Morgunblaðið - 04.04.1954, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 4. apríl 1954
<S*3<S<S<S^»<2. Sr
NYJUNG!
NYJUNG!
55% DACRON 45% ULL
er enn eitt undraefnið sem nú er mjög
notað til fataefnaíramleiðslu erlendis, og
nýtur sívaxandi vinsælda.
,,DACRON“ hefur þá eiginleika, að það
sléttir sig sjálft þó það blotr.i, og algeng-
ustu blettum má ná úr því með volgu sápu-
vatni. — Þá er það mjög endingargott. —
Föt úr þessum efnum koma á markaðinn
innan skamms, í fallegum nýtízku
sumarlitum.
MUSTERI
ÓTTAMS
Hin nýja skáldsaga
Guðmundar Daníelssonar,
skólastjóra, heíur
fengið óvenjulega
viðurkenningu rit-
dómara. Utkomu
hennar er tekið
sem miklum við-
burði í islenzkum
bókmenntum.
Guðmundur Daníelsson.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — Ilelgi Sæmundsson:
.... Þetta er vandasamasta skáldsaga Guðmundar Daníelssonar. Hann
hafnar hér þeim ytri stórfengleik, sem einkennir beztu skáldsögur hans hing-
að til. „Musteri óttans" er í ætt við snjöllustu smásögur Guðmundar, en viða-
meiri og rishærri. Guðmundur leggur aðaláherzlu á könnun sálarlífsins í þess-
ari sögu, vettvangur hennar er mannssálin og viðburðirnir, sem ráða úrslitum,
andleg barátta, stundum sjúkleg, en alltaf mannrsn. Driffjöður sögunnar
er annars vegar það, sem Stefan Zweig kallaði truflun tilfinninganna, og
hins vegar móðurástin. Sagan er hófsamlega skrifuð, en eigi að síður ör-
lagaríkust alls þess, sem Guðmundur Daníelsson hefur fjallað um í skáld-
skap sínum. Hcnn hefur fært út ríki sitt og unnið mikinn sigur.
TIMINN
séra Sigurður Einarsson:
.... Allur gangur sögunnar hnitmiðaður og brotalaus, hin órjúfandij
rökvísi orsakasamhengisins sjálfs. Og með þessum vinnubrögðum leiðirj
Guðmundur fram hið átakanlega og stórbrotna í örlögum þessa fólks. Svið-I
ið tekur í sig dýpt vorrar hrjáðu samtíðar og er þá Suðurlandið eins ogS
vér þekkjum það öll. Og þunginn í örlögum þessa fólks, svo einfalt ogj
ljóst sem það er, dregur í sig súg og sveljanda af örlögum heillar kyn-^
slóðar, kvöl hennar, angist, ofbrotum, hjátrú, ástríðu og grimmd. Það mætir J
manni allt í hnotskurn, þessa takmarkaða umhverfis, í samskiptum þessa*
fámenna hóps.
Stíll Guðmundar hefur alla jafna verið eftirtektarverður, forskur ogl
lifandi, en ekki án bláþráða og hnökra. í þessari bók er hann allur haf !
inn á hærra svið kunnáttusemi, hófstillingar og innsýni, en Guðmundi hefurS
áður tekizt að ná. Og nú er vald Guðmundar orðið slíkt, að þessum töfra-j
sprota málsins tapar hann aldrei úr höndum sér alla bókina á enda.
VÍSIR — Guðm. G. Hagalín:
.... En svo er þá komin sú stund, að þau fyrirheit rætist, sem Guð-|
mundur Daníelsson hefur frá upphafi gefið íslenzkum lesendum - já, gaf <
raunar strax með fyrstu skáldsögu sinni, Bræðurnir í Grashaga. Með hinni I
nýju skáldsögu sinni, Musteri óttans, hefur hann unnið mikinn sigur. Þar ,
hefur honum tekizt að skapa merkilegt og veigamikið skáldrit, og kemur:
það jafnt í ljós, hvort sem litið er á einstök atriði, heildargerð sögunnarj
eða viðmiðun hennar við hið sammannlega.
Athuqið: Þeir, sem eru eða gerast félagsmenn, fá ,,Musteri óttans",
ásamt „Suðurlöndum" eftir Helga P. Briem, Kvæðum Eggerts Ólafssonar.Jj;
Andvara og Þjóðvinafélagsalmanakinu fyrir 55 kr. Þrjár fyrst nefndu bæk-j5
urnar fást í bandi gegn aukagjaldi. — Nýir félagsmenn geta ennfremur^
enn þá fengið allmikið af eldri félagsbókum eða alls um 54 bækur fyrir jg
samtals 355 kr.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
og Þjóðvinafélagsins.
I
Baðherliergis-
fitiings
k.rómaðui'
Handklæðahengi
Pappírshöld f. W.C.-rúJIur
Sápuskálar
Svampskálar
Grindur á baðker
fyrir sápu og svamp
Tannburstahengi
Glasahengi
Hilluhné
Snagar
Skrúfur
o. fl.
fyrirliggjandi.
J. Þorláksson & NorSmann h/f
Bankastræti 11.
Til fermingargjafa
Nýkomið fjölbreylt úrval aí úrum.
Vfagnús Benjamínssffli & Co.
3]a herbergja íbúð
óskast sem fyrst eða 14. maí n, k. Þarf að vera neðsta
hæð og á hitaveitusvæðinu í Austurbænum. — Eins til
tveggja ára fyrirframgreiðsla. — Fernt fullorðið í heimili.
Góð umgengni og reglusemi. — Sími 7177 rnilli kl 12—1
og 7—8 næstu daga.
M£ðstöðvarc*inar
Hreinsum miðstöðvarofna. — Verkið er framkvæmt með
sérstakri efnablöndu, sem tryggir, að ofnarnir hreinsist
algerlega, án þess að skemnjast hið minnsta. — Eftirlit
hefur Svavar Hermannsson, efnaverkfræðingur.
Hringið í síma 6060.
NYJUNG!
NYJUNG!
55% „ORLON“ 45% ULL
— Bezt að auglýsa í Morgunblaðiðinu
er ný samsetning á fataefnum, sem mjög
hefir rutt sér til rúms erlendis,
„ORLON“ gerir efnið endingarbetra, það kyprast síður
og heldur betur brotum, auk þess sem það hrindir
betnr frá sér bleytu og óhreinindum. — Við höfum nú
hafiö framlciðslu á stökum jökkum úr þcssum efnum
í fallegum nýtízku litum óg sniðum.
Fyrstu jakkarnir koma á markaðinn fyrir páska.
Fylgist með tízkunni