Morgunblaðið - 26.07.1953, Side 10

Morgunblaðið - 26.07.1953, Side 10
10 M O H t. i t Sunnudagur 26. júlí 1953 í) íí>v».. ,;* . - SKALDSAGA EFTÍR DOROTHEU CORNWELL Framhaldssagan 64 ar á þessu stigi málsins og stund- um er ómöðulegt fyrir nána ætt- ingja að gera sér grein fyrir því hvernig komið er. Ef til vill get- ið þér fundið fram eitthvað í nú- tíðinni, sem getur vakið áhuga hennar“. Júlía forðaðist augnaráð hans. „Mömmu stenaur á sama um nú- tíðina og umhéiminn. Eg held að ■hún hafi ekki litið í dagblöðin í heilt ár. Hún hefur heldur ekki tekið á móti neinum gestum — að undanskildum lækninum og nokkrum gestum við brúðkaup- ið mitt“. Hendel læknir kinkaði kolli. „Hvernig væri að ég léti eins og cg kæmi til að líta á yður“. ,,'Ég er hrædd um að við það mundi hún aðeins komast meira úr jafnvægi". „Stundum finnst mér gott að koma sjúklingum mínum úr jafn vægi“, sagði hann. „En í þessu tilfelli sýnist mér ég þurfa að nota aðrar aðferðir“. Hann stóð upp af stólnum. „Viljið þér at- huga, hvað þér getið gert fyrir mig og hringja svo til mín á morgun?" Júlía hikaði. „En verðið þér hér?“ „Eins og er, þarf ég að sinna nokkrum sjúklingum í verksmiðj unum í Clanford“, sagði hann. „En þér getið alltaf hringt til mín á krána í Sherryville. Ef ég svara ekki strax, þá skuluð þér hringja upp á herbergi ung- frú Carter“. Þá mundi Júlía eftir honum. Þetta var sálfræðingurinn, sem Truda hafði verið að tala um. Maðurinn, sem hún hafði hrósað með svo mörgum fögrum orðum, þegar hún hafði séð hana í fyrsta sinn. „Er Truda í Sherryville?" gpurði hún undrandi. „Hún heldur að hún sé ennþá sjúklingur minn“, sagði hann, „endd þótt hún hafi fyrir löngu læknað sig sjálf“. „En hvers vegna?“ Júlía vissi varla sjálf að hverju hún var að spyrja. Ekki gat hún spurt þenn- an ókunna mann spjörunum úr, sem hún hafði eingöngu leitað til, til þess að fá ráð viðvíkjandi ástandi móður hennar. En hann svaraði án þess að hún gæfi honum frekari skýringar. „Þreyttir stríðsfréttaritarar geta þurft á nokkurra daga hvíld að halda“, sagði hann. Ekki lagði hún þá trúnað á þá skýringu. Truda var komin til Sherryville af einhverjum sérstökum ástæð- um og það var sennilega eitt- hvað í sambandi við hana. Truda og þessi lipri sálfræð- ingur og Scott læknir. Allt í einu þóttist hún skilja allt. Öll þrjú voru þarna til að fylgjast með henni. Þau biðu í hæfilegri fjar- lægð sem vinir hennar, þangað til hún þyrfti á þeim að halda. Truda hafði munað eftir því að von var á barninu í apríl. Hún hafði líka munað eftir því að ekki var hægt að treysta móðir Júlíu þegar á herti. Þannig hafði Truda hugsað.....Og hún hafði haft hana grunaða um að hún vildi gera Mike sér fráhverfan. Hún gekk annars hugar heim- leiðis, en mundi þó eftir því að kaupa páskaliljur í blómabúð- inni, eins og hún hafði hugsað sér. Hún reyndi að setja upp sama rólega sljóa svipinn þegar hún kom heim. Snöggvast nam hún staðar fyrir utan dyrnar hjá móður hennar og horfði á blóm- inlsem lýsti af í rökkrinu. JVTóðir henriar svaraði ekki þó aðf hún berði að dyrum. En hún hwfi ftff ffm iyr ítf an. Hún setti blómin í vasa og vasann setti hún fyrir utan dyrn- ar. Svo fór hún niður í eldhúsið. Elún tók niðursuðudósir úr skápn um og kveikti undir eldavélinni. Hún hafði hraðann á eins og hún vildi flýta sér áður en eitthvað óvænt og óþægilegt bæri að hönd um. Sveppir, hugsaði hún, þeir hljóta að vera Ijúffengir, og steiktur bauti. Brátt fylltist eld- húsið af ilmandi rnatarlykt. Hún ýtti borðinu út að glugganum og lyfti gluggatjöldunum til að hJevpa só'skininu inn. Það var ekki eins skuggalegt þarna eins og í borðstoiunnr. Heðan í frá borðum við hér, hugsaði hún. Hún fann köku í brauðkassanum. Hreingerningarkonan hafði feng- ið séi eina sneið, en kakan var þó girnileg. Júlía óskaði þess að konan hefði verið hjá þeim all- an daginn. Enda þótt hún væri ókunnug, var hún velkomin nú, þegar tór að halla degi. Hún batt á sig stóra svuntu af stúlkunni, sem hún fann í eldhús inu. Svo kallaði hún á móður sína. Ekkert svar heyrðist. Loks settist hún ein við borð- ið og reyndi að borða. Stóllinn sem hún hafði ætlað móður sinni var tómur fyrir framan hana. Að lokum lagði hún frá sér gaffalinn og gerip báðum hönd- um fyrir eyru sér eins og til að útiloka þögnina sem umlukti hana. Svo stóð hún upp og gekk að símanum til að hringja til Scotts læknis. Hjúkrunarkonan kom í sím- ann. Það var von á lækninum á hverju augnabliki frá sjúkravitj- un úti í sveit. Júlíu fannst hugg- un að því að heyra rödd stúlk- unnar. og saknaði hennar þegar hún lagði niður tólið. Hún var á leiðinni upp tröppurnar þegar henni varð það ljóst að hún hefði átt að spyrja um Hendel lækni en ekki Scott. Hún barði að dyrum hjá móð- ur sinni, en fékk ekkert svar, Hún lagði eyrað upp að dyrun- um og heyrði þá óljóst rödd móð- ur sinnar. Hún var að lesa upp- hátt eins og fyrri daginn. Júlía sneri hurðarhúninum og gekk inn. Agatha Greer sat hreyfing- arlaus í hægindastólnum með bók opna í fanginu. Iiún var í hvítum kjól, eða einhvern tíma hafði hann að minnsta kosti ver- ið hvítur. Nú var hann gulnað- ur og rifinn og ryðblettir á öxl- unum. Hann náði hátt upp í hálsinn og var hnepptur með litlum hnöppum sem eins og hengu á ein um þræði. Á meðan Júlía horfði á hana losnaði einmitt einn hnappurinn og datt niður á gólf- ið. — Júlía heyrði sína eigin rödd rjúfa þögnina. „Hvað ertu að ; gera, mamma? Hvers vegna ertu í þessum kjól?“ Móðir hennar leit upp, horfði snöggvast í augu Júlíu en leit svo undan aftur. „Finnst þér þetta ekki fallegur kjóll“. Hún strauk hendinni yfir pilsið. „Ég hef alltaf verið falleg í þessum kjól. Ég er þannig vaxin.“ Júlía gekk skjálfandi að öðr- um stól. Hendur móður hennar voru á iði í keltu hennar. Hún hafði lagt litlu treyjuna og tré- kúlurnar unair bókina. Júlía fann æðaslögin á bak við augun. Hún þvingaði sig til að horfa framan í móður sína. Agatha Greer var rjóð í vöng- unum. Hárlokkur féll niður yfir ennið. í hnakkanum hafði hún fest upp falska hálfléttu til að setja á sig gamaldags greiðslu. En það voru augu hennar, sem skutu Júlíu skelk í bringu. Þau voru sljó og flöktandi eins og í veiku barni. „Ég heyri til þeirra", sagði hún. „Þeir eru hérna inni------Þeir hlæja, þeir skellihlæja“. Hlátur hennar varð skerandi í hljóðu herberginu. — „Þeir hlæja að öllu. Gerald hef- ur svo hlýja rödd. Og Jerry litli er eins og bergmálið af honum“. Hún leit á Júlíu, sem lét fall- ast aftur á bak í stólinn. Sljó- leikinn í augunum hvarf og í stað hans kom reiðiglampi. „Þú hefur rekið þá burt“, sagði hún gröm. „Þú með þitt náhvíta andlit og stóru starandi augun — og klunnalegan búk- inn“. Hún hallaði sér fram í sætinu og dró augun í pung eins LU mMÍsnSiiÆ Ertu ánægður? Norskt ævintýr — Nú jæja, sagði Jakob, og glotti við tönn, — svo að þú ert e. t. v. ekki ánægður núna? — Ég hef aldrei sagt að ég væri ekki ánægður, sagði bóndinn og reyndi að stilla sig, — dauð tík er jú bara dauð tík. Nokkrum dögum seinna ætluðu bóndi og ráðskonan á markaðstorgið, en þau voru skíthrædd við „tröllið“ hann Jakob, því þau kærðu sig ekki um að hann gerði þeim annan óleik, og þau sögðu við hann: — Þú átt að vera heima í dag. En þú mátt ekki gera neitt, nema það sem þú sérð hina piltana gera. — Sjálfsagt, sagði Jakob undirgefinn. Á bænum var gamalt útihús og þurfti að fá menn til þess að gera við þakið, sem var lagt steinhellum, og þegar við- gerðarmennirnir komu og fóru að rífa niður steinhellurnar, náði Jakob sér í stiga og reisti upp við bæinn. Þakið á bænum var líka lagt steinhellum, en það var alveg flunkunýtt þak, og Jakob byrjaði að rífa niður hverja helluna á fætur annarri. Og þegar bóndinn kom heim, var ekki orðið mikið eftir af fína nýja þakinu hans. — Ó, óþokkinn þinn, hrópaði hann til Jakobs. — Hvað hefurðu nú gert? — Ég hef einungis gert það sem þú lagðir fyrir, svaraði Jakob, — þú sagðir að ég ætti að gera alveg eins og ég sæi hina piltana gera. Eða ertu ekki ánægður? Og Jakob dró hárbeittan hníf undan belti sínu. — Ánægður, sagði bóndinn og andvarpaði þunglega, — ég hef enga ástæðu til annars en að vera ánægður, — mig munar hvopt eð er ekkert um nokkrar þakhellur. ( i * ; f i »* s í t - • , í Takið yður permanent, þar sem vinnan er vönduð. I’erinarcen istof » n Ingólfsstræti 6, sími 4109. Amerískur verkfræðingur sem starfar hjá íslenzku fyrirtæki, óskar eítir 1. fl. ÍBÚÐ 3ja til 4ra herbergja, með eða án húsgagna, um eins árs skeið, nú þegar eða í haust. Vill borga mjög vel ef um semst. Uppl. í síma 80634 frá kl. 10—5, mánud. fire$lotte Sta,öi5vé1asir2í?;r eru yfirbyggðar og því eins og snotrasta borð í útliti, og í notkun eru þær mjög skemmtilegar, enda að meztu leyti sjálfvirkar. — Verðið er kr. 3.484.15. Lolkacl frá 27. þ. m. næstu 3 vikur. GarSar Ólafsson tannlæknir, Keflavík. Lokað vegna sumarleyfa frá 26. þ. m. til 10. ágúst. Nýja Blikksmiðjan Höfðatúni 6. Trúlofunarhringar Við hvers manns smekk. — Póstsendi. — Kjartan ÁsmundsBon gullsmiður Aðalstr. 8. Reykjavík. 5K&RTGRIPAVERZLUN ' H- * c. a q S R Æ T i 4 Morgunblaðið er lielmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað. Bezta anglýsingablaðið. — Sviiflugskólinn á Sandskeiði Nýtt námskcið í svifflugi hefst laugardaginn 1. ágúst. Upplýsingar hjá Ferðaskrifstofunni Orlof h f. Sími: 82265. BÓLERÓ Auðvelt er að muna nafnið á nýja kaffinu. BÓLERÓ í hverjum pakka er lítill pakki með kaffibætisdufti, en því ó að blanda öllu strax saman við kaffið og láta síðan blöndunina í blikkdós eða annað þétt ílát þar til að þér þurfið að nota hana. Látið ekki hjá líða að reyna þetta kaffi. Það er ljúffengt. Það er litarfallegt — og svo er það talsverður spam- aður fyrir yður að nota BÓLERÓ Fæst svo að segja í hverrí búð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.