Morgunblaðið - 29.12.1953, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 29.12.1953, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 29. des. 1953 MORGVNBLAÐIÐ 11 Höfuðeinkenni sannra listamanna ú vinna verk sín án tillits til hegnaðar eða viðurkenningar * segir Jén Leifs í filefni af aímæii Bandaiags ísienzkra iistamanna, er var 6. sepfember s.l. Á ÞRIÐJA í jólum minntust nokkrir íslenzkir listamenn 25 ára afmælis Bandalags íslenzkra listamanna í útvarpinu. — Var þetta afmæli 6. september í haust. Fyrstur talaði þar núverandi formaður Bandalagsins, Páll ís- ólfsson. Því næst Jón Leifs. — Aðalræðuna flutti Gunnar Gunn- arsson, en síðan lásu þeir upp kvæði eftir sig Halldór Kiljan og Tómas Guðmundsson. — Síðasti útvarpsþátturinn var 4. þáttur úr leikriti Davíðs Stefánssonar, ,,Gullna hliðinu“. Jón Leifs hefur sent blaðinu handrit af ræðu sinni, er fer hér á eftir: „Menn hafa látið í ljósi ósk um að ég minntist með nokkrum orð- um stofnunar Bandalags is- lenzkra listamanna fyrir 25 árum. Mér er ljúft að gera þetta hér: Bandalag íslenzkra listamanna varð til úr draumum hins unga manns, er vildi skapa listalíf á íslandi og hafði um nokkur ár látið sér nægja að gera tillögur í blaðagreinum og bréfum og minna á ýmiskonar fordæmi í öðrum löndum. Ég hafði m. a. bent á að skemmtanaskattur væri í Oslóborg notaður til að halda við fyrsta flokks hljóm- sveit. Þetta varð til þess að lög um skemmtanaskatt og Þjóðleik- hús voru sett á íslandi árið 1927. Snemma á því ári hafði Jónas Jónsson frá Hriflu gerzt mennta- málaráðherra. Ég skrifaði þá einnig honum frá Baden-Baden seytján síðu langt vélritað bréf með sundurliðuðum tillögum varðandi listalíf á íslandi, benti m. a. á hvílíkt stjórnmálalegt gildi hinar mismunandi listgrein- ar gætu haft. Úr tillögum þess- um urðu til Menntamálaráð ís- lands og Menningarsjóður, — stofnanir, sem nú styðja nokkuð allar listgreinar og að jöfnu, — nema tónlistina, sem ráðherrann mat lítils. Framhald af ofangreindum til- lögum varð svo loks að mér kom til hugar að gangast fyrir stofn- un stéttarfélags listamanna. Ég skrifaðist á um þetta mál við hina útlægu íslenzku listamenn og rithöfunda, sem ekki sáu sér fært að stunda störf sín á ís- landi, hversu fegnir sem þeir vildu. Jóhann heitinn Jónsson skáld er höfundur að nafninu: Bandalag íslenzkra listamanna. •— Gu«nar Gunnarsson, þá bú- settur í Danmörku, sýndi þegar fullan skilning á nauðsyn þess að stofna stéttarsamtökin. Hann varð fyrsti formaður Bandalags- ins, en ég tók að mér störf rit- arans. — Ég safnaði umboðum átta íslenzkra listamanna og rit- höfunda erlendis til að stofna fé- lagið, og er ég var heim kominn til íslands gat ég formlega gengið frá stofnun Bandalagsins á fundi, er haldinn var 6. september 1928 í Reykjavík, á Hótel Heklu, milli Hafnarstrætis og Lækjartorgs, í húsakynnumj þar sem nú er skrif stofa framfærslufulltrúa Reykja- víkurbæjar. Félagsmenn voru eitthvað um tuttugu að tölu, listamenn orðs og tóna, lita og mynda. Samtöl við þáverandi mennta- málaráðherra höfðu gefið góðar vonir um að Bandalagið öðlaðist nokkurskonar akadexnisk rétt- indi, þ. e. tillögurétt um opinber listmál og meðferð þeirra. Þetta brást þó eins og margt annað. — Fyrsta áhugamál Bandalagsins Var hinsvegar að tryggja lista- mönnum og höfundum full at- vinnuréttindi, eignarrétt að verk- um sínum og undirbúa inngöngu íslands í Bernarsambandið um höfundarétt, en þetta takmark náðist ekki fyrr en 7. september 1947 eða nákvæmlega 19 árum síðar. Saga þessa máls er löng og verður ekki rakin hér, en þó vil ég ekki láta hjá líða að þakka hér þeim, er árið 1943 ráku seinasta smiðshöggið á nauðsynlegustu lagabreytingar málinu til fylgis, en það munu hafa verið aðallega þeir Tómas Guðmundsson skáld og Stefán Jóhann Stefánsson, fyrrverandi forsætisráðherra, sem lengi var lögmaður félagsins án launa. Að sjálfsögðu er það nú á dög- um frumskilyrði hvers lista- manns til sköpunar verka sinna, að hann fái að eiga sitt verk og njóta arðsins af þvi, ef einhver verður, — en hins vegar hlýtur það ætíð að vera höfuðeinkenni allra sannra listamanna, að þeir vinni verk sín án tillits til hagn- aðar eða viðurkenningar. Ógleym anieg eru oss öllum að sjálfsögðu fordæmi lífernis hinna mestu listamanna, sem fórnuðu meiru en heilsan þoldi, eingöngu list sinni til viðgangs. Megum vér hér minnast hinna frægu orða Beet- hovens í erfðaskrá sinni, að ein- göngu listin hafi forðað honum frá sjálfsmorði og svo að hann vildi gefa fordæmi þeim er á eftir kæmu, — þetta að hann hafi, þrátt fyrir allar sorgir og hindranir og heyrnarleysi, reynt allt, sem hann orkaði, tii að kom- ast í tölu mætra manna og lista- manna. Menn hafa spurt mig hvort ég mundi óska einhverrar afmælis- gjafar Bandalagi íslenzkra lista- manna til handa. Félagið á sér mikla stefnuskrá, er samin var og birt í formannstíð minni 1937. Þar eru margar óskir mínar fram teknar, og sumar hafa þegar ver- ið uppfylltar vel, — en ein er þar óskin, sem ég mundi vilja gera að afmælisósk Bandalagsins, og það er: vinnustaðir og heimili i handa listamönnum víðsvegar | um landið til afnota eftir þörfum ! og til skipta, — þögulir staðir, j þar sem-einstakir íslenzkir lista- menn gætu unnið verk sín ó- áreittir í svo sem tvö ár í senn ! þannig, að séð yrði fyrir öllum j þeirra þörfum endurgjaldslaust á meðan. Rene Coty, hinn nýkjörni forseti Frakklands. — Hann verður settur í embætti 17. janúar næstkomandi. — Coty er 71 árs að aldri, úr íhaldsflokknum. Öldroð kona stórslasast í HINU mikla umferðarþvargi á Þorláksmessu, klukkan rúmlega háif sjö, varð kona á áttræðis- aldri fyrir bíl á Lauga'rveginum og stórslasaðist. Konan heitir Guðrún Erlendsdóttir, til heim- ilis að Langholtsvegi 77. Gamla konan var að koma frá systur sinni, sem heima á að Laugavegi 86, er hún varð fyrii’ bílnum R-828 skammt frá húsinu. Vegfarendur komu Guðrúnu þeg ar til hjáipar og var hún fluít í Landsspítalann. Við læknisskoö- un kom í Ijós, að hún hafðl mjaðmagrindarbrotnað. — Hefur hún verið við slæma liðan ura hátíðarnar. Þó mikill fjöldi fólks'hafi ver- ið á ferð þarna hefur ekki tekizt að hafa upp á neinum, er sá er slysið varð. Það eru vinsamleg' tilmæli rannsóknarlögreglunnax, að hver þeirra, sem nærstaddur var og gefið gæti lýsingu á að- draganda slyssins, komi til við- tals hið fyrsta. Dómur heimsbiaða iiiií síðustu iðbrögð Sovétstjórnarinnar DAUÐI Bería hefur, sem vænta mátti, verið mjög til umræðu í heimsblöðunum, enda þótt Vesturlandablöðin hafi nú um hátíð- arnar mest rætt fagnaðarboðkap jólanna. Róleg jól í Reykja- vík JÓLIN hér í Reykjavík voru mjög róleg, þó drykkjuskapur væri nokkur á annan dag jóla og þá nótt. — Hjá götu- og rann- sóknarlögreglunni var því tíð- indalítið. Um jólin voru miklir umhleyp- ingar, skiptust á frost og rigning, en af þeim sökum var oft flug- hálka á götunum og utan við bæ- inn. Mikil ljósadýrð var um allan bæ, en mest við höfnina, þar sem allir Fossarnir, að tveim undan- skyldum, lágu ljósum skreyttir stafna á milli á aðfangadags- kvöld. Fallegasta ljósaskreyting- in hér í bænum, var við Elli- og hjúkrunarheimilið Grund. Víða voru ljós í trjágörðum. Slökkviliðið var kallað út nokkrum sinnum en ekki var um neina verulega eldsvoða að ræða. ÓSKEMMTILEG BYRJUN Maggiore í Rómaborg segir, að dauði Bería hafi á engan hátt komið mönnum á óvart, þar eð sjá mátti þegar af ákærunum að Bería og félagar hans yrðu skotn- ir. — Blaðið segir enn fremur: „Því miður er heldur vafasamt, að lýðræðisríkin geti komizt að samkomulagi við ríki, þar sem slíkar aðferðir eru notaðar, sem raun ber vitni. Bería var dæmd- ur fyrir samvinnu við erlenda kapitalista. Er ólíklegt, að gagn- kvæmur skilningur geti orðið milli ríkisstjórnar, sem byrjar feril sinn á þennan hátt og lýð- ræðislandanna.“ SAMI GRAUTUR Annað ítalskt blað La nazione er síður en svo sorgbitið yfir ör- lögum Bería, og bendir á ævifer- il hans og glæpaverk. — „En“, heldur blaðið áfram, „fall Bería breytir í engu eðli kommúnism- ans í Rússlandi né ríkisstjórnar- innar, sem viðheldur honum. Hún er nú engu betri en hún var, á meðan Bería sjálfur sat að völdum.“ SAMA STEFNA Franska blaðið Frontiere í París segir, að réttarhöldin yfir Bería sýni, svo að ekki verði um villzt, að Bería hafi ekki „játað“. — „Ef svo hefði verið“, segir blaðið, „hefði Malenkóv látið réttarhöldin fara fram fyrir opn- um tjöldum til þess að sýna þjóð- um heimsins og Ráðstjórnarþjóð- unum svart á hvítu, hvílíkur glæpamaður Bería var.“ Kemur sú skoðun enn fremur fram í blaðinu, að réttarhöldin yfir Bería sýni, að Stalínisminn hafi lifað Stalín. FÚNAR STOÐIR SOVÉTSKIPULAGSINS í Ástralíu varpar Melbourne Herald fram þeirri spurningu, hvort líklegt sé, að dauði Bería festi Malenkóv í sessi. Er blað- ið þeirrar skoðunar, að svo sé alls ekki. „Fall Bería“, heldur blaðið áfram, „sýnir bæði Ráð- stjórnarþjóðunum og öðrum þjóðum heims, að deilur og ill- indi eru ríkjandi í Kreml og stoðir Sovétskipulagsins eru nú veikari og fúnari en nokkru sinni fyrr“. Eldur í lmsinu Reyuistaður NOKKRAR skemmdir urðu af völdum elds í húsinu Reynistað- ur við Skerjafjörð, er eldur kom upp í húsinu um klukkan 7 í gær- morgun. Hús þetta er úr timbri. Eldurinn kom upp í baðher- bergi á efri hæð, sennilega út frá Ijósastæði. Hann var orðinn all- magnaður er hans varð vart, e:rt kona, sem svaf þar uppi, vaknaði. j Eldur logaði upp úr þaki hússins er slökkviliðið kom á vettvang. Eins var eldur í rishæðinni. —• Slökkvistarfið gekk greiðlega og urðu ekki miklar skemmdir á húsinu. Frá Kópavogs- söfnuði Aðvarað við flug- hálku á vegum úti Á SUNNUDAGSKVÖLD, í miðri dagskrá, las þulur aðvörun til bílstjóra á Keflavíkurvegi, vegna flughálku á veginum. Slíkar til- kynningar geta forðað stórslysum og ætti oftar að gripa til þessa. Vegna hálkunnar varð bíla- árekstur við Grafarholt. Maður, sem ók sendiferðarbíl, ætlaði að sveigja fyrir bíl, sem stóð við vegbrúnina og verið var að setja keðjur á. Bílstjórinn meiddist er sendiferðabíllinn skall á hann, en þau meiðsli voru ekki alvarleg. 4 kýr drápusi af rafmaps- straism að Sefbergi við Hafnarf, HAFNARFIRÐI, 28. des. — Daginn fyrir Þorláksmessu drápust 4 kýr í fjósinu að Setbergi. Orsök slyssins voru þau, að ljósastæði í íbúðarhúsinu, sem er áfast við fjósið, bilaði, og leiddi þá rafmagn út í fjós, en íbúðarhúsið var grunntengt við vatnsleiðslu, sem liggur í brynningarskálarnar. VIÐ aftansöng í Kópavogsskóla á aðfangadag bárust Kópavogs- sókn dýrar gjafir. Tvær ónefndar konur gáfu fagran altarisdúk. Nokkrar konur innan safnaðar- ins undir forystu frú Helgu Sveinsdóttur á Sæbóli gáfu tvo þríálmaða ljósastjaka. — Stjakar þessir eru úr silfri og settir fögr- um steinum. Stjakana smíðaði Jón Dalmannsson gullsmiður og er það einróma álit allra, sem þá hafa séð, að þeir séu forkunnar- fagrir og hin mesta listasmíði; Það er að sjálfsögðu tilætluniu. að stjakarnir verði á sínum tíma eign væntanlegrar Kópavogs-^ kirkju, en þangað til hún rís verða þeir þó notaðir við guðs- þjónustur safnaðarins. Gjöf þessi er hin merkasta. —. Hún lýsir ekki aðeins stórhug og dugnaði gefendanna og listfengi gullsmiðsins, heldur er hún lýs- andi tákn þess skilnings, senv margur hefur enn á gildi kristn- innar, og ljós merki þess áhuga sem vaknaður er á því að söfn uðurinn eignist fagra og hentuga kirkju á sínum tíma. I nafni safnaðarins færi ég hér með öllum gefendum ofan- nefndra kirkjugripa alúðarþakk- ir. Gunnar Árnason. 20 I FJOSINU Það var á tólfta tímanum, að dóttir Einars Halldórssonar bónda að Setbergi varð vör mik- ils hávaða, sem kom frá fjósinu. Vakti hún þá föður sinn, sem var sofnaður. Hann fór þegar út í fjós og sá þá hvernig komið var. Lágu þá tvær kýr dauðar á gólf- inu. — Einar leysti þegar hinar kýrnar, en alls voru þær 20 í fjósinu. Á leiðinni út úr fjósinu drapst enn ein og sú fjórða fyrir utan fjósið. MARGAR ALLDASAÐAR í viðtali við Einar í gær, sagði hann, að á tíu kúnna sæi ekkert, en hinar væru allar meira og minna dasaðar — hefðu tognað og orðið fyrir öðrum meiðslum. — G. Rólegt I Hafaarfirði HAFNARFIRÐI. — Tiðindalaust var hjá lögreglunni hér í bæ um hátíðina. — Dansleikir voru haldnir á annan dag jóla í sam- tomuhúsunum og fóru þeir allir fram með friði og spekt svo sem að vanda: Hjá slökkviliðinu var allt með kyrrum kjörum— það var aldrei kallað út um hátíðina. Allir Hafnarfjarðartogararnir voru í höfn nema Bjarni riddari og Júní. Þeir eru nú allir farnir I aftur á veiðar nema Röðull, sem er í slipp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.