Morgunblaðið - 09.04.1954, Síða 1
16 síður
41. árgangur.
83. tbl. — Föstudagur 9. apríl 1954.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Leopold konungur týnd-
ur i frumské-gnm Paitssna
Panama City 8. apríl. Einkaskeyti frá Reuter.
LEOPOLD fyrrum Belgíukonungur er týndur inni í frumskóga-
þykknum Panama í Mið-Ameríku. Kona hans de Rethy prins-
'essa, sem beið hans í Panama City hefur leigt flugvélar til að fljúga
yfir frumskógana og leita konungs, en án árangurs. 10 dagar eru
síðan spurðist til konungs og fylgdarmanna hans.
PRINSESSAN LEITAR
I dag ákvað prinsessan að
leggja sjólf af stað landleiðis til
að leita eiginmanns síns í frum-
skógunum kringum þorpið Dar-
ien. Ber hún þungar áhyggjur,
því að hún óttast að maður sinn
kunni að hafa farizt langt frá
mannabyggðum.
Á. SLÓDUM BALBOAS
Leopold yfirgaf menninguna
fyrir 10 dögum ásamt tveimur
fylgdarmönnum Jose Maria
Cruxent sagnfræðingi frá Vene-
suela og ljósmyndaranum Hans
Lutz. Auk þess hafði hann hóp
indíánskra burðarkaria. Reru
þeir á bátum upp eftir Chucuna-
que-fljóti og ætluðu að freista
þess að finna leiðina, sem Balboa
fór eftir, er hann fyrstur hvítra
manna brauzt gegnum frumskóg-
ana í Mið-Ameríku og leit augum
Kyrrahafið árið 1513. Frumskóg-
ar þessir eru mjög erfiðir um-
ierðar.
Ekki hefur enn verið hægt að
koma boðum til Leopolds um frá-
fall Mörtu Noregsprinsessu.
Aipingi afgreiddi í gær lög m
byggingu orkuvsm ú
Vestur- og Austurlundi
IGÆR voru afgreidd frá Neðri deild Alþingis tvenn ný lög um
raforkuframkvæmdir. Fjallaði annað þeirra um orkuver Vest-
fjarða, en hitt um breyting á lögum um ný orkuver og nýjar orku-
veitur rafmagnsveitna ríkisins. Munu orkuver þessi falla inn i
heildaráætlun ríkisstjórnarinnar um rafvæðingu landsins.
20 millj. króna varið til
smáHbúðalána á þessu ári
¥ GÆR var lagt frEdii í Neðri deiid Alþingis stjórnarfriunvarp um heimild til handa ríkis-
* stjórninni til öflunar lánsfjár til smáíbúðabyggingá. Er þetta fjórða frumvárpið, sem
ríkisstjórn;n ieggur fram nú síðustu dagana, sem miðar að stórbættum kjörum og fyrir-
greiðslu við aílan almenning. Hin þrjú fyrri frumvörpin voru um lækkun skatta, rafvæð-
rngu í sveitum landsins og virkjun Efri-Sogsiossa.
Ríkisstiórnin, undirbýr
lausn húsnæðismálanna
fyrir næsta þir<g
f frumvarpinu sem lagt var fram í gær er svo fyrir mælí:
Ríkisstjórninni er heimilt að taka að láni allt að 20 milljón-
um króna innanlands og endurlána fé þetta lánadeild sma-
íbúðarhúsa með sömu kjörum og lánið er tekið.
ORUGGT AD LÁNSFÉ FÆST
f athugasemdum er frumvarpinu fylgir, segir að eitt atriði mál-
efnasamnings ríkisstjórnarinnar hafi verið að ríkisstjórn og stjórn-
arflokkarnir beiti sér fyrir ráðstöfunum til þess að auka Iáns-
fjárframlög til íbúðarhúsabygginga.
Hér er um mjög stórt og yfirgripsmikið mál að ræða, og mun
ríkisstjórnin kzppkosta að undirbúa fyrir næsta þing frumvarp um
Leopold fyrrum Belgiukonungur Iausn Þess- er til írambúðar mætti verða.
er týndur hjá jaguörum, króko- Til bráðabirgða vill ríkisstjórnin gera þá ráðstöfun að afla á
díium og eiturslöngum imii í þessu ári 20 milljou króna lansfjar til þess aö lana ut á sma-
nyrkustu frumskógum Panama. íbúðir. Er ríkisstjórnin að vinna að því að útvega þetta lánsfé og
Er hans nú leitr.ð. telur öruggt, að það takist.
ORKUVER VESTFJARÐA
Frumvarpið um orkuver Vest-
fjarða var flutt af þingmönnum
Vestfirðinga er sæti eiga í Neðri
deild. Felur það í sér heimild til
handa ríkisstjórninni að fela raf-
magnsveitum ríkisins að virkja
Dynjandaá eða Mjólká í Arnar-
firði í allt að 7000 hestafla orku-
veri og leggja þaðan aðalorku-
veitu vestur á bóginn til Bíldu-
dals, Tálknafjarðar og Patreks-
fjarðar og norður á bóginn til
Þingeyrar, Flateyrar, Suðureyr-
ar, Bolungarvíkur, Súðavíkur og
Hnífsdals og ísafjarðar. — Er svo
fyrir mælt í lögunum að heimild
þessi tefji ekki byggingu þeirra
orkuvera á Vestfjörðum, sem
þegar eru tekin upp í heimildar-
lög, ef þær virkjanir þættu hag-
kvæmari, enda verði teknar um
það ákvarðanir svo fljótt sem
verða má.
AUSTURLAND
Hin raforkulögin er samþykkt
voru í dag voru flutt af þing
mönnum Austfirðinga er sæti
eiga í Neðri deild. Er í þeim
kveðið á um að virkja Lagarfoss
á Fljótsdalshéraði í allt að 5300
hestafla orkuveri og leggja aðal-
orkuveitu til Egilsstaða, Seyðis-
fjarðarkaupstaðar, Neskaupstað-
ar, Eskifjarðarkauptúns, Búðar-
eyrar og Búðakauptúns.
Frumvarpinu var breytt nokk-
uð og inn í það sett ákvæði um
eftirtaldar orkuveitur:
1. Að virkja Haukadalsá í
Dalasýslu í allt að 500 hestafla
, orkuveri til vinnslu raforku
handa fimm syðstu hreppum
Dalasýslu.
2. Að virkja Múlaá í Geiradals-
hreppi í allt að 500 hestafla orku-
veri til vinnslu raforku handa
nálægum hreppum.
Þriðja lagafrumvarpið um
orkuver var til umræðu í Neðri
deild í dag. Var það frumvarp
ríkisstjórnarinnar um virkjun
Efra-Sogs. Var það samþykkt I
deildinni og sent Efri deild. Hafa
engar umræður orðið um málið.
Jafnvel stjórnarandstaðan, sem
lætur nú sjaldnast á sér sitja,
var sammála ríkisstjórninni og
stjórnarflokkunum í þessu máli.
-□
3 7 fórust
MOOSE JAW, 8. apríl — 37
manns létu lífið í flugárekstri
yfir Moose Jaw í Kanada, er
Harvard æfingaflugvél rakst á
farþegaflugvél fullsetna farþeg-1
um. Æfingaflugvélin rakst á
væng hinnar stóru flugvélar, svo
að hann rifnaði af. Benziiigeym-
ir féll niður í íbúðarhús, svo að
það brann á örskömmum tíma
upp til agna. Þetta er mesta flug-
slys í sögu farþegaflugs Kanada.
.—Reuter.
Aukið fluglið berst
Frekkum í Indó-Kína
Saigon 8. apríl. Einkaskeyti frá Reuter.
FJÖLDI bandarískra sprengjuflugvéla af tegundinni B-26 komu
i dag til Indó-Kína. Koma þær samkvæmt sérstakri beiðni
franska hermálaráðuneytisins og verða þegar teknar í notkun til
að reyna að hindra árásir kommúnista á virkisbæin Dien Bien Phu.
□-
-□
HERNAÐARLEYNDARMÁL
Herstjórn Frakka í Indó-Kína
neitaði að gefa upplýsingar um
hve margar flugvélar koma til
□-
-□
HANDRIT að stórum aug-
lýsingum, sem birtast eiga í
SUNNUDAGSBLAÐINU,
þurfa að berast auglýsinga-
skrifstofunni FYRIR KL. 6
I KVÖLD.
þeirra. Er það hernaðarleyndai -
mál. Hitt er vitað að bandarískir
flugmenn flugu flugvélunum til
flugvallarins hjá Haiphong. Þar
munu franskir flugmenn taka við
þeim.
FYRIR GENFARRÁÐSTEFNU
Liðsstyrkur kommúnista er enn
á leiðinni frá kínversku landa-
mærunum til Dien Bien Phu. Er
talið víst, að kommúnistar muai
gera lokaatlögu að borginni áður
en Genfarráðstefnan hefst 26.
apríl n.k., því að taka borgarinn-
ar hefði mikla stjórnmálalega
þýðingu.
Faiigelsisdómm*
fvrir brot á land-
Ur
gum
□-
-□
Fyrsía mynd a! (orseiahjénunum og dönsku konungshlómmum
JAPANSKIR fiskimenn sækja
mjög á fiskimið við Kóreuströnd
en stjórn Suður-Kóreu víkkaði
landhelgi sína nýlega og beitir
fangelsisrefsingum gegn þeim
sem brotlegir gerast. Nýlega
voru áhafnir á tveimur japönsk-
um fiskibátum, Taiei Maru og
Takasago Maru dæmdar í fang-
elsisrefsingar frá 6 til 12 mán-
uði fyrir ólöglegar veiðar innan
landhelgi.
S.l. ár tóku Kóreumenn fasta
45 fiskibáta, sem voru innan
hinnar svonefndu Rhee-landhelg
islínu og dæmdu þeir flesta fiski-
mennina í þungar refsingar.