Morgunblaðið - 24.09.1953, Page 16
Veðurúflif í dag:
Allhvass eða hvass SV. Skúrir.
216. tbl. — Fimmtudagur 24. septcmber 1953.
Ekstrabladet kallar það
s\ívirðu við dönsk vísindi
Árni Friðriksson ráðinn framkvæmdastjóri
alþjóða hafrannsóknarráðsins
Einkaskeyti til Mbl.
KAUPMANNAHÖFN, 23. sept. — Ekstrabladet danska gagnrýnir
harðlega þá ráðstöfun, að Árni Friðriksson, fiskifræðingur, skuli
hafa verið skipaður framkvæmdastjóri aiþjóða hafrannsóknar-
ráðsins.
NÆR ENGRI ÁTT
Blaðið segir m. a.: „Villy
Dessau fráfarandi framkvæmda-
stjóri hefur gegnt starfanum með
miklum sóma. — Það nær ekki
nokkurri átt að velja vísinda-
mann í þetta starf, sem er eín-
vörðungu framkvæmdalegs eðlis.
DÖNSK VÍSINDI
SMÁNUÐ
Úr því að hins vegar var
horfið að því að ráða vísinda-
mann, var miklu nær að skipa
Dana, því að danskir vísinda-
menn eru heimskunnir fyrir
hafrannsóknir. Með því að
skipa íslenzkan vísindamann,
en ganga með öllu fram hjá
frábærum vísindamönnum
Dana á sviði hafrannsókna,
eru dönsk vísindi smánuð
freklegar en þolað verði.“ !!
— Páll.
Fulltrúar íslands
á þlns^ SÞ
RÍKISSTJÓffNIN teíraur skipað
eftirtalda rraerm ií æraafinefnd á
allsherjarþmg SæænHinmfðu þjóð-
anna, sem b» tv. hafiáið í New
York:
Thor Thcra^, afinxJíNerra, for-
mann, Vilhá'æiasi Swr, ferstjóra,
Jóhann Hafáfeirr,, afjþingísmann.
Þeir Vilhjáimur Þór ®g Jóhann
Hafstein áttu- að fl'jjLÍga vestur um
haf í nótt eir Íkiiíi.
Maður fellur af hesfbaki
hlýtur af bví bana
* jflL
AKRANESI, 23. sept. — Það slys vildi til í gær vestur í Kolbeins-
staðahreppi í Hnappadalssýslu, að maður féll af hestbaki og lézt
hann í morgun af afleiðingum fallsins.
Síldarsö’fttot í Eyj-
ura 5500—6000 tn!
FRÉTTARIT'&RI .Siíia.. í Vest-
mannaeyjurm símaíKi blaðinu í
gær, að á þri-Stjsjdagi'Mj hefði mik
ið af síld vsriíS saltóS þar. Mun
söltun ekkí hafa verMI jafnmikil
á einum degi það senv af er síld-
arvertíðinnL Tafdi fréttaritarinn
sennilegt aS söltrmin heíði á
þessum degi numið um 1000
tunnum. Nenuír heiida.rsöltun
síldar þar í eyjunum nú 5500—
6000 tunnum.
Maðurinn hét Ingvar Frímanns
son, bóndi í Ytri-Skógum í Kol-
beinsstaðahreppi. Hann var gift-
ur og átti eitt barn. Ingvar heit.
var um fimmtugt.
VAR AÐ KOMA
ÚR RÉTTUM
Þegar slysið vildi til, var Ingv-
ar að koma úr réttum. Slysið
var spölkorn frá Kolbeinsstöðum
og var Ingvar borinn þangað
heim. Símað var til læknisins í
Borgarnesi, Eggerts Einarssonar,
sem fékk sjúkrabílinn hér á Akra
nesi til að flytja sig á slysstað-
inn. Kom læknirinn hingað í nótt
með hinn slasaða mann, sem var
lagður í sjúkrahúsið hér og lézt
hann þar í morgun milli kl. 5
og 6. — Oddur.
Landa karfa í
Hafnarfirði
HAFNARFIRÐI — Togarinn
Fylkir kom hingað í morgun með
um 200 tonn af karfa, sem fer
til vinnslu hjá fiskverkunarstöð
Jóns Gíslasonar og Mölum h.f.
Einnig er ísólfur væntanlegur
með karfa n. k. mánudag. —
Togarinn Júní kom s. 1. sunnu-
dag af Grænlandsmiðum, en ekki
jnánudag, eins og sagt var í blað-
inu í gær. Hann fór í fyrra-
kvöld á ísfiskveiðar. — Bjarni
Tiddari er væntanlegur um helg-
ina frá Þýzkalandi.
Reknetjabátarnir fengu lítinn
afia í gær. Voru flestir þeirra
með um 20—30 tunnur. Stefnir
var hæstur með um 80 tunnur.
— Drangajökull lestaði hér síld
og fisk í gær. —G.
Síldin fer bsfnandi
í Sandgerði
SANDGERÐI, 23. sept. — í dag
var afli síldveiðibátanna í treg-
ara lagi, en mikilsvirði er, að
síldin virðist fara batnandi, en
til þessa hefur aðeins verið hægt
að salta lítinn hluta síldarinn-
ar og hún þá farið til frystingar
og bræðslu. Hingað komu í dag
26 bátar með 1200—1500 tunnur
alls. — Einn bátanna, Víðir úr
Garði, var með 260 tunnur. —A.
Erfingur VE 295 lek-
inn í landhelgi
VESTMANNAEYJUM 23.
sept. — Vélbáturinn Erlingur
VE 295, sem er um 25 smá-
lestir að stærð, var tekinn í
landhelgi í morgun kl. 11 suð-
austur af Súlnaskeri. Var bát-
urinn 2 sjómílur innan fisk-
veiðitakmarkanna.
Ægir tók skipið og kom með
það hingað kl. 12. — Skipstjór-
inn viðurkenndi brot sitt og
var dæmdur í 4 þús. króna
sekt. Afli og veiðarfæri var
gert upptækt.
Vegabréfaskoðun
verði afnumin
STRASSBORG, 23. sept. — í
dag samþykkti ráðgjafarnefnd,
Evrópuráðsins ályktun, þar sem
lagt er til, að vegabréfaskoðun
milli aðildarríkja verði afnumin.1
Einnig verði gjaldeyriseftirlit af- '
numið á landamærum sömu
ríkja ásamt öðrum tálmunum af
svipuðu tagi. — Reuter-NTB. I
rolíaeffirlifið með
innflufningi iðnað-
arvara
SKÝRT er frá því i september-
hefti „íslenzks iðnaðar“, sem
kom út í gær, að Félagi íslenzkra
iðnrekenda hafi borizt svar frá
fjármálaráðuneytinu við bréfi
því varðandi tollaeftirlit, sem
sagt var frá hér í blaðinu í gær.
Er í svarinu skýrt frá því, að
tollstjóranum í Reykjavík hafi I
verið falið að gefa ráðuneytinu '
skýrslur um málið og gera tillög- j
ur um áhrifaríkar ráðstafanir til
að koma í veg fyrir misferli í
sambandi við vöruinnflutning. |
Inga Þórðardóttir og Einar Pálsson í „Einkalífi", sem frumsýnt
var í gærkvöldi.
Einkalífi Noel Cowards
ágæilega lekið
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hafði í gærkvöldi frumsýningu á leikritinu
Einkalíf eftir Noel Coward. Var leiknum ágætlega tekið og leik-
endum fagnað mjög í leikslok.
Leikendur voru þessir: Inga leikstjóri Gunnar R. Hansen.
Þórðardóttir, Róbert Arnfinns- | Þetta er fyrsta leikritið, sem
son, Hildur Kalman, Bryndís Pét- Þjóðleikhúsið frumsýnir á þessu
ursdóttir og Einar Pálsson, en hausti.
OTTAZIIIM 16 ARA l'ILT,
HVARF AB HEIIUAN UIH ÍTT
Jakkiíin hans fundiim
í GÆR lét rannsóknarlögregian lýsa cftir 16 ára pilti héðan úr
bænum, sem óttazt cr um. Fór hann að heiman frá sér aðfaranótt
þriðjudagsins.
Blómskrúð Austurv alíar
baðað ljósum á kvöldin
UM helgina mun verða lokið að koma fyrir ljósum meðfram gang-
stígum Austurvallar, en í fyrrakvöld var í fyrsta skipti kveikt á
nokkrum Ijósurrt við einn stíganna.
Langt á milli
NEW YORK — Langt var á milli
fæðingarstaða tvíbura, sem svert
ingjakona fæddi á dögunum í
Bandaríkjum. Ó1 hún annað á
heimili móður sinnar, en hitt 1
sjúkrahúsi 10 stundum seinna. —
Um 150 mílur voru milli fæðing-
■aistaða.
„SJÁLFLÝSANDI“ BLÓM
Þetta vakti eðlilega strax at-
hygli vegfarenda.-----í fjarska
virtist sem blómskrúðið væri
sjálflýsandi í myrkrinu. Dáðust
vegfarendur að þessu og ræddu
um það sín í milli, hve fallegt
myndi verða, ef slíkum ljósum
yrði komið fyrir meðfram stígun-
um öllum.
Verkfræðingadeild Rafveitunn-
ar skýrði blaðinu svo frá í gær,
að í dag og næstu daga yrðu Ijós
sett upp við aðra stíga og myndi
allt blómskrúð Austurvallar
verða ljósum baðað um helgina.
FREKARI SKRAUTLÝSING
Ekki vildi verkfræðingadeildin
gefa upplýsingar um frekari
skrautlýsingu á Austurvelli, en
verkfræðingarnir hafa lengi haft
í huga að skrautlýsa Austurvöll
og nú, þegar nægilegt rafmagn
er, má fullvíst telja að skrautlýs-
ingunni verði hrundið í fram-
kvæmd.
í föstu starfi í
Reyhjavík, jaío-
franit shólastjóri
á ísafirði
ÍSAFIRÐI, 23. sept. — Nýlega
samþykkti fræðsluráð ísafjarð-
ar, að mæla með því, að Hanni-
bal Valdimarssyni yrði veitt árs
frí, án launa, frá skólastjórn
Gagnfræðaskólans á Isáfirði. —
Var tillaga þessi samþykkt með
3 atkv. gegn 2.
Það voru fulltrúar Sjálfstæðis-
manna, sem greiddu atkvæði
gegn tillögunni. Töldu þeir úti-
lokað, að Hannibal gæti gegnt
áfram skólastjórastarfi á Isafirði
eftir að hann væri fluttur bú-
ferlum úr bænum og hefði tekið
að sér fast starf í Reykjavík. Á
þessum forsendum greiddu þeir
atkvæði gegn því að leyfið yrði
veitt. — J.
Piltur þessi heitir Baldur Er-
lendsson, Bergþórugötu 45. Ekki
var vitað hvert hann ætlaði, er
hann fór að heiman frá sér urn
kl. 1 um nóttina.
x
JAKKI HANS FUNDINN
Morguninn eftir var lögregl-
unni tiíkynnt, að fundizt hefði
jakki, skór og bomsur við hjól-
barðaverkstæðið Gúmmíbarðaniii
við Skúlagötuna, við gatnamót
•Barónsstígs. í jakkanum fundust
skilríki, sem gáfu til kynna, að
jakkinn væri eign hins horfna
pilts.
ÁRANGURSI.AUS
EFTIRGRENNSLUN
Reynt hefur verið að grennsl-
ast fyrir um ferðir Baldurs síðan
hann fór að heiman frá sér fyrr-
nefnda nótt, en árangurslaust enn
sem komið er. Biður rannsóknar-
lögreglan þá sem hafa séð Bald-
ur, að gera viðvart. Hann er I
hærra meðallagi, þrekinn með
Ijósskolleitt hár. Hann var í grá-
um fötum frakkalaus.
Engin dýr
CANBERRA — Engin lifandi dýr
verða notuð við kjarnorkutil-
raunir Breta, sem fram fara j
Astralíu.