Morgunblaðið - 04.04.1954, Page 2

Morgunblaðið - 04.04.1954, Page 2
2 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 4. apríl 1954 Bjarni Sigurðsson, kand. theol.: Allir eru kœiiuiir FÖGUR er frásögn skáldkonunn- | ar Selmu Lagerlöf af dvöl Jesú í musterinu í Jerúsalem, er hann Var 12 ára. Meðal þess, sem sér- staklega dró að sér athygli hans, var koparlúðurinn mikli, er stað- áð hafði óhreyfður frá því það var fyrst grundvallað fyrir mörg- \im öldum. Þarna stóð hann svo íetlegur og þungur, að óhugs- andi var, að nokkur gæti lyft ttonum, hvað þá náð úr honum írtljóði, enda höfðu að minnsta lcosti þúsund ár liðið svo, að eng- inn hafði reynt að töfra fram tóna lúðrinum þeim. Undrandi starði Jesús á lúður- ánn og spurði, hvað þetta væri. ,,Þetta er stóri lúðurinn, sem .gengur undir nafninu raust lieimsdrottnarans“, svaraði móð- ár hans. „Með honum kvaddi Móse saman hinar dreifðu ætt- "kvíslir Israels, en síðan hefur engum lánazt að blása í hann til liljórhs. Sá, sem það gæti, fyrir Jionum á að liggja að safna öllum þtjóðum heims í eitt veldi“. ffffá Og þessi saga hvarf honum «kki úr huga. Litlu seinna dró Jiann sig hljóður út úr skarkala margmennisins og gekk léttum .skrefum í súlnagöngin dimmu, l>ar sem koparlúðurinn hallaðist að vegg. Þegar hann nú leit lúð- •urinn og íhugaði, að sá, sem gæti Æeitt úr honum hljóm, ætti að ■sameina allar þjóðir heims undir veldi sitt, fannst honum hann aldrei hafa séð neitt þvílíkt, og Jiann settist í nánd hans og virti hann fyrir sér. iré En svo bar við, að í þessum svölu súlnagöngum sat helgur amaður og kenndi lærisveinum sínum. Og sem .Tesús situr þarna, snýr kennimaðurinn sér að ein- um sveininum, sem sat við fætur lionum, og bar upp á hann, að liann væri svikari. Hann fullyrti, að hann væri útlendingur, en alls ekki Gyðingur. Og hann spurði sveininn, hví hann hefði gerzt svo djarfur að sigla undir fölsku Haggi í þessum virðulega hópi. Sveinninn ungi reis upp og Tcvaðst hafa komið um langan veg, ■yfir eyðimerkur og víðáttumikil "höf til að fá numið æðstu vizku ■og sannleikann um hinn eina £uð. „Ég vissi, að ég mundi ekki njóta fræðslu þinnar, ef þú viss- ir, hver ég væri. Og nú bið ég þig, að þú leyfir mér að dveljast 3neð þér“. En sá helgi maður spratt upp og fórnaði upp höndum. „Það er oins víst og enginn getur blásið á koparlúðurinn, sem kallast xaust heimsdrottnarans, að þú iærð ekki að dveljast stundu Jengur með mér. Þér er ekki einu sinni heimilt að skoða þenna stað jnustersins, því að þú ert heið- jngi. Hypjaðu þig burtu, ella ráð- Æst lærisveinar mínir á þig og *tæta þig sundur, því að návist |>ín saurgar muserið“. En með því að sveinninn kaus nð vera kyrr, því að hvergi fyndi liann slíka fróun sem í guðs húsi, Téðu hinir á hann og ætluðu að «leyða hann. ffffá En Jesús sat þar álengdar og J)ótti þetta grimmilegar aðfarir. „Ég vildi, að ég gæti blásið í kop- iu'lúðurinn, þá væri honum borg- íð“. Hann stóð upp og lagði hönd s'ma á lúðurinn. A þessari stundu <óskaði hann ékki framar að hann gæti borið hann að vörunum, af Jtví að sá, sem það gerði, yrði •voldugur drottnandi, heldur af því að hann þráði að hjálpa manni I nauð. , ög hann greip smáum höndum sínum um koparlúðurinn ferlega og reyndi að lyfta honum. Þá varð hann þess var, að gamii lúðurinn lyftist eins og sjálfkrafa að vörum hans, og þegar hann andaði í hann gall við drynjandi hljómur, svo að tónarnir kváðu við um allt musterið og must- erisgarðinn. Undur og furða gangtók fólkið, en lærifaðirinn sneri sér að ung- lingnum og sagði: „Komdu og setztu við fætur mér. Guð hefur birt þau undur, að ég skil nú, að hann vill þig vígðan í lærisveina- hóp sinn“. ffffé Mikil vötn hafa fallið til sjáv- ar, síðan Kristur blés í lúður sinn og kvaddi allar þjóðir til fylgdar við sig. Þó kveður enn við af þeim lúðurhljóm, og raust hans dvínar ekki. Öld af öld hef- ur hann borizt mönnum að eyr- um, og órofa hlekkur kynslóð- anna bindur fyrirheit hans í sér. Sífellt þéttast fyikingar þeirra, sem heyra þessa raust; heimili, söfnuðir, félagssamtök margs konar, heil þjóðfélög, bræðralag margra þjóða smárra og stórra — allt er það þrungið af hljóm kristindómsins með einhverjum hætti. Brestirnir eru að vísu stórir, en ástæðulaust er að ein- blína á þá eina. Bræðralag ein- staklinga og þjóða hefur dregið til sín safa frá Hfsmeiði kristin- dómsins, það er aðalatriði. Framh. á bls. 4. islenzk myndlist er sérkenni- ersknm blæ AGINN áður en íslenzka list- sýningin var opnuð í Kaup- mannahafnar-ráðhúsi, fengu blaðamenn og gagnrýnendur tækifæri til að skoða hana. I Hafn arblöðunum komu svo greinar um sýninguna d.aginn sem hún var opnuð. Listagagnrýnandi Politikurinnar, Walter Schwartz kemst meðal annars í grein sinni að orði á þessa leið: Styrkur íslenzkrar myndlistar er í því fólginn að þar eru engar erfðavenjur. List sú sem sýnd er nú í Ráðhúsinu í sambandi við væntanlega forsetaheimsókn, hef ur öll orðið til frá því um síðustu aldamót. Elzti þátttakandinn mál arinn Ásgrímur Jónsson, er fædd ur 187ö. Á undan honum var eng- in íslenzk myndlist til í orðsins nútímamerkingu. Listin á að vísu rætur sínar í gamalli menningu íslands en hefur ekki fylgt sömu þróun eins og á meginlandi Evrópu. Með Ásgrími Jónssyni varð ísienzk málaralist til allt í einu, undirbúningslaust með þjóð inni. Menn byrjuðu þar undir áhrifum frá Cesanne og óttuðust ekki að þeim yrði fótaskortur, óþvingaðir sem menn voru, af listsmekk og stefnum horfinna kynslóða. Á þessari íslenzku sýningu kynnast menn nýrri list er hefur ekki leitað farvega í erfðavenjum fyrri kynslóða. Þar gætir ferskr- ar náttúrugleði, þar sem frum- kraftar leysast úr læðingi, hvort sem tjáningin kemur fram í myndrænu eða abstrakt formi. Sjálf náttúran hvolfir sér yfir þessa list með sínum kaldræna IHagnea Á. Magnúsdóttir Dauðinn er lækur, en lífið er strá. Skjálfandi starir það straumfallið á. ALLTAF stöndum við undrandi og hljóð gagnvart kalli dauðans. Það er afl, sem enginn stenzt. Og því verða þeir mestir, sem kunna að taka því með trausti til almátt ugs kærleika alföður og bjartri glaðri von um eilífð bak við árin. Þannig var hún, sem á morgun verður til moldar borin. — Hún eygði alltaf heiðríkan vonahimin bak við húmdökk ský, vonbrigða og sjúkleika. Hún sá alltaf sólina brosa til sín gegnum tárin. Þess vegna er okkur stofusystrunum svo þungt um andardrátt, þegar hún er horfin. Það er alltaf svo gott að eiga hughreystandi og sterkan ferðafélaga ekki sízt, þegar leiðin liggur oft um bið- sal dauðans. Magnea Magnúsdóttir var fædd að Ósgerði i Ölfusi 15. nóv. 1914, en dvaldi síðar niðri á Eyr- arbakka. Hún giftist eftirlifandi manni sínum, Ólafi Guðmundssyni, vegg fóðrarameistara, 12. okt. 1940. Og virtist sem gæfan brosti við á heimili þeirra, þar sem allt ilm- aði af þokka og verklægni hús- bændanna beggja. En árið 1947 kenndi hún aftur lasleika, sem hún hafði orðið vör skömmu fyrir giftingu sína. Og nú varð hún að kveðja mann sinn og yndislega ársgamla dóttur og leggjast inn á heilsubæli. En hún iét ekki bugast og náði lífsþróttur hennar og lífstrú bráð lega að sigrast á sjúkdómnum, svo að hún komst heim aftur. En ekki varð sá sigur langvinnur og upp frá þessu varð tíminn oftast dvöl á sjúkrahúsi, þar sem vonir og vonbrigði skiptust á. Samt missti Magnea aldrei tök á sjálf- stjórn sinni og þolgæði hennar var frábært. Enda naut hún einnig þess stuðnings ástvinar síns, sem bezthr er, nærgætni, nákvæmni og ástúðar. Magnea var sérstaklega trygg og góður vinur stofusystra sinna og samferðafólks. Framkoma hennar öll var mótuð af virðu- leik góðra erfða, heilsteyptrar guðstrúar og kærleiksríks skiln- ings á kjörum annarra. Aldrei sveigði hún að nokkrum í tali, en hafði afsakanir á vörum, ef hún heyrði á aðra hallað. Lund hennar var svo hrein, hjartað hlýtt og höndin hög og hjálpfús. Við sem kynntumst henni er- um hinum góðu máttarvöldum tilverunnar þakklát fyrir sam- fylgd svo göfugrar sálar. Og við biðjum Guð að blessa eiginmann hennar og veita honum styrk og þrótt í sorg hans og eftirsjá, og drottinn ljóssins vaki yfir fram- tíð litlu dótturinnar, svo að hún verði afa sínum, föður og frænku sannur gleðigeisli á himni ham- ingjunnar alla framtíð. Englar ljóss og lífs vaki yfir brautum hennar og blessi minningarnar um mömmu hennar, sem var kölluð svo snemma til annarra starfa. Kæra Magnea, þökk fyrir allt. Svíf þú nú glöð til söllanda fegri. Vaki íslenzkt vor yfir vegum þínum. Stofusystur og vinkonur. Styrkur hennar að hafa engar erfðavenjur, segir „Polifiken' himni yfir útlínur fjarlægra fjalla og fólkið verður ekki áber- andi í þessu landslagi. í myndum Ásgríms Jónssonar mætir auganu svipmikið land, þar sem myndir hans blasa við á fyrsta langvegg, ljósmiklar, stórkostlegar í form- um sínum, virðast þær skyldar list Poul Christiansen. Myndin frá Mývatni er sem hljómkviða um íslenka náttúru, máluð með svipmiklum dráttum er minnir á franska málara. En skaplyndið er óbrotnara norrænt að uppruna. Þunglyndislcgra en með sama grunntón vinnur Jón Stefánsson, en verk hans hefur maður í mörg ár séð á sýningum „Grönningen“. Hin stóra mynd hans „Fiskibátar koma úr róðri“ er með svipmikl- um dráttum sínum ein af eftir- tektaverðustu myndum sýningar- innar. Jón Engilberts, Sigurður Sig- ur. Þó myndir hans séu abstrakt í formi, tala þær sama primitiva in: (lega mál eins og my adir gamla Ásgríms Jónssonar. I ó- myndrænum verkum hans sjást jökiarnir skína móti bláum himni og grasið grænka á víðáttuaum. Ekki allir hinir ómyndræru Is- lendingar mála eins sannfærandi og hann. Ef til vill þeirra sterk- astur er Benedikt Gunnarsson. í myndum hans þrem er bæði spenningur og litagleði. Meðal þeirra ómyndrænu eru m. a. Hörður Ágústsson, Valtýr Pétursson og Sverrir Haraldsson. Myndhöggvararnir þreifa líka fyrir sér eftir nýjum leiðum. Sig urjón Ólafsson hefur í „Laxa- motívi“ lýst sérkennilegum spenn \ ingi og Gerður Helgadóttir og Ásmundur Sveinsson vinna með abströktum „kompositiorium" er minna á járnmyndir Róberts Á Ráðhússýningunni í Kaupmannahöfn. Sehdiherrafrú Ólöf Nordaí og sendiherra Dana á íslandi, frú Bodil Begtrup. — Myndastyttan er eftir ungfrú Óiöíu Pálsdóttur. (Nordisk Pressefoto). urðsson og Jón Þorleifsson lýsa öðrum þýðari þáttum íslenzkrar náttúru og hjá Júlíönu Sveins- dóttur hafa litaáhrifin tekið á sig yfirmáta fínleik. Karlmanns- mynd hennar er í litameðferð sér kennilegasta mynd sýningarinn- ar. Alveg út af fyrir sig stendur Jóhannes S. Kjarval með hinar merkilegu piastisku myndir sín- ar, þar sem litirnir greina frá eðli landslagsins, hvössum klett- um, hnökróttum hlíðum eða eru notaðir sem einskonar mynda- letur. Mest lis.t er í hinu djarfa myndverki „Frá liðnum dögum“, þar sem sögupersónurnar eru látnar koma fram í guium og bláum litatónum. Hugmyndaflug er í myndum Kristjáns Davíðs- sonar er minna á barnateikning- ar. Snorri Arinbjarnar hallast að því ómyndræna, er byggir mynd- ir sínar upp í stórum flötum með húsum og skipum. Meiri þróttur er í myndum Gunnlaugs Schev- ings er hann málar t. d. fiskibát á sjó. Hin innilega frásögn mynd arinnar gerir mann hugfanginn, þó myndin sé að sumu leyti veik í byggingu. Hinn ungi Svavar Guðnason er í hjarta sínu ósvikinn íslending- Jakobsen. Myndir Ásmundar Sveinssonar eru langmerkileg- astar bæði „Gegnum hljóðmúr- inn“ og „í tröllahöndum“ bera vott um mikið hugmyndaflug myndhöggvarans. íslenzka listin gefur dönsku listalífi ferskan andblæ. Svipur hennar er sérstæður, sérkenni- legur. til vorhreingerninganna fæst hjá tmaení BIYR-IAVÍH £,Z

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.