Morgunblaðið - 09.04.1954, Blaðsíða 16
Veðurúllif í dag:
SV hvassviðri og rigning.
Góðar ferskur
Sjá grein á blaðsíða 9.
83. tbl. — Föstudagur 9. apríl 1954.
Kópavogskosnfingin ógild vegna
þess að Minneapolis atkvæðin
gótu ráðið árslitum í henn/i
Sömu listarnir óbreyttir
I kjöri í endurkosningu
Fré sýningu Jéhannesar Jéfgannessonar
HREPPSNEFNDARKOSNINGARNAR í Kópavogshreppi, sem
fram fóru hinn 14. fehrúar s.I. hafa verið ógiltar. Ástæða til
l>ess er að við utankjörstaða atkvæðagreiðslu í Minneapolis eyði-
lagði ræðismaður íslands þar í borg með mistökum tvo atkvæða-
•seðla, sem gátu haft áhrif á úrslit kosningarinnar, um það hvort
Alþýðuflokkurinn eða Framsókn fengi hreppsnefndarfulltrúa kjör-
inn.
Samkvæmt þessu er Kópavogshreppur nú stjórnlaus og allar
aðgerðir „hreppsnefndar" síðan 14. febrúar lögleysur, sem ekkert
gildi hafa. Ætla vandræðin seint af hreppsbúum að ganga. Fyrst
var kosningaundirbúningur ógiltur fyrir lögleysur og einstreng-
ingshátt hreppsnefndaroddvitans og síðan kosning ógild fyrir mis-
tök ræðismanns íslands í 9000 km fjarlægð frá Kópavogshreppi.
Fað er aðeins kosningin sjálf sem er ógilt. Framboð hefur ekki
verið ógilt. Er litið svo á að framboðsfrestur sé útrunninn og gerir
það að verkum að t. d. Alþýðuflokkurinn getur ekki borið fram
tvo lista í væntanlegri endurkosningu.
Niðurstaða kosninganna varð
sú að A-listi — Alþýðuflokksins
hlaut 130 atkvæði og engar. mann
kjörinn. B-listi — Framsóknar-
flokksins hlaut 131 atkvæði og 1
mann kjörinn, D-listi — Sjálf-
stæðisflokksins hlaut 238 atkv.
«g 1 mann kjörinn og G-listi
kommúnista hlaut 475 atkv. og
3 menn kjörna.
FYLGIBRÉF URÐU
VIÐSKILA
Ágreiningur varð um nokkur
atkvæði. Hér verður þeirra ekki
getið nema tveggja atkvæðaseðla,
er borizt höfðu frá Minneapolis
i Bandaríkjiunum en fylgibréf
seðlanna höfðu orðið viðskila við
sjálfa kjörseðlana, að því er í
kæru var talið fyrir vangá stjórn-
valda. Yfirkjörstjórn Kópavogs-
hrepps úrskurðaði atkvæðaseðla
þessa ógilda vegna þess að fylgi-
bréfin höfðu verið rifin írá.
Sá úrskurður yfirkjörstjórnar
var kærður áfram til hrepps-
nefndar sem haggaði honum þó
ckki, að atkvæðin tvö skyldu
teljast ógild.
ÁFRÝJAÐ TIL ODDVITA
SÝSLUNEFNDAR
Þann 19. marz s. 1. var úr-
skurði hreppsnefndar enn áfryj-
að til oddvita sýslunefndar Kjós-
arsýslu og var þess krafizt að
hreppsnefndarkjörið í heild yrði
metið ógilt vegna mistaka opin-
berra aðilja.
Hinn reglulegi oddviti sýslu-
nefndar Guðmundur í. Guð-
mundsson vék sæti í máli þessu,
bæði vegna afskipta sinna af
undirbúningi hinna umdeildu
kosninga, svo og af kosningunni
sjálfri vegna stuðnings við A-
listann. Var Sigurgeir ón.sson
lögfræðingur settur til þess sem
sýslumaður Kjósarsýslu að taka
sæti sem oddviti sýslunefndar
Kjósarsýslu.
RÆÐISMAÐURINN REIF
FFLGIBRÉF AF
í úrskurði Sigurgeirs, sem
kveðinn var upp í gær segii m. a.
frá því að atkvæðaseðlarnir tveir
frá Minneapolis voru frá tveimur
kjósendum í hreppnum, þeim
Sigríði Lútersdóttur og Sveini
Þórðarsyni.
Hefur það upplýstst, að þau
greiddu atkvæði hjá kjórræðis
| manni íslands í Minneapolis.
! Eftir að þau greiddu atkvæði
og eftir að fylgibréfin voru
t undirrituð reif ræðismaðurinn
; sjálfur atkvæðin frá fylgi-
bréfunum. Hann setti atkvæð-
1 in í umslag, en fylgibréfin
| lentu utan umslaganna og
nöfn kjósenda voru ekki rituð
t á umslögin.
Samkvæmt þessum upplýsing-
um er það ljóst að ræðismaður-
inn í Minneapolis hefur sjálfur
eyilagt atkvæðin með framan-
greindum athöfnum sínum, sem
eru gagnstætt lögum.
GAT RÁÐIÐ ÚRSLITUM
Nú liggur það fyrir í mál-
inu, að B-listi var úrsKurðað-
ur hafa fengið einn mann kjör
inn með eins atkvæðis mun
fram yfir A-lista. Utankjör-
fundaratkvæðin sem ræðis-
maðurinn í Minneapolis eyði-
lagði, gáte þtrí rá®S órslitum
um það, hvwrt Br Sfciti eða A-
listi fengií raanm kjorinn í
hreppsnefmf Kíipasvagshrepps
í kosningnHjmu
Fullupptý.í+i (£E; as£g>xir i úrskurð-
inum, að þsffi *aar- Wnm opinberi
trúnaðarmaðwr., sgm eyðilagði
atkvæði þeaal, erada verður sú
krafa ekki g.+f»fS ttt kjösenda í
slíku tilfeIK„ affi þeir gac-ti þess,
að kjörstjóraa: friaisji esdd lög-
leysur við feaHrniiiijgaat&öin. At-
kvæði þessií ®3e8ki hafa verið
greidd A-lisfcsajiissa ®g hefði hann,
ef svo hefði ’Starii® Motlð mann
kjörinn í
lista.
hrepcssBefnd í stað
KOSNING ÓGBf.O
Gallar þessr verða því að
teljast þess eötíg, a3 þeir geti
ráðið úrslitum om hvor list-
anna A eða B næði kosningu
og þykir því verða að ógilda
hreppsnefndarkosningarnar í
Kópavogshreppi og ber
endurtaka kosningarnar.
GÓÐ aðsókn hefur verið að málverkasýningu Jóhannesar Jóhann-
essonar í Listvinasalnum, sem opnuð var um síðustu helgi. Vegg-
skálarnar hafa vakið mikla athygli og hafa þegar 8 þeirra selzt af
18, sem á sýningunni eru, — auk þess eitt olíumálverk. Sýningin
ag, er opin daglega frá kl. 14—22.
SÖMU LISTAR I FRAMBOÐI
Það skal að lokum tekið
tekið fram að ekki var kraf-
izt ógildingar á framboðum.
Þess vegna eru sömu listar og
óbreyttir menn í framboði í
væntanlegri endurkosningu og
er ekki heimilt að bera fram
nýja lista, þar sem og fram-1
boðsfrestur er fyrir löngu út-
runninn.
Bolabrcgð ú Alþlngi
Framsóknarmenn sýna hu§ sinn
lil þétfbýlisins
IGÆRDAG kom hið alræmda frumvarp Framsóknarflokksins um
húsaleigulög enn til umræðu í Efri deild Alþingis. Kvöldfundi
var svo skotið á í gærkvöldi til að ræða málið, og er það annað
kvöldið sem þetta frumvarp er til umræðu í deildinni. Leggja
Framsóknarmenn undarlegt kapp á að þetta „ófrelsisfrumvarp"
nái fram að ganga og það svo, að Eysteinn Jónsson og Steingrímur
Steinþórsson lýstu því yfir að Efri deild væri ábyrg fyrir því að
þingi yrði ekki slitið fyrir páska ef mál þetta kæmi ekki til um-
ræðu þann dag (fimmtudag).
Skipstjórinn á Urannsi
dæmdnr í 74 jiíis. kr. sekt
SEINT í gærkvöldi féll dómur í máli Helga Kristjánssonar, skip-
stjóra á togaranum Úranusi, sem tekinn var fastur á mánudag
fyrir meint landhelgisbrot. Sakadómur taldi skipstjórann sekan og
dæmdi hann í 74 þús. kr. sekt. til Landhelgissjóðs. Afli og veiðarfæri
skipsins voru gerð upptæk.
MÆTTU EKKI
En þó þessi krafa haii fram
komið, lét hvcrki félagsmála-
ráðherra né flutningsmaður svo
lítið að mæta á kvöldfundinum,
svo að svara varð ræðum þeirra
að þeim fjarstöddum. Aðrir þing-
menn mættu og gerðu þannig
sitt til þess að ríkissjóður bæri
ekki aukin útgjöld sem leiða
mundu af því að þing stæði
fram yfir páska.
★ HÚSALEIGUMIÐSTÖÐ
Frumvarp þetta er mikill
lagabálkur. Það mælir m. a. svo
fyrir að heimilt skuli að stofna
„húsaleigumiðstöð“ er fái til ráð-
stöfunar allt leiguhúsnæði er til
fellur — og fá húseigendur litlu
um það ráðið hver Ieigjandi
þeirra verður eða hve ha leigan
er.
★ BOLABRÖGÐ
Tveir þingmenn Sjálístæðis-
flokksins þeir Bjarni Benedikts-
son, dómsmálaráðherra og Gísli
Jónsson, hafa mjög deilt á þessi
fyrirmæli í lögunum, aðra agnúa
á lögunum svo og á þau bola-
brögð sem Framsóknarmenn hafa
beitt til þess að koma málinu
fram. Hefur Framsókn neitað að
ræða við Fasteignaeigendafélag-
ið, og neitað að láta sveitarstjórn
ir, sem búa eiga við lögin, segja
álit sitt á þeim og svo framvegis.
★ VERZLUN
Gísli Jónsson lýsti þvi einnig
yfir, að nú fyrst í lok þingtím-
ans legðu Framsóknarmenn
áherzlu á að málið yrði afgreitt.
Sér hefði þó sem forseta deildar-
innar skilist á Framsóknarmönn-
um að það væri engum vand-
kvæðum bundið að fá þessu máli
algjörlega frestað — EF UM
LEIÐ VÆRI SÆZT Á ANNAÐ
MÁL, SEM ER RÉTTLÆTIS-
MÁL OG KEMUR EKKI ÞESSU
MÁLI VIÐ. Kvaðst Gísli að sjálf-
sögðu ekki hafa orðið við þessari
beiðni um slík hrossakaup.
★ HVER ER MEININGIN?
Þannig er Ijóst, að Fram-
sóknarmenn telja þetta mál ekki
eins mikið þjóðhagsmál eins og
þeir nú við lok þingtímans vilja
vera láta, og þeir vilja nota þetta
mál til „verzlunar" í sambandi
við annað frumvarp, sem enn hef
ur ekki verið upplýst hvert er
— en ætla má að það se frum-
varpið um brunatryggingar í
Reykjavík, sem þeir vilja láta
Sambandið annast.
VID SNÆFELLSJOKUL
Málsatvik voru í stuttu má+i
þau, að flugvél frá Landhelgis-
gæzlunni var á flugi við Snæ-
fellsjökul skömmu eftir hádegi á
mánudag, þegar tveir gæzlumenn
í henni þóttust sjá að togari
nokkur væri að togi grunsamlega
nærri landi út af Svörtuloftum.
TVÆF. MÆLINGAR
Flugu þeir að togaranum, setn
reyndist vera Uranus frá Reykja-
vík og tóku tvær hornamælingar.
Þá fyrri tóku þeir kl. 12.40 og
reyndist togarinn samkvæmt
henni vera Vz sjómílu innan tak-
markalínu. Síðari mælingu tóku
þeir ellefu mínútum síðar eða kl
12.51 og reyndist togarinn ssm
kvæmt henni rétt um takmarka-
línuna. En á tímanum milli mæl-
inga hafði skipið togað frá landi
og því f jarlægzt það nokkuð, eins
og mælingarnar og báru með sér.
SKIPSTJÓRi: NEITAR
Helgi skipstjóri neitaði alger-
lega sekt. Hann taldi sig hafa
verið 4,2 sjómílur frá landi, eð.a
0,2 sjómílur utan takmarkalínu.
Kvaðst hann hafa mælt þetta á
ratsjá og staðfesti loftskeytamað
ur skipsins þann framburð.
Þá komu þrír aðrir togaraskip-
stjórar af Ingólfi Arnarsyni, Þor
steini Ingólfssyni og Gylfa fyrii
rétt. Höfðu þeir verið að veiðurj
þar skammt frá. Kváðust þeii
hafa litið á ratsjár skipa sinna
urh þetta leyti. Hafði þeim sýnzt,
að Úranus hefði verið utan land
helgi, en ekki höfðu þeir þó fram-
kvæmt neinar mælingar.
NIÐURSTAÐA DÓMS
Þetta var ekki talið hnekkj)
framburði og mælingum land-
helgisvarðanna og taldi dómiu
skipstjórann sekan. í sakadómi
áttu. sæti auk Valdimars Stefáns-
sonar sakadómara, meðdóms-
mennirnir Jónas Jónasson og
Pétur Björnsson skipstjórar.
Skipstjóri ákvað þegar að
áfrýja málinu til Hæstaréttar.
Vegna skrifa sem birzt hafa urr
þetta mál ritar forstjóri land-
helgisgæzlunnar greinargerð um
það á blaðsíðu 2.
a fopm um
lífeyrissjéð ríkis- ,
í GÆR var afgreitt sem lög frá
Alþingi frumvarp um breyting á
lögum um lífeyrissjóð starfs-
manna ríkisins. Var frumvarp
þetta samið af stjórn lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins og flutt að
tilmælum hennar.
í lögum þessum eru sett ótví-
ræð ákvæði um að sjóðfélagi
sem greitt hefur iðgjöld í 30 ár
og öðlast þannig hámarksrétt-
indi, skuli hætta greiðslum til
sjóðsins. En þessari iðgjalda-
greiðslu getur sjóðfélagi hafa
lokið þó nokkrum árum áður en
hann, samkvæmt lögum, hættir
starfi og fer á eftirlaun.
Þá eru og ákvæði um að eng-
inn komíst á eftirlaun fyrr en
hann hefur náð 65 ára aldri —
þrátt fyrir 95 ára ákvæði lag-
anna (samanlagður aldur og
starfsaldur starfsmanns).
Skákeinvígið
KBISTNES
Wt..wm...mt'Q.m .
VÍFIUSSTAÐIR
6. leikur Kristness:
Bc5—b4f