Morgunblaðið - 09.04.1954, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 09.04.1954, Qupperneq 16
Veðurúllif í dag: SV hvassviðri og rigning. Góðar ferskur Sjá grein á blaðsíða 9. 83. tbl. — Föstudagur 9. apríl 1954. Kópavogskosnfingin ógild vegna þess að Minneapolis atkvæðin gótu ráðið árslitum í henn/i Sömu listarnir óbreyttir I kjöri í endurkosningu Fré sýningu Jéhannesar Jéfgannessonar HREPPSNEFNDARKOSNINGARNAR í Kópavogshreppi, sem fram fóru hinn 14. fehrúar s.I. hafa verið ógiltar. Ástæða til l>ess er að við utankjörstaða atkvæðagreiðslu í Minneapolis eyði- lagði ræðismaður íslands þar í borg með mistökum tvo atkvæða- •seðla, sem gátu haft áhrif á úrslit kosningarinnar, um það hvort Alþýðuflokkurinn eða Framsókn fengi hreppsnefndarfulltrúa kjör- inn. Samkvæmt þessu er Kópavogshreppur nú stjórnlaus og allar aðgerðir „hreppsnefndar" síðan 14. febrúar lögleysur, sem ekkert gildi hafa. Ætla vandræðin seint af hreppsbúum að ganga. Fyrst var kosningaundirbúningur ógiltur fyrir lögleysur og einstreng- ingshátt hreppsnefndaroddvitans og síðan kosning ógild fyrir mis- tök ræðismanns íslands í 9000 km fjarlægð frá Kópavogshreppi. Fað er aðeins kosningin sjálf sem er ógilt. Framboð hefur ekki verið ógilt. Er litið svo á að framboðsfrestur sé útrunninn og gerir það að verkum að t. d. Alþýðuflokkurinn getur ekki borið fram tvo lista í væntanlegri endurkosningu. Niðurstaða kosninganna varð sú að A-listi — Alþýðuflokksins hlaut 130 atkvæði og engar. mann kjörinn. B-listi — Framsóknar- flokksins hlaut 131 atkvæði og 1 mann kjörinn, D-listi — Sjálf- stæðisflokksins hlaut 238 atkv. «g 1 mann kjörinn og G-listi kommúnista hlaut 475 atkv. og 3 menn kjörna. FYLGIBRÉF URÐU VIÐSKILA Ágreiningur varð um nokkur atkvæði. Hér verður þeirra ekki getið nema tveggja atkvæðaseðla, er borizt höfðu frá Minneapolis i Bandaríkjiunum en fylgibréf seðlanna höfðu orðið viðskila við sjálfa kjörseðlana, að því er í kæru var talið fyrir vangá stjórn- valda. Yfirkjörstjórn Kópavogs- hrepps úrskurðaði atkvæðaseðla þessa ógilda vegna þess að fylgi- bréfin höfðu verið rifin írá. Sá úrskurður yfirkjörstjórnar var kærður áfram til hrepps- nefndar sem haggaði honum þó ckki, að atkvæðin tvö skyldu teljast ógild. ÁFRÝJAÐ TIL ODDVITA SÝSLUNEFNDAR Þann 19. marz s. 1. var úr- skurði hreppsnefndar enn áfryj- að til oddvita sýslunefndar Kjós- arsýslu og var þess krafizt að hreppsnefndarkjörið í heild yrði metið ógilt vegna mistaka opin- berra aðilja. Hinn reglulegi oddviti sýslu- nefndar Guðmundur í. Guð- mundsson vék sæti í máli þessu, bæði vegna afskipta sinna af undirbúningi hinna umdeildu kosninga, svo og af kosningunni sjálfri vegna stuðnings við A- listann. Var Sigurgeir ón.sson lögfræðingur settur til þess sem sýslumaður Kjósarsýslu að taka sæti sem oddviti sýslunefndar Kjósarsýslu. RÆÐISMAÐURINN REIF FFLGIBRÉF AF í úrskurði Sigurgeirs, sem kveðinn var upp í gær segii m. a. frá því að atkvæðaseðlarnir tveir frá Minneapolis voru frá tveimur kjósendum í hreppnum, þeim Sigríði Lútersdóttur og Sveini Þórðarsyni. Hefur það upplýstst, að þau greiddu atkvæði hjá kjórræðis | manni íslands í Minneapolis. ! Eftir að þau greiddu atkvæði og eftir að fylgibréfin voru t undirrituð reif ræðismaðurinn ; sjálfur atkvæðin frá fylgi- bréfunum. Hann setti atkvæð- 1 in í umslag, en fylgibréfin | lentu utan umslaganna og nöfn kjósenda voru ekki rituð t á umslögin. Samkvæmt þessum upplýsing- um er það ljóst að ræðismaður- inn í Minneapolis hefur sjálfur eyilagt atkvæðin með framan- greindum athöfnum sínum, sem eru gagnstætt lögum. GAT RÁÐIÐ ÚRSLITUM Nú liggur það fyrir í mál- inu, að B-listi var úrsKurðað- ur hafa fengið einn mann kjör inn með eins atkvæðis mun fram yfir A-lista. Utankjör- fundaratkvæðin sem ræðis- maðurinn í Minneapolis eyði- lagði, gáte þtrí rá®S órslitum um það, hvwrt Br Sfciti eða A- listi fengií raanm kjorinn í hreppsnefmf Kíipasvagshrepps í kosningnHjmu Fullupptý.í+i (£E; as£g>xir i úrskurð- inum, að þsffi *aar- Wnm opinberi trúnaðarmaðwr., sgm eyðilagði atkvæði þeaal, erada verður sú krafa ekki g.+f»fS ttt kjösenda í slíku tilfeIK„ affi þeir gac-ti þess, að kjörstjóraa: friaisji esdd lög- leysur við feaHrniiiijgaat&öin. At- kvæði þessií ®3e8ki hafa verið greidd A-lisfcsajiissa ®g hefði hann, ef svo hefði ’Starii® Motlð mann kjörinn í lista. hrepcssBefnd í stað KOSNING ÓGBf.O Gallar þessr verða því að teljast þess eötíg, a3 þeir geti ráðið úrslitum om hvor list- anna A eða B næði kosningu og þykir því verða að ógilda hreppsnefndarkosningarnar í Kópavogshreppi og ber endurtaka kosningarnar. GÓÐ aðsókn hefur verið að málverkasýningu Jóhannesar Jóhann- essonar í Listvinasalnum, sem opnuð var um síðustu helgi. Vegg- skálarnar hafa vakið mikla athygli og hafa þegar 8 þeirra selzt af 18, sem á sýningunni eru, — auk þess eitt olíumálverk. Sýningin ag, er opin daglega frá kl. 14—22. SÖMU LISTAR I FRAMBOÐI Það skal að lokum tekið tekið fram að ekki var kraf- izt ógildingar á framboðum. Þess vegna eru sömu listar og óbreyttir menn í framboði í væntanlegri endurkosningu og er ekki heimilt að bera fram nýja lista, þar sem og fram-1 boðsfrestur er fyrir löngu út- runninn. Bolabrcgð ú Alþlngi Framsóknarmenn sýna hu§ sinn lil þétfbýlisins IGÆRDAG kom hið alræmda frumvarp Framsóknarflokksins um húsaleigulög enn til umræðu í Efri deild Alþingis. Kvöldfundi var svo skotið á í gærkvöldi til að ræða málið, og er það annað kvöldið sem þetta frumvarp er til umræðu í deildinni. Leggja Framsóknarmenn undarlegt kapp á að þetta „ófrelsisfrumvarp" nái fram að ganga og það svo, að Eysteinn Jónsson og Steingrímur Steinþórsson lýstu því yfir að Efri deild væri ábyrg fyrir því að þingi yrði ekki slitið fyrir páska ef mál þetta kæmi ekki til um- ræðu þann dag (fimmtudag). Skipstjórinn á Urannsi dæmdnr í 74 jiíis. kr. sekt SEINT í gærkvöldi féll dómur í máli Helga Kristjánssonar, skip- stjóra á togaranum Úranusi, sem tekinn var fastur á mánudag fyrir meint landhelgisbrot. Sakadómur taldi skipstjórann sekan og dæmdi hann í 74 þús. kr. sekt. til Landhelgissjóðs. Afli og veiðarfæri skipsins voru gerð upptæk. MÆTTU EKKI En þó þessi krafa haii fram komið, lét hvcrki félagsmála- ráðherra né flutningsmaður svo lítið að mæta á kvöldfundinum, svo að svara varð ræðum þeirra að þeim fjarstöddum. Aðrir þing- menn mættu og gerðu þannig sitt til þess að ríkissjóður bæri ekki aukin útgjöld sem leiða mundu af því að þing stæði fram yfir páska. ★ HÚSALEIGUMIÐSTÖÐ Frumvarp þetta er mikill lagabálkur. Það mælir m. a. svo fyrir að heimilt skuli að stofna „húsaleigumiðstöð“ er fái til ráð- stöfunar allt leiguhúsnæði er til fellur — og fá húseigendur litlu um það ráðið hver Ieigjandi þeirra verður eða hve ha leigan er. ★ BOLABRÖGÐ Tveir þingmenn Sjálístæðis- flokksins þeir Bjarni Benedikts- son, dómsmálaráðherra og Gísli Jónsson, hafa mjög deilt á þessi fyrirmæli í lögunum, aðra agnúa á lögunum svo og á þau bola- brögð sem Framsóknarmenn hafa beitt til þess að koma málinu fram. Hefur Framsókn neitað að ræða við Fasteignaeigendafélag- ið, og neitað að láta sveitarstjórn ir, sem búa eiga við lögin, segja álit sitt á þeim og svo framvegis. ★ VERZLUN Gísli Jónsson lýsti þvi einnig yfir, að nú fyrst í lok þingtím- ans legðu Framsóknarmenn áherzlu á að málið yrði afgreitt. Sér hefði þó sem forseta deildar- innar skilist á Framsóknarmönn- um að það væri engum vand- kvæðum bundið að fá þessu máli algjörlega frestað — EF UM LEIÐ VÆRI SÆZT Á ANNAÐ MÁL, SEM ER RÉTTLÆTIS- MÁL OG KEMUR EKKI ÞESSU MÁLI VIÐ. Kvaðst Gísli að sjálf- sögðu ekki hafa orðið við þessari beiðni um slík hrossakaup. ★ HVER ER MEININGIN? Þannig er Ijóst, að Fram- sóknarmenn telja þetta mál ekki eins mikið þjóðhagsmál eins og þeir nú við lok þingtímans vilja vera láta, og þeir vilja nota þetta mál til „verzlunar" í sambandi við annað frumvarp, sem enn hef ur ekki verið upplýst hvert er — en ætla má að það se frum- varpið um brunatryggingar í Reykjavík, sem þeir vilja láta Sambandið annast. VID SNÆFELLSJOKUL Málsatvik voru í stuttu má+i þau, að flugvél frá Landhelgis- gæzlunni var á flugi við Snæ- fellsjökul skömmu eftir hádegi á mánudag, þegar tveir gæzlumenn í henni þóttust sjá að togari nokkur væri að togi grunsamlega nærri landi út af Svörtuloftum. TVÆF. MÆLINGAR Flugu þeir að togaranum, setn reyndist vera Uranus frá Reykja- vík og tóku tvær hornamælingar. Þá fyrri tóku þeir kl. 12.40 og reyndist togarinn samkvæmt henni vera Vz sjómílu innan tak- markalínu. Síðari mælingu tóku þeir ellefu mínútum síðar eða kl 12.51 og reyndist togarinn ssm kvæmt henni rétt um takmarka- línuna. En á tímanum milli mæl- inga hafði skipið togað frá landi og því f jarlægzt það nokkuð, eins og mælingarnar og báru með sér. SKIPSTJÓRi: NEITAR Helgi skipstjóri neitaði alger- lega sekt. Hann taldi sig hafa verið 4,2 sjómílur frá landi, eð.a 0,2 sjómílur utan takmarkalínu. Kvaðst hann hafa mælt þetta á ratsjá og staðfesti loftskeytamað ur skipsins þann framburð. Þá komu þrír aðrir togaraskip- stjórar af Ingólfi Arnarsyni, Þor steini Ingólfssyni og Gylfa fyrii rétt. Höfðu þeir verið að veiðurj þar skammt frá. Kváðust þeii hafa litið á ratsjár skipa sinna urh þetta leyti. Hafði þeim sýnzt, að Úranus hefði verið utan land helgi, en ekki höfðu þeir þó fram- kvæmt neinar mælingar. NIÐURSTAÐA DÓMS Þetta var ekki talið hnekkj) framburði og mælingum land- helgisvarðanna og taldi dómiu skipstjórann sekan. í sakadómi áttu. sæti auk Valdimars Stefáns- sonar sakadómara, meðdóms- mennirnir Jónas Jónasson og Pétur Björnsson skipstjórar. Skipstjóri ákvað þegar að áfrýja málinu til Hæstaréttar. Vegna skrifa sem birzt hafa urr þetta mál ritar forstjóri land- helgisgæzlunnar greinargerð um það á blaðsíðu 2. a fopm um lífeyrissjéð ríkis- , í GÆR var afgreitt sem lög frá Alþingi frumvarp um breyting á lögum um lífeyrissjóð starfs- manna ríkisins. Var frumvarp þetta samið af stjórn lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og flutt að tilmælum hennar. í lögum þessum eru sett ótví- ræð ákvæði um að sjóðfélagi sem greitt hefur iðgjöld í 30 ár og öðlast þannig hámarksrétt- indi, skuli hætta greiðslum til sjóðsins. En þessari iðgjalda- greiðslu getur sjóðfélagi hafa lokið þó nokkrum árum áður en hann, samkvæmt lögum, hættir starfi og fer á eftirlaun. Þá eru og ákvæði um að eng- inn komíst á eftirlaun fyrr en hann hefur náð 65 ára aldri — þrátt fyrir 95 ára ákvæði lag- anna (samanlagður aldur og starfsaldur starfsmanns). Skákeinvígið KBISTNES Wt..wm...mt'Q.m . VÍFIUSSTAÐIR 6. leikur Kristness: Bc5—b4f

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.