Morgunblaðið - 23.01.1954, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Laugai’dagur 23. janúar 1954
Attræð á morgun:
Guðrún Andrésdóttir
Á MORGUN, sunnudag, á Guð-
rún Andrésdóttir, fyrrum hús-
freyja í Syðri-Knarrartungu í
Breiðuvík á Snæfellsnesi, átt-
ræðisafmæli.
Guðrún er fædd í Bakkabúð í
Staðarsveit, og voru foreldrar
hennar Andrés bóndi Andrésson
og kona hans Margrét Gísladóttir.
Um tvítugt giftist Guðrún
Einari syni Magnúsar bónda
Jónssonar á Knerri í Breiðuvík.
Settu þau bú saman í Syðri-
Knarrartungu í sömu sveit og
bjuggu þar nær fimm tugi ára.
Smár mun bústofn þeirra ungu
hjónanna hafa verið í fyrstu, en
vel voru þau byrg af lífsgleði,
bjartsýni og framfarahug. Þessi
fárarefni munu hafa gefið góða
raun eins og jafnan áður og síð-
an, því að eftir fimmtán ára
búskap voru þau búin að festa
kaup á ábúðarjörð sinni.
Húsakostur á jörðinni var þá
eins og víðar lélegur og tún þýft,
en þegar Guðrún síðar brá búi
'eftir lát manns síns, var hér allt
með öðrum svip. Öll bæjarhús
og peningshús höfðu verið byggð
að nýju úr steinsteypu og til alls
var vandað. Orka bæjarlækjar-
ins hafði verið beizluð og raf-
magn notað til matreiðslu, lýs-
ingar, hita og heyþurrkunar. Tún
hafði verið sléttað og nýtízku vél-
ar voru notaðar til jarðvinnslu
og heyöflunar.
Þetta er í stuttu máli saga ein-
yrkjahjónanna, sem lögðu út í
lífið með lifsgleði, bjartsýni og
framfarahug að veganesti.
Þau Guðrún og Einar eignuð-
ust níu börn og komust átta
•þeirra til þroska. Þau eru: María
kjólasaumakona í Reykjavík,
ógift, Magnús bóndi í Syðri-
Knarrartungu, Lovísa, gift Jóni
bónda Sigmundssyni á Hamra-
ertdum í Breiðuvík, Valdís, gift
Wilhelm Beckmann tréskurðar-
meistara í Reykjavík. Magnús
forstjóri frystihússins í Ólafsvík,
Ólafur smiður í Ólafsvík, Sigur-
jón útvegsbóndi á Hellissandi og
Emilía, ógift, í Reykjavík.
Einar Magnússon, maður Guð-
rúnar, andaðist að heimili sínu
í' Knarrartungu í desember 1944
eftir nær fimmtíu ára hjúskap.
Nokkru eftir lát manns síns brá
Guðrún búi og hefur síðan lengst
af dvalizt á heimili Markúsar
sonar síns í Ólafsvík.
Hvað er svo frekar um Guð-
rúnu Andrésdóttur að segja? Um
hana er það að segja, sem lofs-
verðast er: Hún er góð kona. í
öndverðu skipaði hún sér i sveit
þeirra, sem friðinum unna og
sættir semja. Innan vébanda
heimilis síns var hún ávallt hinn
góði andi, sem tárin þerrar, sorg-
ina sefar og sárin bindur. Sam-
ferðamennina gerði hún sér að
vinum. Óvini á hún enga.
Guðrún Andrésdóttir sá fyrst
dagsins ljós fyrir áttatíu árum.
Tvítug stóð hún við hlið ástvinar
síns í Tungu, umvafin geislum
hádegissólar hamingju sinnar.
Og árin liðu í erfiði og önn,
blönduð sælu og sorgum.
Að loknu löngu dagsverki sat
hún við beð lífsförunautarins og
hélt um vinnuhnjúfa hönd hans
á meðan stundaglasið rann út og
sólin gekk til viðar.
Nú situr Guðrún með prjón-
ana sína, hlý og hljóð, og bíður
þess að aftur eldi.
Júlíus Björnsson.
Mig vantar íbúð
sem fyrst, helzt í Vesturbænum.
HAUKUR CLAUSEN
tannlæknir. — Sími 82699
»*
Oi
2
s
■ •l■■■ll■ll•BMI■l■»l■■■■■■■•••■•■l•■«••l•*M•■•k•M■ll»••»l■l■■■«k
Renzín-rafsuðuvél
til sölu. — Tegund PH, á vagni með pumpuðum gúmmí-
hjólum. — Vélin er nýstandsett.
KEILIR H.F.
Símar 6500 og 6551
«!»•■■•••■■■■••••■■■■•■•■•■•••••• ■■■■•«•»••*•»•••••••••*'•■••»**•»•••••••■
\ Frönsk kápuefni
£ tekin upp í dag
MARKAÐURINN
i,-
HKaOijtv
Hafnarstræti 11
Aðalfundur fiski-
inafsveinadeildar
FISKIMATSVEINADEILD S. M.
F. hélt aðalfund sinn 16. þ.m..
Deildin nær til allra fiskiskipa-
matsveina á öllu landinu. Félags-
líf er ágætt, þrátt fyrir erfiðar
aðstæður sem skapast vegna fjar
veru meðlima almennt vegna at-
vinnu þeirra, en þeir vinna allir
á fiskiskipum eða við hliðstæð
störf á fjarlægum stöðum.
25 GENGU í DEILDINA
Fráfarandi formaður deildar-
innar Magnús Guðmundsson mat
sveinn á b.v. Röðli frá Hafnar-
firði, gaf skýrslu um störf deild-
arinnar á liðnu ári. Á árinu gengu
25 menn í deildina.
FORMAÐUR ENDURKJÖRINN
Varaformaður kjörstjórnar
Janus Halldórsson, en hann var
skipaður af stjórn Sambands
matreiðslu og framreiðslumanna,
Magnús Guð'mundsson
gaf skýrslu yfir störf kjörstjórn-
ar og lýsti úrslitum allsherjar-
atkvæðagreiðslu. í stjórn var
Magnús Guðmundsson endurkjör
inn formaður deildarinnar, og
með honum voru endurkjörnir í
deildarstjórn þeir Haraldur
Hjálmarsson varaform. Bjarni
Þorsteinsson gjaldkeri og Bjarni
Jónsson varagjaldkeri. Ritari var
kjörinn Bjartmar Eyþórsson. —
Varastjórn: Ársæll Pálsson, Geir
M. Jónsson, Halldór Sigurðsson,
Einar Sigurðsson og Guðjón Guð
jónsson, Patreksfirði.
Endurskoðendur voru kjörnir
Magnús Björnsson og Þórður S.
Arason, til vara Leifur Lárusson.
Á fundinum voru gerðar nokkr
ar lagabreytingar, og þar fór
’innig fram kosning trúnaðax
mannaráðs og eru aðalmenn þess
þeir Ingvar ívarsson, Magnús
Björnsson, Magnús Kristjánsson
og Sigurður Sigurðsson.
Frakklands-
forseti tekur
við embætti
PARÍS, 16. jan. — Coty hinn
nýji forseti Frakklands var I
dag settur í embætti. Jafnframt
var hann gerður félagi í frönsku
Heiðursfylkingunni. — Er hinn
nýji forseti tók við embætti, var
skotið úr 22 fallbyasum, eins
og venja er.
Við þetta tækifæri hélt Auriol
fráfarandi forseti ræðu og kvað
hinn nýja forseta eiga mikla
erfiðleika fyrir höndum. Hann
sagði, að endurreisnin í Frakk-
landi eftir stríð hefði kostað
miklar fórnir og þá ekki síður
hin svívirðilega innrás kommún-
ista í Indó-Kína. — Hinn nýji
forseti kvaðst þess fullviss, að
Frakkar mundu sigrast á öllum
þeim erfiðleikum sem að þjóð-
inni steðja. —Reuter.
Theodóra Helgadóttir — minning
HÚN lézt hinn 17. þessa mánaðar
á heimili dóttur sinnar, Ingi-
bjargar, og tengdasonar, Ólafs
Jónssonar, bílstjóra, hér í bæn-
um.
Theodóra var fædd 18. ágúst
1872 á Stokkseyri. Ung fluttist
hún suður á Miðnes og gerðist
ráðskona hjá Magnúsi Jónssyni,
útvegsbónda og formanni, á
Flankastöðum, en Magnús var þá
ekkjumaður og átti fimm börn
ung. Magnús á Flankastöðum var
með allra djörfustu formönnum
á Suðurnesjum í þá tíð, gleggni
hans og stjórnsemi var annáluð,
hann fór margar sjóferðir við að-
stæður, sem flestir hefðu látið
vera.
Hinn 8. apríl 1898 giftust þau
Theodóra og Magnús. Þau eign-
uðust sex mannvænleg börn,
eitt þeirra, stúlka, dó ung, en
sonur að nafni Theodór, dó 19
ára gamall. Var hann þá búinn
að vera sjúklingur i 5 ár.
Hinn 13. september 1906 kom
reiðarslagið yfir heimili þeirra.
Magnús, sem var að vinna í öðru
byggðarlagi við útskipun á fiski
í seglskipið Hjálmar, fór um borð
í það sem skipsmaður, þegar
skipið varð að taka sig upp af
vondri legu í versnandi veðri, en
skipshöfn of fámenn við þær að-
stæður. Síðustu orð Magnúsar
um leið og hann fór um borð í
skipið voru: „Við siglum suður
á Sandgerðisvík“. Af skipi þessu
hefur síðan ekkert sést, en ofsa-
veður gerði af suðaustri.
Þar fór makinn og meðhjálpin,
eftir voru ekkjan og 6 ungbörnog
tvö af fyrra hjónabandi, hin
höfðu verið tekin af góðu fólki.
Sá er þessar línur ritar man vel
þessa daga, ekkjan með barna-
hópinn sinn hugandi að hvort
ekki sæist til húsbóndans koma
heim. Þá voru ekki símar og
lengi var vonað að skipið kæmi
einhvers staðar að landi. Dimmt
hefur verið framundan hjá Theo-
dóru þá, því efni voru lítil. Talið
var víst að allt kæmi strax á
sveitina, en tilboði hreppsyfir-
valda urn að taka upp heimilið,
neitaði Theodóra með skýrum og
ákveðnum orðum, og með henn-
ar rnikla dugnaði bjargaðist allt.
Á næsta vori fluttist Theodóra
með barnahópinn sinn til Kefla-
víkur. Vafalaust hafa það verið
þung spor, en atvinnuhorfur
voru betri þar. Þar þrælaði hún
eins og karlmaður, og á sumrin
kom hún börnunum til góðra
manna, svo hún gæti farið í at-
vinnu austur á firði og víðar.
Með þessu tókst henni að halda
hópnum saman og forða þeim
frá að þiggja af sveit, en í þá tíð
var það hálfgert brennimark að
þurfa aðstoðar við frá því opin-
bera. Börnin af fyrra hjónabandi
fóru fljótlega að hjálpa sér sjálf.
Annar sonur Theodóru, Helgi
að nafni, fór 16 ára gamall til
Ameriku. Burtför hans var mik-
ið áfall fyrir hana, svo eins og
áður var getið, missir Theodórs,
en þeir voru báðir mestu efnis-
drengir. En Theodóra stóð af sér
bein og gjörfuleg alla brotsjóa
lífsins, ung var hún glæsileg
kona, og bein var hún fram á
siðustu ár.
En öll él birtir upp um síðir,
Síðastliðin 30 ár hefur Theodóra
verið á heimili dóttur sinnar,
Eggertínu, og manns hennar,
Óskars Smith, rörlagningameist-
ara, við ágæta líðan og mörg hin
síðari ár við allsnægtir, og dætur
hennar, Ingibjörg og Brynhildur,
svo og stjúpbörnin hennar engu
síður hafa verið henni skjól og
skjöldur, heimsótt hana mörgum
stundum og glatt í hvivetna.
Síðastliðin ár hefur Theodóra
átt við vanheilsu að stríða, var
allt gert sem hægt var til að
létta henni sjúkdómsárin. Alltaf
var hún létt í viðtali og þótti
gaman að minnast liðinna ára,
því gróið var yfir sárin.
Að endingu vil ég fyrir hönd
okkar gömlu nágrannanna þinna
þakka þér, Theodóra, fyrir alla
vinsemd síðastliðin 50—60 ár.
Þær minningar eru allar bjartar
og hlýjar. Drottinn blessi þig á
hinni nýju braut.
Theodóra verður í dag jarð-
sett frá Keflavíkurkirkju.
S. E.
Borgaraiisli á
Eyrarbakka
VIÐ hreppsnefndarkosningarnar
á Eyrarbakka hafa þrír listar
komið fram og er Borgaralist-
inn, sem verður D-listinn, studd-
ur af Sjalfstæðismönnum í
hreppnum. Á þeim lista eru fimm
efstu menn:
Sigurður Kristjánsson, kaup-
maður, Ólafur Helgason, verk-
stjóri, Eiríkur Guðmundsson, tré-
smiður, Ólafur Magnússon, síma-
verkstjóri, Jóhann Jóhannsson,
bílstjóri.
Fulltrúi listans í sýslunefnd er
Sigurður Kristjánsson og vara-
maður er Ólafur Helgason.
Kennslukonu í fatasaum !
■
■
■
vantar til að kenna hjá kvenfélögum úti á landi. — ;
X
m
Uppl. kl. 10—12 á skrifstofu Kvenfélagasambands- ;
■
■
ins, Laugavegi 18, sími 80205. ■
9
Tvær góðar ■
■
■
Vélritunarstúlkur
m
óskast til að starfa í American Express bankanum á |
■
m
Keflavíkurfugvelli. — Umsækjendur gefi sig fram í 9
■
bankanum kl. 10—4 virka daga. ;
■m
Bankastjórinn. 9