Morgunblaðið - 09.12.1953, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 09.12.1953, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIB Miðvikudagur 9. des. 1953 ' 12 — Ur dagíega lífinu Framh. af bls. 8. mjög að óskum og er jafnvel bú- izt við því, að ekki líði á löngu, áður en þessi tæplega 2000 manna hópur safni fyrir nýju Is- lendingaheimili, þar sem verða til húsa ýmsar íslenzkar stofn- anir, elliheimili íslendinga o. s. frv. O—O—O Á EKKI eru íslendingar í Dan- mörku einangraðir frá landi sínu, sem m.a. má marka af því, að þeir geta keypt í dönskum blaðasöluturn- um íslenzk blöð 3—4 dög- um eftir út- gáfu þeirra. — Póstsamgöng- ur við heima- landið munu og í góðu lagi, svo að fréttir berast fljótt Þórður Jónsson „að heiman“. O—O—O ★ UM MARGAR aldir var Dan- mörk fyrirheitna land ís- lendingsins. Þangað hélt hann, ef hann fór utan á annað borð, bæði til náms og skemmtunar. En tímarnir hafa breytzt mjög. Auknar samgöngur og kynni af öðrum þjóðum hafa stefnt fs- lendingum á fund annarra þjóða, landnám þeirra hefur færzt mjög út. Auk þess er það ekki lengur danskan heldur enskan, sem þeir geta nú beitt fyrir sér og hefur það ekki hvað sízt valdið því, hve mjög þeir hafa haldið til enskumælandi landa síðustu ár. Hernám landsins á styrjaldarár- unum olli straumhvörfum í þess- um efnum. — En Danmörk og ís- land hafa átt samleið á mörgum undanförnum öldum og er von- andi, að sú samleið haldizt, þótt á annan veg verði. — Hún verð- ur héðan í frá fólgin í norrænni samvinnu, — góðu og nánu sam- starfi vinaþjóðanna á Norður- löndum. fslendingar í Danmörku, sem og á öðrum Norðurlöndum, mynda þann hlekk, sem mest og bezt tengir okkur við bræðra- þjóðirnar austan hafsins. Greiff úr flóka BLAÐINU hefir borizt eftirfar- andi athugasemd frá Atvinnu- deild Háskólans: Vegna greinar í blaði yðar hinn 3. des. s. 1. undir fyrirsögn- inni: „íslenzkur einangrunar- flóki betri og ódýrari en erlend- ur“, óskast eftirfarandi tekið fram: 1) Atvinnudeild Háskólans hefir eingöngu ákvarðað varma- leiðslutölu ofangreinds flóka. 2) Blaðagreinin var ekki borin undir „viðstadda verkfræð- inga“. 3) Þeir útreikningar, sem Tekno- logisk Institut eru eignaðar, eru ranglega túlkaðir. Einangrunarflóki Valdimars Árnasonar er mjög nytsöm vara, og ber að fagna framleiðslu henn ar. Þetta er líka vara, sem mikil þörf er fyrir, og ætti að vera notuð meira en nú tíðkast. Tæknilegar missagnir hæfa því ekki framleiðslunni. Atvinnudeild Háskólans Byggingarefnarannsóknir Har. Ásgeirsson. þcrarihh Jchaóch 0 iOr,GiiTu» skjalaþtðano* og OOATOIKU* l (rr.nu 0 KIRKJUHVOLI - SÍMI 61655 fjölritarar og fjölritunar. Einkaumboð Finnbogi Kjartansson Auaturstræti 12. — Sími 5544. — Eisenh.ower Framh. af bls. 1. ATÓMSTYRJÖLD ÞÝÐIR EYÐINGU Væri nú gerð atómárás á Bandaríkin, þá yrði svar okkar ákveðið í sömu mynt. Og þá ber þess að geta að Bandaríkin eru svo styrk og eiga svo miklar birgðir til af atómsprengjum, að það er vonlaust fyrir árásar- ríkið að ætla sér að korna í veg fyrir að við getum svarað í sömu mynt og lagt árásarríkið í auðn. Enginn getur unnið neinn 1 skyndisigur og þessvegna er það ljóst að þriðja heimsstyrjöldin yrði löng og skemmdirnar alls staðar gífurlegar. Þá kemur sú hætta að allri menningu verði eytt á þessari jörðu. Enginn viti borinn einstakl- ingur mannkynsins gæti fund- ið sigur í slíku niðurlagi mann kynsins. Nei, slíkt verðum við að forðast. Mannkynið allt þráir frið. Eisenhower hélt áfram með því að lýsa afstöðu Bandaríkja- stjórnar. Hann sagði m. a.: Bandaríkin vilja stuðla að því að allar þjóðir geti lifað í friði og frelsi, að allar þjóðir séu jafn réttháar og Bandaríkin vilja leita að leiðum til þess að allt mannkynið geti færst fram á við í áttina til hamingju. En í svo skiptum heimi, sem við lif- um í veit ég að lausnina er ekki að finna r einhliða aðgerðum okkar. Það þarf líka mikið að vinna til þess að gerbreyta því kalda andrúmslofti sem við lif- um í. Við höfum gert mikið til þess að reyna að komast að sam- komulagi. DYRNAR HAFA VERIÐ OPNAR Það stendur skráð um tilboð okkar til að komast að samkomu lagi um Þýzkalandsmálin, um friðarsamninga við Austurríki, og á vegum Sameinuðu þjóð- anna er enn unnið að því að reyna að semja frið í Kóreu. Við horfum til væntanlegrar Berlínarráðstefnu vongóðir. Við höfum alltaf verið reiðubúnir að ræða við Rússa um heimsvanda- málin og fögnum því að þeir eru nú loksins viðmælanlegir. Og til- gangur okkar með ráðstefnunni er líka að reyna að fá því til leiðar komið að Evrópuþjóðirnar losni úr hernámsánauðinni sem nú hvílir á þeim og þær verði frjálsar þjóðir. Þannig hafa Vesturveldin stöð- ugt lýst yfir vilja sínum til að leysa alvarlegustu heimsvanda- málin. Við höfum alltaf haldið dyrunum opnum til samkomu- lags. DYRNAR LÍKA OPNAR VARÐANDI ATOM- ORKUMÁL Fyrir nokkru, 18. nóv. 1953, gerði allsherjarþing S. Þ. áskorun tii stórveldanna að hefja samkomulagsumleitanir sín á milli um meðferð og eftirlit atomvopna. Nú vil ég lýsa því yfir. sagði Eisen- hower, að Bandaríkin eru hvenær sem er reiðubúin að hefja viðræður við viðkom- andi ríki til að ná samkomu- lagi um þetta alvarlega mál og koma í veg fyrir vígbún- aðarkapphlaup, sem ógnar lífi hvers manns í þessum heimi. Bandaríkin vilja ekki aðeins takmarka atomvopnaeign hvers ríkis. Þau stefna heldur ekki að því einu að taka vopnin úr hönd- um Rússa og halda sínum vopn- um sjálf. ATOMORKA TIL FRIÐSAMLEGRA NOTA Bandaríkin skilja það, að ef atomorkan væri fyrir alvöru tek- in í notkun til friðsamlegra starfa, þá mypdi það verða upp- haf stórkostlegrar gullaldar allra þjóða heims. Við höfum atóm- orkuna og ráðum yfir leyndar- dómum hennar hér og í dag, það er aðeins að notfæra sér hana til að byggja upp. Ef allir vísindamenn heimsins hefðu að- gang að atomorku til að gera tilraunir yrði atomorkan þegar mjög þýðingarmikil fyrir efna- hag alheimsins. Til þess að mið- að geti í rétta átt leyfi ég mér að bera fram eftirfrandi tillögu: STOFNUN TIL AÐ STUÐLA AÐ FRIÐ- SAMLEGRI NOTKUN Að allar þjóðir sem ráða yfir atomorkuefnum hefji nú þegar og haldi áfram að scnda úranium og önnur atómorku- efni til sameiginlegrar atom- stofnunar. Slík atomorku- stofnun yrði undir stjórn S. Þ. Hlutfall milli framlaga yrði ákveðið á ráðstefnu atomorkuþjóða. Slík stofnun yrði þýðingarmik- il til að auka notkun atomork- unnar í friðsamlegum tilgangi. Stofnunin myndi ráða til sín sér- fræðinga sem rannsökuðu með hvaða móti mætti notfæra sér atomorkuna í öllum atvinnu- greinum. Sem dæmi má nefna að stefna að rafmagnsframleiðslu með atomorku. Þannig gætu stórveldin líka hjálpað smáríkj- unum, sem e. t. v. hafa ekki bolmagn til að nytja sér atom- orkuna upp á eigin spýtur. PASSAMYNDIR Teknar I dag, tilbúnar á morgun Erna & Eiríkur. Ingólfs-Apóteki. Permancnfsfofan Tngólfsstræti 6. — Sími 4109 CHOU KLAGAR PEKING, 7. des.: — Utanríkis- ráðherra Kína, Chou-en Lai, hef- ur sent aðalritara S.Þ. boðskap þess efnis, að Bandaríkjamenn reyni að „halda stríðsföngum í þvingunarfangelsi" og vilji eyði- leggja fyrirhugaða Kóreuráð- tsefnuna. Segir hann ennfremur, að hið alvarlega ástand í Kóreu nú sé utanríkisstefnu Bandaríkj- anna að kenna, auk þess sem aðalritarinn sjálfur eigi þar ekki litla sök á. — Reuter. Framh. af bls. 11. lesa þótt ekki séu nema nöfn afa og ömmu. Langholtsbúar og kristniunn- endur, styrkið þessa viðleitni, hlúið að vorgróðri kristilegrar og íslenzkrar menningar, hvar sem hann teygir brumknappa til himins. Rvík, 5. des. 1953. Árelíus Nielsson. A BEZT AÐ AIGLÝSA Á. T t MORGUNBLAÐIIW T Félagsvist Félagsvist og fundur í Alþýðuhúsinu kl. 8,30 í kvöld. Berklavörn, Hafnarfirði. F.L.S. HEIMDALLUR efnir til almenns félagsfuntlar í Félagsheimili verzlunar- inanna n. k. fimmtudag kl. 8,30. Umræðuefni: Fjárhagsáætlun Reykjavíkurbæjar Framsögumaður: Guðmundur Vignir Jósefsson, skrifststj. Á eftir verða frjálsar umræður. Félagar fjölmennið! STJÓRNIN Skipstjóra- og stýrimannafélagið ALD A tilkynnir: — Umsóknir um styrk úr styrktarsjóði félags- ins sendist til Ingvars E. Einarssonar, Karfavog 39, fyrir 16. þ. m. — Á umsóknina skal tilgreina heimilisfang og einnig aldur barna. Félagsstjórnin. Raunhæfasta aðferðin til að minnka dýrlíðina, er lækkun framleiðslukostnaðar. •— Árangurinn er kominn í Ijós: Þúsundir karlmanna og unglinga kaupa vönduð föt á aðeins kr. 890.00, dýrustu tegundirnar, og hafa sannfærzt um gæðin. Kynnist hvers íslenzkur iðnaður er megnugur. Klæðaverzlun Andrésar Andréssonar hf. MARKtS Eftir Ed Dodd 1) Markús: Ágætt, Andi, slepptu takinu. 2) Markús: Fjötraðu hann, Páll. — Hálli: Jæja, ykkur tókst að handsama mig, en tvíbura þurfti til þess: 3) Páll: Ég var einmitt að taka eftir því, hve líkir við erum. Það Markús: Ég fer núna með Halla í vörzlu til Davíðs. Þegar ég kem aftur skal ég segja þér alla sög- er sannarlega dularfullt iíka. — una.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.