Morgunblaðið - 04.04.1954, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 4. apríl 1954
I
Skugginn og tindurinn
SKÁLDSAGA EFTIR RICHARD MASOIÍ
Framhaídssagan ö
að komast aftur til Englands,
cins og svo margar konur, sem
ílutzt hafa til hitabeltislanda, og
enda þótt hún í orði kveðnu
væri sammála eiginmanni sínum
um jafnrétti hvítra manna og
svartra, þá hafði hún í hjarta
sínu ímugust á öllu sem tilheyrði
nýlendunum. Hún hafði alltaf
verið vingjarnleg í garð Douglas-
ar, sennilega vegna þess að hann
var Englendingur, og kallaði
hann að fornafni hvað hún hins
vegar ekki gerði við Duffield.
„Eg hef ekki hugmynd um
hvað hann vill yður“, sagði hún.
í>að var á framkomu hennar að
sjá eins og hún væri dálítið úr
jafnvægi.'
„Ég skal fara strax“.
Hundarnir voru á hlaupum um
salin. Frú Pawley kallaði til
>eirra höstum rómi: „Komdu
Rex, komdu hérna Queenie". Og
þei-r hlýddu tafarlaust.
Frú Pawley gekk með Douglas
út í garðinn. Hún var í bláum
síðbuxum, frekar var hún lág-
vaxin og tifaði þegar hún gekk.
„Mér þykir leitt að þér skyld-
uð lenda , þessu í gær, Douglas",
sagði hún, en það var samt eins
og hún hefði engan áhuga á því,
sem hún var að segja. „Ég skil
ekki hvers vegna flugvélin þurfti
endilega ag hrapa hér. Maðurinn
minn er alltaf að skrifa flugfé-
laginu og biðja þá að fljúga ekki
yfir skólahúsið. Ef þeir hefðu
farið að hans ráðum, hefði senni-
lega ekkert slys orðið“.
„Kannske ekki“. Staðþæfingar
hennar voru sjaldan rökréttar. en
það borgaði sig ekki að andmæla
henni.
Þau gengu yfir garðinn þar
sem uxu stór og litskrúðug jap-
önsk skrautblóm. Suðandi bíflug-
BÍLABOLTAR
Nýkomnir í mikiu úrvali frá l/4x7/8” til 1/2x2”
Ennfremur allskonar skrúfur.
Verðið rnjög hagkvæmt.
m
H
_____iF
LAUGAVEG 1G6
Ljósakrónur
Þýzkar, 2ja, 3ja, 4ra
og 5 arma
Verð frá 275 kr.
H.f. Rafmagn
Vesturgótu 10
Sími 4005
Fittings
Vatnsleiðslurör
Stey p usty rktar járn
Utvegum við frá Tékkóslóvakíu.
Lægsta verð. Fljót afgreiðsla.
R. Jóhannesson h.f.
Nýja Bíó húsinu. Sími 7181.
Reykvíki.ngar!
ur voru á sveimi á milli krón-
anna og sumar stóðu kyrrar í
loftinu og gagnsæir vængirnir
bærðust ótt og títt.
Frú Pawley sleit upp rauða
rós um leið og hún gekk fram
hjá.
„Vel á minnzt“, sagði hún,
„voru ekki blóm í herberginu
hjá yðar um daginn?“
„Þegar ég kom frá Kingston?
Jú, ég vissi ekki hver hafði fært
mér þau“.
„Ég sagði þjóninum að tína
handa yður blóm úr garðinum.
Mér datt í hug að yður þætti
gaman að blómum. Það er heldur
tómlegt að koma heim í mann-
laust húsið eftir skemmtilegan
dag niðri í bænum“.
„Mér finnst alltaf gott að koma
heim aftur“, sagði hann. „Það
er alltof heitt niðri í Kingston“.
Hún klóraði börk af trjágrein
með nöglinni.
„Þér eruð auðvitað farinn að
eignast vini í Kingston?“
„Ég þekki engan þar“, sagði
hann.
„Ekki? Það er skrítið". Hún
hló við. „Ég hafði hugsað mér að
þér færuð þangað til að skemmta
yður. Yður hlýtur að finnast við
afskaplega leiðinleg hér, þar sem
þér komið beint frá London".
„Mér finnst það hreint ekki“.
„Hvaða vitleysa. Þér þurfið
ekki að sýna óþarfa kurteisi.
Yður hlýtur að finnast við mjög
óhefluð". Hann mótmælti aftur
en hún hélt áfram. „Jú, við erum
það. Maðurinn minn er það að
minnsta kosti. Ég hafði búið í
London í mörg ár þegar ég
kynntist honum. Ég var ekki
nema fimm ára, þegar ég flutti
frá Jamaica".
„Ég veit það“. ,Hún hafði sagt
honum það tvisvar eða þrisvar
áður.
„Aldrei datt mér það í hug að
ég ætti eftir að koma hingað
aftur sem óbreytt kennslukona
við barnaskóla".
„Varla sem kennslukona",
sagði Douglas. Hún átti að teljast
hafa yfirumsjón með stúlkunum
og sjá um vistir til heimilisins
ásamt frú Morgan, en hún sá ekki
um neina kennslu.
„Lítið þér ekki þannig á mig
.... sem óbreytta kennslukonu?“
Hún leit snöggvast á hann, en til
þess að láta sem sér stæði á sama
um svarið, sneri hún sér frá hon-
um og kallaði á hundana: „Rex,
Queenie, komið þið hingað". Svo
leit hún aftur á hann og sagði
dálítið hranalega: „Maðurinn
minn er sjálfsagt farinn að bíða
eftir yður. Látið mig ekki tefja
yður“.
Hann skildi við hana og hélt
áfram niður brekkuna, heim að
húsinu þar sem Pawley-hjónin
bjuggu, en þeirra hús stóð nokk-
ur hundruð faðma frá skólahús-
inu sjálfu Hann var dálítið eftir-
væntingarfullur, því hann vissi
Reykvíkingar!
Vinsælasta HUITAVELTA ílfilNS
hefst kl. 2 í dag í Listainannaskálanum
Mikill fjöldi ágætra muna.
Koinið, sjáið og sigrið!
Ekkert happdrætti Félög Fríkirkjusafnaðarins.
Saumum eftir máii
*
úr vönduðum efnum korselett, lífstykki,
magabelti, frúarbelti, slankbelti, brjósthald-
ara og brjósthaldara, krækta að framan.
Einnig sjúkrabelti fyrii dömur og herra.
Póstscndum.
Tjarnargötu 5 — Sími 3327.
drögtum.
ro«
Nýtt
ORTGINAL
Nýtt
ÞETTA ER
ISOLA
Smjðrkúpan
sem allar húsmæður vilja
eignast.
Einangruð cins og hita-
brúsi
í mörgum litum.
Fæst í flestum búsáhaldaverzlunum og víðar.
Heildsölubir gðir:
MIÐSTÖÐIN H.F.
Sími 1067 og 81438.
Drengjajakkaföt
Sportföt
stakar buxur
og blússur
Verzl. Eros h.f.
Hafnarstræti 4 — Sínú 3350
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«iUUul