Morgunblaðið - 31.10.1953, Side 7

Morgunblaðið - 31.10.1953, Side 7
Laugardagur 31. okt. 1953 MORGUNBLAÐIÐ ^J^venbjó&in oej —Ueitnitifí Vandi foreldranna er mikill KONA nokkur, frú A., segir eft- ii-farandi sögu: í samkvæmi einu ræddu gest- irnir um börn og barnauppeldi. — Og svo sannarlega var byrjað á því að lofsyngja hinn unga föður nútímans, sem ekki skammaðist sín hið minnsta fyr- ir að hjálpa konunni sinni með heimilið og börnin. __•__ „O-jæja, sagði frú E., — ég ætla ekki að nefna nein nöfn og ekki er það minn eiginmaður sem ég á við, en ég þekki konu, sem kemur einu sinni í viku til að hjálpa mér í húsinu. Hún er gift og hefur mikinn og einlægan áhuga á að ala vel upp börnin sín, en það liggur við að maður hennar geri grín að henni fyrir það. Sjálfur vill hann engin af- skipti af því hafa, hann vill hafa frið, þegar hann kemur heim á kvöldin og krefst þess, að hún sjái um börnin og leysi öll vanda mnál í því sambandi án hans hjálpar". __•__ „Já, en það er nú heldur ekki alitaf svo auðvelt fyrir okkur veslings karlmennina — sagði herra P., sem við öll vitum, að er mikill fyrirmyndarfaðir. — „Ég hef verið giftur einu sinni áður eins og þið vitið, en í fyrra hjónabandi mínu fékk ég naum- ast að snerta litlu dóttur okkar. Ég hefði svo sannarlega ekki haft á móti því að mata hana öðru hvoru og skipta á henni, en ég mátti bókstaflega ekki koma nálægt henni, svo að konan mín segði ekki „Heyrðu mig, er þér ekki kalt á höndunum — eða — ertu ekki kvefaður". — Og skyidi ég voga mér að taka litla krílið upp til að gæla svo lítið við hana eða hugga hana, þegar hún skældi, þá var stöðugt sama við- kvæðið: „Gáðu að þér maður! Þú ferð alltof harkalega með barnið — þú varst rétt búinn að missa það“. __•__ „P. hefur á réttu að standa — sagði húsmóðirin — það er oft okkur konunum sjálfum að kenna, að börnin taka óeðlilega afstögu til föður síns. Á^bernsku- heimili mínu var pabbi nokkurs konar milliliður á milli guðs almáttugs og lögregluþjónsins á horninu. Seinna uppgötvuðum við, að hann var allt öðru vísi, en meðan við vorum lítil var það mamma, sem gerði hann slíkan í augum okkar með því að nota hann stöðugt til að ógna okkur með sem hinu æðsta valdi: „Pabbi verður reiður, ef þið ger- ið þetta .... bíðið þið bara, þang að til pabbi kemur heim .... Pabbi vill, að þið séuð dugleg í skólanum o. s. frv. o. s. frv. __•__ Sennilega hefur hún ekki hugs að út í þetta, en núna eftir á er mér ljóst, að hún skellti stöðugt skuldinni á pabba og skaut sjálfri sér undan ábyrgðinni á öllum skakkaföllunum, sem börn nú einu sinni hljóta að verða fyrir. Hvað sem því líður, þá varð hún HvaS er takmarkiS? HÉGÓMAGIRNI, ósjálfstæði í skoðunum — apakattarháttur <eru eiginleikar, sem oft á tiðum heyrast eignaðir kvenþjóðinni einstaka sinnum til hróss af þeim, sem telja, að hinn kvenlegi yndisþokki sé fyrst og fremst fólginn í breyskleikanum sem slíkum — án hans sé konan ekki kona, heldur aðeins sem nokk- urs konar misheppnað afbrigði karlmannsins. Það er nú svo — ailir menn eru með margvíslegum breysk- leika fæddir og mjög er ósenni- Iegt, að nokkur kona vildi fall- ast á að hann í sjálfu sér sé eins- konar aðalsmerki! hins kveniega eðlis. Traust og heilsteypt skapgerð er kostur á hverjum manni, konu sem karli og hverjum einstakl- ingi er í sjálfsvald sett að á- vinna sér þann kost í meiri eða minna mæli, byggja upp og temja skapgerð sína. Hégómagirni og apakattarhátt- ur eru eiginleikar — brestir, sem ekki fá samrýmzt heilbrigðum og þroskuðum persónuleika, sem ef til vill mætti segja að sé sama hugtakið, og traust og heil- steypt skapgerð, túlkað með öðrum orðum. Eflaust verða ýmsir til að segja sem svo, að skapgerð og persónu- leiki sé nokkuð, sem við sjálf höfum engin áhrif á. Hverjum og einum sé slíkt áskapað frá upphafi, skaparanum hafi þókn- azt að gera hann þannig úr garði og þar við sitji. Hýjasfa Reykjavíkuríízkan Slíkt er áreiðanlega misskiln- ingur. Öllu andlega heilbrigðu fólki er í lófa lagið að hafa áhrif á og stuðla að sinni persónulegu þróun og fullkomnun —- aðeins ef það vildi temja sér dálítinn sjálfsaga og — umfram allt — beita skynsemi þeirri og dóm- greind, sem guð hefir gefið því í ákvörðunum sínum og gerðum á vettvangi hins daglega lifs. Þeir eru alltof fáir, sem gefa sér tíma til að þroska hæfileika sína til að hugsa og taka afstöðu til hlutanna eins og þeir koma fyr- 'j ir. Það á ekki hvað sízt við um kvenþjóðina. Of mörg konan lít- j ur á það sem sjálfsagðan hlut, > að hún sé undanþegin þeirri sjálfsögðu kvöð þjóðfélagsins, að hver einstakur þegn þess hugsi og dæmi fyrir sig í viðureigninni við hin margvíslegu vandamál. Með því vanrækir hún ekki að- eins skyldu síra gagnvart þjóð- félaginu sem heild, heldur um leið skyldunni gagnvart sjálfri sér sem einstaklingi. Með þessu er ekki verið að gefa í skyn, að takmark hverrar, vel gefinnar konu hljóti að vera j ein eða önnur opinber áhrifa staða í þjóðfélaginu. Ekki síður sem húsmóður móður og uppal- anda hlýtur henni að vera ómet- anlegur styrkur að þroskaðri greind og góðri menntun — þar kemur ekki skólalærdómur einn til greina — heldur sú mennt- un, sem er árangur af sjálfstæðrij hugsun og viðleitni til að þroska sjálfan sig. Öklasíður samkvæmiskjóll, sem var á tízkusýningu í hléinu á Sjó- mannadagskabarettinum nýlega. Kjóllinn er úr gráu tafti, með pliseruðu nylon tjulli yfir. Skreyttur með svörtu flaueii, við kjólinn er notað silfurlitað belti og svart flauelis-herðasjal. — Saumastofan Bezt sá um sýningu þessa. Sitt hæfir liver jum STÓRIR eyrnalokkar, hangandi málmhringir, gylltir eða silfur- litaðir eru mjög í tízku um þess- ar mundir. Sumum stúlkum fara þeir mjög vel, sérstaklega þeim, sem éru dökkhærðar og dökkar yfirlitum — og umfram allt — nokkuð hálslangar. Hins vegar fara þeir ljóshærðum stúlkum miklu síður og þær, sem eru sér- staklega hálsstuttar, ættu að forð ast að skreyta sig með slíkum djásnum. Hér, sem annars staðar er það ákaflega hæpið að fara aðeins eftir því, sem er „í tízku“ án tillits til hvað hverjum ein- staklingi hæfir.' ^JJei íicirá & greinilega til þess að skipta fjöl- 1 skyldunni í þrennt með því að segja aldrei „við“ — eða „pabbi og ég“. Pabbi var aðili út af fyr- ir sig og aðskilinn. Börnin voru ' annar — og svo hún sjálf, sem stóð mitt á rnilli hinna tveggja." __________________•_ „Að hugsa sér — þetta var alveg gagnstætt með mömmu — ' sagði kona ein á meðal gestanna — en samt sem áður kom það út á svipaðan hátt. Foreldrum mín- um kom ekki sem allra bezt sam- an, og mamma gagnrýndi pabba iðulega og setti út á hann í á- heyrn okkar barnanna. Stundum ' gaf hún okkur leyfi til þessa eða hins, ef aðeins við lofuðum að láta pabba ekkert vita um það og á sama hátt vissum við, að við gátum fengið leyfi hjá pabba til að gera ýmislegt, ef við gáfum í skyn, að mamma myndi ekkert um það vita. Okkur fannst þetta dæmalaust þægilegt þá en við fórum samt sem áður á mis við öryggi það og unað — fjölskyldu tilfinninguna, eða hvað þið nú viljið kalia það, sem ég fann að Framh. á bls. 11 Skerið ekki sítrónuna í sundur, ef þér ætlið aðeins að nota nokkra ■drppa úr henni. Stingið heldur gat á hana með eldspýtu, því það lokast aftur og sítrónan er jafngóð eftir sem áður. Það þýðir ekki að reyna að ná kalkblettum af blómsturspottun- um með sápu og vatni. En reynið með stálull. Það ber góðan árangur. Kartöiiudatgsar KARTOFLUSHPA: 2 1. kjötsoð og mjólk. 400 gr. kartöflur. 400 gr. gulrófur. 70 gr. srnjörlíki. 70 gr. hveiti. 1 stk. laukur. Salt og pipar. Sjóðið smátt skornar kartöflur og gulrófur i kjötsoðinu, þar til þær eru meyrar. Merjið gegnum sigti. Bætið mjólkinni út í og sjóðið. Hrærið saman brætt smörið og hveitið og látið saman við ásamt smátt skornum lauk- um. Sjóðið og bragðsetjið. KARTOFLUBUÐINGUR m/ brúr.uðum rófum og grænkáis jaf ningi: 250 gr. kartöflur. 60 gr. smjörlíki. 3 egg. Salt, pipar, lauksafi. Soðnar kartöflur eru marðar gegn um sigti. Smjöriíkið er brætt og eggjarauðurnar hrærð- ar saman við. Bragðefrii látin L Eggjahvíturnar stííþeyttar og þeim blandað gætilega saman. við. Sett í smurt hringmót. Bakað í % tíma í vel heitum ofni. GRÆNKÁ! SJAFMNGI R: 60 gr. hveiti. 6 dl. mjólk. tá m.s. smjöriíki. Grænkál, salt. Hveitið hrært út i hluta af mjólk. inni. Mjóikin, sem eftir er er lát- in í pott og hituð. Þegar sýður er jafningnum hrært saman við. — Framh. á bls. 11. lifgar upp Laglegur skólakjóll — Hann er úr dökku „jersey“-efni með stykkjóttu ávölu bcrustykki, sem gengur upp í háan kraga. Gamli j einliti skólakjóllinn gæti líka j orðið sem nýr með því að breyta ( honum á þann hátt að láta á hann þesskonar berustykki úr ’ skozku efni. Skrautraela .....ualdri dökkri dragt fer oft mjög vel. Ef til vill fyndist sumum full mikið að hafa þær fjórar, eins og sýnt er á dragtinm hér að oían. Þær eru litlar og allar af sömu gerð, svo að þær eru ekki of áberandi — en lífga hins vegar skemmtilega upp á búninginn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.