á „stjórn hinna vinn- andi stétta“. EKKI YRÐI ÞAÐ SIGURSTRANGLEGT Það er Alþýðuflokksmanna sjálfra að dæma um hversu sigur stranglegt eða gifturíkt það yrði fyrir þá, að taka upp samvinnu við Framsókn, ef formaður flokksins ætti þingsæti sitt undir náð Framsóknar. Lítill var hlut- ur Alþýðuflokksins í slíku sam- starfi áður, en vesælli mundi hann verða ef þetta bæri að, og dýrkeypt reynsla yrði það fyrir verkalýð og allan almenning og þess vegna munu kjósendur ekki leggja því lið, að svo verði. ENGIN ÞINGRÆÐISSTJÓRN MÖGULEG NEMA ÞESSI En hvers vegna hefur Sjálf- stæðisflokkurinn þá unnið með Framsókn? Því er fljótsvarað. Það er vegna þess, að með engum öðrum hætti hefur verið hægt að halda uppi þingræðis stjórn hér á landi undanfarin ár. Þess er ekki að dyljast, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur hlot ið ámæli ýmissa fyrir þetta sam- starf, og vitanlega hefur stjórn landsins í því orðið með ailt öðr- um og verri hætti, en verða mundi, ef við fengjum einir ráð- ið. Aðstaða Sjálfstæðisflokksins í slíku samstarfi er þó öll önnur en Alþýðuflokksins. Sjálfstæðis- flokkurinn er langstærsti flokk- ur landsins og lætur ekki bjóða sér og málefnum sínum sömu kjör og Alþýðuflokkurinn hefur orðið að lúta. TEYGÐUR f FRELSISÁTT Reynslan er og sú, að gagn- stætt því sem orðið hefur, þegar Alþýðuflokkur og Framsókn hafa unnið saman, þá hefur Sjálf stæðisflokknum nú tekist að teygja Framsóknarflokkinn veru lega í frelsisáít, svo sem áður var sagt. Okkur hefur tekist að marka stjórnarstefnuna í flestu því, sem til bóta hefur horít, enda sýna viðbrögð hinna verri og vinstri afla í Framsóknar- flokknum, að þau telja okkur hafa ráðið of mikiu undanfarin ár, og koma þar af þær kveðjur, sem okkur öðru hvoru eru send- ar. Það er mjög eðlilegt, að ýmsir séu orðnir þreyttir á öllu stjórn- málaþvarginu. Menn deila hart og stundum úr hófi, en vinna svo saman á eftir eins og ekkert hafi í skorizt. Ég skal leiða hjá mér að svara ásökunum samstarfsmanna minna, einkum Eysteins Jónsson ar, gegn okkur Sjálfstæðismönn- um, enda svaraði Ólafur Thors fyrirfram öllu tali þeirra 1 sintii ágætu ræðu í gær. ERFIÐLEIKAR SAMSTJÓRNA En þess er ekki að dyljast, að margvíslegir erfiðleikar og ill- indi hljóta að fylgja stöðugum samstjórnum. Þar fær enginn komið fram vilja sínum til fulls og þess vegna geta allir með réttu sagt, að öðru vísi hefði far- ið, ef þeir hefðu einir fengið að ráða. Þess vegna verður stefnan ekki nógu skýrt mörkuð, úrræð- in ekki nógu haldgóð og viljinn til að fylgja þeim ekki nógu ein- beittur. FLOKKAMERGÐIN HEFIR GEFIZT ILLA Bótin við þessu er ekki sú, að stofna fleiri flokka, er aðeins mundu auka á glundroðann og steypa þjóðfélagi okkar í sama úrræðaleysið og við nú sjáum í Frakklandi, þar sem aðalflokk- arnir eru 6 og gera hver annan með öllu máttlausa. Svo að ekki sé talað um Þýzkaland á lýðveld- istímunum, er enduðu í ógnar- stjórn Hitlers vegna flokkamergð arinnar og meirihlutaleysisins, sem af henni stafaði. Úrræðið er hitt, að efla einn flokk til valda, þannig að hon- um gefist færi á að leysa vand- ann með þeim ráðum, er hann telur bezt, og standi svo ábyrg- ur gerða sinna fyrir kjósendum, svo að ekki verði um villst, þeg- ar til kosninga kemur, hver á- byrgðina ber og um hvaða kosti er að velja. Reykjavíkurbæ hefur vegnað betur en öðrum stöðum á landi hér vegna þess, að svona hefur tekist til um stjórn hans. — A sama veg þarf að verða um stjórn landsins alls. ÖRYGGI, FRELSI, FRAMFARIR Eini flokkurinn, sem hefur nokkrar líkur til þess að fá einn hreinan meirihluta, er Sjálfstæð isflokkurinn. Veitið honum þá að stöðu og þá mun vel fara. Sá maður, sem lengst allra þeirra, er nú lifa, hefur setið á Alþingi. íslendinga, Pétur Otte- sen, markaði nýlega stefnu Sjálf stæðisflokksins með þrem orð- um: Öryggi, frelsi og framfarir. Undir þessu merki skulum við sækja fram til sigurs. D-LISTINN er listi Sjálfstæðisflokksins I sóhkinukapi á leið iil íslamh UM BORÐ í „HEKLU“, 25. júní: — „Hekla“ fór frá Kaupmanna- höfn 23. júní kl. 10 að kvöldi. Hríf andi sjón blasti við augum í gær- kveldi, þegar siglt var gegnum Eyrarsund. Fjölmörg bál höfðu verið kveikt á austurströnd Sjá- lands og flugeldum var þar skot- ið í tilefni af Jónsmessuhátíðinni sem í Danmörku er helguð Sankti Hans. Siglt er nú sléttan sjó áleiðis til Færeyja. Farþegar eru í sól- skinsskapi o g almenn hrifning í ferðinni. Við komum heim á sunnudag. Kærar kveðjur frá okkur öllum. — Ingólfur og Skúli. - Smáíbúðahverfið Frh. af bls. 1. Heimili án eigin húss er að nokkru leyti aðeins_ draumur, sem á eftir að rætast. í smáíbúða- hverfunum sjáum við fyrir okk- ur glæsilegust dæmi um það í hverju hið frjálsa framtak ein- staklingsins er fólgið og hverju það fær áorkað. Haftastefnan, sem samstarf vinstri flokkanna leiddi yfir þjóðina er nú, fyrir ötula baráttu Sjálfstæðismanna, að syngja sitt síðasta vers. Með nýjum sigrum sjálfstæð- isstefnunnar, sem Sjálfstæðis- flokurin einn getur framkvæmt, munu síðustu leyfar haftastefnu krata og Framsóknarmanna verða þurrkaðar út og fólkið geta aftur gengið frjálst að starfi fyrir sig, land sitt og þjóð. - Sové! - fslaivd Framh. af bls. 6 nekra yfirvalda, yrði starfs- ferill hans varla ýkja lang- ur. ÞÁ komum við að þeim odd- vita kommúnistadeildarinn- ar íslenzku, sem reykvízkir kommúnistar bera mest traust til, hinum grandvara formanni Dagsbrúnar, Sig- urði Guðnasyni. Hann hefur nýlega lýst því yfir hér í Morguriblað-; inu, að hann sé fyrst og fremst sósíalisti og íslend- ingur. Honum verður ekki lagt til lats að hann geti ekki gert sér grein fyrir hvílík ó'eysanleg þraut það er að vera hvort tveggja í senn, ættjarðarvinur og kommún- isti. En afsökun hans er fvrst og fremst sú, eins og hann sjálfur hefur skýrt frá, að hann er gjörsamlega ókunn- ugur því, sem er að gerast í heiminum. Orðsending !il Sjálfsfæððsfélks Á KJÖRDAG þarf Sjálfstæðis- flokkurinn á liðsinni allra stuðn- ingsmanna sinna að halda. Þeir Sjálfstæðismenn og konur, sem mögulega geta eru því beðin að vinna fyrir flokkinn. Störf þau, sem leysa þarf af hendi eru margvísleg og eru þar verk að vinna við allra hæfi. Ekki er nauðsynlegt að menn bindi sig við störf allan daginn, ef menn eiga óhægt með það. Þeir sem vilja vinna einhverja sjálfboðavinnu fyrir flokkinn á kjördegi eru því vinsamlega beðnir að tíma í 7100, 82708 og 2938 og láta skrá nöí'n sín í dag eða á morgun. Styðjið ötullega að sigri Sjálfstæðisflokksins með því að vinna sjálfboðaliðsvinnu á kjördag. Hikil ös í fðnaðar- bankaflum í gær IÐNAÐARBANKINN var opnað- ur kl. 10 í gærmorgun, og var þá þegar mikil ös í bankanum. Hafði margt manna safnazt þar saman og biðröð var við afgreiðsluborð- ið. Á tímanum frá kl. 10 f.h. til kl. 1,30 e.h. voru opnaðir á annað hundrað reikningar í bankanum. Meðal fyrsíu viðskiptavinanna var Gunnar Thoro-ddsen borgar- stjóri, sem einnig kom til þess að færa forráðamönnum bankans heillaóskir með stofnun hans. Aðalfundur Iðnaðarbankans var haldinn ,í gær. Bankaráðið var endurkosið, og samþykkt til- laga þess efnis, að feia ráðinu að tryggja bankanum framtíðar- húsnæði með því að útvega byggingarlóð og annast annan undirbúning. x DILISTINN Alikálfakjöt í heildsölu og smásölu. ^JJlötuerzlunm Uiírfelt Sími 82750 og 1506. Gisti- og veitingastaður opnaður að VarmaBandi í Bnrgarfirði Þessi nýi gististaður er mjög vel í sveit settur, stendur í þjóðbraut í fögru umhverfi. Þaðan er aðeins fárra mín- útna akstur til margra fegurstu staða Borgarfjarðarhér- aðs, svo sem Hreðavatns, Baulu, Laxfoss og Glanna, og stutt í allar helztu veiðiár Borgarfjarðar. Gistihúsið er raflýst, heitt og kalt vatn á hverju her- bergi, rúmgóður borðsalur og setustofa. — Sundlaug á staðndfn. — Veitingastaðurinn mun taka jafnt á móti hópum fólks sem einstaklingum. Upplýsingasími í Reykjavík 82240. — Hótelsími gegn um Svignaskarð. Komið — Borðið — Gistið að Hótel Varmalandi. M A R K Ú S Eftir Ed Dodd Fjölritun og vélritun annast Fjölritunarstofa F. Briem Tjarnargötu 24. — Sími 2250. Ailtaf er það LILLU-súkkulaði, sem líkar bezt. 1) — Gerðu svo vel að koma inn, Markús. 2) — Þakka þér fyrir, læknir. Ég hefi verið að leita að hinni týndu játningu, en .... 3) — Við verðum að láta það j sitja á hakanum um stundarsak- ir, Markús. Nú hefi ég annað miklu alvarlegra að segja þér. ■ 4) — Mannstu eítir blóðmaurn um, sem Frank litli var með á sér? Hann virðist nú bera þess öll einkenni að vera með út-i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.