Morgunblaðið - 14.02.1954, Blaðsíða 6
6
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 14. febr. 1954
- Liqui-Moly -
fyrir bátavélar
og bifreidahrfiyfla
LIQUI-MOLY smurningurinn hefir reynst
með ágætum á bifreiðahreyfla og hefir
reynsJan þegar sannað gildi LIQUI-MOLY.
Við höfum nú fengið smurning þennan sér-
staklegan ætlaðan fyrir allar tegundir
BÁTAVÉLA
Kostir LIQUI-MOLY eru meðal annars þessir:
★ LIQUI-MOLY eykur snúningshraða ★ Minnkar sótun vélarinnar.
vélarínnar. ★ Varnar sýrutæringu.
★ Auðveldar gangsetningu. ★ Veitir öryggi gegn úrbræðslu.
★ Minnkar núningsmótstöðuna svo ★ Eykur tvímælalaust endingu
vélin gengur kaldari. vélarinnar.
LIQUI-MOLY er nauðsynleg á allar vélar.
Málning og járnvörur
Sími 2876 — Laugavegi 23.
LAUS STAÐA
]'J Hreppsnefnd Stykkishólmshrepps hefur ákveðið að ráða sveitarstjóra samkvæmt lög-
um þar um. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist hrepps-
7 nefnd Stykkishólmshrepps sem gefur allar nánari upplýsingar, fyrir 20. marz n. k.
F. h. Hreppsnefndar Stykkishólmshrepps,
Kristinn B. Gíslason,
(Oddviti).
imY seimdiimg
af óvenju glæsilegum þýzkum barna-
Y fatnaði. Allt ,,Model“-flíkur.
■ Lítið í gluggana. —
STORKURINN
Grettisgötu 3. Sími: 80989.
Söngmenn
Karlakórinn Fóstbræður
óskar eftir nokkrum söngmönnum.
Upplýsingar í síma 6590 á morgun, mánudag.
APPELSÍNUR
Væntanlegar í næstu viku
ÖJ. Öíafááovv (iJ Uevviliöft
Sími 82790.
\ FokheEt einbýliáús til sölu
■
■ Á fallegum stað í Kópavogi er til sölu einbýlishús 102
•• j ferm. — Efni og vinna mjög vandað — Kauptilboð
t tB
I óskast send fyrir miðvikudagskvöld til
i PÉTURS ÞORSTEINSSONAR hdl.
‘ • :
.j í Lækjartorgi 1
í Símar 4250 eða 82222
Ss<msettar
Kiillur
úr stálvírskörfum.
eru atls staðar nýtilegar.
SKILTAGERÐIN
Skólavörðustíg 8.
IMýkomiið
Enskar kvenkápur.
Verð frá 350—495 kr.
Amerískir kvenkjólar.
Verð frá 250—395 krónur.
Amerísk dömunáttföt
Amerískar nælonblússur
Amerísk brjóstahöld
Amerískar kvenpeysur
Amerískir nælonsokkar
JIARKAÐURINN
TEMPLARASUNDI - 3
Vélstjóri
Færeyskur vélstjóri með 1.
fl. meðmæli óskar eftir at-
vinnu á Islandi. Er kunnug+
ur olíukyndingu og hefur
siglt með tögara sem vél-
stjóri,
Hans Lindcnskov,
Vágur, Færeyjar.
Bárður G. Jónssoa
Kveðia og minningarorð
Fæddur 11. apríl 1884.
Dáinn 7. febrúar 1954.
Kveðju og minningarorð.
„MJÖK erum tregt tungu at
hræra“, kvað Egill forðum. Svo
mun og vera um fleiri, er látinna
vina skal minnast.
Enn er mér horfinn yfir landa-
mærin miklu æskufélagi, jafn-
aldri og nákominn frændi. Mig
langar til að kveðja hann með
nokkrum orðum þótt fátækleg
verði.
Bárður Guðmundur Jónsson
var vestfirðingur að ætt og upp-
runa. Foreldrar hans voru hjón-
in Jón Örnólfsson og Rannveig
Engilbertsdóttir, er lengi bjuggu
að Miðdal í Bolungarvík og var
Bárður fæddur þar og upp alinn.
Forfeður hans í föðurætt, voru
allir bændur og útvegsmenn í
Bolungarvík og ytri hreppum
Djúpsins, og verður ættin rakin
í beinan karllegg til Snæbjarnar
Kolbeinsssonar (hákarla Snæ-
bjarnar) er bjó að Meiribakka
í Skálavík og var fæddur 1662.
Önnur kvísl föðurættar hans er
af hinni fjölmennu Hólsætt, sem
rakin er til Sæmundar sýslu-
manns Árnasonar á Hóli, d. 1632
og konu hans, Elínar Magnús-
dóttur, prúða. í báðum þessum
ættum voru atgerfismenn og
voru niðjar Snæbjarnar á
Meiribakka orðlagðir fyrir
hreysti og líkamsburði. Þeir voru
og sægarpar miklir. Meðal niðja
Sæmundar sýslumanns voru
sýslu- og lögréttumenn. í móður-
ætt var Bárður kominn af bænda
ættum í Inn-Djúpinu svo langt
aftur, sem vitað er.
Bárður kvæntist 1. des. 1906,
eftirlifandi eiginkonu sinni Sig-
rúnu Guðmundsdóttur, góðri
konu og vel ættaðri. Hófu þau
búskap að Ytribúðum í Bolung-
arvík nokkru síðar og bjuggu
þar til ársins 1941, er þau brugðu
búi og fluttust til ísafjarðar og
dvöldust þar til hins síðasta. Þau
áttu 9 börn. Þrjú þeirra dóu á
barnsaldri, en eina dóttur, Ás-
gerði, misstu þau, er hún var um
tvítugt. Á lífi eru: Ragnar, kaup-
maður og byggingameistari, Jón,
kaupmaður, Guðbjörg og Jó-
hanna, giftar konur, öll á ísa-
firði, og Sigrún, gift á Akranesi.
Á þeim árum, er Bárðu1" var
að alast upp, voru nær því und-
antekningarlaust allir unglingar
í Bolungarvík sendir á sjóinn,
strax og þeir þóttu hlutgengir.
Svo var og um Bárð. Um skóla-
menntun var ekki að ræða. En
sjórinn var og er líka skóli, harð-
ur skóli. Þennan skóla gekk Bárð-
ur í gegnum með mestu prýði.
Var hann orðinn formaður á ára-
skipi rúmlega tvítugur að aldri,
og síðar var hann formaður á mó-
torbát. Kom þar strax fram' mik-
ill dugnaður, er einkenndi hann
æ síðan. Hann hætti þó sjó-
mennsku snemma og hóf búskap,
sem fyrr segir Kom þar og fljótt
fram sama atorkan og áhuginn,
sem við sjóinn. Hann keypti
ábúðarjörð sína, Ytri-búðir, gerði
þar allmiklar umbætur og aflaði
sér mikils fróðleiks um allt það,
er að landbúnaði laut. Honum
féll svo að segja aldrei verk úr
hendi, enda komst hann upp úr
fátækt til vel bjargálna manns.
En hann vann eigi aðeins fyrir
sjálfan sig, heldur var hann sí-
hvetjandi og leiðbeinandi sveit-
ungum sínum, um allt er að bún-
aði laut. Hann var hollráður, og
því gott til hans að leita, enda
vel gefinn andlega. Hann var
foringi bænda í sveit sinni og
gegndi þar flestum trúnaðarstörf-
um fyrir þá. Hann hafði og fleirx
trúnaðarstörf með höndum, þ. á.
m. var hann lengi hreppsnefnd-
armaður.
Þó að það, sem hér hefur verið
sagt, sé um ytraborð mannsins,
ef svo mætti segja, þá lýsir það
þó að nokkru hinum innra manni,
sjálfum persónuleikanum. En þar
um nægja til viðbótar aðeins f jög-
ur orð: Hann var góður maður.
Það var því sárt fyrir vini hans
og vandamenn, þegar hann fyrir
sex árum missti heilsuna algjör-
lega og óvænt. Var hann alltaf
síðan við rúm og rúmliggjandi og
lengst af á sjúkrahúsum. En mest
hefir hann þó sjálfur liðið. — Á
góðum aldri er hann allt í einu
hrifinn frá sínu lífsstarfi, heimili
og öllu því, er hann hafði lifað
og starfað fyrir, cg verður nú
að liggja, einangraður frá lífinu,
sárþjáður í meira en hálfan ára-
tug. Helkrumla dauðans hefir því
nú snert hann sem engils líknar
hönd.
Ég votta ekkju hans og öllum
öðrum aðstandendum, mína inni-
legustu samúð.
Frá fyrsta vormorgni lífsins, til
hinnar hinztu stundar, höfum við,
ég og hinn látni, haft margt og
mikið saman að sælda, í leik og
starfi. Eru mér þær minningar
allar mikils virði. Færi ég nú
þessum framliðna vini mína
hjartans þökk fyrir samfylgdina
og allt og allt.
Guð blessi minningu hans.
Jóhann Bárðarson.
!>okayfir Enqlandi
LUNDÚNIR, 12. febr. — Þykk
og niðamyrk þoka grúfði yfir
Suður Englandi í dag. Flugsam-
göngur til stóru flugvallanna við
Lundúnir féllu alveg niður og
samgöngur á vegum töfðust
mjög. —Reuter.
Drengjaföt
SPORTFÖT JAKKAFÖT
í fjölbreyttu úrvali.
EROS
Ilafnarstræti 4 — Sími 3350.
p