Alþýðublaðið - 24.06.1920, Side 2
2
Aígreid^ia
blaðsins er í Alþýðuhúsinu við
Ingólfsstræti og Hverfisgötu.
Síml 988.
Auglýsingum sé skiiað þangað
eða í Gufenberg í síðasta Iagi kl.
10, þann dag, sem þær eiga að
koma í blaðið.
mun þana, sem er á milli 2. og
3. alþjóðasambandsins.
Bolsivíkar (3. alþjóðasambandið)
byggja á „alræði öreiganna" og
skoða sitt hlutverk að undirbúa
byltingu öreiganna, sem sé óum-
ðýjanlegt að komi og eigi að
koma.
í nánu sambandi við alræði ör-
eiganna er einnig það stjórnar-
fyrirkomulag, er Bolsivíkar hafa
notað, sem sé „s©vjet“-stjórn, sem
þeir skoða sem eina valdið, er
geti geit byltinguna að gagni og
öreigaríkið um leið eigi að byggj-
ast á.
Þeir vilja með öðrum orðum
enga leið fara aðra en byltinga-
leiðina, og fara þó eftir kenning-
um Karls Marx.
Fylgismenn 2. alþjóðasambands-
ins vilja aftur á móti fara þing-
ræðisleiðina.
Foringjar flokka þeirra, er því
fylgja, trúa á þingræðisfyrirkomu-
lagið, og að jafnaðarmannaríkið
verði myndað smám saman og
með hægfara þróun. 2. alþjóða-
sambandið er því andvígt bolsi-
víkurn og kenningum þeirra. En
það missir traust verkamannafé-
L.ganna meira og meira. Óháðir
jafnaðarmenn í Þýzkalandi, Frakk-
landi og Ítalíu hafa allir yflrgeflð
það og hallast að bolsivíkum,
enda þótt þeir séu engan veginn
eindregnir byltingamenn. Óháðir
jafnaðarmenn hafa því reynt að
mynda nýtt alþjóðasamband, er
mætti umlykja alla virkilega jafn-
aðarmenn. Brezki verkamanna-
flokkurinn (Independent Labour
party) sagði sig einnig úr 2. alþj,-
sambandinu í vor, og samþykti
að reyna að mynda nýtt, er um-
lyki alla virkilega jafnaðarmenn.
Jafnaðarmenn í Evrópu eru því
klofair í hægri-, miðflokk og vinstri-
flokk. Og milli hægri jafnaðar-
manna öðrum megin og miðflokks-
ins og vinstrimanna hinum megin
er nú staðfest það djúp, er vart
ALÞYÐUBLAÐIÐ
verður brúað þann veg, að þeir
geti skipað sér undir sameigin-
legan alþjóðafána. Því má búast
við, að óháðir jafnaðarmenn víðs-
vegar um álfuna muni hverfa yfir
til 3. alþjóðasambandsins, efþeim
tekst ekki að mynda nýtt. Þó
mun þetta sérstaklega eiga við á
meginlandi Evrópu. Þar má segja
að gamla stjórnarfyrirkomulagið
sé víðast oltið um koil, og deilur
um framkvæmd hugsjóna jafnaðar-
manna eru því orðnar að virki-
leika, en eigi lengur háðar „á
pappírnum". í Englandi og Skandi-
navíu gegnir aftur nokkuð öðru máli.
í Ameríku og Austurlöndum er
eigi um það ritfrelsi að ræða, að
mál þessi geti verið ofarlega á
baug. En eftir því sem auðvalds-
ófreskjan herðir tökin fastar, má
búast við að verkamenn þykist
sjá betur og betur, að byltinga-
leiðin sé eina leiðin. Þeir þykjast
vera búnir að fá smérþefinn af
hinu svokallaða „frjálsa þingræðis-
stjórnarfyrirkömulagi". X
jEfUeft vatnsflóð
í borginni Louth á Englandi.
Borgin Louth liggur við austur-
strönd Englands, skamt frá hafn-
arbænum Grimsby, sem svo margir
íslendingar þekkja. Þar varð, 29.
maí síðastliðinn, ægilegt vatnsflóð,
er stórtjón leiddi af. í gegn um
borgina rennur smá-áin Lud Seinni
part dags gerði ofsarigningu þar
skamt frá, og áður en nokkutn
varði tók að hækka í ánni, svo
að hún hækkaði um 15 fet og
flæddi yflr alla miðborgina. 25
manns fórust í flóðinu og nokkrir
meiddust og dösuðust. Vatnsflóðið
ruddi um nær 40 húsum og ger-
eyðilagði mörg hús, er uppi stóðu.
Flóðið varaði skamman tfma, en
bar ógrynni af aur og leðju upp
í borgina. Sksðinn er metinn
rúml. 1 milj. króna.
(Times Weekly).
Óvenjumikið af sel sást á
Skagafirði nýlega. Telja fróðir
menn það góðs vita og búast við
miklu síldarári í sumar.
Laukur
fæst í
Kaupfélagi Ryíkur,
(Gamla bankanum).
Um daginn og veginn.
Yatnslaust var með öllu í upp»
bænum í gær eftir kl. 12, og i
morgun var vatn að eins til kl.
11. Má nærri geta hve slfkt er
bagalegt; og hin mesta futða, að
vatnsneytendum skuli ekki gert
aðvart, áður en vatnið þverrar
aigetlega. Þeir, sem gæta eiga
leiðslunnar, hljóta að geta séð £
brunnunum, ef vatnið er að þrot-
um, og væri þá hægðarleikur að
koma í veg fyrir að ekki fengist
vatn til drykkjar, hvað þá meira,
heila daga. Borgarstjóri sagði fyr-
ir kosningar í vor, þegar hann
var að ginna menn til fylgis við
sig, að langtkomin væri ítarleg
rannsókn á því, hvers vegna vatn-
ið þryti. Nú eru liðnir því nær
tveir mánuðir síðan Knud sagðl
þetta, og enn er rannsókn þessari
ekki lokið; því þá væri vatnið
víst nóg. Ætli það tari ekki svo,
að Knud Zirnsen geti við næstu
kosningar afsakað vatnsleysið með
þessu sama?
PrestsTÍgslnr. Á sunnudaginn
kemur verða þessir guðfræðiskandi-
datar vígðir til prests í dómkirkj-
unni: Gunnar Benediktsson að
Grundarþingum, Sigurður Lárusson
að Helgafelli og Stanley Guð-
mundsson að Barði í Fijótum.
Jón Forseti kom í gær af fiskt-
veiðurn með góðan afla.
Botnía lagði af stað frá Fær-
eyjum kl. 3 í gærdag. Hún er
væntanleg hingað úr hádeginu á
morgun.
ÁftnrgÖBgnr voru leiknar £
síðasta sinn í gærkvöldi, fyrir fullu
húsi.
Páll ísólfsson heldur hljóm-
leika á morgun í DómkirkjunnL
Þar geta menn vænst góðrar skemt-
unar.