Morgunblaðið - 05.05.1954, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 5. maí 1954. j
Félag fyrrverandi drykkju-
manna slofnað í Reykjavík
Örlycfur Sioiirdsson opnar málvsrkasýnmgu í dag
AFÖSTUDAGINN langa, 16. apríl s.l., var stofnað í Reykjavík
fyrsta deildin hér á landi úr hinum alþjóðlega bindindisfélags-
*kap fyrrverandi drykkjumanna, en sá félagsskapur nefnist á
^nsku Alcoholic Anonymus, sem er skammstafað A. A. Stofnend-
•urnir voru 14 og voru félagsskapnum settar bráðabirgðareglur og
Jcosin fyrsta stjórn félagsins, en hana skipa Guðni Þór Ásgeirsson,
íormaður, Jónas Guðmundsson og Guðmundur Jóhannsson. Félagið
Jilauf nafnið „Reykjavíkurdeild A. A.“
Félagsskapur þessi er eingöngu^
íyrir menn og konur, sem viður-
kenna fyrir sjálfum sér og öðr-
um, að drykkjuhneigð þeirra sé
«ða hafi verið orðin svo sterk,
að það var eigin viljakrafti þeirra
•ofvaxið að hafa taumhald á
lienni, og því leita þeir hjálpar
«eðri máttar til lausnar undan
d rykj uskaparböli sínu.
Félagsskapurinn starfar í smá-
Jiópum, sem halda vel saman inn-
ibyrðis og þar hjálpar hver ein-
*taklingur öðrum sem bezt hann
má til að verjast fali, en auk
þess leitast hóparnir hver um
»ig, við að ná til nýrra manna,
sem hjálparþurfi eru. Einu sinni
í mánuði halda hóparnir allir
sameiginlegan fund og ræða á-
hugamál sín og viðfangsefni.
Engin félagsgjöld eru í félags-
skap þessum og deildirnar mega
•engin fjármál hafa með höndurn,
né heldur hóparnir. Allt starf
verður þar að vinnast án endur-
.gjalds. En þar sem nokkurt fé
J»arf stundum til þess að hjálpa
'Jaeim, sem verst eru staddir og
skjótrar hjálpar þurfa, svo og
•til þess að greiða þóknun fyrir
störf, sem ekki verða unnin end-
urgjaldslaust, er yfirstjórn sam-
takanna heimilt að vera aðili að
sjóðsstofnun, sem tekur við gjöf-
um og frjálsum framlögum frá
oinstaklingum og opinberum aðil-
um, en sá sjóður er ekki í nein-
mm tengslum við deildir A. A.
•og stjórn félagsskaparins til-
nefnir aðeins einn af þremur
stjórnendum sjóðsins. Opinberir
aðilar tilnefna hina tvo stjórnar-
menn. Sjóður þessi hefur þegar
verið stofnaður og heitir „Styrkt-
arsjóður áfengissjúklinga".
Þeir, sem vilja setja sig í sam-
hand við A. A. ættu að skrifa
fáar línur og senda bréfið til
Eeykjavíkurdeildar A.A., Póst-
fcólf 1139, Reykjavík, eða hringja
í síma 1196 eða 6549, meðan sam-
•tökin hafa ekki fastan síma og
samastað.
Refum fer ijölgsndi
á Ves.
ÞÚFUM, 30. apríl: — Tíðarfar
hefúr verið með eindemum gott
nú um tíma. Gróður farin að
sjást í úthaga og tún byrjuð að
grænka. Fyrir nokkru er búið að
sleppa geldfé og reka það á af-
rétt. Tún ávinnsla er að byrja.
Er nú í ráði að vegagerð út í
sveitina byrji bráðlega, og
hyggja menn hér gott til ef ríf-
legum áfanga yrði náð á þessu
sumri. Þá er ákveðin bygging brú
ar á ísafjarðará í sumar
VART VID ERNI
Ernir eru hér alltaf, og mun
bólfesta þeirra vera árlega, því
þeir verpa og koma upp ungum
árlega. — Þórarin bóndi á Látr-
um, sá nýlega 3 erni saman í hóp
og er það fágætt.
Hrognkelsaveiði er lítil hér og
hefur farið minnkandi hin síðari
ár.
REFUM FJÖLGAR
Mikið ber á f jölda refa, og virð-
ist sem þeim fari fjölgandi. —
Stafar það efalaust af hinu góða
tíðarfari undanfarin ár. Þá munu
þeir leggja greni sín fjarri byggð
og fá þar óáreittir að koma upp
fjölskyldum sínum.
Er kostnaður við grenjavinnslu
og útrýmingu þeirra vaxandi.
— P. P.
LUNDUNUM. — Skozkt viskí
var flutt út fyrir nálega 10 millj.
punda á fyrsta ársfjórðungi þessa
árs. Voru flutt út 125 þús. gallon
meira en á sama tíma í fyrra.
I kvöld kl. 8,30 opnar Örlygur Sigurðsson, listmálari, málverka-
sýningu í Listvinasainum við Freyjugötu. Á sýningunni verða yfir
40 myndir, flest olíumálverk, en þó nokkrar vatnslitamyndir. Þar
eru allmargar mannamyndir og myndir úr athafnalífinu. Þetta er
5. sjálfstæða sýningin, sem Örlygur heldur hér í Reykjavík, en
einnig hefur hann haldið sýningar á Akureyri og í Vestmanna-
eyjum. — Myndina hér að ofan hefur Örlygur gert af M. E. Jessen
skólastjóra.
Sandgerði, 3. maí.
4FLI hefur verið ágætur og gæftir góðar hjá Sandgerðisbátum
síðasta hálfa mánuðinn. Hefur verið róið á hverjum virkurn
degi, og er róðrafjöldinn á þessu tímabili alls 127 hjá 13 bátum.
Samanlagður afli er 1378 lestir. — Sandgerðisbátar hafa aflað 6961
lest á vertíðinni til þessa.
Síðasta háifan mánuðinn var
Mummi með mestan afla í ein-
um róðri, 18,5 lest, en Muninn II.
var með 17 lestir.
Afli er ennþá góður í Sand-
gerði og er það mjög óvenjulegt
á þessum tíma. Á undanförnum
árum hafa bátar almennt verið
Ungur söngvari kveöur sér hljóös
hættir veiðum hér um þetta leyti.
Er allt útlit fyrir áframhaldandi
veiði, og í dag er Mummi þegar
kominn að með 10 lestir. — Axel.
Frá Skólaslitum
barnaskóle Sauóár-
króks
20 þús. kr. í klukkna-
sjóð Laugarnes-
kirkju
UNDANFARNA tvo mánuði hef-
nr staðið yfir fjársöfnun í Laug-
arnessókn, til kaupa á klukkum
í kirkjuna. Hafa nokkrir sjálf-
boðaliðar, bæði úr kvenfélagi og
bræðrafélagi sóknarinnar, gengið
nm með söfnunarlista og tekið á
jnóti framlögum í klukknasjóð-
inn. Þátttaka hefur verið mjög
.góð. Hafa flestir, er leitað var til,
lagt fram nokkurn skerf, og marg
ir af miklu örlæti. Hafa safnast
alls rúmlega 20 þúsund krónur.
IMun sú upphæð vera næstum
jióg til greiðslu á klukkunum, en
-eítir er þá að flytja þær til lands-
dns og setja þær upp. Nú sem
.stendur er beðið eftir innflutn-
ingsleyfi, en vonandi fæst það
bráðlega, og verða þá klukkurn-
ar settar upp í sumar.
Söfnunarnefndin tjáir hér með
J»akklæti sitt öllum þeim, er gefið
Ivafa i klukknasjóðinn, og þeim,
*em að söfnuninni hafa unnið.
Ílf ennþá skyldu vera einhverjir
«em ekki hefur náðst til, en sem
leggja vildu eitthvað í sjóðinn, þá
•eru þeír vinsamlega beðnir að
antiá sér txl frú Herþrúðar Her-
mannsdóttur, Laugárnesvegi 61,
aíma 3405, eða Ingólfs Bjarna-
aonar, kaupmanns, 'Silfurtéigi 2,
síma 6150.
Ljósmyndari Mbl. tók þessa mvnd af Magnúsi Jónssyni söngvara
á fyrstu söngskemmtun hans, sem var í Gamla Bíói síðastliðinn
mánudag. — Magnús endurtekur söngskemmtun sína í kvöld, og
voru allir miðar uppseldir í gærdag. — Við hljóðfærið er Fritsi
Weisshappel.
SAUÐÁRKRÓKI, 3. maí. — Að
venju gengu nemendur barna-
skólans og gagnfræðaskólans hér,
ásamt kennurum, í fylkingu, und-
ir fánum, frá barnaskólanum til
kirkju á sumardaginn fyrsta og
hlýddu þar messu.
Fyrsta sunnudag í sumri var
sýning á handavinnu, teikningu
og skrift úr báðum skólunum, og
var hún fjölsótt af bæjarfólki.
Barnaskólanum var slitið
sunnudaginn 2. maí. Skólastjóri,
Björn Daníelsson, sagði frá starf-
semi skólans síðastliðinn vetur.
Alls voru 112 börn í skólanum.
Þar af luku 22 barnaprófi, 3 með
ágætiseinkunn, og 87 ársprófi og
3 voru forfölluð vegna veikinda.
Annars hefur heilsufar yfirleitt
verið gott.
Lesstofa hefur verið starfrækt
tvisvar í viku, tvo tíma í senn, og
var hún töluvert sótt.
Þorvaldur Guðmundsson, kenn
ari við barnaskólann, lætur nú
af störfum, en hann hefur verið
kennari við skólann um áratugi.
Skólastjóri og Helgi Konráðsson,
prófastur, formaður fræðsluráðs,
þökkuðu honum vel unnin störf
á liðnum árum. Einnig tók til
máls Jón Þ. Björnsson, fyrrver-
andi skólastjóri.
Torfi Bjarnason, héraðslæknir,
forseti bæjarstjórnar, afhenti
skólanum málverk af Jóni Þ.
Björnssyni. Það er gert af Sig-
urði Sigurðssyni, listmálara. Er
málverkið gjöf til skólans frá
Sauðárkróksbæ, í tilefni af sjö-
tugsafmæli Jóns. — jón.
Aðalfundur Svifflug-
félagsins
NÝLEGA var haldinn aðalfundur
Svifflugsfélags íslands. Starfsemi
félagsins á síðastliðnu ári var að
ýmsu leyti hagstæð, sérstaklega
hvað snerti árangur af sviffiug-
kennslu, þar sem alls voru flogin
um 1400 flug á vegum félagsins,
sem er rösklega helmingi íleiri
flug en áður hafa verið flogin á
einu ári í sögu íélagsins.
Félagið gerði tilraun með rekst
ur svifflugsskóla á Sands.ieiði,
og var árangur svo góður, að nú
er í athugun að koma upp á Sand
skeiði föstum skóla íyrir svifflug
menn.
Stjórn félagsins hefur ýmiss
áform á prjónunum, svo sem bygg
ingu húsnæðis á Sandskeiði, aukn
ingu á sviíflugum og ýrnislegt
annað, er kann að verða svifílug-
málum til framdráttar.
Stjórn félagsins skipa nú: Ás-
björn Magnússon, formaður; Árni
Valdemarsson, varaform., Ólafur
Magnússon, gjaldkeri. Axcl Aspe-
lund, ritari, og Hilmar Kristjáns-
son, meðstjórnandi, en varamenn
þeir Gunnar Zebitz, Sigurður
Kristjánsson og Haraldur Ágústs-
son.
Aðalkennari félagsins er eins
og áður Helgi Filippusson.
Félag garieigfsada
HÉR í Reykjavík hefur verið
myndað félag garðleigjenda
Reykjavíkur. Félagið á að vinna
að ýmis konar hagsmunamálum
garðleigjenda, einkanlega á fé-
lagið að láta til sín taka um kart-
öfluframleiðslumálin. Mikið fram
boð er á kartöflum og jafnvel
svo að margir kartöflueigendur
telja nauðsynlegt að koma verði
allmiklum kartöflubirgðum þeg-
ar í verð, ef þær eiga ekki ella
að skemmast. Bráðabirgðastjórn
félags þessa á að kanna eftir
beztu getu hve miklar þessar
birgðir eru og athuga sölumögu-
leikana.
Stofnfundur félags þessa var
haldinn fyrir nokkrum dögum í
Baðstofu iðnaðarmanna og kaus
hann bráðabirgðastjórn og fól
þenni jafnframt að boða til fram-
haldsstofnfundar. í bráðabirgða-
stjórninni eiga sæti: Hafliði Jóns-
son, garðyrkjumaður frá Eyrum,
Gísli Sigurðsson, kennari, Sigríð-
ur Ó. Húnfjörð, Jón H. Björns-
son, garðyrkjumaður og Jón
Bjarnason, trésmiður.
25 þús. frjéplðnlur
í happdrælti
UNGMENNAFÉLAG Reykjavík-
ur efnir til nýstárlegs happ-
drættis, þar sem vinningarnir
verða 25 þús. trjáplöntur að verð
mæti kr. 27.260,00. Fjöldi mið-
anna er aðeins 2700 og þessum
25 þús. trjáplöntum er skipt í 36
vinningsnúmer. Verð hvers miða
er 50 krónur.
Ágóða af happdrættinu hyggst
félagið verja til byggingar húss
fyrir starfsemi félagsins, en fé-
lagið hefur fengið landssvæði í
Laugardalnum við Holtaveg fyrir
leikvang,
Miirni skemmdir
en talið var
VIÐ athugun á brunaskemmdum
í vélskipinu Oddi, sem kviknaðí
i seint í gærkvöldi, kom í ljós að
ekki urðu eins miklar skemmdir
í lúkarnum og talið var í fyrstu.
í gær voru nýir plankar settir
í hvalbakinn í stað þeirra, sem
brotnir voru við slökkvistarfið.
Síðdegis í gær sigldi Oddur full-
hlaðinn af sekkjavöru til hafna
á Norðurlandi.
Óvíst er hver upptök eldsins
séu, en talið ósennilegt að það
hafi orðið út frá ljósavél skips-
ins.