Morgunblaðið - 23.12.1953, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.12.1953, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 23. «Ies. 1953 MORGUNBLAÐIÐ 9 Attæríngurinn Pétursey í by^ffðasafn að Skóffnm » OO o V^ftaffur fiangsð í gærdsg úr Vík í Mýrdal VÍK í MÝRDAL, 17. des. — í dag var farið héðan úr Vík að Skógaskóla hið gamla áraskip Pétursey, en að Skógum verður byggt yfir þennan merka bát, sem er um 100 ára gamail að stofni til. — Báturinn var notað- ur við vöruflutninga frá skip- um að landi hér í Vík í rúmlega 30 ár. RERI FRÁ JÖKULÁRÓSUM Skipið Pétursey er nú 98 ára, byggt 1855 í Pétursey. Eigendur bátsins voru Jón Gíslason, sem var yfirsmiður og bræður hans tveir Árni og Guðmundur. Gerðu þeir skipið út frá Jökulsárósum og var þá lengst af formaður á skipinu Guðmundur Ólafsson faðir Eyjólfs Guðmundssonar rit- höfundar á Hvoli. í VÖRUFLUTNINGUM Árið 1907 var báturinn seldur hingað til Víkur og notaður hér Dagbjört Dagsdóttir: SAGAN AF SÓLRÚNU. Leiftur. ÞESSI saga er enn ein sönnun þess, hversu frásögnin, skáldsag- an, er í blóð runnin íslenzkri al- þýðu. Fátæk kona, sem lífið mun hafa veitt harla fátt hið ytra til að gera skáldverk, segir hér langa sögu og átakanlega trú-1 verðuga um byltingu í íslenzku þjóðlífi: hvernig síldarstöð vex upp í kyrrlátum, afskekktum stað í Norðurlandi. Þessi höfundur hefur þá dýru eðlisgáfu, að þekkja hverja sína persónu svo innilega, að þær standa eins og sjálfkrafa íyrir augum lesandans. Dagbjört Dags- dóttir (sem er gervinafn) lýsir misjöfnu fólki, af ásköpuðu hlut- leysi gagnvart persónum sínum, þungum raunum, án þess að frá- sögnin verði yfirleitt harkaleg eða væmin, björtum dögum, með undirtón lífstregans, átakanlegu umkomuleysi, og fer móðurhönd- um um hvern þann sem bágast á. Þessi látlausa samúð er nærri fágæt. Eins er lýst að sínu leyti brennivínsalanum, sem stefnir þó að því að verða sjálfbjarga og maður með mönnum, öreiga ekkjunni, höfðingshjónum, sem allt leikur í lyndi, börnum, til- hugalífi ójafnra unglinga. Margir kaflar í bókinni gætu staðið einir sér og heilir; það er ásköpuð frá- sagnargáfa, ekki yfirlega eða stíl- konst. Höf. lætur efnið ráða, eins og sá sem vel skrifar sendibréf, en málið fellur að efninu, lát- laust og alþýðiegt, öldungis óháð öðrum höfundum. Lýsingin er tilbreytileg og einhver ómót- stæðilegur sannleikur í allri frá- sögninni, sumt hvað blóði ritað, að því er ætla má. Sögunni er áfátt að byggingu og formi. Aukapersónur og at- burðir, sem höf. hefur ekki ætlað að gera að máttarviðum, verða í rauninni sterkastir. Sjálf „sögu- persónan", sem bókin heitir eftir, verður nokkuð í baksýn og henn- ar örlög ekki eins .ramlega sönn og margt annað í bókinni. En bók getur verið góð fyrjr því. Álíka „galli“ er á Pilti og stúlku, svo að eltki sé valið hið minna dæmið. Mér er ekki kunnugt, að nein- staðar í okkar bókmenntum sé til slik lýsing á síldarplaninu á öðrum og þriðja tug þessarar ald- ar. Bókin hefur að því leyti efa- laust gildi fyrir menningarsögu okkar. Og þessi yfirlætislausa bók er í sannleika ög í beztu merkingu „dóttir alþýðunnar", eins og Ólína skáldkona segir um ferskeytluna. Helgi Hjörvar. við vöruflutninga milli lands og skipa og einnig öðru hvoru til fiskveiða. Formaður á bátnum var Jón Gíslason frá Norðurgöt- um og er hann nú látinn. — Hætt var að nota Pétursey árið 1939, er útskipun í Vík lagðizt með öllu niður vegna bættra sam- gangna á landi. ÁTTÆRINGUR Pétursey er áttæringur, byggð ur sem brim- og siglingaskip og því ekki að öllu leyti með hinu sérkennilega skaptfellzka lagi. Báturinn reyndist alltaf happaskip, en þó lenti hann oft í hinum mestu svaðilförum við hina hættulegu strönd. Með herkjum tókst að koma bátnum yfir Jökulsárbrú, sem er bæði gömul og þröng. Báturinn var fluttur á einum af bílum Kaupf. Vestur-Skaftfellinga. í BYGGÐASAFNI Að Skógum verður byggt yfir bátinn. Jón Halldórsson kaup- maður í Vík gaf á sínum tíma bátinn væntanlegu byggðasafni að Skógum. — Báturinn var sandi o^pinn hér og hafa því veður og vindar ekki skemmt hann þau 14 ár sem nú eru liðin frá því hann var síðast á sjó. — j. Biskiplungna- bækur ÁTTHAGAFÉLÖGIN, sem risið hafa upp hér í Reykjavík, hafa þegar mörg þarfaverk unnið, og þá eigi sízt þetta, að gefa út rit- söfn, er geyma sögulegan fróð- leik, staðarlýsingar, þjóðleg fræði, upplýsingar um atvinnu- háttu o. s. frv. víðsvegar um land. Mundi margt af þessu smám saman hafa farið í glat- kistuna, ef átthagafélögin hefði ekki bjargað því. Þetta er virð- ingarvert, og allmikið þrekvirki þótt um mannmörg átthagafélög sé að ræða, eins og sum þau fé- lög, er kenna sig við heilar sýsl- ur. En hvað mætti þá segja um félag, er kennir sig við eina sveit og aðeins er skipað fólki þaðan? Mér er nær að halda, að minnsta átthagafélagið hér, og það sem markar sér þrengst verk svið, sé Félag Biskupstungna- manna í Reykjavík. Þetta litla félag réðist í það í fyrra að gefa út átthagarit, er aðeins fjallar um fólk og háttu í Biskupstungum. Ritið heitir „Inn til fjalla" og fór laglega á stað. Ritnefndin skýrði svo frá tilgangi þess: „Markmið félagsins með útgáfu ritsins er að reyna að varðveita minningar um ýmsa menn, málefni og fleira í Biskupstungum lengur en ella mundi. Marki því hyggst félagið að ná með því að taka upp grein- ar úr prentuðu máli, sem snerta sveitina á einhvern hátt, rifja upp forna atburði og skrásetja eitt og anpað frá samtíð sinni, , sem vert þykir að muna“. Ritið var hið fjölbreyttasta að efni og kenndi þar margra grasa, allt frá þjóðsögum til frásagna um merka menn og þjóðkunna. Nú hefur félagið gefið út ann- að bindi af þessu ritsafni og er það með mjög svipuðum hætti og hið fyrra. Þar er meðal ann- ars sagt frá fyrstu keppni í starfs í'þrótt hér á landi (1918), fyrstu skógræktartilraunum í sveitinni, frá frostavetrinum mikla 1881, frá ýrpsum merkum heimildum. Þar er og grein um Sigríði í Brattholti, þá merku konu, sem ekki vildi að útlendingar næði tangarhaldi á Gullfossi, og þar Framh. á bls. 10. Aðeins 4 QQy Engu má glcyma. "ítölsk úrvals Epli, Appclsínm . Vínbcr Mandarínur, Sítronur. Pea Nuí, hnetukjarnar Konfektrúsínur Niðursoðnir ávextir, Þurrkaðir ávexíir erti __ glæsilegasta urva onfekt skrautöskjur. Ke r í gjafakössum. Grænar bannir, 4 tcg. Ekta hunang Súkkulaði og jók f jöiskrúðugt úrval. — bara HRINGJA svo 1 Torgsalan á Vitatorgi við Hverfisgötu Falleg jólatré og greni, skreyttar hríslur á leiði, skreytt- ar skálar og körfur til jólagjafa, túlipanar í lausasölu (mosi fylgir) o. m. fl. Einnig selt á Barnósstíg og Eiríksgötu. Gott verð. — Góð afgreiðsla. HOOVER Þvottavélar — Ryksugur Verð kr. 1883.00 Þýzkar hrærivélar Mjög vandaðar, ný gerð. Verð kr. 2.250.00. Þýzk vöfflujárn og straujárn 1 Verð frá kr. 85.00 Ljósakeðjur á jólatré Flúr-lampar og pípur ágætir í eldhús og víðar. Ljósaperur Kúlur í loft — á vegg og með stöng. Odýrir skrautlampar, lampahöldur og ýmis konar raflagnaefni. Ljós & Hiti h.f. Laugavegi 79 — Sími 5184 /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.