Morgunblaðið - 07.11.1953, Síða 8
8
MORGUNBLAÐ1Ð
Laugardagur 7. nóv. 1953
WððtfiMithiÍi
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason írá Vigur.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu 1 krónu eintakið.
i
iS
ÚR DAGLEGA LÍFINU
l
J-^etta Itven
Skapandi aSl
ÞING Sambands ungra Sjálf- ins. Til dæmis hafði Sjálfstæðis-
stæðismanna er nú komið saman. flokkurinn við síðustu kosningar
Fulltrúar æsku þjóðarinnar eru fleiri unga menn í kjöri en nokk
komnir hingað hvaðanæva að af ur annar flokkur og flestir þeirra
landinu og þeir munu eiga sinn voru í mjög þýðingarmiklum
sterka atkvæðisrétt um það, framboðum, þar sem baráttan
var tvísýn. Þetta er einfaldlega
vegna þess að ungum Sjálfstæð-
ismönnum er treyst til að bera
fram ábyrga stjórnmálastefnu.
Formaður SUS, Magnús Jóns-
son, alþm., vék að því í þing-
setningarræðu sinni í gær, hvers
vegna unga fólkið fylgir Sjálf-
stæðisflokknum. Honum fórust
orð m.a. á þennan hátt:
★ ★ ÞAÐ hefur löngum hvinið
í tálknum Reykvíkinga,
þegar fegurðarsamkeppni hefur
verið á döfinni. Hinar furðuleg-
ustu skoðanir á málinu hafa kom Því fegurðarsamkeppni í Reykja-
ið fram, og svo virðist sem það vík og fegurðarsamkeppni í öðr-
hafi snert fíngerðustu sálar- um Evrópulöndum á ekkert nema
strengi alls þorra manna og ' nafnið sameiginlegt ■— og mundi
kvenna. Mætti því ætla, að menn þá einhver segja um samkeppn-
yrðu ekki aðeins furðu lostnir ina í Reykjavík: — Öllu má nú
heldur eitthvað annað miklu nafnið gefa!
meira og verra, ef þeir fengju 1 o----□----o
nasasjón af fegurðarsamkeppni ★ ★ FIMMTÁN fallegar stúlkur
eins og hún er sótt harðast og1 stefndu til hótels eins í
ákafast í öðrum löndum heimsH Lundúnum á dögunum. Yndis-
hvernig mæta beri framtíðinni
og skapa framtíð frjálsrar þjóð-
ar. — j
Við skulum leggja áherzlu
á sköpunina, því að það er lög-
mál lífsins að unga fólkið,
karlar og konur, séu skapandi
afl. Þess vegna hefur það allt-
af fylgzt að þegar ungt ís-
lenzkt æskufólk skipar sér
undir merki Sjálfstæðisstefn-J
unnar, að þetta unga fólk
verður um leið til að skapa '
merki stefnunnar.
Á Sambandsþinginu munu ung :
ir Sjálfstæiðsmenn ráða ráðum'
sínum, samræma aðgerðir þess
sívaxandi hluta æskulýðs þjóðar- I
innar, sem skipar sér undir
merki Sjálfstæðisflokksins. — I
samtökunum og traustu skipu- '
lagi ávinnst máttur í þeirri bar-
áttu, sem nú er á næstu grösum. '
Aðrir stjórnmálaflokkar, sem '
hér eru starfandi, gera sig áber- |
andi seka um það að rígbinda sig
með ofstæki við vissar hagspeki- I
kenningar, sumar þeirra löngu
úreltar. Þeirra fylgjendum er
mörgum svo illa komið að þeir j
rýna steingerðir í -hina skráðu
stofuheimspeki, án þess að veita
því nokkra athygli að hún á enga
samleið með íslenzkri þjóð. Þeir
loka jafnvel augunum fyrir því,
þegar hin skammsýna bókstafs-
kenning myndi valda stórkost-
legu tjóni. I stuttu máli er villa
þessara afvegaleiddu manna
fólgin í því að þeir hafa fjarlægzt
þjóðarsálina og kunna ekki að
„Dugmiklir æskumenn vilja
og verða að fá að njóta hæfi-
leika sinna og sinna hugðar-
efnum sínum. Það hefur því
alltaf verið æskan, sem gert
hefur mestu frelsiskröfurnar.
Það er grundvallarlífsskoðun
Sjálfstæðismanna, að frelsi sé
ómissandi aflgjafi allra fram- j
fara og þessi lífsskoðun er
staðfest af reynslunni. Sjálf- j
stæðisflokkurinn vill vekja og j
örfa æskuna til sjálfstæðs,
starfs og sjálfstæðra hugsana
og telur að hlutverk þjóðfé-
lagsins sé það að skapa skil-
yrðin til þess að unga fólkið
geti þroskað hæfileika sína og !
búið í haginn fyrir sig, en vill
ekki láta opinberar nefndir og
ráð úrskurða um það, hvað
ungir menn eigi að starfa og
jafnvel að hugsa“.
Undir þessu merki hefur þjóð-
inni vaxið orka og auður svo
einsdæmi eru í veraldarsögunni.
Ibúatala landsins hefur tvöfald- '
azt á 50 árum og þótt íbúarnir
séu fleiri eru lífskjör þeirra betri
en áður. En Sjálfstæðismenn
. hafa ekki komið sínu fram bar-
eygja þarfir þjoðarinnar og fram áttulaust. Ýmsar torfærur varð
tlð®r,v°n' „ , , , , að yfirstíga. Það er lærdómsríkt
, Sjalfstæðisflokkurmn a lika að líta yfir farin ár_ við minn.
sin stefnumið og grundvallarlög- umsf þ4 þinna
mörgu hafta og
mal, en fylgismenn Sjalfstæðis- hlekkja)
sem skammsýnir menn
stefnunnar gera sig ekki seka um ætluðu að binda framrás æsk.
það að lata bokstafslögmál gilda unnar með En það má furðulegt
j andstoðu við hina almennu heita eftir undanfarna reynslu,
skynsemi. að þessir sömu andstæðingar
Móðir skynseminnar hefur hins frjálsa framtaks skuli enn
verið kölluð gagnrýnin og hef vera við sama heygarðshornið,
ur það jafnan sannazt á sam- Enn bíða þeir eftir tækifæri til
komum Sjálfstæðismanna. — að setja á opinber höft, skömmt-
,Ungfrú Grikkland“, „imgfrú Frakkland" og „ungfrú Egyptaland“
Þið ættuð að sjá þær á morgnana!
UU andi óhrijar:
Þeir koma til að ræða málin
út frá öllum hliðum hver með
sinum persónulega blæ.
Fylgifiskar annarra flokka
munu vart trúa að slíkt sé
framkvæmanlegt. Út frá eigin
reynzlu myndu þeir álíta að
slíku myndi fylgja upplausn.
En þeir athuga ekki að allar
þessar umræður fara fram í
bróðurhug með fullri trú á
að endanlegt samkomulag
verði um öll meiri háttar at-
riði.
Þegar Sambandsþingið nú kem
ur saman liggja skammt að baki
nýafstaðnar kosningar. í þeim
kosningum var það Ijóst að aukið
fylgi unga fólksins átti megin-
þáttinn í vaxandi gengi Sjálf-
stæðisflokksins. Æskan hefur
verið sterkasti aflgjafi Sjálfstæð
isflokksins og samtök ungra
Sjálfstæðismanna hafa átt frum-
kvæðið að margvíslegum umbóta
máium, sem flokkurinn hefur
síðan leitt til sigurs og aukið
hafa veg hans og traust. Tilhög-
ur og óskir ungu mannanna hafa
jafnan verið teknar til greina og
margir ungir menn hafa valizt í
mikilvæg trúnaðarstörf flokks-
Um lyfið „Cortison“
1t/I ¥ skrifar:
Ifl J „Vökuli Velvakandi!
Mig langar til að leita ráða hjá
þér í mikilvægu máli. Eins og
kunnugt er var fyrir skömmu
fundið upp lyf, sem kallast
„cortison“,'Og hefir í mörgum til-
fellum reynzt sérlega vel gegn
liðagigt.
Ég hefi nýlega haft tal af konu,
sem verið hefir sjúklingur um
fjölda ára — af liðagigt. Er hún
oft meira og minna þjáð og ger-
samlega óvinnufær. Kona þessi
er innan við fimmtugt og því á
bezta aldri. Læknir nokkur hér í
bænum hefir ráðlagt henni að
nota lyfið cortison, en því mun
þannig háttað, að það kemur
ekki að varanlegum notum,
unarkerfi og opinbera kúgun. —
Ekki þarf að efa hvernig hin is-
lenzka æska snúist við þessu. Það
er hennar hlutverk að slíta af
sér böndin. Hún mun ekki láta
stöðva sig, heldur sækja fram
með æ meiri þrótti.
Formaður SUS benti á það að
unga fólkið í Sjálfstæðisflokkn-
um hefði átt ríkastan þátt í að
gera flokkinn að frjálslyndasta nema þess sé neytt að staðaldri.
, og framfarasinnaðasta flokki Sú staðreynd ásamt þeirri að lyf-
j þjóðarinnar. — Reynslan hefði ið er rándýrt og að engu leyti
I sýnt að Sj álfstæðisflokkurinn greitt af sjúkrasamlagi, veldur
væri öllum flokkum fremur Því, að bæði þessari öryrkja konu
i flokkur æskunnar. Lífsskoðun og áreiðanlega fjölda fólks, sem
j hans samrýmdist bezt hugsunar-1 þjáist af sama sjúkdómi, er al-
hætti unga fólksins og unga ’ gerlega ókleift að njóta þeirrar
fólkinu væri einnig bezt treyst heilsubótár, sem um getið lyf
þar. |gæti veitt því.
Að lokum benti hann á það
í ræðu sinni, að enn væru
margvísleg viðfangsefni ó-
leyst fyrir dugmikið og fram-
takssamt æskufólk í landinu.
Það er ekki að efa, að ungir
Sjálfstæðismenn munu mark-
visst halda áfram á þeirri
braut að efla alhliða fram-
farir í landinu á grundvelli
Mætti ekki stofna sjóð?
FINNST þér þetta ekki næsta
átakanleg staðreynd? — og
er hér ekkert ráð til úrbóta?
Væri ekki hægt að stofna sjóð,
t. d. með áþekkum aðferðum og
áður hafa tíðkazt við fjáröflun til
mannúðarmála, sjóð, er annazt
lýðræðis og einstaklingsfrelsis. gæti greiðslu lyfsins „cortison"
og jafnvel annarra hliðstæðra
lyfja fyrir það fólk, sem ekki
getur veitt sér slík lyf en þarfn-
ast þeirra að læknisdómi?
Ég vænti bæði liðsinnis þíns
og þeirra, sem þessar línur lesa,
Velvakandi góður. — M. J.“
★
Hugmynd M. J. er hér með
komið á framfæri. Samkvæmt
upplýsingum, sem ég hefi aflað
mér um lyfið „cortison“ þá er
það á misskilningi byggt hjá
bréfritara mínum, að sjúkrasam-
lagið greiði lyfið að engu leyti.
Þetta, eins og ýmis önnur dýr lyf,
greiðir það niður allverulega
samkvæmt úrskurði sérfræðings
um, að lyfið sé sjúklingnum nauð
syhlegt, sé ekki um því lengri
tíma að ræða.
Biðskýli á Miklatorgi.
HAFNFIRÐINGUR skrifar:
,JKæri Velvakandi!
Nú þegar vetur leggst að með
köldum og vondum veðrum finn-
um við, sem daglega þurfum að
ferðast milli Hafnarfjarðar og
Reykjavikur æ tilfinnanlegar til
vöntunar biðskýlis fyrir strætis
vagnafarþega á Miklatorgi. Mér
er næst að halda að veðrahamur
inn sé hvergi afleitari en einmitt
á þessum stað í bænum. Farþega
hræðurnar, sem þar híma eilífð-
arlöngum mínútum saman eru
einar aumkunarverðustu verur,
sem ég get gert mér í hugarlund
— skjóllausir, berskjaldaðir fyr-
ir hamförum náttúrunnar, eins
og kuldastrá, sem öllum er sama
um. Ég hefi oft sárvorkennt þeim
— og mér sjálfum ekki hvað sízt.
Vildu nú ekki bæjaryfirvöldin sjá
aumur á okkur og kippa þessu
snarlega í lag? — Hafnfirðingur".
Sá, sem vinnur
minnst, verður
fljótast uppgef
inn.
lega ilmvatnsangan lagði frá
þéim. Sú fyrsta kom akandi í
blæjubíl með farangurinn í öðr-
um bíl. Ótal töskur voru bornar
inn í anddyri hótelsins/ Brátt bar
fleiri „fegurðargyðjur“ að. Og
þar sem í upphafi stóð smáhrúga
af töskum og farangri myndaðist
von bráðar heilt fjall, sem vart
var hægt að komast fram hjá.
Og inni í herbergjum hótelsins
voru 15 stúlkur „að laga sig til“.
Engin þeirra var af sama þjóð-
erni. Ein þeirra átti í vændum
titilinn: — „Fegurðardrottning
heimsins 1953“.
o---□-----o
★ ★ OG hvílíkir duttlungar! —•
Ungfrú Grikkland gat ekk-
ert borðað nema appelsínur vaxt-
ariags síns vegna. Inn á milli
hálfétinna ávaxta lá hún í rúmi
sínu og kvaðst vera kvefuð. Með
fárra mínútna millibili hringdi
hún til hótelafgreiðslunnar og
kvað heilsu sína fara batnandi.
— Ungfrú Noregur reyndi hvað
eftir annað að strjúka út úr hús-
inu til að komast á stefnumót —
það er brot á keppnislögunum, —
en verðirnir handsömuðu hana
alltaf „á flóttanum". Hún stapp-
aði niður fætinum og kvaðst
ekki geta látið fara með sig eins
og skólastelpu — en drattaðist
þó til herbergis síns. — Ungfrú
Ceylon kom keppnisstjórninni í
bobba, því á daginn kom, að hún
var reyndar „Frú Ceylon“. Og
hún ætlaði vitlaus að verða, þeg-
ar hún fékk ekki að hafa eigin-
mann sinn í rúminu hjá sér.
o--------------□-----o
★ ★ EN allt þetta, sem að fram-
an er nefnt voru aðeins
smáárekstrar og barnaleikur
miðað við þá erfiðleika sem Ung-
frú Egyptaland, 20 ára „frekju-
dós“, sem kann að skammast á 5
tungumálum, olli, Fyrsta morg-
uninn, sem fegurðardísirnar vökn
uðu í hótelinu í Lundúnum, kom
Ungfrú Danmörk, herbergisfé-
lagi egypzku stúlkunnar, hlaup-
andi á náttklæðunum einum
fram í fordyrið og hrópaði: „Ég
þoli hana ekki, ég þoii hana ekki.
Ég verð að fá annan herbergis-
félaga“ — og Ungfrú Egyptaland
fékk að lokum einkaherbergi.
o--------------□------o
★ ★ í MIKILLI veizlu sem
,,dísirnar“ sátu með blaða-
mönnum og blaðaljósmyndurum
skar sú egypzka sig enn úr. 14
stúlknanna komu vel klæddar,
og snyrtar. En Ungfrú Egypta-
land var í „morgunjakka“. Og
þegar staðið var upp frá borðum
féll jakkinn út af öxlum hennar
og hún stóð nær nakin frammi
fyrir samkvæminu. Hún hljóðaði
upp yfir sig — en ekki var um
að villast að jakkann hafði hún
látið falla, svo um hana yrði skrif
að í blöðunum. Og á meðan hin-
ar stúlkurnar fóru að lögum
keppninnar og mættu „fyrir
dómi“ í sundfötum, kom sú
egypzka fram í „Bikini“-föt-
um”, sem nánast sagt voru eng-
in föt. „Þessar stúlkur þarna",
sagði hún við blaðamennina og
gaut augunum fyrirlitlega til
keppinauta sinna, „hafa ekkert
hérna“ — og hún strauk mjaðm-
ir sínar drembilega.
o---□-----o
★ ★ OG þegar hún komst yfir
spjald það, er einn dóm-
aranna hafði skrifað á athuga-
semd um brjóst hennar: „Mjög
góð — af egypzkum konubrjóst-
um að vera“ þá blossaði þjóðar-
rembingurinn upp í henni. Hún
gekk til herbergis síns og heimt-
aði að sér yrði fært sentimetra-
band.
o---■□•---o
★ ★ í LOKAHÓFI keppninnar
leið yfir hana. (Það yfirlið
þótti leikið í alla staði). Og þeg-
ar hún „vaknaði" til meðvitund-
ar neitaði hún að ganga í kvöld-
kjól, en klæddist þess í stað
prjónapilsi og hýjalínsblússu. —
Framh. á bls. 12.