Morgunblaðið - 09.04.1954, Síða 12
12
MORGVNBLAÐIÐ
Föstudagur 9. apríl 1954
Erfiðlega gengur að fá 4s
Frá aSalfundi Skógræktarfé!. Hainarf jarðar
Hafnarfirði, 8. apríl.
AÐALFUNDUR Skógræktarfélags Hafnarfjarðar var haldinn 30.
marz s.l. í Sjálfstæðishúsinu. — Formaður flutti skýrslu stjórn-
arinnar, og gat þess m. a., að erfiðlega hefði gengið að fá fólk til
útplöntunar á síðastliðnu vori. — Þá skýrði hann frá því, að Noregs-
for skógræktarfólks væri fyrirhuguð á þessu sumri, og væru þrír
umsækjendur á vegum Skógræktarfélags Hafnarfjarðar.
GENGUR ERFIÐLEGA
AÐ FÁ JÖRÐINA ÁS
Formaður vakti máls á því
hvernig gengi fyrir félagið að fá
aukið landrými til skógræktunar.
Sagði hann, að jörðin As, sem
félagið hefði haft augastað á til
ræktunar, og það hefði lagt fyrir
löngu drög á að fá, þegar það
losnaði úr ábúð, fengist nú ekki
nema að litlu leyti, með því að
Verið væri að leigja jörðina aftur
til ábúðar. — Á fundinum voru
lesin upp bréf, sem höfðu verið
skrifuð til landbúnaðarráðuneyt-
isins svo og bæjarstjórnar Hafn-,
arfjarðar, en þau hefðu ekki bor-
íð tilætlaðan árangur.
HARMAR FRAMKOMU FYRRV.
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA
Á fundinum kom fram mjög
eindreginn stuðningur við gerðir
félagsstjórnar í máli þessu, og
voru eftirfarandi ályktanir sam-
þykktar einróma:
„Aðalfundur Skógræktarfélags
Hafnarfjarðar haldinn 30. marz
1954, harmar framkomu fyrrver-
andi landbúnaðarráðherra, Her-
manns Jónassonar, gagnvart fé-
laginu við byggingu jarðarinnar
Ás í Garðahreppi, þar sem félag-
ið þó var búið að leggja drög
fyrir landinu áður en leiga til nú-
verandi ábúanda kom til greina,
og felur fulltrúum þeim, sem
kosnir voru til aðalfundar Skóg-
ræktarfélags íslands á sumri
komanda að hreyfa þessu máli
þar og fylgja því með festu.“
Enn fremur var samþykkt eft-
irfarandi tillaga:
„Aðalfundur Skógræktarfélags
Hafnarfjarðar haldinn 30. marz
11954, beinir þeirri áskorun til
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, að
neytt verði þess réttar, sem Hafn-
arfjarðarbær hefur til að eignast
útland jarðarinnar Ás í Garða-
hreppi. Að framgangi þessa máls
verði unnið af fullri festu nú
þegar.“
Þá voru reikningar félagsins
lesnir upp og samþykktir. Einnig
var lesinn upp reikningur skóg-
ræktarsjóðs systkinanna Ingi-
bjargar Kristmundsdóttur og
Gunnlaugs og Guðmundar Krist-
mundssona, og voru eignir hans
í árslok kr. 25.246.05. — Lögum
félagsins var breytt þannig, að
fjölga stjórnendum úr 5 í 7.
Úr stjórn áttu að ganga Þor-
valdur Árnason og Jón Gestur
Vigfússon. Baðst Þorvaldur und-
an endurkosningu. — í stjórnina
voru kosnir þeir Jón Gestur Vig-
fússon form., Pálmi Ágústsson, —
og samkvæmt lagabreytingunni
þeir Páll V. Daníelsson og Krist-
ján Símonarson. Aðrir í stjórn
eru Jón Magnússon, Ólafur Vil-
hjálmsson og Ingvar Gunnarsson.
— í varastjórn eru þeir Eiríkur
Björnsson, Guðmundur Gissurar-
son og Sigurjón Vilhjálmsson.
— G. E.
Dansh Bfdms veif
kýs frelsi
BERLÍN, 7. apríl. — Jafnaðar-
mannablaðinu Telegraf í Berlín
segist svo frá, að 18 manna aust-
ur-þýzk danshljómsveit hafi flú-
ið til Vestur-Berlínar s. 1. föstu-
dag. Hljómsveitarmenn höfðu
ekkert með sér nema hljóðfæri
sín.
Áður hafði Karl Walter, stjórn-
andi hljómsveitarinnar, flúið til
Vestur-Berlníar. Neituðu komm-
únistar honum um leyfi til að
stjórna hljómsveit sinni, af því
að hann hefði leikið „ofsafenginn,
amerískan djass.“
Giftsst og skilja
á sama degi
í DANMÖRKU horfir til stór-
vandræða, með skyndibrúðkaup
verkamanna, sem í hundraða tali
gera samninga við stúlkur um
að giftast þeim og skilja svo við
þær sama dag. Það sem liggur til
grundvallar þessum giftingum er
það, að giftir menn fá hærri laun
en ógiftir.
Verkamennirnir fullyrða að frá
því sé gengið formlega að stúlk-
urnar hafi ekki nein óþægindi af
þessum giftingum. í festum til-
fellum sé samkomulag um það að
skilja samdægurs. Eftir að „hjón-
in“ hafa borðað saman huggulega
máltíð, eftir giftinguna, og
kannske fengið sér eitt glas, fari
þau venjulega að ganga frá skiln
aðinum, og það fari í flestum til-
fellum mjög friðsamlega og vin-
gjarnlega fram, því að hvorugt
kæri sig um hitt, og aðalatriðið
er auðvitað að vera fráskilinn.
I nokkrum tilfellum hefur þetta
mistekist, þannig að konurnar
hafa ekki samþykkt skilnaðinn.
Höfðingleg gjöf
GRÍMUR JÓNSSON, fyrrver-
andi útgerðarmaður í Súðavík
við Isafjarðardjúp, og kona hans,
Þuríður Magnúsdóttir, sem nú
eru búsett . ú Reynimel 50 í
Reykjavík, hafa gefið 15 þúsund
krónur til kirkjubyggingar í
Súðavík.
Súðvíkingar eru fyrir löngu
hættir að sækja hina gömlu sókn
arkirkju sína að Eyri í Seyðis-
firði nema við hátíðleg tækifæri,
enda yfir langan sjóveg að fara.
Undanfarin ár hafa guðsþjónust-
ur í Súðavíkurþorpi farið fram í
samkomuhúsi, sem er eign Sjó-
manna- og verkalýðsfélags Álft-
firðinga, en eru nú fluttar í hinu
nýja skólahúsi staðarins, sem
vígt var og tekið til afnota um
miðjan s.l. febrúarmánuð. Þótt
þar sé vel að guðsþjónustum bú-
ið, þá er eigi að síður mikil þörf
á kirkju í Súðavíkurþorpi, sem
ætluð væri öllum íbúum Álfta-
fjarðar, en þeir voru 279 talsins
um s.l. áramót.
Súðvíkingar flytja þeim hjón-
um, Þuríði og Grími, innilegar
þakkir fyrir hina höfðinglegu
gjöf til kirkjubyggingarinnar. —
Vonandi verður hægt að efla
kirkjubyggingasjóðinn sem mest
á næstunni, svo að unnt reynist
að hefja byggingu kirkjunnar,
áður en mjög langt um liður.
Magnús Guðmundsson,
sóknarprestur í Ögurþingum.
FELAGSVIST
OG DAIV3S
í G. T.-húsinu
í kvöld kl. I,
stundvislcga.
GÖMLU OG NÝJU DANSARNIR
CARL BILLICH stjórnar hljómsveitinni.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8 — Sími 3355
Ath.: Komið suemma til að forðast þrengsli.
KARLAKORINN FOSTBRÆÐUR
Kvöldvaka
í Sjálfstæðishúsinu sunnud. 11. apríl kl. 9.
Gamanþættir, eftirhermur, gamanvísur, söngur o. fl.
Dansað til klukkan 1,
Aðgöngumiðar í Sjálfstæðishúsinu í dag klukkan
5—7. —Borð tekin frá um leið. — Pantanir í síma 2339.
Bezta skemmtun disins!
FYRIR nokkru útnefndi jap-
anska landbúnaðarráðuneytið 8
japanska búfræðinga, til þess að
fara til Danmerkur og fullnuma
sig í búfræði og mjólkurbússtörf-
um. Búfræðingarnir leggja af
stað 20. apríl, með skipi frá Jap-
an og munu dvelja eitt ár í Dan-
mörku.
Gömlu dansarnir
ðingm
SÍMÍ
í kvöld klukkan 9.
Stjórnandi Baldur Gunnarsson.
Hljómsveit Svavars Gests leikur.
Miðasala frá kl. 8.
Félag Þingeyinga í Reykjavík
heldur
kvöldvöku
í Sjálfstæðishúsinu í kvöld klukkan 8,30.
TIL SKEMMTUNAR:
Kvikmyndin: Fagur er dalur.
Tígulkvartettinn syngur.
Fluttar verða gamanvísur eftir Egil
Jónasson frá Húsavík.
Dans.
Aðgöngumiðar seldir í Sjálfstæðishúsinu í dag frá kl. 5—7
og við innganginn. — Borð tekin frá um leið.
STJÓRNIN
Heimdallur
Kvöldvaka
Heimdallur F.U.S. efnir til kvöldvöku í Sjálfstæðisbúsinu
laugardaginn 10. apríl kl. 8,30 e. h.
Dagskrá:
Ávarp: Þorvaldur Garðar Kristjánsson.
Einleikur á píanó: Gísli Magnússon.
Leikþáttur: Þrír Heimdellingar.
Einsöngur: Ketill Jensson.
Heimdallar-þáttur.
Dans.
Aðgöngumiðar verða seldir í dag kl. 5—6 e. h. í skrif-
stofu Heimdallar, Vonarstræti 4 (V.R.)
STJÓRNIN
Þ{óðdansafélag
Reykpvíkur
með aðstoð
Karlakórs Reykjavíkur
Skemmtun í Austurbæjarbíó n. k. sunnudag 11. apríl
klukkan 2 e. h.
r
Sýndir verða þjóðdansar frá 15 löndum (í þjóðbúningum)
einnig kórsöngur, kvartettsöngur og einsöngur.
Aðgöngumiðar á kr. 20,00, almenn sæti fyrir börn á kr.
10,00, verða seldir í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar
og Bókabúð Lárusar Blöndal.
AUGLYSING ER GULLS ÍGILDI -
.....
AAAAAAAAAAAAaatil
MARKÚ* Kfthr B4 D*ðð
NO LLCK, TANK...IW AFCAID Jl!
k
1) — Því miður, Gyða, ég get
ekki fundið linsuna, villt þú
reyna?
2) — Já, ég ætla að reyna.
. 3) Svo kafar hún niður í djúp- I laust. Ég e rhrædd um að linsan
ið. — Ihafi grafizt milli tveggja steina,
I 4) — Nei, það var árangurs- ’ svo við getum aldrei fundið hana,