Morgunblaðið - 24.09.1953, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Firrimludagur 24. sept. 1953
Minningarorð
Jón Bergsveinsson
verksfjóri
í DAG fer fram útför Jóns Berg-
sveinssonar verkstjóra, Holtsgötu
37, Reykjavík. Hann lézt í Lands
spítalanum hinn 18. þessa mán-
aðar.
Jón var ættaður úr Flatey á
Breiðafirði, fæddur 10. desember
1914. Hann fluttist til Reykjavík-
ur árið 1926, byrjaði þegar að
starfa hjá Burstagerð Reykjavík-
ur og starfaði þar alla tíð síðan,
mörg ár sem verkstjóri þess
fyrirtækis.
Fyrir átta árum kendi hann
fyrst þess meins, er varð honum
að aldurtila, gekk þá undir upp-
skurð og virtist svo um
skeið að náðst hefði fyrir
rætur meinsins. — En sú
von brást. Fyrir fimm árum
tók sjúkdómurinn sig upp að
nýju og var Jón síðan meira eða
minna undir læknishendi og tíð-
um mjög þjáður, þó sérstaklega
síðastliðið ár.
Jón var maður í hærra lagi,
grannvaxinn, skarpleitur og ljós
yfirlitum. Hann var glaðlyndur
og spaugsamur og lifði eftir því
heilræði Hávamála: „Glaður og
reifur skyli gumna hverr uns
sinn bíður bana“.
Er ljóst að mikla hetjulund
þarf til að berjast árum saman
við kvalafullann ólæknandi sjúk-
dóm ög eiga þess von að hverfa
frá ástkærri eiginkonu og ungum
börnum á bezta aldursskeiði.
Jón var starfandi félagi Karla-
kórs Reykjavíkur 12 síðustu árin,
hafði ágæta tenórrödd og var
hinn bezti félagi.
Hann var með kórnum í
Ameríkuförinni 1946, ári eftir að
hann gekk undir hina fyrstu
skurðaðgerð, síðan hefur hann
ætíð sótt æfingar og sungið með
þegar heiisan gerði það mögu-
legt og síðastliðinn vetur byrjaði
:hann að æfa undir Suðurlanda-
,'ferð kórsins, en um það bil komst
'Sjúkdómurrinn á það stig að hann
fvarð að leggjast rúmfastur. Sýn-
dr þetta vel hve söngurinn og
félagsskapurinn var honum hug-
stæður og sennilega nokkur
stundarfró í dagsins raun.
Jón kvæntist eftirlifandi konu
sinni Unni Þorsteinsdóttur úr
Reykjavík árið 1939, eiga þau 2
börn, Þorstein 10 ára og Hildi 9
ára. Hefur Unnur verið manni
sínum óbætanleg stoð og stytta.
Karlakór Reykjavíkur flytur
henni, börnunum og fjölskvldu-
liði innilegustu sámúðarkveðjur
og biður til guðs cð þeim leggist
líkn með þraut.
H. Sigtryggsson.
GÆFA
írúlofunarhring-
anum frá
Sigurþór
Hafnarstræti 4
— Sendir gegn
póstkröfu. —
Sendið nákvæmt
mál. —
FYLGIR
— Nýtt leikrit eftir Efliot
Framh. af bls. 7. |
rænt leikrit eins og kallað er;
einnig er gamansemin og glettn-
in í því meiri en menn eiga að
venjast hjá Eliot. — En hér er
hvorki staður né stund til að
ræða hið nýja leikrit meistar-
ans öllu frekar, enda verður það |
gert á öðrum stað hér í blað-|
inu. Við skulum heldur bíða og1
sjá, hvort við fáum það ekki á
íslenzku áður en- langt um líð-
ur. Er sannarlega kominn tími
til að verk Eliots séu kynnt al-
þýðu manna hér á landi.
'k'k'k
T. S. ELIOT er fæddur í St.
Louis í Missouri í Bandaríkjun-
um árið 1888. Var hann snemma
settur til mennta og á að baki
sér hinn glæsilegasta námsferil,
var á Harvardháskóla, fór það-
an til Sorbonne og loks í háskól-
ann í Oxford. Hann settist að
í Lundúnum 1914, vann um skeið
sem bankamaður. kenndi, hélt
fyrirlestra, gerðist bókaútgef-
andi og síðar ritstjóri tímarits-
ins The Criterion, sem hann
stofnaði. — Fyrsta ljóðabók hans
kom út 1917, en áhrifamesta
Ijóðabók hans, The Waste Land,
kom út 1922, sama ár og Ulysses
eftir Joyce, en hún réði stefnu-
hvörfum í brezkri skáldsagna-
gerð.
k:k: -k
EKKI er nóg með það, að The
Waste Land hafi markað mikil-
væg tímamót á rithöfundaferli
Eliots, heldur má segja án þess
að of djúpt sé í árinni tekið, að
með þeirri bók hefjist straum-
hvörf í ljóðabókmenntum okkar
tíma. Um það leyti voru brezk
Ijóðskáld allt að 30 árum á eftir
tímanum og má til sanns vegar
færa, að Eliot hafi með þessari
bók sinni algerlega hlaupið yfir
30 ára þróunarkafla brezkrar
ljóðlistar; enda hefur varla
meira verið um aðra bók rætt
hvorki fyrr né síðar. í henni
koma fram sterk áhrif frá
frönsku symbolistunum, enda
hefur hann sjálfur haft orð á
því, að kynning hans af þeim
hafi opnað honum nýjan heim,
haft mikil áhrif á þroska hans og
smekk.
Þetta mikla verk Eliots er
sannarlega ekki auðskilið öllum
þorra manna. f því er mikil
bölsýni og reynir skáldið að
lýsa. hinni tómlegu eyðimörk
mannlegrar sálar, vonleysinu og
hinni andlegu auðn sem hvar-
vetna blasti.við eftir heimstyrj-
aldarárin; skulum við ekki
gleyma því, að The Waste land
er sprottið úr vanhirtum akri
eftirstríðsáranna, má jafnvel
segja, að það hafi verið forleik-
ur nýs dags, hikandi leit og von-
ameisti ungrar vegvilltrar kyn-
slóðar. Og enda þótt mörgum að-„
dáendum hins gamla og hefð-
bundna stíls, hinnar svo kölluðu
síðrómantíkur hafi þótt nóg
um nýjunagirni þessa unga
höfundar, hafi The Waste
Land gífurleg áhrif á þróun
ljóðlistarinnar, ekki sízt í Bret-
landi, þar sem bókin markaði
alger tímamót. Á Eliot heiður-
inn að því að hafa brotið ís-
inn, kveikt nýjan neista í ljóða-
bókmenntir þar í landi rifið
þær úr stöðnun og íhaldssemi.
Hefur hann unnið brezkum
kveðskap ekki minna gagn en
Claudel frönskum, Rilke og Hof-
mannsthal þýzkum.
k'k'k
ÖRVÆNTING Eliots minnkaði,
þegar á leið. 1927 féll hann í
náðarfaðm brezku biskupakirkj-
unnar, gerðist brezkur þegn og
lýsti því yfir tveimur árum síð-
ar, að hann væri „fylgismaður
biskupakirkjunnar, kiassíkker í
bókmenntum og konungssinni í
stjórnmálum".
HLAUT
NÓBELSVERÐLAUNIN
Árið 1930 sendi hann frá sér
hið undurfagra ljóðræna trúar-
verk Ash Wednesday og rak síð-
an hvert stórverkið annað, ljóð
og leikrit (Four Quartets, 1943,
Murder in the Chatedral, 1935,
Family Reunion, 1939, svo að
nokkurra sé getið. Auk þess hef-
ur hann sent frá sér ritgerðar-
söfn, t. d. Selected Essays, 1932,
og haft gífurleg áhrif á bók-
menntagagnrýni alla í heima-
landi sínu og víðar. — Sem kunn
ugt er hlaut hann bókmennta-
verðlaun Nóbels fyrir nokkrum
árum og voru flestir bókmennta-
unnendur ásáttir um, að til
þeirra hefði hann unnið öðrum
fremur. M.
Hver á heiðurinn af því af finna
blýnámurnar í Meisfaravík!
Svissneskur vísindamaðisr segisf hm fundið þær
KAUPMANNAHÖFN, 14. sept. — Mikil deila er nú risin upp vegna
hinna miklu blýnáma, sem fundizt hafa í Meistaravík á austur-
strönd Grænlands og unnið er nú stöðugt að því að nytja. — Er
það svissneski jarðfræðingurinn, dr. Hans Stauber, sem komið
hefur deilunni af stað.
„ÉG FANN NÁMURNAR"
Stauber hefur tekið þátt í
leiðangrum dr. Lauge Kochs til
austurstrandar Grænlands und-
anfarin ár. Hefur hann nú snúið
sér til Grænlandsdeildar danska
utanríkisráðuneytisins og kvart-
að yfir því, að Danir hafi séð
svo um, að hann hlyti engan
heiður af fundum námanna ,
Meistaravík; hefur hann krafizt
þess að fá viðurkenningu fyrir
því, að hafa fundið námurnar.
SVISSARAR VÍGAMÓÐIR
Svissnesk blöð hafa nokkuð
skrifað um mál þetta og halda
þau stíft fram málstað Staubers.
— Danska utanríkisráðuneytið
hefur gefið yfirlýsingu varðandi
mál þetta, þar sem segir m. a.:
,,Árið 1948 tók dr. Stauber enn
þátt í leiðangri til Austur-Græn-
lands undir forystu dr. Kochs.
Vann hann með smáflokki, sem
sænski jarðfræðingurinn dr.
Joseph Eklund var m. a. í.
Þessi flokkur sendi fyrst út vit-
neskjuna um, að blý hefði fund-
izt við Meistaravík."
MARGRA MANNA VERK
„Grænlandsdeild utanríkis-
ráðuneytisins er þó þeirrar skoð-
unar, að ekki sé hægt að þakka
neinum einum manni fund hlýs-
ins, heldur sé blýfundurinn á-
rangur af starfi fjölmargra
manna, sem verið hafa undir
forystu dr. Lauges Kauchs ailt
frá 1927. Þannig er ekki hægt
að líta svo á, að neinn einn mað-
ur eigi heiðurinn af fundi hinnar
verðmætu blýnámu.“
Kvöldskemmfunin
endurfekin
SÖNGSKEMMTUN sú er fram
fór í Austurbæjarbíói í gær-
kvöldi, vakti almenna ánægju
hinna mörgu er hana sóttu. Kom
þar fram margir kunnir íslenzkir
kraftar, svo sem Gestur Þorgríms
son, Baldur Georgs, Hljómsveit
Gunnars Ormslev, ennfremur
þrír kraftar, sem lítið hafa kom-
ið fram áður: Gúðmundur Guð-
mundsson, sem vakti almenna
kátínu með grínsöng sinum,
Ingibjörg Þorbergs og Grétar
Oddsson sem bæði komu nú í
fyrsta sinn fram sem dægurlaga-
söngvarar á hljómleikum.
Stærsta atriði kvöldsins var
að sjálfsögðu enski óperusöngvar-
inn Ronald Lewis. Söng hann
tvær óperuaríur og síðan vinsæl
óperettulög. Lagið „Flóin" sem
hann söng vakti mikla hrifn-
ingu.
Skemmtunin var mjög vel sótt
og er í ráði að endurtaka hana í
kvöld, og verður það í síðasta
sinn sem Ronald Lewis syngur
hér í Reykjavík, þar sem hann
mun syngja úti á landi næstu
daga.
Gerður Hjörleifsdóttir leik-
kona kynnti atriðin í gærkvöldi
og var það skemmtileg nýbreytni.
í kvöld mun Bryndís Pétursdótt-
ir kynna atriðin.
Kvenþjófur handfekinn í Danmörku
Slal m. a. innkaupatösku frá íslenzkri konu
t .
BEZT AÐ AUGLÝSA
MORGUNBLAÐINU
NYLEGA var komið upp um 44
ára gamlan kvenmann í Kaup-
mannahöfn, sem ákærð var fyrir
að hafa stolið mörgum ferðatösk-
um af aðaljárnbrautarstöðinni og
21 kventösku úr ýmsum verzlun-
um í Kaupmannahöfn.
Eitt af fórnarlömbum þessarar
bíræfnu konu, sem er gift og á
tvö börn, var íslenzk kona, frú
Fanney Benónýs.
Frú Fanney kom á ritstjórnar-
skrifstofu Morgunblaðsins í gær
með úrklippu úr dönsku blaði,
þar sem frá handtökunni var
greint og sagðist vera ánægð yfir
LILLU
kryddvörur
eru ekta og
þess vegna
líka þær
bezt. Við á-
byrgjumst
gæðin. ■—
Biðjið um LILLU-KRYDD
þegar þér gerið innkaup.
því að búið væri að hafa upp á
þjófnum. Frú Fanney hafði feng-
ið skeyti frá dönsku lögreglunni
þess efnis, að allar líkur bentu til
að hún mundi endurheimta inn-
kaupatöskuna, sem frá henni var
stolið 17. júlí s.l. í verzluninni hjá
Illum.
MARGT VERÐMÆTT
í TÖSKUNNI
Það kenndi margra grasa í
innkaupatösku frú Fanneyjar, því
hún hafði ætlað út að verzla
þennan dag. M. a. var í henni
verðmætt frímerkjasafn, beztu
gleraugu frúarinnar, sjálfblek-
ungur, hálfsaumaður púði, dúka-
sett, mikið af verðmætum klút-
um, og margt fleira var í tösk-
unni.
— En til allrar hamingju var
ég með peningaveskið mitt í hönd
unum, því annars hefði ég verið
illa á vegi stödd, sagði frú
Fanney.
Ekki var frú Fanney Benónýs
viss um hvort hún fengi innihald
töskunnar aftur, en hún sagðist
aðeins vilja vara landsmenn sína
við, þá sem hafa hugsað sér að
fara til Kaupmannahafnar, þann-
ig að þeir láti ekki frá sér hand-
töskur eða annað verðmæti í
verzlunum eða annars staðar.
Launahækkun
PARÍS — Samþykkt hefir verið
að veita 300 þús. lægst launuðu
verkamönnunum í Frakklandi
launahækkun, sem nemur um
140 kr. á mánuði.
M A R K tJ S Eftir Ed Dodd
rTHERE'S SOME MISTAKE, My
FRIEHD...MY NAME'S TRAIL,
AND I HAVE NO IDEA WHAT
IN BLAZeS VOU'RE TALKING
FVOU SNIVELLING RAT*
DONT PLAY INNOCENtViTH
ME...IM DOINö ALL IN My
POWER TO CONTROL
1) — Karl! Siggi er hér 2) — Mér dettur nú í hug að
fyrir utan. — Látið hann koma drepa þig strax, en það er bezt
inn. að þú fáir að gefa skýringu á
framferði þínu.
3) — Hér er um misskilning
að ræða. Eg heiti Markús, og
hefi ekki minnstu hugmynd um
hvað þú ert að fara.
4) — Reyndu ekki að koma
fram sem saklaus væri, illmenn-
ið þitt. Slík undankoma stoðar
ekki.