Morgunblaðið - 07.11.1953, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 07.11.1953, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 7. nóv. 1953 LJONIÐ OG LRMBIB EFTIR E. PHILLIPS OPPENHEIM Framhaldssagan 23 eftir að David hafði stungið lykl- inum í skrána, stóð hann grafkyrr í hálfa mínútu og hlustaði. Loks opnaði hann og steig hægt og hljóðlega yfir þröskuldinn. Hann kveikti á vasaljósi og lýsti fram- undan sér, leikfimistækin voru draugsleg í grárri skímunni, sem féll ínn um gluggana. Hann mjak aði sér eð veggnum og kveikti raf Ijósin. Samstundis varð honum ljóst, að eitthvað var öðruvisi en það átti að vera. Skrifstofu- hurðin stóð í hálfa gátt og glerið í henni var brotið. Varlega, og stöðugt eftirvæntingarfyllri gekk hann að dyrunum og kveikti. Hann rak upp hálfkæft óp. Ebben lá á gólfinu, hauskúpan brotin cins og eftir eitt heljarhögg. Rétt við hlið hans lá Sam West með hníf í brjóstinu; og blóð rann gegnum föt hans niður á gólfið. Á bak við þá stóðu tveir hæg- indastólar saman og vindlakassi á borðinu, tvö glös og hálf whiskyflaska. Það var ljóst, hvað hér hafði skeð: Ebben, dálítið taugaóstyrk- ur en gráðugur, hafði rætt um verðmæti upplýsinga sinna; og Sam West, sem einungis hugsa- aði um að framkvæma fyrirskip- anir húsbónda síns. Morðingj- arnir höfðu læðst í myrkrinu að skrifstofuhurðinni áður en þeir gerðu árásinar. Það fór hrollur um David þegar hann lokaði á eftir sér. Þegar hann kom aftuf fram í leikfimissalinn, stóð hann andar- tak og hlustaði. Margt benti til þess, að ódæðisverkin væru ný framin. Ef svo var, hvernig höfðu morðingjarnir sloppið burt? Dyrnar höfðu verið lokaðar, eng- inn sást úti í portinu. En þó hann lýsti með vasaljósinu, voru nóg- ir felustaðir niðri í ganginum. Hann stóð og rýndi niður í myrkrið. Það hefði lítið gagnað að nota vasaljósið, og gat verið hættulegt að vekja eftirtekt á eér. Hann reyndi því að hlusta, og fannst oftar en einu sinni hann heyra dauft hljóð, eins og ein- hver læddist eftir gólfinu. Hann læddist nær þilinu og virti fyrir sér gluggana hvern af öðrum. Næstum strax varð hann þess var, að einn þeirra var opnaður. Hann læddist nær. Myrkrið var ennþá jafn svart, en það brá fyrir gráum skugga í glugganum. Hann beið og hélt niðri í sér andanum. Skugginn varð allt í einu dekkri og það sást móta fyrir manni, sem reyndi að smeygja sér út. David spennti upp gikkinn á byssunni og hikaði. Hann gæti orðið mannsbani ef hann skyti, jafnvel við þessar aðstæður, Hann hugsaði til mannanna tveggja í skrifstofunni og hikaði ekki lengur. Hávaðinn var einsog af fallbyssuskoti. Hann skaut aftur og fleygði sér á grúfu. Ljós- rákum brá fyrir og kúiur skullu í veggnum fyrir ofan hann — tvær, þrjár, fjórar. Hann rak upp sársaukaóp eins og hann væri særður. Hæðnishlátur kvað við, síðan varð alger þögn. David spratt á fætur og hljóp til dyr- anna. Eftir andartak var hann kominn út í portið, en þar var engan að sjá. Hann hljóp út eftir því og fór framhjá opna glugg- anupa, út á götuna. Hann stað- næmdist á gangstéttinni, vissi ekki í hvaða átt halda skyldi .. Þung hönd var lögð á öxl honum. Tveir lögregluþjónar stóðu hjá honum. Annar þeirra ávarpaði, hann, kurteislega en ákveðið og sleppti ekki takinu á öxl hans. „Má ég spyrja hvað þér eruð að gera hér, herra minn, með Skammbyssu senr auðsjáanlega hefur verið skotið úr nýlega“, bætti hann við í því hann laut niður og þefaði. „Elta morðingja", svaraði David kuldalega. „Hann hlýtur að hafa farið hér rétt hjá ykkur.“ XVl. KAFLI Mennirnir þrír lögð af stað inn í portið. Brátt náði þeim lágvax- inn maður, óeinkennisklæddur, sem lögregluforinginn heilsaði með virðingu. „Hvað er að?“ spurði sá ný- komni. „Við sáum þennan mann flýta sér út portið með byssu í hend- inni“, svaraði lögregluforinginn. „Tveim skotum hafði verið hleypt úr byssunni nýlega. Eftir því, sem hann segir, hefur eitthvað komið fyrir í skóla Abbs “ „En hann er þó ekki opinn á þessum tíma“, svaraði hinn. „Ekki á venjulegan hátt“, út- skýrði David. „Ég á þessa stofn- un, og ráðsmaður minn var stadd ur þar — var að tala við kunn- ingja sinn. Hann hringdi til mín og lét mig vita að eitthvað alvar- legt hefði komið fyrir, og ég flýtti mér hingað.“ „Og þér heitið, herra minn?“ „David Newberry — Newberry lávarður, svo maður sé nákvæm- ur: Johnstræti nr. 17 A er heim- ilisfangið. „Ég er Milson leynilögreglu- maður frá Scotland Yard“, sagði maðurinn. „Ég heyrði skot og skrapp út úr bílnum til að vita hvað um væri að vera. Svo lög- regluþjónninn heíur byssu, sem þér eigið, og tveim skotum hefur verið hleypt úr nýlega." David kinkaði kolli. „Ég veit ekki nákvæmlega hvernig lögin taka á slíku“, við- urkenndi hann; „en eftir að hafa séð lík tveggja manna, sem myrt ir voru á hryllilegan hátt, skaut ég tveim skotum á mann, sem ég gat á engan hátt handsamað þegar hann var að fara út um glugga. Hann sendi mér þrjú eða fjögur í staðinn. Þið getið séð merki þess á þilinu.“ Leynilögreglumaðurinn svar- aði ekki neinu. Þeir staðnæmd- ust við dyrnar. David lauk upp. | „Voru morðin framin hér?“ spurði leynilögreglumaðurinn. „Hérna í skrifstoíunni“, svar- aði David. „Ég sé að þér hafið lykil að húsinu“. „Eins og ég sagði rétt áðan, er ég eigandi stofnunarinnar“, út- skýrði David. „Ég keypti hana af Abbs fyrir nokkrum vikum.“ Hann gekk á undan inn í skrif stofuna og kveikti. Mennirnir ráku upp skelfingaróp. „Þetta er það, sem ég sá, þegar ég kom fyrir stundarfjórðungi", sagði David. „Þér hafið ekki hreyft við neinu?“ „Ekki nokkrum hlut“. Leynilögreglumaðurinn snéri sér að félögum sínum og sjúkra- bíl. Nú vildi ég gjarnan heyra frásögn yðar, herra minn“, bætti hann við og snéri sér að David. „Ég er hræddur um að ég geti ekki frætt yður mikið“, sagði David. „Ég keypti þessa stofnun af Abbs fyrir nokkrum vikum, og Sam West þarna var ráðsmaður minn. Rétt um það leyti, sem ég ætlaði að fara að hátta, hringdi síminn. West talaði við mig og var mjög æstur, ég skildi að eitt- hvað hræðilegt hafði komið fyrir. Síðan flýtti ég mér hingað Hurð- in var læst eins og venjulega, og engin merki þess að neinar óspektir hefðu átt sér stað. Leynilögreglumaðurinn tók skammbyssuna og skoðaði hana hugsandi. „Þetta er eign yðar, er ekki svo?“ „Vissulega", samsinnti David. „Og þér getið jafnframt gengið úr skugga um að annar þessara manna hefur verið drepinn með höfuðhöggi og hinn stunginn með hníf. Ég skal skýra fyrir yður, hversvegna ég hélt á byssunni, þegar ég hitti lögregluforingjann. Mér var ljóst, að hver, sem hér hefði verið að verki, hlaut að hafa komið inn um glugga á gang inum. Ég fór því þangað. Ef þið fylgið mér skal ég sýna ykkur hvar ég stóð.“ David fór með þá að þilinu og benti á gluggann andspænis þeim. Sjálfstæðisfélag Kópavfögshrepps hefur kynningarkvöld, í kvöld kl. 8,30 í Barna- skólanum. < Félagsvist, kaffi, skemmtiatriði. Mætið stundvíslega. Skemmtinefndin. Frönsk tízkueini í kvöld og samkvæmiskjóla Nýkomið glæsilegt úrval Tökum pantanir á samkvæmiskjólum fyrir 5 1. desember og gamlárskvöld. BEZT Vesturgötu 3 Húsgögn - Lampar — Leirmunir — Opnirm í cfag Húsgagnaverzlun Benedikts Gúðmundssonar S/F. Laufásvegi 18 A F. I. L. F. I. L. Frðmhaidsaðalfundur í Fálagi íslenzkra loftskeytamanna verður haldinn að Hótel Borg, sunnudaginn 8. nóv kl. 14,00. . ....................................................................... ' ........................................................................................................................................................................... ’ Pintu reisnin a eftir Tojo 6. Philip sagði ekki orð, en leit hvasst á James, þar sem hann stóð við borðstokkinn. Fangarnir tóku nú til að róa bátnum frá Pintu, en skips- böfnin stóð öll við borðstokkinn og íylgdist með hverri hreyf- ingu fanganna. Allt í einu heyrðist hrópað frá borðstokknum; „Ég geng í lið með ykkur, ég geng í lið með ykkur.“ Einn 1 yfirmannanna stóð upp af þóftunni, sem hann hafði setið á, og baðaði út höndunum eins og óður væri. „Ég skal reynast ykkur trúr — ég hef alltaf verið á móti Sir John. Ég skal, ég....“ Maðurinn komst ekki lengra, því að Sir John, sem setið hafði fyrir aftan hann, sló manninn roknahögg í höfuðið með einni árinni. Maðurinn hné niður á þóftuna sem dauður væri. — Skips- höfnin á Pintu fylgdist með bátnum allt þar til er hann náði landi á ströndinni, sem var skammt undan. Mennirnir skreiddust upp í fjöruna, og drógu bátinn síðan á þurrt land. Nú kvað við hvellt hróp: „Dragið akkerið irjn, og gerið allt tilbúið til brottfarar," þrumaði James skipstjóri. „Við skulum halda héðan brott, en leita okkur vistar á næstu eyju, sem verður á leið okk- ar,“ bætti hann við. Nú varð uppi ys og þys á Pintu. Akkerið var dregið inn og menn skriðu upp í reiðann og út á rárnar til þess að leysa seglín. «■ : ; f . Dagskrá: Stjórnarkosning — Önnur mál. Stjórrdn. Áættunarferðir frá og með laugardeginum 7. nóv. javík—Kjalarnes—Kjós j Frá Reykjavík: Sunnudaga kl. 9, mánudaga kl. 7,30 og * m' kl. 18, fimmtudaga kl. 18, laugardaga kl. 16. > Frá Hálsi: Sunnudaga kl. 16, mánudaga kl. 9, þriðju- ; daga kl. 8, fimmtudaga kl. 9, föstudaga kl. 8, laug- Z ardaga kl. 19. Z ■ Afgreiðsla hjá Ferðaskrifstofunni. JÚLÍUS JÓNSSON ............................................... Hefi til sölu «■! I 25 sænska fiskibáta á mismunandi aldri. Stærðir frá ca. 43 til 100 smá- lesta. Flestir bátanna eru útbúnir með dýptármæl- um, radíómiðunartækjum o. fl. Allar nánari upplýsingar gefnar á skrifstofu minni, Túngötu 7, sími 2747. Eftir skrifstofutíma 82018. Gísli J. Johnsen. s >■*

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.