Morgunblaðið - 28.04.1954, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 28.04.1954, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐI9 Miðvikudagur 28. apríl 1954 Samúðarkveðja SAMÚÐARKVEÐJA til Matthías ar Guðmundssonar, póstfulltrúa, vegna fráfalls móður hans, Guð- rúnar Davíðsdóttur. Þó að dauðans beiskjubikar burtu þoki gleðiskál, þó að titri tár á hvörmum tregi lami sjón og mál, vefur ljóma sorgarsortann sæluminning hugarkær, mitt í dauðans dapra húmi dásemd lífsins birtist skær. Þó að sollnir stormastrengir stynji biturt heljarlag, þó að hyljist maður moldu myrkvist sól um hæstan dag, máttur lífs og ljóssins varir lægir storm og gefast hlé. —r- Upp af lágu leiði vaxa lífsins fegurst minjatré. M. Jónsson. f - Grein Stangerups Framh. af bls. 9 ár bækur höfunda, sem eru hon- úm skyldir og vinna eftir sömu Hnum og hann, vöktu at- hygli fyrir nokkrum árum síðan. Þarna var áreiðanlega eitthvað annað en frásagnir og realismi, markviss symbolistísk framsetn- ing og leikið handbragð í áttina til að nota sér hugmyndaflug skáldsögunnar, en eins konar millistig hins eiginlega rómans og arfsagnar. Truman Capote hef ur ekki getað efnt þær miklu vonir, sem við hann voru tengdar eða engir af lærisveinum hans. Og þó hann sé skammt á veg kominn hefur hann þegar mynd- að sérstakan „skóla“ þó menn geri sér ekki von um að úr hon- um verði nokkurn tíma mikið skáld. Einnig þetta er í anda Alex- andríu, með nokkrum annmörk- um, en hefur vakið eftirtekt og hneykslun meðal almennings í Bandaríkjunum, er ekki hefur átt því að venjast eins og fransk- ir lesendur að fá kynni af kyn- villulýsingum fyrir 30 árum síðan. Mitt í hinum miklu bókaút- gáfuframkvæmdum örlar á fyrstu frjóöngum nýjustu bók- menntanna. En þó útgáfan sé fyrirferðamikil í Bandaríkjunum, þá er hlutverk ungra rithöfunda ekki í miklum metum enn. Þetta vekur vonbrigði meðal almenn- ings. En slíkt er ástæðulaust. — Andi Alexandríu er ekki nýtt fyrirbrigði, sérkennilegt við bók- menntir Bandaríkjamanna. Víða verður þess sama vart á vorum tímum í bókmenntum vorra daga, og betri er vakandi og velviljað- ur Alexandríismi en sofandaskap ur og kyrrstaða. Að vísu lá leiðin niður á við frá Aþenu til Alexandríu, frá amerískum bókmenntum á árun- um 1920—40 og til síðustu ára. En bókmenntir Bandaríkjanna eru svo ungar. Þjóðin svo þrótt- mikil og þrungin möguleikum og gáfum, að það sem gangrýnendur Bandaríkjanna telja í dag vera afturför, getur vel sýnt sig að vera hvíld á framþróunarbraut og undirbúningur að því að morg ungjöf amerískra bókmennta geti sprungið út, sem fjörmikil Aþena úr enni síns áhyggjufulla föður. Hakon Stangerup. TIL LEIGU á góðum stað í austurbæn- um 3 herbergi í kjallara fyrir saumastofu eða annan ' Iéttan iðnað. Eldunarpláss getur fylgt. Mikil fyrirfmm- greiðsla nauðsynleg. Uppl. í skrifstofu minni, Vonar- stræti 12; ekki svarað í síma. Ragnar Ólafsson hrl. X BEZT AÐ ALGLÝSA A T í MORGVISBLAÐIIW T Agóðf sumarfagnaðs Murnes- inga varið fil dagheimilis Akranesi 23. apríl. OUMARDAGURINN fyrsti var á Akranesi helgaður börnunum eins og víðar annars staðar á landinu. Hátíðahöldin hófust með guðsþjónustu í kirkjunni kl. 10.30 f. h. Sverrir Sverrisson cand. theol. talaði. VETRARGARÐURINN VETRxARGARÐURINN DANSLEIKUR í Vetrargarðinum í kvöld kl. 9. Hljómsveit Baldurs Kristjánssonar leikur Aðgöngumiðar eftir klukkan 8. TCl. 1 var lagt af stað frá barna skólanum í skrúðgöngu. Hljóm- sveit lék í fararbroddi, fánar blöktu af stöngum, sem bornar voru til og frá í fylkingunni, auk þess sem fánar voru dregnir að hún á hverri fánastöng í bænum. Fjöldinn allur af börnunum báru litla handfána. Skrúðgangan end- aði á blettinum fyrir framan gagnfræðaskólann. — Þar flutti próf. Sigurbjörn Einarsson ávarp. Þrefaldur kvartett söng þar nokk ur vorlög. SKEMMTANIR FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA Eftir þgtta var keppt í hand- knattleik og síðan var barnasýn- ing í bíóhöllinni kl. 3, en kl. 5 hófst þar skemmtun fyrir alla. Þar flutti próf. Sigurbjörn Ein- arsson erindi. Þá var sungið og frú Jónína Björnsdóttir og Þor- valdur Þorvaldsson kennari, lásu upp. Að lokum voru sýndar kvik- myndir, er teknar hafa verið á ferðalögum gagnfræðinga á Akra nesi. ÁGÓÐINN TIL DAGHEIMILISINS Öllum ágóðanum af þessum skemmtunum á að verja til þess að koma á stofn dagheimili fyrir börn hér á Akranesi í vor. Standa 7 -félög að þessari nýjung hér í bænum. Samþykkti bæjarstjórn- in hér á síðasta fundi sínum að láta húsnæði í té, í kjallara barna skólans, fyrir starfræksluna, svo að gert er ráð fyrir að dagheim- ilið taki til starfa 1. júní í vor. Hefur þegar verið sótt um vist fyrir 30 börn. Þrjár konur veita upplýsingar um dagheimilið, og eru það þær frú Ólína Þórðardóttir, frú Dóra Erlendsdóttir og frú Herdís Ól- afsdóttir. — Oddur. Danslagakeppni X.K.T. lokio Jenni Jónsson og Svavar BenedHrtsson hlufu fyrstu verðlaun ITRSLITIN í danslagakeppni SKT voru birt á skemmtun í Austur- J bæjarbíói s. 1. miðvikudagskvöld. Alls tóku yfir 2200 þátt í atkvæðagreiðslunni, 1135 um nýju dansana og 1066 um gömlu dansana. Bárust atkvæðaseðlar úr öllum sýslum landsins. í nýju dönsunum hlaut lagið „Brúnaljósin brúnu“ eftir Jenna Jónsson langflest atkvæði, eða 419 (ljóð einnig eftir Jenna), en í gömlu dönsunum var lag Svav- ars Benediktssonar, „Fossarnir“ ( fyrsta sæti með 204 atkvæð- um (ljóð eftir Kristján Einars- son). 2. verðlaun í gömlu dönsunum hlaut lagið: „Ég veit að þú kem- ur,“ eftir Bjarna J. Gíslason, Keflavík og 3. verðlaun „Á Hveravöllum“ eftir Ástu Sveins- dóttur, Rvík. — Viðurkenningu hlutu: ,,Göngulag“ Jóhannesar Jóhannessonar, Rvík og „Ásta- vísa hestamannsins" eftir Carl Billich. 2. verðlaun í nýju dönsunum hlaut ,Kom þú til mín“, eftjr Kristin Magnússon, Rvík, og 3. verðl. „Síðasti dansinn", eftir Óðinn G. Þórarinsson, Akranesi. Viðurkenningu hlutu: „Ó, Stína“, eftir Árna ísleifsson og „Nú ertu þriggja ára“, eftir Jón M. Kjer- úlf, Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal. Ríkistúvarpið veitti tvenn verðlaun fyrir bezta danslagið. Fyrstu verðlaun hlaut Sverrir Haraldsson, Selslundi, Rangár- völlum fyrir - „Ástavísu hesta- mannsins" og 2. verðlaun Krist- ján Einarsson frá Djúpalæk. Verðlaun Vikunnar fyrir rétt- ar ágizkanir um úrslit hlutu Sig- urður Jóelsson, Rvík, í gömlu dönsunum og Gunnar Gíslason, Stað í Hrútafirði, í nýju dönsun- um. Karlakórimt Þrymur jyngur við góðar undirfekfir á Húsavík HÚSAVÍK, 11. april: — Karla- kórinn Þrymur, Húsavík hefir að undanförnu sungið á nokkrum stöðum í Þingeyjarsýslu, fyrst í Reykjavík, síðan að Laugum og Hólmavaði og nú síðast hér á Húsavík í gærkvöldi við ágætar undirtektir áheyrenda. Söngstjóri Þryms er Sigurður Sigurjónsson, undirleik annaðist Steingrímur Birgisson. Einsöngv- arar með kórnum voru Eysteinn Sigurjónsson, Stefán Sigurjóns- son og Þorgeir Gestsson. — Fréttaritari. Karlakórinn Fóstbræður Kvöldvaka í Sjálfstæðishúsinu föstudag klukkan 9. Gamanþættir. Eftirhermur. Gamanvísur. Söngur o. fl. Aðgöngumiða má panta í síma 81567 og einnig verða þeir seldir í Sjálfstæðishúsinu á morgun kl. 4—7, sími 2339. Bezta skemmtun ársins. Dansað til klukkan 1, Nemendasamband Verzlunarskóla íslands: Nemendamót I Hið árlega nemendamót Nemendasambandsins verður 'J haldið að Hótel Borg föstudaginn 30. apríl og hefst með borðhaldi klukkan 6 e. h. Aðgöngumiðar verða seldir að Hótel Borg (suðurdyr) í dag kl. 5—7 e. h. Stjórnin. g DET DANSKE SELSKftB I REYKJAVlK Aftenunderholdning for foreningens medlemmer med gæster afholdes torsdag den 29. april kl. 8,30 i „TJARNARCAFÉ“ Der forevises de islandske film: „Redningsdaaden ved Látrabjarg“ og „Lakse-udklækning i Elliðaár“. Billetsalg: Skermabúðin, Laugaveg 15 og K. A. Bruun, Laugaveg 2. BESTYRELSEN VERZLUNARMANNAFELAG 'j) REYKJAVÍKUR 4’ verður haldinn í fundarsal félagsins að Vonarstræti 4, 3. hæð í kvöld klukkan 20,30. tFUNDAREFNI: % 1. Samningarnir. 2. Framtiðarskipulag félagsins. I Félagar, sýnið skírteini við innganginn. STJÓRNIN MÍARKrt' *mJP B4 DtM CTN^J YOU K*<OW TH£ KID WHO'5 P-.JSH'HG T HI5 HIGHT TO SAVE THS MIDLAHD SAHCTUAR'/, ,\_.^MARK? DANCE OUT 1 TERCACE...I VVANT TO TALK TO VOU- TT^ 1) — Markús, þú hefir heyrt getið um piltinn, sem skeleggast hefir barizt fyrir því að fá land- spildu eina hér í ríkinu friðaða? 2) — Já, svo vissulega. Hann er bezti vinur minn. Og nú ætla ég að halda þangað rakleitt. 3) — Kæru gestir, nú verður næsta lag tileinkað ungfrú Hönnu aðalleikkonunni í kvikmyndinni „Paradís otranna". 4) — Hanna, við skulum koma hérna út fyrir — ég þarf endi- lega að tala við þig einslega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.