Morgunblaðið - 23.01.1954, Qupperneq 5
i taugardagur 23. janúar 1954
MORGUNBLAÐIÐ
6
- KVIKMYNDIR
Sir Edmund Hillary tók þessa víðfrægu mynd af Tensing, á efsta
tindi Mount Everest.
Andsfæðingablöðin hirða ekki
um að kynna sér bæ$arámálin
Fleipri um tæknileg vandamál mótmæli.
Tjarnarbíó:
EVEREST SIGRAÐ
Einstæð og stórfengleg kvik-
mynd.
TJARNARBÍÓ hóf í gærkvöldi
sýningar á þessari frábæru kvik-
mynd er tekin var af brezka
leiðangrinum undir stjórn Sir
John Hunt, sem liinn 29. maí í
vor tókst að sigra hæsta fjall
heimsins Mount Everest í Hima-
layafjöllum. Var bar með endi
bundinn á rúmlega brjátíu ára
"baráttu mannlegrar snilli og orku
til þess að gera sér undirgefna
þessa jötunheima íss og ögrandi
klettabelta. — Fjöldi Reykvík-
Snga mun hafa heyrt sögu þessa
mikla þrekvirkis af vörum ann-
ars hinna tveggja manna er kom-
Ust upp á hæsta tind Everest, Sir
Edmund Hillary, er hér var
staddur fyrir skömmu og hélt
tvo fyrirlestra um leiðangurinn.
Myndina tók einn af leiðangurs-
mönnunum, Thomas Stobart og
er hún í eðlilegum litum.
Myndin hefst á stuttri frásögn
iDg sýningu frá tveimur fyrri
leiðöngrum til Mount Everest. en
síðan greinir hún frá þessum síg.
asta og farsæla leiðangri. Er þar
fyrst lýst öllum undirbúningi
undir ferðina. Hefur það verið
Snikið verk og vandasamt og er
eðdáunarvert af hversu mikilli
fyrirhyggju og nákvæmni hefur
Verið séð fyrir öllum útbúnaði
pg öðrum þörfum leiðangurs-
manna. Ekki hvað vandaminnst
hefur það verið að velja til leið-
Ðngursins hæfa menn og sam-
Btillta, en það hefur Sir John
tekizt svo vel að undrum sætir.
3?arna er valinn maður í hverju
irúmi og samvinna þeirra og bróð-
urhugur með einsdæmum. Aldrei
Verður vart afbrýði manna á
milli, jafnvel ekki þegar valdir
eru úr þessari fjórtán manna
sveit fjallgöngumannanna: þeir
Bem ætlað er að klífa síðasta
áfangann upp á hæsta tind Ever-
ests. Ferðin gengur hindrunar-
laust upp að rótum fjallsins, en
fir því tekur við hver þrautin og
Ihver vandinn öðrum meiri. Get-
Ur enginn, sem ekki sér þessa
mynd, gert sér grein fyrir því
tiversu geisilegir erfiðleikar
yerða á vegi leiðangursmanna
Um þessa hrikalegu ísauðn fjalls-
tns, með djúpum og ægilegum
fiökulgjám, snjóskriðum og ofsa-
fetormi. En á öllum ógnum og
tiamförum náttúrunnar í þessari
iífvana auðn, sigrast þessi æðru-
Kausu menn, með þrautsegju, þol-
gæði, fyrirhyggju og þeirri
ítækni, sem þeir hafa yfir að ráða.
lÁhrifamikið er þegar þeir Hillary
og skerpinn Tensing leggja upp
It ferð sína síðasta áfangann upp
6 hæsta tindinn, innilega kvadd-
ír af félögum sínum, en þó er
epnþá áhrifaríkara að sjá er þeir
ikoma til baka til bækistöðvanna
sem sigurvegarar, þrekaðir svo
0ð þá verður að styðja síðasta
jspölinn, en ákaft hylltir af leið-
'jEmgursmönnum. Að síðustu líta
jþessir tveir afreksmenn upp á
tindinn þar sem þeir höfðu staðið
daginn áður um fjórðung stund-
ar.
Þessi einstæða og stórfenglega
mynd er í senn geisifróðleg og
hrífandi í fegurð sinni og hrika-
leik, og auk þess er hún mikið
tæknilegt afrek.
Ego.
Fullkomin
kosningahandbók
UM ÞESSAR mundir er til
sölu víða um bæinn kosninga-
handbók sem Heimdallur, fé-
lag ungra Sjálfstæðismanna,
hefur gefið ut. Ritið er hið
bezía heimildarrit sem hægt
er að fá um í hönd farandi
bæjar- og sveitarstjórnarkosn
ingar.
Þó klaufastrik kommún-
ískra hreppsnefndaroddvita og
þeirra líka gcri það að verk-
um að kosningaundirbúning-
ur er ónýtur í sumum hrepp-
um, hafa þeir þó ekki allsstað-
ar fengið að koma nærri og
þessvegna eru framboð flest
enn í fullu gildi. Skýrir kosn-
ingahandbókin frá þessum
framboðum öllum skýrt og
skilmerkilega. Þar er og rúm
til að skrifa kosningaspár og
fylgjast með kosningatölum
talninganóttina eftir 31 jan.
Mun þetta vera ein bezta kosn
ingahandbók, sem út hefur
verið gefin. Verð hennar er
10 krónur.
Enn ímnið að
björgun Eddu
GRAFARNESI, 22. jan.: — Enn
er unnið að því, að bjarga skip-
inu Eddu. Nú er búið að kjölrétta
skipið. Um fjöru hefur efri hluti
brúarinnar og hvalbakur komið
upp úr sjónum, en á flóði nær
sjórinn í mitt formastur. Aftur-
mastrið er brotið. Skipið liggur
milli bryggjanna hér.
Nú ætla björgunarsveitirnar að
reyna að þétta um lestarlúgur,
en síðan dæla úr þeim sjónum.
Tilraun til þessa mistókst í dag,
en verður haldið áfram. Enn þá
er of snemmt að spá um það
hvernig björgunin muni takast,
en sýnt er að kostnaður við verk-
ið mun verða mikill.
FENGU TÆP 8 TONN
AKRANESI, 22. jan.: — 18 bátar
voru á sjó héðan í dag. Minnstur
afli var 4 tonn, en aflahæstir
voru Keilir með tæn 8 +onn g
Sveinn Guðmundssi - ö ö 7‘í
tonn. — Oddur.
X BEZT AÐ AUGIASA A
T / MORGVmLAÐIIW T
TÍMINN birtir s.l. fimmtudag
myndskreytta forsíðugrein um
gatnagerðarframkvæmdir í
Reykjavík. Er grein þessi skrif-
uð i sama stíl og aðrar greinar
þessa blaðs um bæjarmálefni
Reykjavíkur, full blekkinga og
illkvittni, auk þess sem þekk-
ingarleysi höfundar á þeim mál-
um, sem hann skrifar um, er svo
magnað, að furðu sætir. Skal hér
svarað nokkrum atriðum úr rit-
smíð þessari, enda þótt óhugs-
andi sé að henda reiður á þeirri
dæmalausu „gagnrýni“, sem
þarna kemur fram.
ÁRÁSIR Á BÆJARSTARFS-
MENN
Enda þótt málgagn Framsókn-
arflokksins í Reykjavík hafi oft
komizt langt í siðlausri blaða-
mennsku, keyrir þó úr hofi að
þessu sinni, því að nú eru árásir
blaðsins ekki lengur takmarkað-
ar við stjórnendur Reykjavíkur-
bæjar, heldur er nú einnig veg-
ið að einstökum starfsmönnum
og þeir sakaðir um algjöran skort
á þekkingu á þeim störfum, sem
þeir eiga að framkvæma. Reykja-
víkurbær hefur í þjónustu sinni
allmarga starfsmenn, sérmennt-
aða á hinu verkfræðilega sviði.
Hefur jafnan verið kappkostað
að vanda sem mest val þessara
starfsmanna og er ekki vitað til,
að völ sé hérlendis annarra
manna í þessari sérgrein, sem
færari væru að annast þau störf,
sem þeim er ætlað að vinna. Er
fullvíst að allir þessir starfsmenn
vinna störf sín af trúnaði og sam-
vizkusemi. Hitt vita allir, að í
borg, sem ekki er eldri að árum
en Reykjavík og er að byggjast
upp, næstum óeðlilega hröðum
skrefum, skapast ýms tæknileg
vandamál, sem einatt eru erfið
úrlausnar, ekki sízt þar sem við
getum ekki byggt á neinni inn-
lendri reynslu í þessum efnum.
Eitt þessara vandamála er notk-
un malbiks við gatnagerð.
Ef til vill hafa blaðamenn Tím-
ans í pússi sínum einhverja
snöggsoðna „formúlu“, sem unnt
væri að beita með þeim árangri,
að aldrei þyrfti að gera við götu,
sem einu sinni hefði verið mal-
bikuð. Sé svo, verður það að telj-
ast fullkomið skeytingarleysi um
hag bæjarbúa, að þeir skuli ekki
hafa komið henni á framfæri
fyrir löngu.
ÞÝZKI VERKFRÆÐING-
URINN
Tíminn segir frá því, eins og
um væri að ræða fullkomið
hneyksli, að hér hafi fyrir tveim
árum komið þýzkur verkfræð-
ingur til þess að leiðbeina starfs-
mönnum bæjarins um malbikun
Miklubrautar.
Það er rétt, að hingað kom
þýzkur verkfræðingur eftir sér-
stakri ósk verkfræðinga bæjar-
ins, en það var ekki fyrir tveim
árum, heldur á s.l. sumri. Maður
þessi er sérfræðingur í þeirxi
grein verkfræðinnar, sem fjallar
um burðarþol jarðvegs og var
starf hans takmarkað við það eitt
að rannsaka jarðlög undir Miklu-
braut austan Rauðarárstígs, eða
þess svæðis, sem í ráði er að mal-
bika á næstunni.
Hérlendis er ekki völ neinna
sérfræðinga á þessu takmarkaða
sviði, hvorki meðal starfsmanna
bæjarins né heldur annars stað-
ar. Þó endanleg niðurstaða þess-
ara rannsókna liggi ekki fyrir,
i:r þegar vitað, að ráð þessa sér-
íræðings munu koma að miklu
haldi í sambandi við undirbún-
mg að áframhaldandi malbikun
Miklubrautar. Má líklegt telja,
að bæjarbúar kunni að meta það,
að sérstaklega er vandað til und-
irbúnings undir þessar umfangs-
miklu framkvæmdir, enda þótt
Tímanum finnist viðeigandi að
nota tækifærið til þess að reyna
að lítillækka þá starfsmenn bæj-
arins, sem að þessum framkværnd
um vinna.
MALBIKUN GATNA
Þess hefur nýlega verið getið
hér i blaðinu, að s.l. ár voru mal-
bikaðir ca. 27.500 ferm. af göt-
um bæjarins, en það samsvarar
því, að malbikaðir hafi verið ca.
4 km. af 7 m. breiðri götu, en það
er algengasta götubreidd.
Þá hefur einnig verið skýrt
frá því hér í blaðinu, að kostn-
aður vegna viðhalds á malbik-
uðum götum hefur að undan-
förnu farið mjög lækkandi.
Þannig var þessi kostnaður á s.l.
ári tæplega milljón krónur.
Til samanburðar má geta þess,
að árið áður varð hann liðlega
1.1 milljón kr„ og var þó flatar-
mál malbikaðra gatna minna á
því ári en árið 1953. Stafar þessi
lækkun af því fyrst og fremst,
að með vaxandi reynslu og breytt
um aðferðum við blöndun mal-
biks, sem aðallega er fólgin í
notkun annars steinefnis en áður
tíðkaðist, hafa gæði þess og end-
ing stórlega aukizt.
UPPGRÖFTUR
HRINGBRAUTAR
Þá hefur Tíminn enn á ný upp
sama sönginn um uppgröft Hring
brautar og telur hann skýrt dæmi
um fákunnáttu bæjarstarfsmanna
í öllu því, er snertir verklegar
framkvæmdir. Á s.l. vori var eins
og kunnugt er lögð ný aðalvatns-
æð í Vesturbæinn undir gras-
ræmunni í Hringbraut.
Furðuðu ýmsir sig á því, að
tækifærið skyldi ekki notað, er
strengjastokkur Sogsvirkjunar-
innar nýju var lagður nokkru áð-
ur, og hvorttveggja leiðslunum
komið fyrir í sama skurði. Ekki
var unnt að hafa þennan hátt á
af tækniiegum ástæðum og hefur
það mál verið margskýrt hér í
blaðinu svo og í sérstökum grein-
argerðum þeirra bæjarstarfs-
manna, sem verkum þessum
stjórnuðu og nægir í því sam-
bandi að benda á, að nauðsynlegt
hefði þá v'erið að loka báðum ak-
brautum Hringbrautar, en það
út af fyrir sig var óforsvaranlegt
af umferðarástæðum.
VÉLALEIGA ÁIIALDAHÚSS
Eitt furðulegasta atriðið í grein
Tímans og sá þáttur, sem ber
þekkingarleysi blaðamannsins
einna gleggst vitni, eru skrif hans
um endurgjald það, sem greitt
er fyrir vélar bæjarsjóðs af því
fé, sem ætlað er til gatnagerðar.
Þessu er þannig varið, að hverju
tæki bæjarsjóðs, eru reiknaðar
ákveðnar tekjur, sem hvorki eru
meiri né minni en það, að þær
nægi til þess að standa undir
kostnaði við rekstur þess
ákveðna tækis.
Hér er í raun og veru ekki um
annað að ræða en bókhaldsatriði,
og færslu milli einstakra gjald-
liða bæjarsjóðs. Að tala um „ok-
ur“ í því sambandi er sennilega
fremur barnaskapur en alvarlega
hugsuð ádeila, þvi hvaða vinning
ætti bæjarsjóður að hafa af því
að „okra“ á sjálfum sér? Tíman-
um til leiðbeiningar skal hins
vegar ber.t á það, að kostnaður
við rekstur þessara véla og tækja
er ekki meiri en svo, að unnt er
að reikna þeim miklum mun
minni leigu en einstaklingar telja
sig þurfa að fá fyrir sambærileg
tæki, er þeir leigja þau út. Vél-
skófla, sem einstaklingur mundi
Hálft hús
ifiigkeiiusiia
i gærkvöldi
UNGKOMMAR efndu til út-
breiðslu- og kosningafundar í
Gamla bíói í gærkvöldi. — Höfðtt
þeir haft mikinn viðbúnað og"
hóað saman miklum fjölda ræðu-
manna, m. a. „verkalýðsleiðtog'-
um“ Þjóðviljans, Inga R. og Jónt-
asi Árnasyni. • Skyldi nú sýna.
samtakamátt og baráttuhug ung-
komma og upplýsa æskufólk um
kenningar þeirra Lenins og
Stalins. — En viti menn. Fundar-
salurinn var rétt hálfur og er á.
fundarhöltíin leið tóku menn aí^
ganga af fundi, — sennilega upp-
hafið að „sigurgöngu" kommún-
ista fyrir bæjarstjórnarkosning-
arnar!
Er það álit þeirra, sem á fund-
inum voru, að hann hafi verið
einhver hinn aumlegasti, er um
getur í sögu kommúnistaflokksinft
hérlendis, enda vakti það sérlega.
athygli fundarmanna, hverstt
andrúmsloftið mótaðist af ótta og"
skelfingu. Ekki bættu ræðurnar
heldur úr skák né sú „fríða fylk-
ing“ bókstafstrúarmanna, sem
þær fluttu. — Þótti kommúnist-
um verr farið en heima setið, því
að fundurinn sannaði þeim, sv»
að ekki varð um villzt, algert
fylgisleysi þeirra hér í bænum.
- Yflrkjörsljéra
Framh. af bls. 1.
stjórnarkosningar er heimilt
ef frambjóðandi deyr, að setja
mann í sæti hans á lista, ef
fullnægt er ákveðnum skil-
yrðum. í kosningalögum eru
engin önnur ákvæði, sem
heimila yfirkjörstjórn að
breyta framboðslistum eftir
að þeir hafa verið teknir gild-
ir og auglýstir. Telur því yfir-
kjörstjórn ekki á sínu valdi aff
verða við framkominni ósk
Bárðar Daníelssonar um að
nema nafn hans burt af F-list-
anum, enda hafði kosning þeg
ar staðið á 2. viku er óskin var
fram borin“.
ÓVÍST UM ÁFRÝJUN
ÚRSKURÐARINS
Samkvæmt framansögðu hefur
I yfirkjörstjórn því neitað að nema
nafn Bárðar Daníelssonar út af
lista „Þjóðvarnarflokksins“. Snm
kvæmt lögum á flokkurinn nú
um það tvennt að velja, að una
við þennan úrskurð eða að áfrýja
honum, fyrst til bæjarstjórnar
Reykjavíkur og síðan, ef með
þarf, til félagsmálaráðuneytisins.
í gærkvöldi hafði einskis auka-
fundar verið óskað í bæjarstjórn.
Benda þvi allar líkur til þess að
listi ,,Þjóðvarnar“ verði óbreytt-
ur við kosningarnar. Má því bú-
ast við að ný orrahríð hefjist
milli glundroðaliðsins af tileíni
þess viðhorfs, sem skapast hefur
með úrskurði yfirkjörstjórnar. Er
nú svo komið að efsti maður á
lista „Þjóðvarnar“ situr þar þver
nauðuguf. Af afstöðu umboðs-
manns flokksins hjá yfirkjör-
stjórn virðist og mega ráða að
hann uni hið versta við úrskurð
hennar. Er þetta mál allt hið
spaugilegasta. Horfir nú til full-
kominnar upplausnar í röðum
„Þj óðvarnarliðsins“.
í yfirkjörstjórn eiga sæti þeir
Torfi Hjartarson tollstjóri, sem
er formaður hennar, Hörðui*
Þórðarson skrifstofustjóri og
Steinþór Guðmundsson kennari.
skv. auglýstum taxta, leigja út
fyrir kr. 150,00 pr. klst. er reikn-
uð „gatnagerðinni“ á kr. 85,00.
Loftpressa, sem einstaklingur á
sama hátt mundi reikna á 130
pr. klst., er leigð „gatnagerðinni“
fyrir kr. 70,00 og svo mætti lengi
telja, en hér verður nú staðar
numið, enda ástæðulaust að elta
ólar við fleiri staðleysur úr þess-
ari makalausu ritsmíð Tímans. ,