Morgunblaðið - 23.07.1953, Side 5

Morgunblaðið - 23.07.1953, Side 5
Fimmtudagur 23. júlí 1953 MORGUNBLAÐIÐ 5 AKUREYRARBRÉF Hafnsögumaður í Kevkia- ENN er það tíðarfarið, sem fyrst og síðast er umrœðuefni manna á meðal. Seinni hluta vetrar og snemma í vor var það fannferg- ið, síðan var það veðurblíðan og þurrkarnir í vor og nú síðast eru það óþurrkarnir í sláttarbyrjun. í>að er í rauninni ekki að furða þótt menn tali mikið um veðrið, þar sem tveir aðal atvinnuvegir þjóðarinnar eru svo mjÖg háðir tíðarfarinu. Við sjávarsíðuna eru var komin góð slægja á útengj- um víða hér í Eyjafirði. — Það verður því ekki kvartað undan slæmu vori eða lélegri sprettu að þessu sinni. Gróður, bæði til nytja og prýði, hefur sjaldan verið blómlegri og fegurri á þess um tíma. Og þetta kemur ekki einungis bændum til góða hvað heyfeng snertir. Bithagar eru að sjáifsögðu engin undantekning með góða sprettu. Búpeningur Hólakirkja í Eyjafirði. (Ljósm. Jón Sigurgeirsson frá Helluvaði). það gæftir og ógæftir, sem um er rætt, en í sveitinni eru það snjóþyngslin, sprettutíðin og þurrkarnir, sem máli skipta. Nú þegar þetta er ritað (13. júli) hefur langvarandi óþurrkatími gengið hér yfir Norðurland. — Síðustu dagana hefur verið nokkur flæsa, en tveir samfelld- ir þurrkadagar hafa ekki koinið um langt skeið, að minnsta kosti ekki hér við innanverðan Eyja- fjörð. Frétt hef ég að mikill munur væri á því hve minna hefði rignt í útsveitum, t.d. hef- ur verið hægt að þurrka hey á Dalvík og þar í grennd megin- hluta þess tíma sem hér inni í firðinum hefur ekki verið hægt að hirða upp strá. Flæsan síð- ustu daga hefur þó orðið til þess að bændur hafa getað hirt upp megnið af því heyi, sem lengst hefur legið og sem sums staðar var töluvert farið að hrekjast. Það er síður en svo undrunar- efni þótt margir hafi áhyggjur af tíðarfarinu, þar sem svo feiki- leg verðmæti fara forgörðum ef það er óhagstætt. Það er gremju- legt fyrir bændurna að sjá túnin sín spretta úr sér eftir að þeir eru búnir að strá á þau fleiri tonnum af rándýrum áburði. — Það er ekki síður hörmulegt að hirða upp fúla 'dg gulnaða töð- una, þótt sæmilega þur sé, vit- andi það að hún hefur misst meginhlutann af íóðurgildi .,ínu. Hvort tveggja hafa norðlenzkir bændur orðið að horfa upp á nú í sláttarbyrjun. Að sönnu mun of snemmt að örvænta nú aðeins í 12. viku sumars, en skjótt verð- ur að batna, ef ekki á illa að fara. j Svo sem sjá má hér að framan hefur grasspretta verið óvenju góð í sumar. Fyrir nokkru síðan allur gengur nú um frjósöm hag- lendi, kýrnar græða sig og sauð- féð dafnar vel, svo að lömbin eru hartnær hnöttótt að sjá. Það er aðeins þetta stóra ef með þurrkinn og heyfenginn, sem ræður hve mikið hægt verður að setja ó vetur í haust. Ef tíðin verður góð og ef vel heyjast þá þessar mundir eru 100 ár síðan kirkja sú, er þar stendur, var byggð. Byggði hana Ólafur Briem, timburmeistar, að til hlut an Hallgríms prófasts Thor- lacius að Hrafnagili. Var vel til byggingarinnar vandað og nýtur hún þess enn í dag. Þess er getið að Hólakirkja hafi verið ein fyrsta kirkja norðanlands, sem hituð var upp með ofnum. Við afmælisguðsþjónustuna flutti séra Pétur Sigurgeirsson bæn úr kórdyrum, biskup íslands þjónaði fyrir altari og sóknar- presturinn, séra Benjamín Krisi- jánsson, flutti prédikun. Að lok- inni guðsþjónustu buðu þau staðarhaldarinn, Jón Sigur- geirsson og kona hans, hinum fjölrrlörgu kirkjugestum til kaffi- drykkju og veittu af myndar- skap. Kirkjunni bárust gjafir í tilefni afmælisins svo sem altaris dúkur og trjáplöntur og enn- fremur var stofnaður orgelsjóður fyrir kirkjuna. Öll var afmælis- hátið þessi hin prýðilegasta. KIRKJUDAGUR EYJA- FJARÐARPRÓFASTSBÆMIS Sunnudagurinn 5. júlí var há- tíðlegur haldinn i Grundar- kirkju, sem kirkjudagur Eyja- fjarðarprófastsdæmis. — Voru þar saman komnir 9 kirkjukórar víðs vegar að úr prófastdæminu. Lengst að var kominn kirkjukór- inn úr Ólafsfirði. Við guðsþjón- ustuna sungu allir kórarnir und- ir stjórn Jakobs Tryggvasonar, organista í Akureyrarkirkju. — Fyrir prédikun þjónuðu þeir fyr- ir altari, séra Sigurður Stefáns- son á Möðruvöllum og sóknar- presturinn, séra Benjamín Krist- víkurhöfn um 30 ára skeið Samfal við Þorvarð Björnsson, wfirhafnsegumansi Þ A Ð er ekki ný kenning, að ! segja að þróunarsaga Reykjavík- urhafnar sé í senn saga Reykja- víkur. — En sá maður, sem bezt hefur fylgzt með þeim stórstígu breytingum sem orðið hafa á höfninni mun óefað vera Þor- varður Björnsson yfirhafnsögu- maður, sem í dag á 30 ára starfs- afmæli. Það var 23. júlí 1023, kl. 6 árd. sem Þorvarður tók til starfa sem hafnsögumaður við Reykj avíkurhöfn. Samsöngur eyfirzkra kirkjukóra í Grundarkirkju. Ljósm. V. Guðm. verður björgulegt hjá íslenzkum bændum að enduðu þessu sumri. Þá verður kannske hægt að segja með sanni að hér drjúpi smér af hverju strái. KIRKJAN AÐ HÓLUM í EYJAFIRÐI 100 ÁRA Undanfarið hefúr biskup vor, herra Sigurgeir Sigurðssori, ver- ið að visitera eyfirzkar kirkjur. Ilinn 1. júlí visiteraði hann Hóla- kirkju í Eyjafirði fram, en um Glerárbrúin nýja. Mennirnir eru á leið yfir gömlu göngubrúna. Súlutindur í baksýn. (Ljósm. V. Guðm.) jánsson. Biskup íslands, herra Sigurgeir Sigurðsson, flutti prédikun. Eftir prédikun þjón- uðu þeir fyrir altari, biskup ís- lands og séra Friðrik Rafnar, vígslubiskup. Að lokinni guðsþjónustu hófst dagskrá kirkjudagsins með því að séra Benjamín Kristjónsson flutti erindi um sönglistina. Þá sungu _ kirkjukórarnir undir stjórn Áskels Jónssonar, Gests Hjörleifssonar, frú Sigriðar Schiöth og Jakobs Tryggvason- ar, en Guðmundur Jóhannsscn lék á orgelið. Einn hinna mörgu sálma, er sungnir voru, var nýr sálmur, ortur í tilefni dagsins af Valdimar Snævarr, fyrrverandi skóalstjóra. Síðasta atriði dag- skrárinnar var ávarp biskups ís- lands til kirkjukóranna. Á eftir var sameiginleg kaffidrykkja. — Var kirkjudagur þessi á allan hátt hinn hátíðlegasti. GLERÁRBRÚIN NÝJA Það er ekki ótítt, þegar óþurrk ar herja, að upp skín undir kvöld ið. Það er oft fagurt um að litast í slíku skúraskini. Allt er svo hreint og tært. Víðs vegar um himinhvolfið hranna sig skýja- bólstrar, sumir glóbjartir af end- urskini sólarinnar, en aðrir Framhald á bls. 8 Er ég átti tal við hann um dag- inn, sagði Þorvaður að eðlilega væri margs að minnast á svo löngum tíma við hafnsögu. — Starfið hefur mér alltaf líkað mjög vel, -— maður er í nánu sambandi við aðal lifibrauð þjóð- arinnar, sagði Þorvarður. FÉKK EKKI STARFIÐ HLJÓÐALAUST Það gekk ekki með öliu hljóða- laust að Þorvarður yrði hafnsögu maður. — Því var slegið fram af templurum, að hann væri drykkjumaður og óreiðumaður hinn mesti. Eins var pólitík dreg- in inn í máiið og sagt að hann væri til starfsins ráðinn til þess eins að geta stundað smygl úr skipum! — Svo rammt kvað að þessu að bæjarstjórnin rifti ráðn ingu hans um skeið, en Þórarinn hafnarstj. Kristjánsson neitaði að fallast á ógildingu ráðningarinn- ar, þar eð um hinn svívirðileg- asta áróður væri að ræða. — En um nokkurt skeið gegndi Þor- varður ekki hafnsögumannsstarf- inu fyrir þessa tiltekt. Þegar Þorvarður Björnsson varð hafnsögumaður var kola- kraninn nýlega kominn tii sög- unnar og bryggjan sem hét Nýja bólvirkið. Þá gátu 4 togarar legið við bryggju þá, sem nú er Ing- ólfsgarður. Við gömlu uppfyll- inguna var pláss fyrir tvo Foss- ana. VAR ÁÐUR í FARMENNSKU Tildrögin að því að Þorvaður gerðist hafnsögumaður voru þau, að eftir að hafa verið í far- mennsku á dönsku skipi, sem Mjölnir hét og flutti héðan salt- fisk, var Þorvarður eftirlitsmaður fýrir A. T. Möiler fiskkaupmann. — Vorið 1923 varð Möller þessi gjaldþrota, og í júlímánuði þe-tta sumar dó Helgi Teitsson, fyrsti hafnsögumaður Reykjavíkurhafn ar. Hann var sá fyrsti sem þenn- an titil bar. Átta eða níu sóttu um starfið, og var Þorvarður meðal þeirra. í gamla daga var vinnudagur- inn oft langur hjá hafnsögumönn unum, enda var oft margt skipa hér, en hafnarskilyrðin ekki sem bezt þegar skipakomur voru mjög tíðar, t. d. á vertíðum. Þá var vinnudagurinn oft frá því 5—6 á morgnana fram undir miðnætti. Meiriháttar óhöpp í höfninni á þessum árum hafa til allrar hamingju ekki verið mörg, sagði Þorvarður. — Minnisstætt er þeg' ar Skaliagrímur sigldi niður kolaskipið á ytri höfninni. Og nokkrum sinnum hafa skip slitn- að frá bryggju og þá stundum ekki mátt muna rniklu að illa, færi, t. d. þegar Hæringur slitn- aði frá í norðaustan ofsaveðri hér á árunum. Þá munaði litlu aí? iila færi, sagði Þorvarður. NORÐ-VESTAN ÁTTIN MESTI ÓVINURINN Versti óvinur okkar hér í höfn- inni er norðvestan áttin. Þá er betra að vera við öllu búinn. — Þá kemst aldan að utan inn i höfnina og allt vestur að Granda. garði. — Það er ekki vinduriim. eða veðurhæðin, heldur norð- vestan aldan, sem rykkir skip- unum frá bryggju. En úr þessu má mikið bæta, sagði Þorvarður. Með því að framlengja nokkuð vitagarðinn, sem liggur frá. Örfirisey, á ská út, myndi vafa- laust draga mjög mikið úr norð- vestan öldunni inn í höfnina. Þetta tel ég afar áríðandi í sambandi við frekari stækknu hafnarinnar innan hafnarmynne isins sem fyrirhuguð er. Ber þá að sjáifsögðu að leggja höfuð- áherzluna á að auka viðlegu- plássið fyrir togarana og fiski- bátana, sagði Þorvarður. VARNARGARÐUR MILLI ÖRFIRISEYJAR OG ENGEYJAR — Úr því að við erum farniiv. að ræða stækkun Rvíkurhafn- ar, sagði Þorvarður, þá er það að minum dómi eitt helzta skil- yrðið fyrir frekari stækkun til austurs, að gerður verði varnar- garður rnilli Örfiriseyjar og Eng- eyjar, til að verjast öldunni. — Þetta yrði mikið mannvirki. — En þegar sementsverksmiðjan verður komin upp, ætti að vera. hægara að gera það, t. d. meSF því að sökkva steinkerjum. Af öilum þeim dögum, sem Þorvarður hefur staðið við glugg ann í hafnsögumannastofunni i Hafnarhúsinu, þá. telur hann 10. maí 1940 vera sér eftirminnileg- astan, — þegar brezki herinn gekk hér á land. En á styrjald- arárunum reyndi oft á góða og röggsama yfirstjórn hafnsögu- niannanna hér í Reykjavík. — Þá. var stundum erfitt að koma ölíu. í örugga höfn. TRAUSTUR HAFNSÖGUMABUR Á þessu merka afmæli Þorvarð ar Björnssonar yfirhafnsögu- manns, munu margir sjómenn. vafalaust hugsa til hans er hann kom út í skipin til þeirra eftir ianga og harða útivist og sigldi þeim upp að bryggju. Ótölulegur fjöldi bæjarbúa ýmist kannast við Þorvarð neðant af höfn eða hafa kynnzt honum í starfi hans og það er sannarlega lán fyrir höfnina að hafa slíkan_ mann í sinni þjónustu. — Von- andi á Þorvarður enn eftir aíF starfa lengi og vel við höfnina, skipum og sjófarendum til góðs^ og bæjarfélaginu öllu, því það eí aðalsmerki bverrar hafnar að* éiga traustum hafnsögumönnum. á að skipa. Þorvarður er nú í sumarleyfi og“ brá sér vestur á ísafjörð til dótt- ur sinnar, sem þar er búsett. Sv. Þ. Lufthansa kaupir Constellation flugvélar NEW YORK: — Leonard Sch- wartz, sem sölustjóri Lockheed flugvélafyrirtækisins, hefur ný- lega sagt að þýzka flugfélagið Lufthansa hafi fallizt á að kaupa. nokkrar flugvélar af Constellation, gerð af Lockheed.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.