Morgunblaðið - 09.04.1954, Qupperneq 8
8
Föstudagur 9 apríl 1954
MORGVNULAÐIÐ
Ot*.: H.f. Árvakur, Reykjavflc.
Framkv.stj.: Sigfúa Jónsson.
Ritstjdrl: Valtýr Stefánaaon (ábyrgðarm.)
Stjórmnálaritatjóri: Sigurður Bjarnasou frá Vigur.
Lcabók: Árni óla, aimi 8043.
Auglýsingar: Árni GarSar Kriatinason.
Rltstjóm, auglýsingar og afgreiCsla:
Áuaturstræti 8. — Simi 1600
Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands.
1 lauaasölu 1 krónu eintakUJ.
WC —^i £
5
ÚR DAGLEGA LÍFINU
i
Kommar í klípu
KOMMUNISTAR eru í mikilli
klípu um þessar mundir. Ber
þar margt til. Fyrst er það, að
þeir eru nú orðnir ákaflega
hræddir við baráttu sína gegn
virkjun Sogs og Laxár fyrir
Marshallfé. Reyna þeir nú að láta
líta svo út að þeir hafi jafnan
haft geysilegan áhuga fyrir virkj-
un Efra Sogs. Lætur blað þeirra
jafnvel liggja að“ því í gær, að
frumvarp ríkisstjórnarinnar um
þessa virkjun sé árangur af bar-
áttu Einars Olgeirssonar.
Mikil er oftrú kommúnista
á einfeldni Islendinga. Leið-
togar kommúnista hafa barizt
eins og ljón gegn virkjun íra-
foss, sem nú framleiðir 31 þús.
kw. raforku handa Reykvík-
ingum, áburðarverksmiðjunni
og sveitum, kaúpstöðum og
kauptúnum Suðvesturlands.
Þeir hafa brennimerkt þá
menn sem „landsölumenn“ og
„Ameríkuagenta“ sem béittu
sér fyrir þátttöku íslands í
efnahagssamstarfi hinna vest-
rænu þjóða. En einmitt það
gerði virkjun írafoss mögu-
lega.
Svo þykjast kommúnistar hafa
haft einhverja forgöngu um und-
irbúninginn að virkjun Efra
Sogs!!
Ollu aumlegri blekking hefur
varla sést á prenti,
En kommúnistablaðið er líka
guggið vegna vaxandi fylgis ís-
lendinga við varnarsamtök hinna
vestrænu lýðræðisþjóða. Fyrir
skömmu reyndi það, að gera sér
mat úr, að hvorki Danir né Norð-
menn hefðu talið nauðsyn á að
bandarískur her væri í landi
þeirra á friðartímum.
Hér í blaðinu var þá á það
bent, að bæði Norðmenn og Danir
ættu sinn eiginn landher, flota og
flugher. Þeir hefðú sjálfir byggt
bækistöðvar fyrir landvarnir sín-
ar, að vísu með amerískri efna-
hagsaðstoð.
Islendingar hefðu hinsvegar
engar landvarnir og ættu engan
her og myndu ekki eignast hann.
Það væri því engin furða þótt
þeir þyrftu frekar á erlendu
varnarliði að halda í landi sínu
en frændur þeirra á Norðurlönd-
um. ,
í *
I gær spyr svo kommunista-
blaðið að því, hvort Morgunblað- 1
ið telji að líkur séu á því, að
gerð verði rússnesk árás á ísland,
án þess að snert verði við Noregi
og Danmörku, sem bæði „hafa
hafnað bandarísku hernámi".
Þessi fyrirspurn kommúnista-
blaðsins er gersamlega út í hött.
Bæði Norðmenn og Danir hafa, (
eins og áður er sagt sína eigin
heri. Og samkvæmt Atlantshafs- J
sáttmálanum jafngilti árás á þau
árás á önnur riki varnarbanda-
lags lýðræðisþjóðanna. Um leið
og rússnesk árás væri talin yfir-
vofandi á þessi lönd myndu þau
fá liðstyrk, annaðhvort frá Banda
ríkjunum eða öðrum stórveldum
varnarsamtakanna.
Rússnesk árás á íslandi væri
einnig sama sem árás á Noreg og
Danmörku, samkvæmt ákvæðum
fyrrgreinds sáttmála.
Allt bendir hinsvegar til þess,
að ef svo hörmulega til tækist að
Rússar hæfu nýja heimsstyrjöld
þá myndu Norðurlönd verða fyrr
fyfir árás þeirra en ísland.
Að sjálfsögðu myndi hið ör-
fámenna varnarlið, sem nú dvel-
ur hér á landi hrökkva skammt
til þess að hindra vel undirbúna
stórárás á Island. En áður en til
slíkrar árásar kæmi hefði áreið-
anlega margt gerst og tóm gefizt
til þess að efla varnir landsins
frekar.
★
Um afstöðu kommúnista til
hlutleysisins þarf ekki margt
að segja. Þeir kröfðust þess að
ísland væri hlutlaust meðan
. það var Rússum í hag og þeir
' voru í bandalagi við nazista.
Þegar Rússar voru komnir í
síðustu styrjöld kröfðust
kommistar þess að Islendingar
I segðu Japönum og Þjóðverj-
um strið á hendur.
Nú þcgar árásarhættan staf-
ar frá Rússlandi krefjast
kommúnistar á ný að ísland
sé hlutlaust!!
Við slíka vindhana er naum
ast hægt að röliræða. Þeir hafa
enga sjálfstæða skoðun. Þeir
, sjálfir og blað þeirra er fjar-
stýrt. Því er ekki stjórnað í
I Reykjavík heldur í Moskvu.
Þetta skilur íslenzka þjóðin.
Þessvegna hrynur fylgið stöð-
ugt af kommúnistum á íslandi.
Hver sagSi þaðl
HVAÐA flokkur var það, sem
snerist gegn tillögum Jóns Þor-
lákssonar og Jóns á Rc-ynistað
fyrir 25 árum um rafvæðingu
sveitanna?
Það var Framsóknarílokkur-
Hvaða stjórnmálamaður mælti
þá þessi orð: „Og hvar á að út-
vega ríkinu alla þá peninga, all-
ar þær milljónir, sem borga þarf
fyrir virkjanir á ýmsum stöðum,
og langar og dýrar leiðsxur um
strjálbýlar sveitir landsins?“
Og hvaða flokksleiðtogi komst
að orði á þessa leið um þá menn,
sem vildu hagnýta fossaflið á ís-
landi til almenningsnota. „Þeir
munu fúsir til þess að leggja út
í svona fyrirtæki, sem er hrein-
asta hallærisráðstöfun fyrir allar
stéttir þjóðfélagsins‘“.
Tíminn segir í gær að Morg-
unblaðið hafi skrökvað þessum
ummælum upp á Tryggva heit-
inn Þórhallsson.
Þetta er mesti misskhningur
hjá Tímanum. Mbl. hefur aldrei
eignað hinum látna stjórnmála-
manni þessi orð. Þau eru tekin
upp úr ræðum Jónasar Jónsson-
ar á Alþingi í umræðunum um
frumvarp Sjálfstæðismanna. Jón-
as Jónsson var þá aðallleiðtogi
Framsóknarflokksins og lang-
samlega þróttmesti og mikilhæf-
asti þingmaður hans. Hann var
jafnframt dómsmálaráðherra og
mótaði í öllu stefnu flokks síns.
★
Það fór líka þannig að flokk-
urinn tók rækilega undir orð
hans og notaði stjórnaraðstöðu
sína til þess að drepa raforku-
tillögur Jóns Þorlákssonar og
Jóns á Reynistað.
Þessi afstaða Framsóknar-
flokksins árið 1929 var held-
ur ekkert stundarfyrirbrigði.
Árið 1931, tveimur árum síð-
ar, sagði Tíminn, að frumvarp
um fyrstu virkjun Sogsins
væri „samsæri andstæðinga
Framsóknarflokksins“. Það er
von að Tíminn harmi þessi
orð nú.
★ Ekki sorglegt og
ekkert tjón
Ungverskur skólakennari bað
nemendur sína að setja saman
setningu, hverrar meining væri
mikið áfall eða reiðarslag.
Fyrsti drengurinn svaraði:
„Amma mín dó í s.l. viku“. —
„Það var sorglegt", sagði kenn-
arinn, „en áfall né reiðarslag var
það ekki“.
Næsti drengur svaraði: „Pabbi
setti útvarpið niður og braut
það“. — „Það var mikið tjón
fyrir hann, en reiðarslag var það
ekki“, sagði kennarinn.
Þá var komið að Moricz litla.
Hann svaraði: „Stalín lézt á s.l.
ári“. — „Alveg rétt“, sagði kenn-
arinn himinlifandi. „En hvernig
datt þér þessi setning í hug?“
„Jú-ú“, sagði Moricz. „Það var
ekki sorglegt, og það varð ekkert
tjón — svo það hlaut eiginlega
að vera áfall eða reiðarslag“.
^JJrimaeb
nnc^etefaix
■k 3000 tungumál
Samkvæmt skýrslu frá UNES-
CO-stofnuninni eru í dag töluð
í heiminum rúmlega 3000 tungu-
mál. Af 13 höfuðtungumálunum
er kínverska töluð af flestum
eða rúmlega 450 millj. manna,
þá kemur enska sem töluð er af
um 250 millj. manna, þriðja í
röðinni af tungumálunum er
Hindu-Urdu, sem 160 millj.
manna tala og fjórða í röðinni
er rússneska, sem töluð er af 140
millj. manna.
★ Hægar sagt en gert
Svisslendingar horfast í augu
við ýmis stór vandamál í sam-
bandi við Genfarráðstefnuna,
sem erfitt verður að leysa. Sendi-
XJeluaLanái ókriiar:
K
Ferðamálafélaginu
þakkað.
ÆRI Velvakandi!
Ég vildi biðja þig að koma
á framfæri þakklæti mínu til
Ferðamálafélags Reykjavíkur
fyrir gott byrjunarstarf í sam-
bandi við að fá lagfært það
ófremdarástand, sem er í matsölu
málum okkar. Blaðasamtalið, sem
birtist hér í blaðinu á dögunum
var ágætt, hvert orð var satt og
í tíma talað. Ef dæma á okkur
eftir þeim mat, sem fæst hér á
veitingahúsum, þá verður matið
á okkur ekki hátt miðað við aðr-
ar menningarþjóðir. Eitt skulum
við þó hafa hugfast, að ekki eiga
veitingamenn hér einir sökina.
Hér er fyrst og fremst um að
kenna sjálfu ríkisvaldinu — það
virðist engan skilning hafa á þess
um málum, ef til vill vegna þess,
að of fáir háttvirtir þingmenn
hafa gifst menningarþjóðir, sem
nálægt okkur búa.
Verða að rétta úr sér.
VIÐ erum menningarþjóð, um
það má ekki efast, en til að
heilbrigð menning geti þrifizt
verða nauðsynleg skilyrði til þess
að vera fyrir hendi í landinu.
Þröngsýnir menn, hvort sem um
meðferð áfengis eða veitinga-
húsmenningu er að ræða, mega
ekki fá tækifæri til að ráða of
miklu í landinu, menn verða að
rétta úr sér og læra að hugsa á
heimsins hátt. Ég fagna stofnun
Ferðamálafélagsins og vona, að
innan þess verði formaðurinn,
Agnar Hansen, jafn farsæll í
störfum sínum og í flugmálum
okkar, þannig að vænta megi úr-
bóta á óviðunandi ástandi í
veitinga- og gistihúsamálum okk-
ar.
Ferðamálafélagsmenn, haldið
áfram á þeirri braut, sem þið haf-
ið farið inn á, bendið á gallana og
gerið tillögur til bóta. — Fólkið
í landinu stendur að baki ykkar.
— Áhugamaður um menningar-
mál.“
Ónærgætni gagnvart
sjúklingum.
SJÚKLINGUR hefir ritað mér
eftirfarandi bréf:
„Kæri Velvakandi!
Ég hefi verið sjúklingur í 15
ár. Oft hefir mér sárnað hve þeir
sem heilbrigðir eru geta verið
skilningslausir og ónærgætnir í
garð þeirra sjúku, hvernig þeir
jafnvel svívirða okkur, sem höf-
um orðið undir í lífinu.
Enginn heilbrigður maður get-
ur fyllilega gert sér grein fyrir
öllum þeim erfiðleikum, sem við
verðum að ganga í gegnum. Hver
íhugar það t. d. hvílík fátækt
rennur í kjölfar veikinda. Ég hefi
enga vinnu getað fengið um langt
skeið en á hverjum mánuði fáum
við 530 kr. örorkustyrk. Það er
öll sú fjárhæð, sem við verðum
að lifa á, greiða með húsnæði,
fæði, þjónustu og klæðnað.
Hraktist burt.
EG HEFI gert margar tilraunir
til að fá mér vinnu, og tókst
mér það fyrir nokkrum árum. Ég
reyndi að vinna starf mitt eftir
beztu getu. Vinnuveitandinn var
mér velviljaður, en þá *bárust
spjótin á mig úr annarri átt, þ. e.
a. s. frá starfsfólki stofnunarinn-
ar. Það fór í stuttu máli þannig,
að ég kraktist úr starfinu fyrir
tillitsleysi og hrottaskap sam-
starfsfólks míns — ég hefi enga
vinnu fengið síðan.
Mig langar til, Velvakandi
minn, að beina þeim tilmælum
til fólks, að það temji sér meiri
nærgætni og kurteisari fram-
komu gagnvart sjúku fólki — það
á við nóg að stríða samt.
— Sjúklingur."
Snarræði.
PRESTUR kom einu sinni að bæ
til manns, sem grunaður var
um sauðaþjófnað, og vildi svo
til að mörk þeirra voru eins að
því undanskildu, að prestur hafði
bita fram yfir. Presti var tekið
svo vel sem föng voru á, og voru
borin fyrir hann svið meðal ann-
ars. Markið var á sviðunum og
tók prestur eftir því. „Er ekki
þetta biti, Jón minn?“ sagði hann
við bónda um leið og hann skar
eyrað af, en bóndi þreif eyrað af
presti, stakk því upp í sig og át
það og sagði um leið: „Það er
ekki biti, og ekki hálfur biti“.
Ávíta hinn
vitra og hann
mun elska þig.
nefndir Rússa, Kínverja og Norð-
ur-Kóreumanna hafa hver um
sig pantað 1. flokks hótel til ráð-
stöfunar AUK húsnæðis fyrir
skrifstofur.
I Genf eru aðeins 5 hótel, sem
gætu gengt þessu hlutverki, og
það er erfitt „í lýðræðislandi“,
sagði fulltrúi svissnesku ríkis*
stjórnarinnar í Genfarráðstefnu-
málum, „að hótelin afturkalli öll
j loforð sem þau hafá gefið við-
skiptavinum um húsnæði á þess-
um tima — aðeins vegna þess að
3 þjóðir æskja þess“.
1 Fulltrúinn skýrði svo frá að
sjá þyrfti 3000 fulltrúum frá 21
þjóð fyrir húsnæði, ásamt um
1000 blaðamönnum. Kína mætir
á ráðstefnunni með að minnsta
kosti 200 fulltrúa, Rússland með
150. Búist er við að Frakkarnir
verði að búa handan landamær-
anna í frönsku Divonne, og að
hótel í Lausannes verði einnig
tekin í þjónustu Genfarráðstefn-
unnar.
★ Hvernig maður verður
gamall
Glaður í bragði skyldi maður
vera og ekki sístynjandi yfir
dagsins vandamálum. — Þannig
| hljóðar upskrift Titos marskálks
um það, hvernig maður eigi að
ná háum aldri. Ráð þessi gaf
. hann nokkrum erlendum blaða-
mönnum nýlega, er þeir spurðu
j hann hvað hann myndi gera til
þess að verða gamall.
j Tito er nú 61 árs. Hann heldur
líkama sínum stæltum með því
að stunda veiðar. Til þeirra
hverfur hann af og til — einn til
tvo daga í senn. Og á meðan ber-
ast kviksögurnar um að hann sé
' sjúkur og að dauða kominn.
j Aðrar lífsreglur hans eru:
borðið lítið og drekkið lítið —
að tyrknesku kaffi undanskildu
— og iðkið morgunleikfimi.
Á tveimur s.l. árum hefur Tito
skorið vindlinganeyzlu sína nið-
ur úr 60 á dag í 25 — og það
verður að viðurkenna að hann
lítur vel út nú. Hann hló að
spurningu blaðamanns um það
hvort satt væri að hann hefði
fengið_ aðkenningu að slagi á s.l.
ári. „í öllu falli segja læknar
mínir mér, að hjarta mitt sé
sterkara en þeirra“, sagði Tito.
Tito bragðar vín aðeins er
hann á vetrarmorgnum fer til
villisvínaveiða. Þá hefur hann
flösku af Rajika — „blóma-
koníak“ — í vasanum. Svo steik-
ir hann svínsflesk við opinn eld
— það bragðast vel með Rajika.
★ Faldir hljóðnemar
Fulltrúar Vesturveldanna á
Genfarráðstefnunni munu hafa
meðferðis „stálleitartæki“. Þetta
er gert vegna þess, að brezku
fulltrúarnir á Berlinarfundinum
fundu með slíku tæki 6 falda
hljóðnema í herbergjum sínum.
Nú skal koma í veg fyrir að þetta
bragð kunni að verða leikið aft-
ur. —
★ Karlmenn móttækilegri
fyrir kvef en kvenfólk
RANNSÓKNIR á heilsufari al-
mennings, sem hefur staðið yfir
í eitt ár í Danmörku er nú lok-
(ið. Safnað hefur verið upplýsing-
um um heilsufar og tilraunir
gerðar á 30 þús. manns og tekið
hefur verið tillit til tveggja síð-
ustu ára. Aðal kvilli þessa fólks
á síðastl. ári hafði verið kvef-
sótt, og virtust karlmennirnir
hafa verið mótttækilegri fyrir
það en konur. Þannig að 25%
karlmannanna hafði þjáðst af
lángvarandi kvefi en aðeins 15%
kvennanna. Næst algengasti
sjúkdómur meðal karlmannanna
var maga- og þarrpasýki en hjá
konum gigt og ofreynsla á vöðv-
um.