Morgunblaðið - 18.09.1953, Qupperneq 16
Veðurúílif í dag:
Vaxandi A eða SA-kaldi með
rigningu síðdegis.
Edinbriarhátfö
önnur grcin á bls. 9.
211. tbl. — Föstudagur 18. septcmber 1953
i-iskikaupmenn í Grimsby
ganga í lið með
Daily Skefch hefir effir þeim:
Síðum með óþreyju eftir löndun Dawsons.
Á H U G I manna í Bretlandi fyrir hinum væntanlegu fisklöndun-
vm Dawsons hefur skyndilega aukizt mjög og mun það ekki sízt
Ftanda í sambandi við skyndihækkun fiskverðsins, sem stafar af
-óiskskorti og er mjög tilfinnanleg fyrir brezkar húsmæður. Er
ijöldi blaðamanna frá Lundúnablöðunum nú kominn til Grimsby
«g bíða væntanlegra Dawson landana.
f Lundúnablaðinu DailyÞ
Sketch and Graphic, sem út kom
i~ gær (fimmtudag) er skýrt frá
því að nokkrir fiskkaupmenn í
Grimsby hafi ákveðið að ganga
i lið með Dawson. Fréttagrein
þessi er stutt og hljóðar svo:
FLEIRI FISKIKAUPMENN
GANGA í LIÐ MEÐ
DAWSON
Fisksölumálin eru nú stöð-
ngt að skipast George Daw-
son og íslenzka fiskinum meir
í vil. Fiskkaupmenn í Grimsby
mestu fjandmannahöfn Daw-
sons, hafa nú ákveðið að
fylgja fordæmi fiskikaup-
manna í Aberdeen og Milford
Haven og sögðu þeir í gær:
Við bíðum með óþreyju eftir
þvi að Dawson landi fiski í
. Grimsby.
Fiskikaupmenn þessir skár-
ust úr hinni sameinuðu and-
stöðu togaramanna gegn
Dawson eftir að fiskskortur
olli því að þorskverðið hækk-
aði skyndilega um ZVi sh. í
Grimsby og 2 sh. á stone í
Hull.
Magnús Jóns-
scn lætur af
störfym í
Fjárhagsráði
Sefja ætfi gamla jaföskjálfta-
mælinn upp á ákureyri
Nauðsynlegt fyrir jarðskjáiftaafhuganirnar
í FYRRADAG varð jarðskjálftakipps vart norður í Mývatnssveit.
Pétur Jónsson í Reykjahlíð, sem hefur þar með höndum veður-
athuganir fyrir Veðurstofuna símaði, að nokkuð snarpur kippur
hefði fundizt heima í Reykjahlíð kl. 8.16 á miðvikudagsmorgun.
Þar í sveitinni hefur ekki orðið vart jarðhræringa síðan á ár-
inu 1934.
Eysteinn Tryggvason veður-
fræðingur, sem hefur með hönd-
um jarðskjálftaathuganir Veður-
stofunnar, skýrði Mbl. svo frá í
gær, að mælarnir hér í Reykja-
vík hefðu mælt hreyfingu á jarð-
ekorpunni og myndu upptök
Stippsins vera um 300 km leið
írá Reykjavík.
NAUÐSYN Á MÆLI
Á AKUREYRI
í þessu sambandi gat Eysteinn
J>ess, að í sambandi við jarð-
^kjálftaathuganirnar hér á landi,
vantaði tilfinnanlega annan jarð-
skjálftamæli. Væri heppilegur
íitaður fyrir hann á Akureyri.
Þar hefur skólameistari Mennta-
skólans gefið vilirði fyrir því,
að setja megi jarðskjálftamæli
tipp í skólanum. — Hér í Rvík
cigum við mæli, sem nota má,
©r tekinn var niður er hinn nýi
var tekinn í notkun. Eysteinn
^agði, að hann þyrfti viðgerðar
við, sem kosta myndi um 30 þús.
kr., ásamt kostnaði við að koma
mælinum fyrir á Akureyri.
TIL MIKILS GAGNS
Ef gamli mælirinn hefði verið
á Akureyri, mundi hafa verið
hægt að segja til um, hvar upp-
tök kippsins væru, sem fannst
í Reykjahlíð. Þá myndi mælir-
inn og koma að ómetanlegu
<gagni í sambandi við staðsetn-
ingu á jarðskjálftasvæðum á há-
lendi landsins.
Mjög nauðsynlegt er að vita
sem glöggust deili á jarðskjálfta-
svæðum landsins í sambandi við
hvers konar mannvirkjagerð,
Nauðsynlegt verður t. d., þegar
að því kemur að virkja Þjórsá,
að vita með algjörri vissu um
hættusvæðin á hálendinn, sagði
Eysteinn Tryggvason.
SKAMMT FRA REYKJAHLIÐ
En varðandi upptök jarð-
skjálftans í Mývatnssveit á mið-
vikudaginn, sagði Eysteinn telja
sennilegt, að upptök hans myndu
hafa verið í 50—60 km fjarlægð
frá Reykjahlíð.
Kippurinn var ekki svo harð-
ur að munir færðust úr stað.
MAGNÚS Jónsson prófessor for-
maður Fjárhagsráðs staðfesti í
gær við Mbl. þá fregn, að hann
hefði fyrir skömmu ritað ríkis-
stjórninni og óskað eftir þvi að
verða leystur frá störfum í ráð-
inu.
I Magnús Jónsson kvaðst líta svo
á, að í raun og veru væri starfi
Fjárhagsráðs lokið meö yfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar í mál-
efnasamningi þeirra flokka, sem
að henni standa. Hinsvegar tæki
nokkurn tíma að fá samþykkta
löggjöf um afnám Fjárhagsráðs.
Hann kysi því helzt að geta þeg-
ar snúið sér að öðrum störfum,
sem hann hefði lagt á hiíluna, er
hann tók sæti þar.
13 þúsund manns
í ungmennafélögum
UNGMENNAFÉLAG íslands
skýrði frá því í gær að nú væru
í félaginu 206 félög með um 13
þúsund félagsmönnum. Skiptast
félögin í 19 héraðasambönd og
auk þess eru 10 félög í Ung-
mennafélagi íslands án milli-
göngu héraðasambanda.
Treg veiði
við Grænland
HAFNARFIRÐI — Togarinn
Surprise kom í gær af Græn-
landsmiðum með um 260—70
tonn af fiski, aðallega þorski en
eitthvað af karfa. — Veður var
ágætt en veiði treg nema tvo
daga, en ferðin tók alls þrjár
vikur. — Togarinn Júní, sem
einnig er á Grænlandsmiðum, er
1 væntanlegur um helgina. G.
Hausfverð ákveðið á
kjöti og sláturaiurðum
Kjötkílóið koslar nú 19 krónur.
HAUSTVERÐ hefur nú verið ákveðið á kjöt- og sláturafurðir.
Hefur það hækkað smávægilega frá því s. 1. ár og stafar það af
lítilsháttar hækkun á verðlagsgrundvelli landbúnaðarafurða.
Smásöluverð er nú sem hér
segir: kr. kg.
Súpukjöt ............... 19,00
Lifur, hjörtu, nýru .... 15,90
Slátur með sviðnum haus 31,00
Smásöluverð kjöts var í fyrra
kr. 18,35 á kg. og álíka hækkun
hefur orðið á slátrinu.
Um þessa hækkun á vprðlags-
grundvelli landbúnaðarafurða
var fullt samkomulag í verðvísi-
tölunefnd, en í henni eiga sæti
þrír fulltrúar bænda og þrír
fulltrúar neytenda, frá Alþýðu-
sambandinu, Sjómannafélagi
Reykjavíkur og Landssambandi
iðnaðarmanna.
Nauðsynlegt að koma á
stofn gæzluvistarlieimili
fyrir áfengissjíiklinga |
r
Alyktun bæjarsljórnar í gær.
BÆJARSTJÓRN Reykjavíkur samþykkti á fundi sinum í gætj
með samhljóða atkvæðum, svohljóðandi tillögu um gæzluvistar-
hæli fyrir drykkjusjúklinga, frá bæjarfulltrúunum Sigurði Sig-
urðssyni og Sigurði Guðgeirssyni:
„Bæjarstjórn telur óhjákvæmilegt að komið verði á stofn gæzlu-
vistarhæli fyrir áfengissjúklinga og felur því borgarstjóra og bæj-
arráði að leita eftir því við ríkisstjórnina, að fyrir fé úr gæzlu-
vistarsjóði verði nú þegar unnið að því að koma á fót slíku hæli/*
AFENGISVARNARSTÖÐ
TEKIN TIL STARFA
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri ræddi nokkuð um það í
sambandi við tilklögu þessa, sem
gert hefur verið undanfarið í á-
fengisvörnum bæjarins. Um síð-
ustu áramót hefði samkv. till.
sérstakrar nefndar verið sett á
stofn áfengisvarnarstöð. Veru-
legur fengur væri að starfsemi
hennar.
Tómas Ciiðmimds-
soii á ríthö£unda-
fund í Róm
Anriað atriði í tillögu nefnd-
arinnar hefði verið það að ætla
i nokkurt rúm fyrir áfengissjúkl-
inga í sjúkrahúsum baejarins.
Hefði sjúkrahúsi HvítabandsinS
sérstaklega verið falið það verk-
efni.
í þriðja lagi hefði nefndin lagt
til að sett yrði á stofn gæzlu-
vistarhæli, sem ætlað væ-ri áfeng
issjúklingum er þar yrðu að vera
til langdvalar. Nefndin hefði
fengið tilboð um ýmsar jarðir
í þessu skyni en bezt hefði henni
litizt á Skeggjastaði í Mosfells-
sveit. Hins vegar hefði ekki ver-
ið talið fært að leggja úi í kaujs
á þeirri jörð.
I
FRUMVARP Á ALÞINGI
Borgarstjóri minntist því næst
á það að á s. L vetri hefði hann
flutt frumvarp um það á Alþingi
að gæzluvistarsjóður skuli kosta
slík hæli. En sjóður þessi fær
750 þús. kr. tekjur á ári o>g munu
nú vera hátt á 3. millj. kr, í hon-
um. Bæjarstjórn hefði hinn 6.
nóv. s. 1. skorað á Alþhngi að
samþykja þetta frumvarp. Það
hefði þó því miður ekki náð fram
að ganga á Alþingi.
Hann kvað tillögu Sigurðar
Sigurðssonar og Sigurðar Guð-
geirssonar fyllilega réttmæta og
skoraði á bæjarstjórnina að sam-
þykkja hana.
------------------- |
AÐ FRUMKVÆÐI Evrópuráðs-
ins verður haldinn rithöfunda-
fundur í Rómaborg dagana 13.
—16. október næstkomandi, og
er fundinum einkum ætlað að
fjalla um ráð til þess að kynna
hugmyndina um einingu Evrópu.
Á Hefur Evrópuráðið boðið
T kunnum rithöfundum frá
hverju þátttökuríki ráðsins að
sitja fund þennan, og greiðir það
allan kostnað af ferðum þeirra.
Af íslands hálfu hefur Tómas
Guðmundsson rithöfundur verið
tilnefndur til að sitja fundinn, og
hefur hann þegið boðið.
(Frú utanríkisráðuneytinu).
Vísitalan hækkar
um 3 stig
KAUPLAGSNEFND hefut
reiknað út vísitölu fram-
færslukostnaðar í Reykjavík
hinn 1. september s.l. og reynd
ist hún vera 159 stig.
Þetta er tæplega þriggja
stiga hækkun á vísitölunni.
Stafar hún aðallega af hækk-
uðu verði á kartöflum. Er
reiknað með sumarverði ís-
lenzkra kartaflna. Þegar þær
lækka i verði síðar í haust
mun vísitalan lækka að sama
skapL
Móðir?
LUNDÚNUM — Gladys Hind, 22
ára gift kona í Liverpool, hefir
verið tekin föst sökuð um að hafa
stytt aldur misseris gamalli dótt-
ur sinni.
skipstjórarnir
dæmdir í 10 þús. kr. hvor
VESTMANNAEYJUM 17. sept
— Báðir belgísku togaraskip-
stjórarnir, sem handteknir
voru við ólöglegar fiskiveiðar
undan Ingólfshöfða í gær ját-
uðu brot sitt fyrir rétti í dag.
Skipstjórarnir, sem heita
Honoré Carbon á Baltic III og
Willy Dumarey á togaranum
Nelly Sussanne voru að lok-
um dæmdir hvor í 10 þúsund
króna sekt., afli og veiðarfæri
gerð upptæk. Báðir voru svo
til nýkomnir á miðin og voru
með lítinn afla.
Sklpstjórarnir ákváðu báð-
ir að áfrýja dóminum.
— Bj. Guðm.