Morgunblaðið - 27.01.1954, Síða 12
Yeðurúfli! í dag:
Allhvass austan. Snjóél eða
slydda.
21. tbl. — Miðvikudagur 27. ianúar 1953.
Úívarpsræða
borgarstjóra, er hann flutti í
gærkv., cr á bls. 7.
IJngir Sjálfstæðismenn og
kommúnistar ræða um bæj-
arstjómarkosningamar á
kappræðufundi á morgun
KAPPRÆÐUFUNDUR Heim
dalls, Félags ungra Sjálf-
stæðismanna og ungra kom-
munista, um bæjarstjórnar-
kosningarnar, fer fram ann-
að kvöld í Sjálfstæðishúsinu
og hefst kl. 8,30.
lár Fulltrúar kommúnista munu
hefja umræðurnar, en ræðu-
menn Heimdallar ljúka
þeim. Mun kappræðufundur-
inn standa tæpar 2 klst. —
Ræðuumferðir verða fjórar.
Hvor aðili talar 15 mín. í
tveim umferðum og 10 mín.
í öðrum tveim.
Reykvísk æska mun fjöl-
menna á kappræðufundinn
til að sýna kommúnistum
hvar í fylkingu hún skipar
sér. — Ungir Reykvíkingar,
fylkið ykkur til baráttu fyr-
ir sigri Sjálfstæðisflokksins
og fjölmennið á kappræðu-
fundinn annað kvöld.
Mikið af æðarfugli mun
hafa drepizt í olíubrák utan
BRENNSLUOLÍA er nú á floti
hér utan Reykjavíkurhafnar. —
Hefur allmikið af æðarfugli
•drepizt af því að synda í olíubrák
inni. Allar líkur þykja benda til
að olian komi frá sænska skip-
inu Hanön, sem liggur á utan-
verðri Kleppsvík. Er verið að
losa olíu úr botngeymum skips-
ins, áður en það verður tekið
hér inn á Reykjavíkurhöfn.
f gærmorgun veittu starfsmenn
í Gúmmísvampdínugerð Péturs
Snælands við Ánanaust, því eftir
tekt að allmargar æðarkollur,
voru niðri í fjörunni og virtist
.mönnum sem eitthvað væri að
Jteirn.
12 ÆÐARKOLLUR
HANDSAMAÐAR
Þeir aðgsettu þetta nánar og
fóru niður í fjöruna. Þar tókst
Jteim fyrirhafnarlaust að hand-
sama 12 æðarkollur, sem voru
allar löðrandi í olíu og að því
komnar að drepast. Fiðrið og
dúnninn utan á þeim var orðínn
gegnblautur.
BAÐAÐAR OG ÞURRKAÐAR
Farið var með kollurnar inn á
vinnustofu fyrirtækisins og þær
^ettar þar í þvottakar. Sprautað
var með hægð yfir þær volgu
vatni og virtist þeim strax líða
foetur við það. — En síðan voru
jj>ær hver af annari teknar upp
úr karinu og á rönd þess voru
þær sápuþvegnar, síðan skolaðar
aftur upp úr volgu vatni og síð-
an stungið inn í þurrklefa. Þar
jnni var um 30 stiga hiti og þar
toyrjuðu æðarkollurnar strax „að
jþurrka sér“.
'NÆGIR ÞRIFABAÐIÐ?
I gærkvöldi var óvíst hvort
Úlvarpsumræðurnar
lialda áfram í kvöld
SÍÐARI hluti útvarpsumræðn-
anna um bæjarmál Reykjavíkur
fer fram í kvöld. Verða þá þrjár
íæðuumferðir.
Af hálfu Sjálfstæðisflokksins
tala þau Jóhann Hafstein, alþm.,
Einar Thoroddsen, skipstjóri, frú
Auður Auðuns og Gunnar Thor-
oddsen, borgarstjóri.
þetta þrifabað myndi nægja til
að bjarga æðarkollunum, en Pét-
ur Snæland kvaðst ætla að flytja
þær suður á Skerjafjörð strax í
dag. Pétur sagðist hafa séð marg-
ar æðarkollur skammt undan
landi, sem sýnilega voru mjög
aðframkomnar. Vegna olíunnar
gegnblotna þær og þyngjast í
sjónum unz þær drukkna, ef
þær ná ekki landi áður og drep-
ast í fjörunni.
Óska eflir Kóreu-
ráðslefmi
PANMUNJOM, 26. jan. —
Fulltrúar N.-Kóreumanna og
Kínverja fóru þess í dag á leit
við SÞ, að umræður yrðu tekn
ar upp á ný um stjórnmála
ráðstefnu um Kóreumálið. Af-
hentu þeir slíka orðsendingu
í lokuðu umslagi, sem var á-
ritað til Dean, fulltrúa SÞ, en
hann er nú staddur í New
York. — Reuter.
Mafvælaframieiðsla
Indverja eyksf
NÝJU Delhi, 26. jan. — Síðan
Indverjar hófu víðtæka viðreisn
árið líi&Lméð hjálp frá stofnun
S. Þ. hefur matvælaframleiðsla
Indlands aukizt um 4V2 milljón
smálestir. Mest er þetta að þakka
nýjum áveitum. —NTB.
Sjálfstæðir bændur
á Filipseyjum
Manila, 26. jan. — Magsaysay
forseti Filippseyja hélt stefnu-
skrárræðu sína í dag. Hann lagði
aðaláherzluna á skiptingu jarð-
eigna til þess að koma upp öfl-
ugri bændastétt, sem héldi uppi
efnahagslífi landsins. —Reuter.
Fanfani leggur sfefnu-
skrá sína fram
RÓMABORG. 26. jan. — Fanfani
hinn nýi forsætisráðherra ítala
hefur lagt stefnuskrá stjórnar
sinnar fyrir þingið. Fara nú fram
tveggja daga umræður um stefnu
skrána og síðan greiðir þingið at-
kvæði um traustsyfirlýsingu.
Viðræður Hermanns og Vigfúsar gestgjafa
Reykjavík hefur notið forystu Sjálfstæðismanna og hingað hefur straumur fólksins legið hvaðanæva
frá af landinu. — Framsóknarmenn segjast hafa haft forystu um mál sveitanna. En árangur þesS
hefur orðið, að örlitill hluti þjóðarinnar hefur haldizt þar við. — Halda Reykvíkingar, að „oddaað-
staða Framsóknar í bæjarstjórn þeirra myndi færa þeim bætta aðstöðu? Árciðanlcga ekki. — Verkin
sýna merkin.
Glæsilegur fundur Sjálf-
stæðismanna í Hafnarfirði
HAFNARFIRÐI — Sjálfstæðisfélögin héldu almennan kosninga-
fund í Hafnarfjarðar-bíói í fyrrakvöld fyrir troðfullu húsi áheyr-
enda. Fundurinn var í alla staði hinn glæsilcgasti, og bar þesa
greinileg merki, að Sjálfstæðismenn eru staðráðnir í að vinní*
Sjálfstæðismeím
sigurvissir á
ísafirði
SÍÐARI framboðsfundurinn fyr-
ir bæjarstjórnarkosningarnar á
Isafirði var haldinn á mánudags-
kvöldið. Var hann mikill sigur
fyrir Sjálfstæðismenn, sem hlutu
ágætar undirtektir við málflutn-
ing sinn og voru í yfirgnæfandi
meirihluta á fundinum.
Af hálfu flokksins töluðu þeir
Matthías Bjarnason, Símon Helga
son, Kjartan Jóhannsson og Ás-
berg Sigurðsson.
Framsóknarmenn hlutu sér-
staklega háðulega útreið á fundi
þessum. Mjög var og dregið af
leiðtogum Alþýðuflokksins, sem
nú hafa glatað allri von um að
halda meirihluta í bæjarstjórn
Isafjarðar með kommúnistum.
Forssfi Tyrklands
í New York
Bayar forseti Tyrklands kom til
New York í dag, en hann mun
dveljast mánaðartíma í Banda-
ríkjunum í opinberri heimsókn.
M. a. verður hann gestur Eisen-
howers í Hvíta húsinu. —Reuter.
Píus páfi er lasinn
RÓMABORG 26. jan. ___ Páfa-
garður tilkynnir að Píus páfi 12.
sé lasinn og geti ekki verið á
ferli opinberlega. —Reuter.
glæsilegan sigur á sunnudaginn.
•-----------------------------
Skipst jórirni á
Hanön þakkar
SKIPSTJÓRINN á sænska skip-
inu Hanön hefur beðið Mbl. að
birta eftirfarandi:
„Hér með vildi ég láta í ijósi
innilegustu þakkir til Slysavarna
félags íslands og allra þeirra er
störfuðu að björgun áhafnar
sænska eimskipsins „Hanön“ h.
27. desember s.l.“
O—★—O
Hanön liggur enn við bauju
inni á Kleppsvík. Þar er verið að
Iosa botngeyma skipsins, sem í
er brennsluolía, en þegar það er
búið mun það verða tekið hér
inn á Reykjavíkurhöfn og lokið
bráðabirgðaviðgerðinni á því. En
það mun vera fastákveðið að
skipið verði dregið út til Sví-
þjóðar til fullnaðarviðgerðar.
RÆÐUMÖNNUM ÁKAFT
FAGNAÐ
Þeir, sem tóku til máls á fund-
inum, voru Ólafur Elísson, Jón
Gíslason, Sveinn Þórðarson, Elín
J ósefsdóttir, Eggert ísaksson,
Bjarni Snæbjörnsson, Guðlaug-
ur Þórðarson, Stefán Jónsson og
Guðmundur Guðmundsson, sem
var fundarstjóri. -— Öllum ræðu-
mönnum var óspart fagnað. —•
Auk þess voru skemmtiatriði.
i
MIKILL SÓKNARHUGUR
Hinn mikli sóknarhugur Sjálf-
stæðismanna í Hafnarfirði svip-
ar nú mjög til sóknarþunganl
fyrir alþingiskosningarnar í sum-
ar. — Eru hafnfirzkir kjósenduf
nú staðráðnir í að fylgja sigrin-
um eftir, og auka enn fylgi
Sjálfstæðisflokksins, þannig að
hann fái hreinan meirihluta |
bæjarstjórn. — G.
Skákcinvígið '
HAFNARFJÖRÐUR 1
VKSTMANNAEYJAR
9. leikur Vestmannaeyja: }
h2—h4 j
Aðstoðarfólk á kjördegi
SJLFSTÆÐISFLOKKURINN beinir þeim tilmælum vin-
samlega til þeirra Reykvíkinga, sem vilja veita aðstoð á
kjördegi, að þeir tilkynni nöfn sín skrifstofu flokksins í
Sjálfstæðishúsinu, sími 7100.
Þeir, sem verða við þessum tilmælum, verða síðar boðaðir
til viðtals með tilkynningu hér í blaðinu.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN