Morgunblaðið - 03.10.1953, Blaðsíða 7
Laugardagur 3 okt. 1953
'V?
MORGUN BLAÐIÐ
Baráltan um
„——»■«■■■■■■■
varð að stórpólifískri deilu milli
Vínberin
HVER skyldi trú því, að valda-
streytan í Moskvu ætti að ein-
hverju leyti rætur að rekja til
ásta og: afbrýðisemi? En þó er
það nú svo, að jafnvel fall Bería
á að nokkru leyti rætur að rekja
til ástarævintýra: — Frú Bería
og frú Malenkóv eru nefnilega
jgamlir keppinautar á leiksvið-
inu. Frú Malenkóv fekk ekki sízt
sigur af því, að bak við hana
stóðu tveir af mestu áhrifamönn-
um Sovétríkjanna, maður hennar
Malenkóv forsætisráðherra og
bróðir, Kruchev aðalritari mið-
stjórnar kommúnistaflokksins, en
Bería stóð einn með sinni ekta-
kvinnu. — Annars er þetta ákaf-
lega flókið mál og verður það
rakið hér á eftir í stórum drátt-
um:
★ ★ ★
UNGFRÚ Helena Krutchev kom
til Moskvu um 1930; hún var þá
há kona vexti, grönn og spengi-
leg. Skyldi hún annast húshald
hjá bróður sínum, sem þá þegar
hafði komizt til nokkurra met-
orða. En leyndardómurinn í
brjósti hennar var sá, að hana
langaði til að verða söngkona,
og 1935 fékk hún tækifæri til
að sýna, hvað í henni byggi.
STALÍN HEIÐURSGESTUR
Helena varð snemma á vegi
Malenkóvs, en hafði í fyrstunni
lítinn tíma aflögu handa hinum
unga og framagjarna stjórnmála-
manni, enda helgaði hún sig alla
listinni. En þegar hún var orðin
fræg óperusöngkona, sá hún aft- |
ur á móti brátt, að það mundi
ekki spilla fyrir henni, ef hún I
giftist áhrifamiklum stjórnmála-'
manni; gaf hún því Malenkóv J
hond sína og hjarta — og var
Stalín sjálfur heiðursgestur í
brúðkaupi ungu hjónanna. Þetta
gerðist 1938 er Helena var víð-
fræg orðin. Plún var hin mikla
og glæsilega stjarna, söng aðal-
hlutverkin í stærstu óperunum
fyrir Stalín og Æðsta ráðið.
„STÁLHNEFINN“
KLÖKKNAÐI
En skyndilega kom ný stjarna
fram á sjónarsviðið. Hún var
ættuð frá Grúsíu og hét Tamar
Bería; kom brátt í ljós, að Stalín
þótti meira til hennar koma en
frú Malenkóv, enda var hún ekki
aðeins fögur, heldur einnig mikil
söngkona — og ekki nóg með
það heldur söng hún á georgísku,
mállýzku Stalíns. — T.amar átti
því auðvelt með að skjóta Helenu
aftur fyrir sig, — en hin síðar
nefnda hugði sannarlega á hefnd-
ir; leið síðan nokkur tími, að
ekkert lát var á vinsældum Tam-
Molenkóvs op Bería | komin í allar okkar búöir j
iillis Ualflij I
Kruchev, bróðir Helenu, —
mágur Malenkóvs
ars Bería; hún söng fyrii höfð-
ingja Sovétríkjanna, vann hjörtu
þeirra, og jafnvel „Stálhnefinn“
varð klökkur við.
„ÓÞJÓÐLEG“ SAGÐI BERÍA
En svo var það einn góðan
veðurdag, að tónskáldi nokkru
var falið að semja „þjóðlega
óperu“, og höguðu örlögin því
svo til, að tónskáldið var læri-
meistari Helenu Malenkóvs; fékk
hún því aðalhlutverkíð og ætlaði
nú sannarlega að gjalda Tamar
rauðan belg fyrir gráan. — Á
frumsýningunni vann hún glæsi-
legan sigur og var frammistaða
hennar rómuð af viðstöddum. —
En Adam var ekki lengi í Para-
dís. Öryggis- og leynilögregla
Bería tók þá til sinna ráða og
reyndi að sannfæra Æðsta ráðið
um, að óperan væri hin óþjóð-
legasta í alla staði, þar sem aðal-
kvenhetjan hefði bæði verið „sið-
laus og borgaraleg". Benti örygg-
islögreglan á máli sínu til sönn-
ur.ar, að annars væri ekki að
vænta, þar eð efnisþráðurinn
hefði verið sóttur í eina af smá-
sögum Maupassants!
LISTIN LÁTIN SITJA
Á HAKANUM
Þetta gerðist 1943. Nazistaher-
irnir voru enn ósigraðir og Stalín
hafði öðrum hnöppum að hneppa
en taka ákvarðanir i þessu deilu-
.máli. Fyrirskipaði hann því bæði
Helenu Malenkóv og Tamar
Bería að leggja listina á hilluna,
þar eð nú ætti urússneska þjóðin
í harðvítugri baráttu fyrir frelsi
sínu og tilverurétti; listin varð
að sitja á hakanum.
HELENU VEITIR BETUR
Lítið bar svo á þessum rúss-
nesku hofrófum, þangað til að
lokinni styrjöld. Hófst þá aftur
ný styrjöld, — styrjöldin milli
Tamar og Helenu, örlagadísa
rússneska heimsveldisins. Og nú
fór Helenu að veita betur í bar-
óttunni; maður hennar var (að
margra dómi) sjálfsagður eftir-
maður Stalíns og bróðir hennar
var nú orðinn félagi í miðstjórn
kommúnistaflokksins og áhrifa-
maður. Var því sennilegt, að úr-
slitanna yrði brátt að vænta, .—
að til stórtiðinda drægi, áður en
langt um liði.
í VINAHÓPI
Og svo varð. — Bería og kona
hans bjuggu lengstum í sumar-
höll sinni við Svartahafið. Var
hún á umráðasvæði rússnesku
öryggislögreglunnar, vandlega af
girt og gætt af ströngum her-
verði. En Tamar kunni ekki við
sig í slíku umhverfi; hún vildi
ekki vera lokuð inni, gætt af
ströngum vörðum, hún þráði
tengsl við umhverfið, félagsskap
vina og kunningja. Safnaði hún
því um sig álitlegum hóp ungra
og lífsglaðra listamanna og gat
komið þeim inn á hið afgirta
landsvæði án þess að verðirnir
yrðu varir við. Var það þó al-
gerlega bannað, því að örýggis-
lögreglan hafði þarna bækistöðv-
ar sínar og hvíldi mikil leynd
yfir þeim,
„SAMSÆRI GEGN RÍKINU“
Um þetta leyti var Sergei nokk
ur Kruglov yfirmaður öryggis-
lögreglunnar á þessum slóðum;
hann var í miklu vinfengi við
Malenkóvhjónin. — Dag nokkurn
skyldi sjálfur Stalín heimsækja
aðalbækistöðvar öryggislögregl-
unnar við Svartahaf. og var því
gerð dauðaleit um allt lands-
svæðið, ef vera kynni, að ein-
hver leyndist þar, sem gæti orðið
hættulegur lífi foringjans. Þegar
leitað var í húsakynnum Bería-
hjónanna, kom það úr kafinu, að
fyrrverandi fursti nokkur, Basil
Dunbadze að nafni, var þar stadd
ur án þess að hafa til þess leyfi
varðanna. Og ekki bætti það úr
skák, þegar öryggislögreglan
fékk við nánari athuganir full-
vissu fyrir því, að náungi þessi
hefði setið í svartholinu fyrir
„samsæri gegn ríkinu“.
Framh. á bls. 11.
■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■
Til sölu
Stórt gólfteppi, Axminster A-l, lítið notað, stærð
4,80x3,80 m., filt fylgir. — Einnig til sölu á sama stað
eikarborðstofuborð og 6 stólar með stoppaðri setu og
tveir gluggakarmar úr ljósu birki með mahogny rönd-
um. — Tækifærisverð. — Uppl. Mánagötu 11, sími 4397.
Tilkynning
Flytjum í dag afurðasölu vora úr frysti-
húsinu Herðubreið i hina nýju Matvæla-
miðstöð vora, við Laugarnesveg (á
Kirkjusandi).
Símar: 7080 og 2678.
S&mberid
esE. samvínnufélaga
IMæloriora
Þorskanetaslöngur úr nýja ítalska nælonefninu,
með snöggu áferðinni, eru væntanlegar.
Tek á mófi pöntunum næstu daga.
Netagerð Hafnarfjarðar,
S-mi 9944.
Barna-regnfatnaður
Nokkur stykki af drengja og telju regn-
fatnaði á aðeins 60 krónur.
Tóledó, Fischerssundi. .
■■■■■■■■■■■■■•■•■■■
■■■•■■■■■■■■■■•■■■■
l■■■■«■■a■«••»■•■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■
■■■■■■■■■■■■■■■■■■
•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
íbúð
Ameríkani, starfandi við sendiráð Bandaríkjanna,
óskar eftir 6—8 herbergja íbúð eða einbýlishúsi án
húsgagna, til leigu. — Uppl. í síma 82363 eða 5960.
■■■■■■■■■
««•■■■■•■■■
■■■•■■•■•■•■■■■I
■•■■■••■■•••■■•■■
Óperusöngkonurnar frú Tamar Bería og Helena Malenkóv ásamt mönnum sínum
A.tvirsna ó&kast
Reglusamur og áreiðanlegur maður óskar eftir starfi sem
mætti vinna sjálfstætt hálfan eða allan daginn. — Er
vanur sölumaður og bílstjóri (meira fxróf). — Margt
annað kemur til greina. Góð meðmæli fyrir hendi —
Tilboð merkt: „33—921“, sendist Mbl. fyrir miðviku-
dagskvöld 7. þ. m.