Morgunblaðið - 12.02.1954, Side 9
Föstudagur 12. febr. 1954
MORGVNBLAfílÐ
e
Grundvölliir og sturíssvið hinnor nýju Iðnuður
( FYRIR nokkru hélt Bragi
| Ólafsson, verkfræðingur, for-
1 stjóri hinnar nýju Iðnaðar-
! málastofnunar tvö útvarps-
j erindi um aðdraganda og
starfsemi stofnunarinnar. En
í Iðnaðarmálastofnunin tók til
! starfa í nóvemher s. I.
★ ★
í upphafi erindanna gat Bragi
þess að á árinu 1950 hefðu hátt
á 9. þúsund manns unnið við
iðnaðarframleiðslu og námu
kaupgreiðslur réttum 200 millj.
kr. Samanlagt verðmæti fram-
leiðslunnar varð um 800 millj.
kr. en verðmætisaukningin nam
um 333 millj. króna.
Hefur aukning iðnaðarfram-
leiðslunnar í landinu verið stór-
stíg á undanförnum áratugum,
því að á árunum 1930—’40 hafði
1/5 hluti þjóðarinnar framfæri
af iðnaði en 1950 þriðjungur
þjóðarinnar.
í erindi sínu minnti Bragi
Ólafsson á ummæli Ólafs Thors
þáverandi iðnaðarmálaráðherra í
skipunarbréfi til nefndar til að
gera tillögur um bætt vinnu-
skiiyrði og hagkvæmari vinnu-
brögð við íslenzkan iðnað. En í
skipunarbréfinu sagði orðrétt:
„í áratugi hefur á sviSi land
búnaðar og fiskveiða verið
rekin af hálfu hins opinbera
all víðtæk leiðbeiningarstarf-
^semi um bætt vinnuskilyrði
og hagkvæmari vinnubrögð.
Iðjureksturinn, yngsta aðal-
atvinnugrein landsmanna, hef
ur orðið útundali í þessu efni
og er því ljóst að þar er ekki
síður þörf endurbóta".
IVIeð Iðnaðarmálastofnuninni
hefur íslenzki iðnaðurinn fengið
sína eigin leiðbeiningastofnun.
Bindur iðnaðurinn miklar vonir
við stofnunina og væntir þess
að hún verði lyftistöng fyrir ís-
lenzkan iðnað. Hér fara er.indi
Braga Ólafssonar á eftir, allmik-
ið stytt.
1 NÁGRANNALÖNDUM vorum,
sem lengra eru á veg komin í
iðnaði, hafa þróast ýmsar stofn-
fflnir til aðstoðar og leiðbsining-
fflr iðnaðinum. Eru þar ýmist
hrein ríkisfyrirtæki eða allsjálf-
stæðar skoðanir, sem studdar eru
sameinginlega af ríki og iðnaði.
Allar þessar stofnanir hafa
reynzt ómetanleg lyftistöng sér-
hverri iðngrein, enda varið til
þeirra stórkostlegum fjárfúlgum
árlega.
ÍÐNAÐARDEILD OG
RANNSÓKNARRÁÐ
Að undanskildum fiskveiðum
■og landbúnaði, hefír verið kom-
ið á fót hér á landi tveimur mik-
ilsverðum stofnunum iðnaðinum
til stuðnings, þ. e. Rannsóknar-
ráði ríkisins og Iðnaðardeild At-
vinnudeildar Háskólans. Báðar
þessar stofnanir eru þegar orðn-
fflr all rótgrónar og hafa unnið
mikið gagn. í stórum dráttum
er hlutverk Rannsóknarráðsins
,að afla upplýsinga og framkvæma
fflthuganir á náttúrugæðum iands-
ins, burt séð frá því, hverja hag-
nýta þýðingu hvert verkefni fyrir
sig gæti haft í þann svipinn. Hlut-
verk Iðnaðardeildarinnar er, aft-
ur á móti, að annast aliskonar
hagnýtar rannsóknir á efnasam-
setningu, eðliseiginleikum og
styrkleika þeirra efna, sem til
iðnaðar eru notuð. Mest af verk-
efnum Iðnaðardeildarinnar eru
til komin á þann hátt, að einstök
íyrirtæki senda inn beiðni um
rannsóknir á tilteknum hlutum.
ENGIN STOFNUN FEKKST
EINGÖNGU VIÐ IÐNAÐ
Augljóst er, að hvorug þess-
ara stofnana fæst við iðnaðarmál
í heild, enda aldrei ætlað það
hlutverk.
Eins og ég gat um áðan, eru
þegar til í nágrannalöndunum
stofnanir, sem annast iðnaðar-
mál á hinum ýmsum sviðum, og
það er síður en svo, að mönnum
hér hafi ekki verið Ijós þörfin á
itÉSnsiðliMHfflf Islands
A
Erindi Braga CHafssonar forstjóra
því að skipuleggja mál iðnaðar-
ins í landinu með tilliti til tekn-
iskra sjónarmiða.
FRUMKVÆD’
GÍSLA JÓNSSONAR
Á Alþinpi 1947 lagSi G'sli
Jónsson, alþingismaður, fram
frumvarp til la^a um Iðnaðrr
málastjórn og framleiðsluráð.
Þetta frumvarp endurflutti
hann á hverju þingi fram til
ársins 1951, en aldrei náði það
samt fram að ganga.
Frumvarp Gísla er mjög ítar-
legt og áhrærir, að ég held að
engu undanskildu, allt það, sem
varðað gæti iðnaðinn í landinu.
I 3. grein frumvarpsins segir:
Að stuðla að umbótum á vinnslu
og meðferð framleiðslunnar m. a.
með þvi:
a) að fylgjast með cllum nýj-
ungum, sem fram koma meðal
annara þjóða í iðnaðarmálum, og
iáta þær iðnrekendum i té;
b) að leiðbeina iðnrekendum
um endurbætur á vélum, húsa-
kynnum og vinnutilhögun i iðju-
verum;
c) að leiðbeina iðnrekendum
um meðferð hráefna og á
hvern hátt megi gera þau sem
verðmætust, t. d. með blöndun
annara efna;
d) að halda uppi sífelldum til-
raunum til endurbóta á hinum
ýmsu sviðum iðnaðarins.
í 4. grein segir: Að stuðla að
því, að ekki sé fluttur inn full-
unninn varningur ef unnt er og
hagkvæmt að vinna hann hér á
landi, heldur sé hann fluttur inn
á því stigi, sem hann er ódýrast-
ur, en þó hæfur til að vinnast að
fullu í islenzkum iðjuverum.
Þetta er einmitt kjarninn í
störfum þeim, sem almennt er
ætlast til, að tæknimiðstöð hafi
með höndum.
Ljóst er, að ekki hefir verið
kastað til höndunum við undir-
búning að þessu merkilega frum-
varpi, og vafalaust hefur það
markað djúp spor í framkvæmd
síðari aðgerða um stofnun tækni-
miðstöðvar, þótt það næðj ekki
sjálft fram að ganga.
SKRIÐUR KEMST Á MÁLID
Snemma á árinu 1951 skipaði
Olafur Thors, þáverandi atvinnu
málaráðherra, þriggja manna
nefnd til þess að gera tillögur
um bætt vinnuskilyrði og hag-
kvæmari vinnubrögð við íslenzk-
an iðnað. Formaður þessarar
nefndar var Þorbjörn Sigurgeirs
son, framkvæmdastjóri Rannsókn
arráðs ríkisins.
Með skipun þessarar nefnd
ar hefst saga Iðnaðarméla-!
stofnunarinnar, eða tæknimið-
stöðvarinnar hér á landi. Síðar .
á árinu skilaði nefndin áliti,
þar sem lagt var til, að komið
yrði á fót tæknimiðstöð fyrir
verksmiðjuiðnaðinn í landinu,
með það að markmiði að auka
afköstin og láta í té hverskon-
ar tæknilega fyrirgreiðslu, sem
iðnrekendur vanhagar um.
Skipa skyldi þriggja manna
nefnd, iðnaðarmálanefnd, til
þess að skipuleggja starfsem-
ina, Nefndinni yrði heimilað
að ráða til sín ráðunaut um
iðnaðarmál og sé hann verk-
fræðingur að menntun. Fé til
þessa verði veitt úr ríkissjóði
og verði framlagið fyrsta árið
100 þúsund krónur.
IDNAÐARMÁLANEFND
Álit nefndarinnar var sam-
þykkt og skipaði Björn Ólafsson,
þáverandi iðnaðarmálaráðherra,
i i hina nýju nefnd, Iðnaðarmála-
j nefndina, þá Þorstein Gíslason
. frá Sölumiðstöð hraðfrystihús-
| anna, Kristjón Kristjónsson frá
Sambandi íslenzkra samvinnufé-
Bragi Ólafsson, forstjóri
Iónaúarmálastofnunarinnar.
laga og Pál S. Pá^sson frá Félagi
íslenzkra iðnrekenda og er hann
formaður nefndarinnar.
Verkefni nefndarinnar var
nánar skilgreint í skipunarbréf-
inu og þar m. a. tekið fram, að
hún eigi að gera tillögur um,
hvernig efla megi iðnaðinn í land
inu með aukinni tæknilegri að-
I stoð, bættum vinnubrögðum og
hagnýtingu erlendra nýjunga á
sviði iðnaðar, og gera tillögur um
| eftirlit með vörugæðum innlends
(iðnaðar í því skyni að hef ja iðn-
! reksturinn á hærra stig í vöndun
framleiðslunnar. Nefndinni var
einnig heimilað að hefja tilrauna-
framkvæmdir um tæknilega fyr-
irgreiðslu og aukin afköst, og
fékk hún til umráða í þessu skyni
I hin umbeðnu 100 þús. krónur úr
ríkissjóði.
I 1952 vann nefndin að því með
jþessu framlagi að leggja grund-
völl að tæknilegu aðstoðinni. Að
þeirri tilraunastarfsemi lokinni
i lagði nefndin til að veittar yrðu
250 þús. krónur á fjárlögum til
stofnsetningar iðnaðarmálaskrif-
stofu. En endanlega fékk Iðnað-
armálastofnunin 200 þús. kr. til
ráðstöfunar.
STARFSVIÐ IÐNADAR-
MÁLASTOFNUNAR
Lög um starfssvið Iðnaðarmála-
stofnunar íslands hafa enn ekki
verið sett, en Alþingi hefir við-
urkennt tilveru stofnunarinnar
með því að veita henni stofn- og
rekstrarfé á fjárlögum yfirstand-
andi árs. Starfar þvi Iðnaðar-
málanefnd enn að uppbyggingu
stofnunarinnar i samræmi við
fyrirmæli bréfs iðnaðarmálaráð-
herra, dags. 28. febr. 1953, en þar
sagði, svo sem getið var í lok
fyrra erindis, að starfssvið henn-
ar skyldi vera:
Að veita iðnaðinum tækni-
lega aðstoð.
Að vera hækistöð fyrir gæða
mat iðnaðarvara.
Að safna skýrslum um allan
iðnrekstur í landinu og leggja
grundvöll að slíkri skýrslu-
söfnun árlega.
STARFSVIÐIÐ NÁNAR
ÚTFÆRT
Þessi þrjú höfuðatriði í
starfssviði stofnunarinnar hef-
ir nefndin útfært nánar og hef
ir hugsanlegur verkefnalisti
hennar því verið ákveðinn sem
hér segir:
1. Fræðsla um iðnrekstur og
stjórn hans: t.d. með fyrir-
lestrahaldi, umræðufundum,
kvikmyndasýningum og kynn
ingarstarfsemi meðal iðnrek-
enda.
2. Tæknileg aðstoð og upplýs-
ingastarfsemi: Með því að
veita þeim, sem fást við iðnað,
upplýsingar um aðsteðjandi
vandamál, eða gera tilraun til
þess að afla þeirra annarsstað
ar frá.
3. Tillögur um aukningu iðn-
aðarstarfsemi: Með því að hafa
forgöngu um rannsóknir og
athuganir á möguleikum til
vinnslu verðmæta úr hráefn-
um, sem fyrir hendi eru í land
inu eða æskilegt þætti að
flytja inn frá öðrum löndum.
4. Verknýting við framleiðslu:
Með því að framkvæma athug
nu á vinnutilhögun, vinnuað-
stæðum og framleiðslutækjum
ákveðins fyrirtækis; gera síð-
an tillögur um breytingar,
sem miða að aukinni verk-
nýtingu.
ÚTGÁFA TÍMARITS
OG IÐNFRÆDSLA
5. Útgáfa tímarits um tæknileg
efni: Með sérstöku tilliti til
þeirra nýjunga, sem hverju
sinni eru efst á baugi, birta
frumsamdar eða þýddar grein-
ar um tæknileg efni, vera vett-
vangur fyrir almennar um-
ræður um allt það, er varðar
iðnaðarmál.
G. Iðnfræðsla og verknám fyrir
verksmiðjuverkafólk: t. d. með
bóklegri kennslu, fyrirlestra-
haldi, kvikmyndasýningum og
hagnýtu verknámi í vissum
greinum.
7. Koma upp tæknilegu bóka-
safni: þar sem þeir, sem við
iðnað fást geta fengið aðgang
að tímaritum og tæknilegum
bókum. Síðar meir verði bæk-
ur lánaðar út.
GÆÐAMAT OG SKÝRSLU-
SÖFNUN
Gæðamat á innlendum fram
leiðsluvörum: Með því að afla
tækja til gæðaprófunar og að-
stoða framleiðendur við að
framleiða vörur sínar að gæð-
um og stærðum samkvæmt
viðurkenndum „normum" eða
„standörðum"; þýða og um-
semja erlendar „normur" til
notkunar við íslenzk skilyrði
og að stofnunin eigi ávallt til
allar „normur" helztu iðnaðar-
þjóða og haldi þeim við.
9. Árlega skýrslusöfnun um ís
lenzkan iðnað: vinna úr slík-
um skýrslum, hagnýta niður-
stöður, sem geti gefið vísbend
ingar um ástand og horfur í
iðnaðarmálum þjóðarinnar á
hverjum tíma. Ileppilegast
væri að slík skýrslusöfnun
væri framkvæmd í náinni sam
vinnu við Hagstofu íslands.
10. Vera ríkisstjórn landsins til
ráðuneytis um tæknileg vanda
mál: Meðal annars með því að
framkvæma athuganir á
ástandi vissra framleiðslu-
greina og gera tillögur til úr-
bóta; aðstoða opinberar láns-
stofnanir, til þess að gera sér
grein fyrir fjárþörf einstakra
fyrirtækja til uppbyggingar,
stækkunar eða endurbóta.
Þá væri athugandi fyrir ríkis-
valdið að fela stofnuninni umsjá
einkaleyfasafnsins og skráningu
þess, því eins og stendur er þessi
þjónusta á 'ófullnægjandi grund-
velli.
REYNSLA ÁÐUR EN LÖG
ERU SETT
Þegar Alþingi setur lög og'
starfsreglur fyrir stofnunina,
hvort sem það verður á þessú
þingi eða því næsta, verðpr vænt
1 anlega allt form hennar fellt í
jfastari skorður og yfirstjórn
hennar þannig skipuð, að fulltrúi
ar allra þeirra aðila, sem við iðn-
að fást, hafi þar hönd í bagga.
Má að mörgu leyti líta á það sem
heppilega ráðstöfun, að dálitil
reynsla fáist í starfi, áður en lögi
in verða sett.
AÐEINS TÆKNILEG
VERKEFNI
Þá er augljóst af verkefnalist-
anum, að öll starfsemi stofnun-
arinnar er á tæknilegum sviðum
og hún mun ekkert fást við fé-
lagsleg vandamál, enda er eðli-
legast að þau séu í höndum hags-
munasamtaka hvers aðila um sig'.
Á þessu sviði — hinu tæknilega
— á stofnunin að vera óvilhailuf
og sjálfstæður aðili, sem þjóni
jafnt ríkinu sem einstaklingum.
Þessi aðstaða er nauðsynleg slíkri
stofnun, enda eru þær þannig
settar í'öðrum löndum.
SAMSTARF VIÐ EFNAHAGS-
SAMVINNUSTOFNUNINA
Að lokum gat Bragi Ólafsson
sérstaklega hins mikilvæga hlut-
verks Iðnaðarmálastofnunarinn-
ar, þar sem hún ætti að hafa
milligöngu um útvegun aðstoðar
og ráðlegginga til iðnaðarins
erlendis frá. Minntist hann í þvá
sambandí sérstaklega á það að á
vegum Efnahagssamvinnustofn-
unarinnar (Marshallhjálparinn-
ar) hefur nú nýlega verið sett á
lac—tnar tæknimiðstöð í París.
Verður þessi tæknimiðstöð alls
herjar tengiliður og móðurstofn-
un tæknimiðstöðva aðildarríkj-
anna. Getur því tæknimiðstöð
hvers lands leitað til þessarar
stofnunar um aðstoð við lausn
þeirra vandamála, sem hún hef-
ur sjálf ekki tæki eða sérfræð-
inga til þess að ráða fram úr.
En þetta hefur stórkostlegt gildi
í náinni framtíð fyrir hinn unga,
íslenzka iðnað, ef vér færum oss
þessa þjónustu réttilega í nyt.
FYRSTU SPORIN
Geta stofnunarinnar til aðstoð-
ar við iðnaðinn verður af eðli-
legum ástæðum minni fyrst um
sinn, á meðan verið er að útvega
tæki og gögn til starfrækslunn-
ar, en væntanlega verður búið’
að koma henni í fast horf eftir
svo sem fjórs til sex mánuði.
Stofnunin er, samt sem.áður, tek-
in til starfa og býður mönnum
upp á þá þjónustu, sem efni
standa til að veita.
Fyrir hönd stofnunarinnar vil
ég leyfa mér að þakka öllum
þeim mörgu, sem stutt hafa aS
framgangi hennar með ráðum og
dáð. Ennfremur heiti ég á menn
að styðja hana og styrkja til vax-
andi getu i framtíðinni og stuðla
að því, að hún verði fær um að
veita íslenzkum iðnaði þá aðstoð
og þjónustu, sem til er ætlazt.
Kjörorð Iðnaðarmálastofnun-
ar íslands eru: Verknýting, vöru-
vöndun og aukin afköst í íslenzk-
um iðnaði.
Kvöldskemmtunin í
áusíurbæjarbíói
KVÖLDSKEMMTUN Ráðninga-
stofu skemmtikrafta í Austur-
bæjarbíói í fyrrakvöld og í gær-
kvöldi var mjög vel sótt. Húsfyll-
ir var bæði kvöldin og skemmti-
atriðum vel fagnað. Kynnir var
Höskuldur Skagfjörð. Tveir.ung-
ir menn sungu úr ,,Gluntarna“
og var söng þeirra mjög vel tekið.
Þá sungu Öskubuskur og voru
klappaðar upp hvað eftir annað.
Piltur, sem nefndi sig Kóras,
söng /Úgauna -söngva og munn-
hörputríó Ingþórs Haruldssonar
lék. Tveir Jónar sýndu töfra-
brögð og að lokujn spilaði Boogie
Woogie tríó og með því kom
fram blökkumaðurinn A1 Alti-
mothy sem bæði söng og lék ein-
leik á tenórsaxafón. Var hon-
um tekið forkunnarvel. — A1
Altimothy er vel þekktur hljóm-
leikamaður og söngvari i Evrópu
og hefur hann spilað með flest-
um þekktum hljómsveitum bæði
í Evrópu og Ameríku. — A1
Altimothy spilar aðallega með
hljómsveitum í London en þar
er hann búsettur.