Morgunblaðið - 28.04.1954, Qupperneq 1
16 síður
41. árgangur.
95. tbl. — Miðvikudagur 28. apríl 1954
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Norrænir forsctar
Ekki brezk hern-
aðaraðstoð
Geniarráðstefmi ræddi
Ásgeir Ásgeirsson forseti íslands ræðir við Paasikivi Finnlands-
forseta. —
Forseftahjónin komin
til Svíþjóðar aftur
Kóreu-máiið í gær
Frakkar vilja að fndó Kína
verði tekið fyrir sm. fyrst
GENF, 27. apríl. — Reuter-NTB
IDAG lögðu Frakkar áherzlu á, að Genfarráðstefnan tæki Indó-
Kína málið fyrir eins fljótt og kostur væri, og munu þeir hafa
von um, að það komi til umræðu innan skamms. Upphaflega var
ráð fyrir gert, að Kóreumálið yrði rætt fyrst, en Indó-Kína kæmi
á dagskrá annan miðvikudag. Verður sennilega reynt að koma því
svo fyrir, að bæði málin verði rædd jöfnum höndum.
<S>-----------------
LUNDÚNUM 27. apríl,' — Churc-
hill forsætisráðherra lýsti því
yfir í neðri deild þingsins í dag,
að á Parísarfundi utanríkisráð-
herra Vesturveldanna s.l. laugar
dag hefði ekki verið :• gerð nein
ályktun um málefni Indó-Kína,
er lögð skyldi fyrir Genfarráðs-
stefnuna. Kvað hann brezku
stjórnina ekki vilja skuldbinda
sig til hernaðaraðstoðar í Indó-
Kína að svo stöddu.______
Sólarhrings verkfall
PARÍSARBORG, 27. apríl: —
Verklýðssamband kommúnista í
Frakklandi skoraði í dag á félaga
að hefja 24 stunda verkfall á
morgun, miðvikudag, til að styðja
kröfur sínar um hærri lágmarks-
laun. Félagsmenn eru 4 milljónir.
Verklýðssamband kaþólskra hef-
ir sent sams konar áskorun til
sinna félagsmanna, en jafnaðar-
menn vilja ekki vera með. Telja
þeir, að kommúnistar ætli að
nota verkfallið til stjórnmálalegs
ávinnings. — Reuter-NTB
VIÐRÆÐUR MOLOTOVS
OG BIDAULTS
í morgun ræddust þeir við
einslega Molotov og Bidault, ut-
anríkisráðherra Frakka. Kváðu
þeir hafa rætt um, hvaða ríkjum
skyldi boðið til þátttöku í við-
ræðum um Indó-Kína. Annan
fund eiga þeir ráðherrarnir með
sér í fyrramálið.
TILLÖGUR UM
KJARNORKUMÁL
í dag áttu þeir og tal saman
Dulles og Molotov. Afhenti Dull-
es stöðunaut sínum tillögur Eis-
enhowers í kjarnorkumálum.
Fleiri ráðherrar ræddust við eins
lega áður en fundur hófst.
Molotov var í forsæti í dag, en
19 fulltrúar sátu fundinn. Stóð
hann í röskar 2 stundir, og tóku
3 fultrúar til máls, utanríkisráð-
herrar Norður- og Suður-Kóreu
og fulltrúi Kólumbíu.
KÍNA BRÝTUR VOPNA-
HLÉSSAMNINGINN
Utanríkisráðherra Suður-
Kóreu, Pyung Yung Tai, sagði
í ræðu sinni, að kommúnistar
bæru ábyrgð á friðnum í
Kóreu. Suður-Kóreumenn
æskja friðar, en þeir geta
ekki keypt frið við frelsi sínu.
Ráðherrann réðst hastarlega
á Kína, sem hann sagði, að
hefði vitandi vits traðkað á
vopnahléssamningnum.
Hvað var Khoklov að gera
í Kaupmannahöfn 1951?
Danska lögreglan segir, að flugumaður
Rússa hafi dvalizi þar þá.
KAUPMANNAHÖFN, 27. apríl. — Reuter-NTB
NIKOLAI KHOKLOV, rússneski lögregluforinginn, sem gaf sig
fram við bandarísk yfirvöld í Vestur-Þýzkalandi fyrir skömmu,
var í Danmörku sumarið 1951 að sögn dönsku lögreglunnar. Khoklov
gaf sig sem kunnugt er fram, er hann hafði verið sendur til að
myrða landflótta Hvít-Rússa, sem dvelst í Vestur-Þýzkalandi.
Finnland kvaddi með mikilli viðhöfn.
KAUPMANNAHÖFN, 27. apríl. — Einkaskeyti frá Páli Jónssyni.
FORSETAHJÓNIN komu í gær frá Helsinki með bifreið til Ábo.
Heimsóttu þau þar hina fornu dómkirkju undir leiðsögn Ábo-
biskups. Þá skoðuðu forsetahjónin gamlan kastala í borginni og
byggðasafn. Að því búnu var Finnland kvatt.
JOSEF HOFBAUER
Þykist danska lögreglan þekkja
Khoklov, en hann sigldi undir
fölsku flaggi, er hann, dvaldist i
Danmörku, og kallaðist þá Josef
Hofbauer.
MYND 1 TIVOLI
Til er skyndimynd af Khokiov,
LAGT ÚR HÖFN &
Stór flugsveit tók sér stöðu við
höínina, áður en forsetahjónin
lögðu frá landi. Einnig var mik-
ill manngrúi saman kominn á
hafnarhlaðinu og á húsaþökum
í grennd. Mannfjöldinn hyllti
forsetahjónin ákaft, þegar skipið
lét úr höfn. íslenzki þjóðsöng-
urinn var leikinn.
Siglt var gegnum skerjagarð
inn í blíðskaparveðri, stafalogn
var og sólarlagið undrafagurt.
SKEYTIFORSETA-
HJÓNANNA
Er út úr finnskri landhelgi
kom, sendu forsetahjónin Finn-
landsforseta og þjóð hans þetta
skeyti: Innilegar þakkir fyrir
stórkostlegar og hjartanlegar
viðtökur. Guð blessi Finnland og
framtíð þess.
UTANRÍKISRÁDHERRA
HEIMA
í dag snæddu forsetahjónin
miðdegisverð hjá Helga P. Briem
sendiherra ásamt ræðismönnum
íslands í Svíþjóð. í kvöld sitja
þau samkvæmi hjá frímúrurum.
Dr. Kristinn Guðmundsson,
utanríkisráðherra, fer í dag loft-
leiðis heirn til íslands.
,,EngiIlinn í virkinu” er
29 ára sömul flusrkona
★ Ein kona dvelst í virkinu
Dien Bien Phu, en það gengur
nú undir nafninu Eldvítið, þar
sem linnlaus stórskotahríð
dynur á þessari litlu spildu.
★ Stúlkan, sem er 29 ára
að aldri, heitir Genevieve de
Galard-Terraube og er greifa-
dóttir frá Toulon. Er hún
hjúkrunarkona og flugkona og
stjárnaði einni af þyrilflugun-
um, er fluttu særða og sjúka
frá virkinu.
★ í seinustu för sinni til
virkisins ónýttu kommúnistar
þyrilflugu hennar, en sjálf
komst flugkonan heil á húfi
til jarðar. Síðan hafa allir
flutningar frá virkinu stöðv-
azt.
★ Þessi kona gengur undir
nafninu „engillinn í virkinu"
meðal hermanna þeirra, sem
verjast þar. Hvíldarlaust
V-'
hjúkrar hún þeim, sem særðir
liggja í neðanjarðarskýlum og
í stuttbylgjuútvarpi frá virk-
inu hefur verið skýrt frá því,
að hún aðstoði við 25 skurð-
aðgerðir dag hvern að meðal-
tali.
★ Á sunnudag var sérstak-
lega beðið fyrir „engli virk-
isins“ í kirkju þeirri í Toulon,
sem hún sótti barn að aldri.
Einnig var beðið fyrir henni
í kirkjunni, sem hún hefur
oftast sótt eftir að hún komst
upp.
★ í París situr 73 ára kona
við útvarpstækið sitt og fylgist
gaumgæfilega með öllum frétt
um frá Dien Bien Phu. Það
er móðir „engilsins í virkinu".
— Genevieve mín hefur aldrei
kunnað að liræðast, ég veit,
að hún bjargar sér“, segir
gamla konan.
er tekin var af honum í Tívolí
í Kaupmannahöfn. Stúlka er á
myndinni með honum, en hún
hefir gefið sig fram við lögregl-
una og kvað hafa gefið henni
ýmsar veigamiklar upplýsingar.
Stúlku þessari var alls ókunnugt
um erindi Khoklovs til Hafnar.
Myndin, sem til er af honum
úr Tivoli, verður birt í dönsku
blöðunum á morgun, miðviku-
dag, og fólk, sem við hann kann-
ast, beðið að gefa sig fram.
DANI TIL YFIRHEYRSLU
Danska lögreglan hefir snúið
sér til Bandaríkjamanna í Vest-
u.-Þýzkalandi og látið í ljós þá
skoðun, að nauðsynlegt kunni að
vera, að danskur lögreglumað-
ur fari og yfirheyri Khoklov.
KONA OG BARN í
RÚSSLANDI
Rússinn kvað hafa beðið Eis-
enhower ásjár. Biður hann for-
setann að beita sér fyrir, að konu
sinni og barni verði sleppt, en
þau sitja nú austur í Rússlandi.
Þá hefir og heyrzt, að hann hafi
sent páfa svipað bréf.
Fimtn fórusl í jarn-
brautarslysi
FRANKFURT, 27. apríl. — í dag
varð árekstur milli Skandinavíu-
hraðlestarinnar og þýzkrar lestar
um 20 km fyrir austan Frank-
furt. Létu 5 menn lífið, en 85
meiddust. Þeir, sem fórust, voru
allir þýzkir.
— Reuter-NTB.
TILLÖGUR NAMS
Nam II, utanríkisráðherra Norð
ur-Kóreu, lagði fram tillögur til
lausnar Kóreu-deilunni. Hann
kvað nauðsynlegt að sameina'
Kóreu í eitt ríki. Að hans dómi
eiga báðar ríkisstjórnir landsins
að stofna til kosninga til þjóð-
þingsins, sem síðan myndi eina
Kóreu-stjórn. Einnig krafðist
ráðherrann, að erlendir herir
yrðu á burt úr landinu á misseris
fresti.
Fulltrúi Kólumbíu lagði til, að
landið yrði sameinað undir eftir-
liti S. Þ.
Kræf kona sijórn
ar harmdar-
verkamörmum
BONN, 27. apríl: — Khoklov lög-
regluforingi hefir skýrt svo frá,
að kona úr rússnesku leynilög-
reglunni, MVD, stjórni þeirri
stofnun, sem hefir að markmiði
að afmá óvini rússnesku komm-
únistastjórnarinnar erlendis.
Khoklov, sem eins og kunnugt er
gaf sig nýlega fram við yfirvöld
Vestur-Þýzkalands,- hefir sjálfur
hjotið „þjálfun" þessarar konu.
Er hún majór og heitir Tamara
Nikolayevna Ivanova.
Tortímingardeild þessi gengur
í Rússlandi undir nafninu 9.
hermdarverkadeildin.
KAUPMANNAHÖFN — Allmik-
ið var flutt inn af ökutækjum til
Danmerkur í fyrra. — I landinu
eru nú 75 þúsundir bifhjóla