Morgunblaðið - 22.08.1953, Síða 2
2
M O RGU N B L A £hl Ð
Laugardagur 22. ágúst 1953
' Sfálhíæðismenn hafa haff
forpnp í raforkumálunum
Kommúnistar „á eftir áæfiun".
Góð uppskera
Tveir framleiðendur
AF FRÁSÖGN blaðsins í gær um
laforkumálin á síðasta bæjar-
stjórnarfundi kom það í ljós, að
kommúnistar vilja nú gera sín-
|ar hosur grænar í þeim málum
maeð venjulegum hætti. Fluttar
-eru sýndartillögur og hnoðað
isaman ræðum um fyrri og síðari
í„afrek“ kommúnista.
í Það vakti furðu, þegar mál-
pípa kommúnista, Guðmundur
■Vigfússon, reyndi að halda því
ifram, að helzt engir hefðu haft
íáhuga fyrir fullvirkjun Sogsins
nema kommúnistar og bæði Sjálf
■stæðismenn og aðrir staðið gegn
,því máli.
í frásögn Þjóðviljans af bæj-
'arstjórnarfundinum segir, að
'Sjálístæðismenn hafi „margsinn-
tís fellt tillögur sósíalista í bæjar-
ístjórn og á Alþingi um að full-
virkja Sogið“. Á bæjarstjórnar-
;fundinum rak Jóhann Hafstein
iþessa firru ofan í Guðmund Vig-
jfússon. Sýndi Jóhann einnig fram
íá hvernig Sjálfstæðismenn bæði
|í bæjarstjórn, í ríkisstjórn og á
;Alþingi hefðu haft forystu um
iframkvæmdir á sviði raforkumál
janna. Fyrir þeirra forgöngu væri
þegar hafinn víðtækur undirbún-
!ingur að virkjun við Efra Sogið.
er Iokið, verði hafinn und-
irbúningur að virkjun við
Efra Sogið og stefnt þannig
jöfnum höndum að full-
virkjun Sogsins.
3. Að aukning raforkunnar
verði grundvöllur stórauk-
ins iðnaðar, m. a. áburðar-
verksmiðju.
Það verður því ekki annað
sagt. en kommúnistar séu
sæmilega vcl „á eftir áætlun“
þegar þeir nú eru að flytja
tillögur sínar um fullvirkjun
Sogsins. j
samebiast
Tollskrárendurskoð-
un vsgna
'Hinsvegar hefði reynst fullerfitt
Jfram til hins síðasta að fá nægi-
Slegt fjármagn til þess að Ijúka
jnúverandi virkjun Sogsins. Því
imáli væri nú siglt heilu í höfn
;með forgöngu ríkisstjórnarinar
‘vegna þátttöku íslands í efna-
hagssamvinnu Vestur-Evrópu-
þjóðanna og Marshall-aðstoðar-
innar. Með fjandskap sínum gegn
Marshallaðstoðinni hefðu komm-
únistar sí og æ reynt að gera það,
sem í þeirra valdi stóð, til þess
;að bæði Sogsvirkjunin og aðrar
stórframkvæmdir tefðust eða
ireyndust óframkvæmanlegar.
Kosningastefnuskrá Sjálf-
stæðismanna í bæjarstjórn
Reykjavíkur fyrir síðustu bæj
arstjórnarkosningar sker úr
um afstöðu þeirra til Sogs-
virkjunarinnar. Þar segir m.
a.:
1. Að virkjun Neðri-Sogsfossa
verði liraðað scm mest
(Þeirri virkjun lýkur í
næsta mánuði).
2. Að áður en þeirri virkjun
il
18. APRÍL s.l. skipaði fjármála-
ráðherra fimm manna nefnd til
þess að endurskoða 1. nr. 62 1939,
um tollskrá o. f 1., með tilliti til
þess, að innlendur iðnaður hafi
hæfilega og skynsamlega vernd j
gegn innílutningi erlendra iðn-
aðarvara. 1
Nefndin hefur síðan starfað að
þessafi endurskoðun tollskrárinn
ar og meðal annars leitað til ým-
issa félagssamtaka og óskað rök-
studdra tillagna þeirra í þessa
átt. Hún hefur og farið fram á
það við ýmis fyrirtæki, að þau
sendu verðútreikninga yfir til-
teknar iðnaðarvörur.
Fjármálaráðuneytið lagði fyr-
ir nefndina að ljúka störfum fyr-
ir 15. september n.k. Það er því
nauðsynlegt, að þeir aðilar, sem
enn hafa ekki komið á framfæri
við nefndina tillögum sínum, láti
það ekki dragast lengur, ef unnt
á að verða að taka tillit til þeirra.
Loks er mælzt til þess að þeir,
sem ekki hafa enn sent um-
beðna verðútreikninga, geri það
sem allra fyrst. Nefndin vinnur
störf sín í Alþingishúsinu. j
Fyrir þó nokkru eru garðeigendur almennt farnir að taka upp
kartöflur sér til matar og jafnvel til sölu, þeir sem aflögufærir
eru. — Þessar tvær stóru kartöflur, sem myndin er af, eru úr
garði frú Sigríðar Húnfjörðs inn í Kringlumýri. Leit hún undir
örfá grös núna í vikunni og voru þær þar á meðal. Voru þá ná-
kvæmlcga 80 dagar síðan sáð var. „Móðirin" að kartöflunni til
vinstri var af svipaðri síærð og hnúðurinn, sem upp úr henni
er. — Kartöflurnar eru 325 og 350 gr. að þyngd. Eldspýtustokk-
urinn gefur stærð þeirra vel til kynna.
Umgangsveiki í áMsfur-Þýzkaiðndi:
Mlenn glata fbkksskírtelnuni
BERLÍN — í grein frá flokksráði kommúnistaflokks í Sax-
landi, sem birtist í kommúnistablaðinu „Sáchsische Zeitung" er
kvartað mjög yfir því hve margir hafa glatað flokksskírteinum
sínum í kommúnistaflokknum eftir 17. júní.
Sá kunni að fóðra hlutina!
12. ágúst sl. birtist eftirfarandi
klaUsa í The Daily Telegraph:
„íranskeisari og keisaraynjan
fóru frá Teheran til Ramsar,
hressingarstaðar við Kaspíahafið,
til viku dvalar, vegna veikinda
Radar-viti við Urriðavatn
Veifir flugvéium öryggð við lendingar eysfra
FLJÓTSDALSHÉAÐI, 9. ágúst:
•— Fjóra síðustu daga, hefur ver-
ið sæmilegur þurrkur og suma
dagana ágætur, en fyrri hluta
vikunnar var skúrótt og svikullt,
eins og oft hefur brunnið við á
í þessu ágæta sumri. Einkum urðu
Jökuldælingar hart úti lengi vel
j og komu litlu inn. Nú munu allir
i hafa hirt upp. Taðan öll komin
inn og víðast hvar nokkuð af
j útheyi. Nú er ekkert neyðarbrauð
j að bera niður í útjörð, allsstaðar
j vel sprottið.
MÓT SJÁLFSTÆÐIS-
j MANNA
Á sunnudaginn var, 2. þ. mán.,
, va rafarfjölmenn samkoma Sjálf-
stæðismanna haldin í Egilsstaða-
skógi. Skilyrðin voru hin beztu
frá náttúrunnar hendi, glampandi
sólskin allan daginn, og hægur
andvari. Aðalræðurmaður þarna
var Magnús Jónsson alþm. frá
Mel, sem mæltist sérlega vel. —
Einnig skemmtu þarna leikararn-
ijr Alfreð og Haraldur Sigurðs-
son, sem var lika frábærlega vel
tekið. Samkoman var hin lang-
fjölmennasta, sem þarna hefur
verið haldin og fór í alla staði
vel fram.
RADARVITI
Nýlega er lokið við byggingu
og uppsetningu radarvitans við
rafstöðina á Urriðavatni í Fell-
um. Verk þetta var hafið í des-
ember s.l., en varð ekki nærri
því lokið vegna ótíðarinnar, er
sem gekk þá í garð litlu síðar.
Þetta mun vera allfullkominn
viti, sem gefur flugvélum mik-
ið öryggi til lendingar hér
eystra.
I
GÓÐAR UPPSKERUHORFUR 1
Útlit er fyrir góða uppskeru
jarðepla. Nú eru þau orðin álíka
þroskuð og vanalegt er um sept-
emberbyrjun. Þó töfðu langvar-
andi þurrkar lengi fyrir sendnum
görðum. Síðan skúrirnar urðu
þéttari, hafa þeir líka komið til.
—G.H.
AÐUR VAR
ENDURNÝJUN AUÐVELD
Blaðið segir að áður fyrr haíi
það að sjálfsögðu stundum komið
fyrir, að einstöku menn glötuðu
flokksskírteinum, en það hafi þó
aldrei verið algengara en svo að
auðvelt hafi verið að endurnýja
þau.
TÝNAST NÚ í ÞÚSUNDATALI
Nú allt í einu, segir blaðið að
bregði svo við þegar almennir
flokksfundir eru haldnir að tug-
þúsundir og hundruð þúsunda
flokksskírteinc hafa týnzt. —
Kveðst blaðið hafa grun um að
ekki sé allt með feldu með þetta
mikla tjón á flokksskírteinum.
Sama sagan segir það að sé með
þátttökuskírteini í verkalýðsfé-
lögum kommúnista.
IIÓTA LÆKNINGU
Að lokum segir blaðið: Þetta
má ekki svo til ganga. Það er
rétt að flokksráðin og stjórnir
verkalýðssambandsins geri ráð-
stafanir til að bæta minni félaga
sinna, svo að þeir finni flokks-
skírteinin aftur. — dpa.
Færri tvíbrar
MINNA cr nú um tvíburafæð-
ingar í Bandaríkjunum en áður
fyrr. Samkvæmt nýjustu skýrsl-
um voru einir tvíburar af hverj-
um 86 börnum, sem fæddust fyr-
ir 1939. — 1947 höfðu tvíbura-
fæðingar minnkað svo mjög, að
af hverjum 97 börnum, sem
fæddust, voru einir tvíburar. —
Síðan hefur tvíburafæðingum
fækkað enn til stórra muna.
- Lögregluárás
Frh. af bls. 1.
að bærinn er svo einangraður að
konur, sem hefðu viljað sleppa
þaðan gátu ekki komizt undan.
MIKIL MANNFJÖLGUN
Þegar stúlkur höfðu náð 15 ára
aldri, voru þær neyddar til að
giftast. Fyrirmenn bæjarins voru
yfirleitt kvæntir 5 til 6 kónum og
á þessum árum síðan bærinn var
stofnaður hefur íbúatala hans
vaxið úr 99 upp í 385. Margar
konurnar voru fegnar frelsinu,
þegar lögreglan tók þær, en fyrst
um sinn verða þær þó að dvelj-
ast í gæzluvarðhaldi, meðan rann
sókn málsins stendur yfir.
IIÚSAVÍK, 20. ágúst: — Hinn
ungi píanóleikari Þórunn S. Jó-
hannsdóttir hélt píanótónleika í
Húsavík í gærkvöldi við góða að-
sókn.
Efnisskráin var mjög fjölbreytt
og létu áheyrendur fögnuð sinn
óspart í ljós. Varð ungfrúin að
leika mörg aukalög. Hér í dreif-
býlinu gefast fá tækifæri til að
heyra flutta klassiska hljómlist
nema í útvarpinu. En slíkar heim
sóknir sem þessi, sem gefur
flutningnum líf, munu óefað
verða til þess að auka skilning
og áhuga almennings fyrir öðru
en dægurlagaflutningi. — Frétta
ritari.
ÞAÐ hefur verið tilkynnt í
Coventry og Birmingham í Eng-
landi, að tveir af stærstu fram-
leiðendum landbúnaðarvéla í
heiminum, Harry Ferguson Co.
og Massey Harris Co. Ltd. hafi
ákveðið að sameinast, og munu
þau í framtíðinni starfa undir
nafninu Massey Harris Fergusom
Ltd.
Féiög þessi hafa bæði verið
brautryðjendur á sviði landbún-
aðarvéia, Ferguson með hinu
kunna Ferguson-kerfi fyrir
dráttarvélar og ýmis verkfæri,
en Massey Harris, sem er^ 105 ára
gamalt, fyrir forustu í byggingu
sj álf hreyf andi h veitisláttuvélar,
sem notaðar eru í öllum löndum,
þar sem hveiti er ræktað.
Bæði Massey Harris.og Fergu-
son eiga verksmiðjur og hafa
umboðsmenn um allan heim.
Samtals eiga félögin fimm verk-
smiðjur í Bandaríkjunum, fjórar
í Kánada, en auk þess verksmiðj
ur í Englandi, Skotlandi, Suður-
Afríku, Frakklandi og Þýzka-
landi.
Ferguson og samstarfsmenm
hans hafa undanfarið starfað rneð
mikilli leynd að nýjum landóúm
aðarvélum, og var sameining fé-
laganna ekki ákveðin, fyrr em
stjórnendur Massey Harris h fðu
vandlega kynnt sér þessar nýj-
ungar. Það er skoðun Fergurons,
að tæknin eigi enn eftir að gera
mikið til að gera landbúnaðar-
störf léttari og ánægjulegri og
stöðva fólksstrauminn úr sveit-
unum.
Massey Harris og Fergusom
hafa ekki verið í beinni sam-
keppni hingað til, heldur starfa
þau að miklu leyti hvort á sínu
sviði og munu þannig mjög
styrkja hvort annað í alhliða
framleiðslu.
Mikið hefur verið flutt til ís-
lands af Ferguson dráttarvólum
og verkfærum, og munu mt yfir
800 bændur í landinu eiga slík
tæki. Einnig hefur verið flutt inn
nokkuð af Massey Harris land-
búnaðarvélum.
(Frá Dráttarvélum h.f).
Hálfrar milljón kr. orgel brennur
ÁTTATÍU ára gamalt orgol, sem
metið er á a. m k. 10.000 stcrl-
ingspund gereyðilagðist er eldur
kom upp í kirkju í Kensington í
Englandi.
Skálda-brúSkaup
Brezki rithöfundurinn J. B. Priestley, sem er 59 ára, kvæntisí
nýlega skáldkonunni Jaqetta Hawkes (42 ára). Hún var áður
gift Hawkes prófessor í Oxford, en skildi við hann. Skáldin voru
gefin saman í borgaralegt hjónaband í Caxton Hall. — Myndin
er tekin af þeim að athöfninni lokinni. Brúðurin er í kampavíns-
litum silkikjól — án blóma.