Morgunblaðið - 29.12.1953, Síða 8
8
MORGUTS BL AÐIÐ
Þriðjudagur 29. des 1953
Ctg.: H.f. Arvakur, Reykjavlk
í'ramkv.stj.: Sigfús Jónsspri
Ritstjóri. Valtýr Stefánsson (ábyrgóarm.)
Stjórxnnálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur
l*sbck: Arni Ola, simi a04S
Augiýsingar: Árni Garðar Kristinsson
Ritatjói n, auglýsingar og aígreiósia
Auslurstræti 8. — Simi 1600
Áskriftergjald kr. 20.00 á mánuði innanlands.
1 iausasölu 1 krónu eintakifi
> <
L
\ UR DAGLEGA LIFINU \
Jólsgjöf Ráðstjómarþjó
A AÐFANGADAG jóla barst sú
fregn út um heiminn að daginn
áður hefði Lavrenti Beria, fyrr-
verandi innanríkisráðherra Rússa
ásamt sex öðrum háttsettum
valdamönnum í Sovétríkjunum,
verið dæmdur til dauða og skotn-
ir þegar i stað.
Þetta var jólagjöf Malenkov-
stjórnarinnar til Ráðstjórnar-
þjóðanna!!
Eins og áður hefur verið skýrt
frá, voru Beria gefnir ýmsir
glæpir að sök. Hann hafði tekið
þátt í samsæri um að grafa und-
an Sovétskipulaginu og koma aft-
ur á „auðvaldsskipulagi“ í Rúss-
landi. í þessu skyni hafði hann
haft náið samband og samvinnu
við erindreka erlendra „óvina-
ríkja“. Hann hafði neytt allra
bragða til þess að koma vinum
sínum og aðstoðarmönnum í
ábyrgðarstöður til þess að orméta
Sovétskipulagið sem rækilegast
að innan.
★
Það fylgdi tilkynningu Moskvu
stjórnarinnar um dóm og líflát
hinna sakfelldu, að þeir hefðu
allir játað á sig glæpi sina. Frá
því var einnig skýrt, að Beria
hefði unnið að því að kollvarpa
Sovétskipulaginu allt frá 1919.
Svo mörg voru þau orð.
Lavrenti Baria, einn nánasti
samverkamaður hins „mikla“
Stalíns og trúr lærisveinn
Lenins, liefur sem sagt „játað“
það á sig, að hafa allt frá upp-
hafi byltingarinnar unnið að
því að endurreisa „auðvalds-
skipulagið“ í Rússlandi!!
★
Handtaka Beria, dómurinn yfir
honum og líflát hans veita heim-
inum enn einu sinni innsýn í það
myrkviði, sem hið kommúniska
skipulag hefur skapað í móður-
landi sínu. Spillingin heldur
áfram að grafa um sig, byltingin
heldur áfram að éta börn sín,
höfuðin halda áfram að fjúka og
valdatogstreytan magnast. Eng-
um getur dulizt að með handtöku
Beria á s.l. sumri var hrikaleg
hreinsun hafin innan rússneska
kommúnistaflokksins. Við lát
Stalíns varð Bería, sem verið
hafði um langt skeið einn nánasti
samverkamaður hans, annar
valdamesti maður Sovétríkjanna.
Allt benti til að sú ráðstöfun væri
í samræmi við pólitíska erfðaskrá
hins látna skurðgoðs. En nú er
þessi hollvinur Stalíns allt í einu
sannur að sök sem ótíndur land-
ráðamaður, er allt frá upphafi
byltingarinnar á að hafa unnið
að því að kollvarpa Sovétskipu-
laginu. Og fyrr en varir hefur
hann játað á sig glæpina, verið
dæmdur til dauða og drepinn. Öll
hin kommúniska hirð lýstur svo
upp fagnaðarópi, fordæmir svik-
arann og lofar ráðsnilld hins
„mikla“ Malenkovs fyrir að hafa
komið honum svo snarlega fyrir
kattarnef. Ráðstjórnarþjóðirnar
þakka jólagjöfina, höfuð Beria á
silfurdiski!!
★
Þannig gengur stjórnmálaþró-
unin í Rússlandi, þar sem „al-
þýðulýðræði" kommúnismans
situr að völdum. Þeir, sem í gær
höfðu örlög 200 millj. þjóðar í
hendi sér og voru tignaðir sem
guðir, eru í dag brennimerktir
sem svikarar og gerðir höfðinu
styttri.
Þetta skipulag eru svo deild
ir hins alþjoðlega kommúnista
flokks um víða veröld látnar
lofa hátt og í hljóði. Þær hafa
tekið að sér það ömurlega
hlutverk að telja þjóðum ann-
arra landa trú um að þetta sé
hið eina sanna lýðræði. — í
þessu séu völd og áhrif alþýð-
unnar fólgin. Að þessu skipu-
lagi beri allar þjóðir að stefna.
Svona hyldjúp er fyrirlitn-
ing kommúnista fyrir heil-
hrigðri skynsemi fólksins.
Hvað segir íslenzkur almenn-
ingur um þann stjórnmálaþroska
og þær lýðræðishugmyndir, sem
liggja til grundvallar vörnum
kommúnista hér á landi og ann-
ars staðar fyrir þetta „alþýðu-
lýðræði"?
Getur nokkur heiðarlegur Is-
lendingur treyst þeim mönnum,
sem lofa og vegsema hið rúss-
neska réttarfar og það skipulag
sem getur af sér frá rotnum og
spiliingu, sem síðustu atburðir í
Rússlandi gefa svo greinilega til
kynna?
Areiðanlega ekki.
★ MIKIL tíðindi hafa nú borizt
austan úr Rússíá. Einn af
leiðtogum landsins, P. L. Bería,
aðstoðarforsætis- og innanríkis-
ráðherra var skotinn aðfaranótt
jóla. — Þetta er ekki í fvrsta
skipti sem slíkar fréttir berast frá
Rússlandi. Þaðan hefur sannar-
lega áður fréttzt um líflát fleiri
aðalpersóna í harmleiknum
mikla, sem þar hefur verið sýnd-
ur um nær háifrar aldar skeið.
— Það hefur áður hrikt harka-
lega í fúnum stoðum Sovétskipu-
lagsins.
★ ★ ★
★ EN IIAÐ vitum við um þessa
menn sem berast á bana-
spjót, leiðtoga Ráðstjórnarríkj-
anna? Hvað vitum við um einka-
lif þeirra, svo að eitthvað sé
nefnt. Eru þeir kvæntir, eiga þeir
börn? — Varð kona ekkja og
börn föðurlaus við líflát Bería?
— Ef þið, lesendur góðir, munduð
spyrja Sovétborgara fyrrnefndra
spurninga, yrði svarið ofur ein-
falt: — „Ég veit það ekki“. Og
enginn getur láð honum, þótt
hann fylgist ekki betur með, því
að hvaðan á hann að fá upplýs-
Uinbaiíp dddouét-
ieiÍto^œnJnu rílió-
leyndamuái! ?
ingarnar. Rússnesku blöðin minn
ast aldrei á einkamál leiðtoganna,
fáir vita t. d„ hvort Malenkov
forsætisráðherra er kvæntur eða
ekki. Aldrei hefur hann a. m. k.
sézt opinberlega með konu sinni.
★ ★ ★
★ EINS og áður hefur verið
getið um hér í blaðinu, eru
menn á Vesturlöndum þess full-
vissir, að Malenkov sé kvæntur
Nikta Kruchev leikkonu, systur
Kruchevs aðalritara kommún-
istaflokksins. Þá er sú skoðun og
ríkjandi á Vesturlöndum, að
Bería hafi verið kvæntur annarri
leikkonu, en aldrei hafa neinar
sögur um þetta komizt á kreik
í Moskvu. Einkalíf Sovétleiðtog-
VeU andi áiríj^ar:
Hreinsanirnar innan komm-
únistaflokks Sovéíríkjanna,
nú síðast aftaka Lavrenti Ber-
ia, eru óræk sönnun þess að
kommúnisminn hefur ekki
fært þessari langkúguðu þjóð
frið og réttlæti, heldur nýja
harðstjórn, spillta og blóðuga.
Enginn frjálslyndur og heið-
arlegur lýðræðissinni getur
þess vegna varið það xyrxr
samvizku sinni að styðja
nokkra deild hins alþjóðlega
kommúnistaflokks. Etiginrt ís-
lendingur, sem ann frelsi og
mannréttindum getur veitt
hinum fjarstýrða flokki lið
sitt til þess að grafa undan
hornsteinum hins íslenzka lýð
veldis.
Laumuspil Rúts
EINN af þingmónnum kommún-
istaflokksins hér á landi, Finn-
bogi Rútur Valdemarsson, hefur
við tvennar eða þrennar alþingis-
kosningar boðið sig fram sem „ut
anflokka“ frambjóðandi. — Áj
Alþingi hefur hann hins vegar
fylgt Brynjólfi Bjarnasyni eins j
og sauðtryggur heimalningur í
hinum fjarstýrða flokki. Fer það
ekki á milli mála að hann fylgir ’
trúlega hinni opinberu „línu“,
sem kommúnistar verða að dansa
á á hverjum tíma. /
Rísandi dagur.
ÓL og vetrarsólstöður eru liðn-
ar hjá. Hversdagsleiki hins
daglega lífs situr á ný að völdum.
Skammdegið grúfir yfir þessu
norðlæga landi. Hinn örstutti
dagur er eins og lítil glufa í nótt-
ina. En það er samt engin ástæða
til þess að örvænta. Daginn er
tekið að lengja. Glufan í nóttina
heldur úr þessu áfram að víkka,
hægt og bítandi. Sólin hækkar á
lofti og fyrr en varir er aftur vor,
sumar og gróandi — Jónsmessa
og miðnætursól.
Þrátt fyrir þessar staðreyndir
reynir Rútur þessi um þessar
mundir að leika nýtt laumuspil
suður í Kópavogshreppi. Þar
gengur hann nú fyrir dyr Alþýðu
flokksmanna og ýmissa annarra
andstæðinga kommúnista, segist
vera „ópólitískur“ og biður um
stuðning til þess að komast í
hreppsnefnd. Á-nokkrum stöðum
hefur hann jafnvel skilað kveðju
frá bróður sínum, formanni Al-
þýðuflokksins.
Ótrúlegt er að nokkur glepj-
ist á þessu laumuspili „utan-
flokka“ þingmanns kommún-
ista, enda þótt eitthvað kunni
að vera hæft í kveðjunum frá
bróður hans!!!
Við þessa tilhugsun munum
við, eins og forfeður okkar,
þreyja Þorrann og Góuna. Mann-
kindin verður alltaf að hafa eitt-
hvað til þess að hugga sig við,
horfa fram til og hlakka til. Hún
er í raun og veru alltaf eins og
barn, sem hlakkar til jólanna,
jólagjafanna og kertaljósanna,
sem varpa birtu og yl inn í sálina.
Ef hún hefur ekki eitthvað til
þess að hlakka til verður líf
herinar eitt allsherjar skamm-
degi, sorti og vonleysi, eins og
kemur greinilega fram í þessum
kunnu ljóðlínum Kristjáns Jóns-
sonar:
„Lífið allt er blóðrás og logandi
und,
sem læknast ekki fyrr en á
aldurtilastund".
Spáir góðu.
ÞAÐ hefur verið fremur rólegt
um jólin hér í Reykjavík, lít-
ið um eldsvoða og slys eins og
stundum vill brenna við á há-
tíðisdögum. Spáir þetta góðu um
áramótin, sem oft hafa verið hér
frekar róstursöm. Ef ég man rétt
voru þó síðustu áramót nokkru
skikkanlegri en verið hafði und-
anfarin ár. Unglingunum, sem
setja svip sinn á götulífið á gaml-
árskvöld er farið að skiljast, að
skrílslæti eiga ekkert skylt við
fögnuð og áramótagleði. Við skul
um vona að næsta gamlárskvöld
beri einnig þessum skilningi vott.
Mörgum mun finnast, að bæj
arfógetanum á Siglufirði hafi
farizt mjög röggsamlega, er hann
bannaði samkomur um skeið í
bæ sínum, vegna þess að sprengi-
efni hafði verið stolið úr birgða-
skemmu nokkru fyrir jólin. Þetta
var sjálfsögð ráðstöfun. Enginn
veit, hvenær óvitaskapur og
skeytingarleysi geta valdið stór-
slysum þegar unglingar hafa
sjálfann voðann á milli handa.
Héraðabönn og
áhrif þeirra.
FYRIR nokkru eru gengin í
gildi héraðabönn í nokkrum
kaupstöðum úti á landi. Úr ein-
um þessara kaupstaða hefur mér
borizt svohljóðandi bréf:
„Margir hér álitu, að með því
að loka áfengisútsölunni á staðn-
um mundi draga úr áfengiz-
neyzlu. Þessvegna var héraða-
bann samþykkt hér. Ég játa
hreinskilnislega að ég var einn
þeirra, sem átti þátt í þeirri sam-
þykkt. En enn sem komið er hef-
ur því miður ekki sést jákvæður
árangur af þessari ráðstöfun. Með
hverri einustu skipsferð kemur
mikið magn af áfengi, ýmist í
pósti eða með einstaklingum, sem
taka það með sér fyrir kunnirigja
og vini. Það er heldur ekki ör-
grannt um, að leynivínsala og
smygl hafi aukizt. En ég fæ því
miður ekki séð að áfengisneyzla
hafi minnkað. Þvert á móti ber
nokkuð á því að menn drekki nú
frekar í skorpum, rétt eftir að
þeir hafa fengið áfengissending-
ar.
Ég held þessvegna að héraða-
bönn dugi ekki meðan áfengi
er á annað borð selt í landinu.
Næsta spor verður að vera algert
aðflutningsbann á áfengi.
Viltu koma þessari skoðun
minni á framfæri, Velvakandi
góður.
Með fyrirfram þakklæti.
Þinn Grímur".
Ef þú villt
tryggja frið-
inn, þá vertu
viðbúinn stríði.
anna er svona nokkurs konar
r íkisleyndarmál!
★ ★ ★
★ EN ÞÓ HAFA tveir komm-
únistaleiðtogar sérstöðu í
þessum efnum. Annar er Molotov
gamli utanríkisráðherra. Allir
vita, hver hans eiginkona er.
Hefur hún oftsinnis sézt með
manni sínum og séð um opinber-
ar veizlur. Og frá síðari heims-
! styrjöldinni hafa nokkrum sinn-
I um birzt myndir af þeim saman.
— Hinn er Vishinskí aðalfulitrúi
; Rússa hjá S.Þ. Kr kona hans oft
1 í fylgd með honum. — Á hinn
bóginn veit rússneskur almenn-
ingur ekkert um einkalíf Bería.
Buiganins, Kaganóvitsj og Kruc-
hevs, svo að nokkrir rússneskir
kommúnistaleiðtogar séu nefndir.
★ ★ ★
★ KUNNUGT var, að Stalín
átti son, Vasili Stalín að
nafni. Hann var yfirmaður í rúss-
neska flughernum og stjórnaði til
skamms tíma flughernum í
Moskvuhéraði. Ekkert hefur samt
heyrzt til hans síðan faðir hans
andaðist, og er ekki annað að sjá
en hinir nýju ráðamenn hafi tek-
ið hann úr umferð, ef svo mætti
segja. En svo mikið er víst, að
hann er með öllu gufaður upp, —
og er það svo sem ekkert eins-
dæmi austur þar! Þá er það og
alkunna, að Stalín átti dóttur sem
hann hélt mikið af, Svetlana að
nafni. Er sagt, að hún sé gift og
búi í Moskvu.
★ ★ ★
★ ÞAÐ VITUM við einnig um
einkalíf Stalins, að hann var
tvíkvæi»tur. Gátu t. d. allir sem
vildu farið að leiði síðari konu
hans. Á því var snotur og ein-
faldur steinn, sem einvaldurinn
hafði sjálfur látið setja á það.
Enda hefur það löngu verið kunn
ugt, að hann hafði mikla ást á
Nadjésjda Allelujeva.
★ ★ ★
★ HINS VEGAR er allt á huldu
um, hvort Stalín kvæntist
þriðja sinn. Eru þeir ekki allfáir
sem telja, að svo hafi verið og er
þar til nefnd systir Kaganóvitsj
félaga í Æðstaráðinu. Á þessum
getgátum manna hefur þó aldrei
fengizt nein staðfesting, ekki
heldur eftir dauða Stalíns.
★ ★ ★
★ AÐ EÐLISFARI eru Rússar
forvitnir menn, og er ekki
ósennilegt, að þeim leiki hugur á
að vita meira um heimilis- og
fjölskyldulíf leiðtoga sinna en
raun ber vitni. Því er þó alls ekki
að heilsa, eins og fyrr getur, þar
eð bannað er með öllu að minnast
á slíkt í blöðum landsins. Sovét-
leiðtogarnir sjá svo um, að leynd-
in hvíli yfir einkalífi þeirra sem
og öllu öðru, er varðar þá, líf
þeirra, störf og valdabaráttu.
★ ★ ★
★ VEL GETUR verið, að komm
únistaleiðtogarnir austan
járntjalds líti svo á, að konur
þeirra eigi ekki að njóta góðs af
ljómanum sem umvefur þá sjálfa.
Ekkert má á þá skyggja, ekki
einu sinni þeirra eigin konur. —
Er þetta í fullu samræmi við það,
hvílíkrar virðingar kona Molo-
tovs nýtur, því að hún var eitt
sinn ráðherra í kommúnistastjórn
Stalíns og sá um alla snyrtivöru-
framleiðslu Rússa um nokkurt
skeið.
Allt nema hergögn
STASSEN hefur sagt, að Vestur-
veldin eigi að hafa fulla heimild
til að verzla við kommúnistarík-
in með allt nema hernaðarVarn-
ing. — NTB.