Morgunblaðið - 12.02.1954, Side 11
Föstudagur 12. febr. 1954
MORGIISBLAÐIÐ
11
imig
í DAG er til moldar borin frú
Hólmfríður Sigurgeirsdóttii Geir
tíal, fyrrverandi ljósmóðir í
Grímsey.
Frú Hólmfríour var fædd að
Parti i Aðaldal 19. júlí 1879, dótt-
ir Sigurgeirs Stefánssonar bónda |
þar og konu har.s Jóhönnnu Páls-
tíóttur. Tvo albræður átti hún,
þá Benedikt og Kristján, sem
báðir bjuggu í Húsavík, en eru
jtú látnir. Hólmfriður átti þrjá!
hálfbræður af fyrra hjónabandi
móður sinnar, þá Pál Stefánsson
kaupm. á Þverá, Jón bónda á I
Hreiðarsstöðum í Fellum og
Guttorm bónda á Síðu í Víðidal,
eru þeir allir látnir.
Hóimfrlður missti föður sinn
á unga aldri, og ólst upp með
móður sinni, sem vann fyrir sér
og þrem börnum sínum í hús-
mennsku á ýmsum bæjum í Að-
eldal.
Um tvítugt réði Hólmfriður sig
í vist á Akureyri til Jakobs kon-
súls Hvasteen og lærði þá jafn-
framt klæðskeraiðn, setti síðan
upp klæðskeraverkstæði á Húsa-
vík og vann að því á vetrum
en var í kaupavinnu á sumrin.
Á Húsavík kynntist hún Stein-
ólfi Eyjólfssyni Geirdal, sem var
þar mikill framfaramaður og
hafði mörg járn í eldinum, svo
sem tógvinnuvélar, útgerð, verzl-
un og húsabyggingar, skóvinnu-
verkstæði, söðlasmíði og brauð-
gerðarhús. Þau giftu sig 8. maí
1903 og bjuggu í Húsavík í fimm
ár og fluttu þau til Grímseyjar
3908, með þrjú elztu börn sin.
En Steinólfur fór flatt á útgerð-
jnni eins og margur hefur orð-
ið að reyna. Fjárhagsörðugleikar
voru miklir hjá þeim fyrstu árin
i Grímsey og hlóðst á þau mikil
ómegð, en allt fór vel með Guðs
hjálp, hann var barnakennari í
Grímsey í 25 ár, og bjó þar lengst
af í Sandvík, rak útgerð og verzl-
un og gegndi mörgum trúnaðar
Stöðum fyrir sveit sína. Alls
oignuðust þau hjón tiu börn,
en misstu tvö ung, átta komust
til fullorðinsára, en elztu dóttur
sína misstu þau í flugslysinu
mikla, sem varð við Héðinsfjörð
29. maí 1947 Börn þeirra, sem nú
lifa eru: Bragi óðalsbóndi á
Kirkjubóli, kvæntur Helgu Páls-
dóttur frá Innra-Hólmi, Óðinn
skrifst.stjóri á Akranesi, kvænt-
ur Guðrúnu Jónsdóttur kaupm.
Jónssonar, Akranesi, Eada gift
Valdimar Eliassyni garðyrkju-
fnanni, að Jaðri í Bæjarsveit,
Gefn Jóhanna, gift Jóni Ingi-
marssyni bifreiðastj. Akureyri,
Freyr bóndi í Grimsey, kvæntur
Signýju Óladóttur frá Grímsey,
Freyja Kristmey, gift Gísla Sig-
urðssyni skipstj. Siglufirði og
Iðunn Eyfríður, gift Sverri Elías-
syni bankaritara, Reykjavík. Af-
komendur Hólmfríðar og Stein-
ólfs eru nú 36 á lífi.
Fjörutíu og fjögra ára tók frú
Hólmfríður sig upp og fór til
Reykjavíknr, þá tíu barna móðir
og nam bar jjósmóðurfrgeði, og
gerðist 'jósxEöðir í Grimsey, þá
var ljósmófcrlanst þar, þótti það
mjög míköl kjarkur og þrek, sem
hún sýndí meS því að taka að sér
eitthvert erfiðasta Ijósmóðurum-
dæmi land&kiE sjg hafa það með
sínu umfarsgaEœikla heimili, og
oftast ógerarngaar að ná til lækn-
is i tæka ií®, tíf eitthvað kæmi
fyrir, því ekká kromu loftskeyta-
tækin til sögunnar fyrr en löngu
seinna. Leysti Mkn þetta starf af
hendi með sömu stillingu og lip-
urð eins og 331 sín störf, enda
lánaðist heaans þetta starf með
afbriðum vtíþ ®g einnig leituðu
Grímseyingas- til hennar með
meiðsli og ígerðir, ef svo bar
undir, og var hún mjög lagin
og nærgætin við öll slík líkn-
arstörf.
Hólmfriður var óvenjulega
glæsileg kona, björt yfirlitum,
sviphrein og gáfuð ve), einörð
og kunni vel að koma fyrir sig
orði. Hún las góðar bækur og
hafði mjög gaman af skáldskap
og las allar ljóðabækur, sem hún
náði í og gat enda sjálf gert vísu
ef svo bar undir. Hún var trúuð
kona og maður hennar ekki síður
og var guðsorð jafnan haft um
hönd á heimili þeirra, lesnir hús-
lestrar á öllum helgum dögum
þjóðkirkjunnar og pass'usálmar
sungnir á "östunni.
Hólmfríður var þrekmikil 1:oT'a
og stundaði hún hið stóra neimili
sitt með reglusemi í smáu og
stóru, bindindissöm og hagsýn.
Hún var virt og elskuð af sam-
ferðafólki sínu og þá sérstak-
lega af eiginmanni sínum, sem
hún missti fyrir fjórum árum.
Var sambi ð þeirra ástrík og til
fyrirmynd^r. Börnum sínum var
hún akaflega kær og hefur hún
verið hjá þeim til skiptis s.l. 4
ár, en þó lengst hjá elzta syni
sinum Braga að Kirkjubóli.
Börn hennar, tengdal og
barnabörn kveðja hana með
klökkum huga og sakna hennar
sárt, en hugga sig við að vita
að heimkoman er góð að end-
uðum löngum og vel unnum
starfsdegi.
Blessuð sé minning hennar.
Guð veri með þér Hólmfríður.
Kunnugur.
ftAGNAR JÓNSSON
hæetarétlarlögmaður.
ræðistörf og eignaumsýsla
Laugaveg 8. Sími 7752.
Áðalfundur Skíðafélaosins
!»■
6
É Mlagr&eiw
—m
\ 1,2og4cyl.
Im
? nýkomið.
H
c Ennfremur
'm
|: ýmsir varahlutir í rafkerfi brezkra bifreiða.
| Bifreiðavöruyerzlun Friðriks Berfelsen
jfi Hafnarhvoii — Sími 2872.
SJÖTUGUK er í dag Gísli Þ.
Gilsson iyirveianui bóuUi að
Arnarnesi í Dyiain öi.
FædOur er nann aö Arnarnesi
13. febr. j.08-± sonur hjónanna:
Guðrúnar Gisladóttur og Gils
Þórarinssonar er bjuggu þar all-
an sinn búskap mynaarbúi.
í sept. 1911 kvænust hann Elín-
borgu H. ívarsdóttur frá Kot-
núpi í Dýraíirði, en hún íéll lrá
eftir skamma sambúð í nóv. sama
ár.
1913 kvæntist hann í annað
sinn Sigrunu Guðlaugsdóttur syst
ur hinna þjóðkunnu bræðra: sr.
Sigtr. Guðlaugssonar og Kristins
á Núpi. Arið 1914 tók hann við
búi foreldra sinna að Arnarnesi
og bjó þar til ársins 1949, er
hann keypti Felismúla í Mos-
fellssveit þár sem þau hjón búa
nú.
Þau hjón eignuðust 6 börn, 5
dætur og 1 son. Af þeim eru 4
dætur á lifi, 2 giítar í Reykja-
vík: Elínborg gift Einari Stein-
dórssyni (Björnssonar frá Graf-
arholti í Mosfelissveit) og Svan-
fríður gift Páli Eiríkssyni lög-
regluþjóni Snorrabraut 35. Guð-
rún og Friðdóra ógiftar í föður-
garði. Einkasonur þeirra hjóna,
Höskuldur, dó um 14 ára og dóttir
Þórlaug, V2 árs.
Eins og að líkum lætur munu
vonir hafa verið bundnar við, að
sonurinn tæki við ættaróðaiinu,
ef honum hefði auðnast aldur.
Gísli varð snemma bundinn
traustum böndum -við ættaróðal
sitt og sveitarfélag.
Félagsmálahreyfing aldamóta-
áranna fór um sveitina og vakti
æskulýðinn til dáða. ICristinn
Guðlaugsson var orðinn bóndi að
Núpi og hreif unga fóikið með
sér, ekki sizt í söng- og bindindis
málastarfssminni. Síðar (1905)
gerðist sr. Sigtryggur prestur í
Dýrafjarðarþingum, og hóf þeg-
ar margþætt umbótastarf í æsku
lýðsmálum, er hann stofnsetti
hinn þjóðkunna ungmennaskóla
sinn að Núpi. Var Gísli einn af
fyrstu nemendurn sr. Sigtryggs
en hafði áður notið náms hjá
Kristni á Núpi, á söngmálasvið-
inu og gerðist síðan leiðbeinandi
söngmála í Sæbólssókn á Ingjalds
sandi, ásamt systur sinni Guð-
nýju, (nú húsfrú að Freyjugötu
34 Rvík.)
Gísli varð snemma einlægur
bindindismaður sveitar sinnar og
einn af stofnendum stúkunnar
Gyðu no. 120, og staríaði þar af
alhug fyrir gengi bindindismál-
anha.
Eins og áður getur, stóð Gísli
traustum fótum á ættaróða'i sínu,
hafði gagnsamt bú til lands og
sjávar, og óþreytandi fyrir heill
og hamingju heimilisins, ásamt
sinni ágætu konu.
Það lætur að Hkum, að hrepps-
búum hafi fundizt eyðiskarð í
jsveítarfélagið er þau hjónin
.fluttu alfarin frá óðali sínu; en
þetta er því miður harmsaga
margra sveita nútímans.
I Gisli er maður vel gefinn og
traustur, ,,þéttur á velli og þétt-
ur í lund“; „glaður og reifur“ við
gesti og gangandi.
Báran kveður nú sín harm-
Ijóð við vikur og voga að Arnar-
Framh. á bls. 12
SKÍÐAFÉLAG Reykjavíkur hélt
aðalfund sinn um miðjan janúar
síðastliðinn.
Veturinn 1952—1953 var ákaf-
lega snjóléttur hér sunnanlands
og var þátttaka í skíðaferðum því
með minna móti.
Eitt af verkefnum stjórnarinn-
ar s. 1. ár auk þess að reisa þeim
L. H. Möller og Kristjáni Ó.
Skagfjörð minnisvaríYa í ná-
grenni Skiðaskálans, eins og frá
var sagt í haust, þegar afhjúpun
fór fram, var að koma á föstu
skipulagí með skíðaferðir úr
baénum og var unnið að þvi máli
ásamt fulltrúum hinna skíðafélag
anna og í samráði við samgöngu-
málaráðherra, póst- og símamála
stjóra og umferðamálaskrifstof-
una.
Skíðafélögin öll og Ferðaskrif-
stofa ríkisins hafa allan flutn-
ing skíðafólks með höndum, og
hafa skíðafélögin nú afgreiðslu
á Ferðaskrifstofunni „Orlof“ og
mun svo verða í vetur.
Þar sem nú er kominn sá tími
vetrar, er beztur er að venju,
ætti skíðafólk að nota hverja
stund, sem hægt er. Þótt snjór sé
óvenju lítill, er nægur snjór bæði
ó Hellisheiði og í nágrenni Vífils-
fells og víðar, sem sjá má af því,
að s. 1. sunnudag var haldið skíða
mót í Jósefsdal og að fjöldi fólks
notaði góða veðrið í nágrenni
Skíðaskálans og víðar á fjöllum.
Hinn góðkunni veitingamaður,
Steingrímur Karlsson sér um
rekstur Skíðaskálans eins og
undanfarið.
Skíðafélag Reykjavíkur verður
40 ára íöstudaginn 26. þ. m., og
mun þá minnast afmælisins með
samsæti og dansleik í Sjálfstæðis
húsinu.
Stjórn félagsins skipa þeir
Stefán G. Björnsson, formaður,
Lárus G. Jónsson, Leifur Möller,
Sveinn Ólafsson og Jóhannea
Kolbeinsson og varamenn Guð-
laugur Lárusson og Brynjólfur
Hallgrímsson.
Er rekstur félagsins öruggur Og
hagur þess góður.
Enska knattspyrnnn
Á LAUGARDAG urðu úrslit í
1. deild:
Bolton 3 Cardiff 0
Burnley 1 Liverpool 1
Charlton 1 WBA 1
Huddersfield 2 Sheff. Utd 2
Manch. City 0 Arsenal 0
Preston 1 Manch. Utd 3
Sheffield Wedn 4 Middlesbro 2
Sunderland 3 Portsmouth 1
Tottenham 3 Newcastle 0
Wolves 4 Blackpool 1
Þrátt fyrir mikla fannkomu og
frost undanfarna viku í Englandi
var hægt að halda leiki í efstu
deildum ligukeppninnar á laug-
ardag. Víðast var nokkuð snjó-
lag ofan á freðnum völlunum og
því erfitt um leik. WBA heldur
enn forystunni en Úlfarnir eru
aðeins 1 stigi á eftir og geta úr
þessu lagt allt kapp á efsta sætið,
en WBA e reinnig með mikla
möguleika í bikarkeppninni og
hefur það oftast áhrif á frammi-
stöðuna í deildakeppninni.
Sunderland hefur tekið mikl-
um stakkaskiptum við manna-
skiptir, sem fram fóru um ný-
árið, er það seldi miðframherj-
ann Ford til Cardoff, en fékk aft-
ur á móti miðframherja þess,
Chrisholm, og keypti einnig hinn
suður-afríska innherja Birming-
hams, Purdon, fyrir 20.000
sterlingspund. Áður háði það
liðinu að stjörnurnar voru of
margar, en siðan á áramótum
hefur það hlotið 6 stig í 3 leikj-
um og skorað 12 mörk gegn 2.
Eftir fyrri hálfleik hrfðx
Middlesbro 0-2 yfir Sheff. W.,
en eftir hlé var sem nýtt hð
kæmi inn á völlinn og skoraði
Sheffield 2 mörk á jafnmörgum
mínútum og sigraði örugglega,
4-2. — Staðan er nú;
1. deild L U J T Mörk St.
WBA 29 18 6 5 71-37 42
Wolves 29 18 5 6 68-41 41
Bolton 29 14 9 6 56-39 37
Huddersfld 29 13 10 6 51-36 36
Burnley 29 17 2 10 61-45 36
Manch. Utd 29 11 11 7 53-43 33
Charlton 29 14 3 12 56-51 31
Arsenal 28 10 9 9 51-50 29
Chelsea 29 10 9 10 52-54 29
Preston 29 13 3 13 62-43 29
Tottenham 29 12 4 13 46-48 28
Blackpool 29 10 8 11 49-56 28
Sheff Wedn 30 12 3 15 54-68 2ír
Cardiff 29 10 6 13 30-54 26
Manch City 29 9 8 12 39-51 26
Sunderland 29 10 5 14 60-64 25
Portsmouth 29 8 9 12 58-65 25
Newcastle 30 8 9 13 46-58 25
Aston Villa 28 10 4 14 44-50 24
Sheff. Utd 29 8 7 14 50-59 23
Middlesbro 29 8 4 17 42-64 20
Liverpool 29 5 8 16 50-73 18
FIMLEIKA- og danssýningar
Glímufélagsins Ármanns í íþrótta
húsi ÍBR við Hálogaland í gær-
kvöldi tókust með ágætum og
var margt áhorfenda. í kvöld kl.
8,30 fer fram seinni hluti þess-
ara sýninga.
Sýningarnar hefjast með Víki-
vakadönsum og þjóðdönsum
undir stjórn Ástbjargar Gunn-
arsdóttur. Þá sýna 60 telpur und-
ir stjórn Guðrúnar Nielsen. 1. fl.
karla sýnir fimleika undir stjórn
Hannesar Ingibergssonar. Þá er,
Blómavalsinn, danssýning undir
stjórn Guðrúnar Nielsen. Síðan
verða sýndar skylmingar. Þar á
eftir sýnir hinn ágæti Akrobatik-
flokkur Guðrúnar Nielsen og að
síðustu sýnir 1. fl. karla áhalda-
leikfimi undir stjórn Vigfúsar
Guðbrandssonar. Síðasta atriðið
verður svo körfuknattleikskeppni
milli Ármanns og ÍR.
Ferðir verða með , Stræisvögn-
um Reykjavíkur.
I 2. deild urðu úrslit:
Everton 1 Blackburn 1
Fulham 5 Birmingham 2
Hull 3 Derby 0
Leicester 2 Luton 1
Lincoln 1 Bristol 2
Notts Co 2 Brentford 0
Oldham 2 Doncaster 2
Rotherham 2 Plymouth 1
Stoke 1 Nottingham 1
Swansea 2 Bury 1
West Ham 5 Leeds 2
2. deild L U J T Mörk St.
Everton 28 12 12 4 53-41 36
Leicester 29 14 8 7 68-48 38
Nottingham 29 14 7 8 61-43 35
Doncaster 29 15 5 9 48-37 33
Birmingh. 29 14 6 9 66-44 34
Rotherh. 30 15 4 11 55-53 34
Blackburn 29 13 7 9 54-44 33
Luton 29 12 9 8 49-43 33
Fulham 29 12 7 10 68-56 31
West Ham 29 12 5 11 51-45 29
Stoke 29 8 13 8 48-41 29
Bristol Rov 29 9 11 9 49-43 29
Derby 29 10 7 12 49-56 27
Hull City 29 12 2 14 44-41 26
Leeds Utd 29 9 8 12 61-63 20
Lincoln 29 10 6 13 43-54 20
Swansea 29 10 6 13 38-54 20
Notts Co 29 9 7 13 32-56 25
Plymouth 29 6 12 11 40-49 24
Bury 29 6 11 12 37-52 23
Brentford 30 6 9 15 22-53 21
Oldham 28 5 6 17 28-59 16