Morgunblaðið - 05.05.1954, Page 12
12
MORGUNBLAÐ1Ð
Miðvikudagur 5. maí 1954.
Aðalfundur Félags
ísl. slórkaupmanna
AÐALFUNDUR Félags íslenzkra
stórkaupmanna var haldinn 28.
apríl s.L
Karl Þorsteins, ræðismaður,
var endurkosinn formaður og
meðstjórnendur stórkaupmenn-
irnir Páll Þorgeirsson, Björn
Snæbjörnsson, Sveinn Helgason
og Bjarni Björnsson Varamenn
voru kosnir þeir Tómas Péturs-
son og Björgvin Schram.
Formaður gaf ýtarlega skýrslu
á fundinum um starf félagsins,
en það hefur með höndum mörg
mál, sem varða verzlunarstétt-
ina og þá einkum innflytjendur.
KK-sexfellfnn vekur
alhygli í Höfn
EINS og kunnugt er fór hljóm-
sveit Kristjáns Kristjánssonar,
K.K.-sextettinn utan fyrir
skömmu. Fór hljómsveitin til
Noregs, þar sem hún lék við
mikla og verðskuldaða hrifn-
ingu áheyrenda. Sótti um at-
vinnuleyfi í Noregi, en var synj-
að um það.
Ráðgert hafði verið að hljóm-
sveitin yrði í Noregi þar til hún
færi til Englands um 20. maí, en
úr því gat ekki orðið og héldu
þeir félagar þá til Danmerkur.
Þar hyggjast þeir dveljast þar til
þeir fara til Englands.
Sextettinn lék nýlega í Damhus
í Tívolí-skemmtigarðinum við
geysimikla hrifningu áheyrenda
og ráðgert er að þeir félagar leiki
í danska útvarpið á næstunni.
Forstjóri veitingastaðarins
National Scala hafði heyrt til
Sextettsins og bauð honum þá
samstundis atvinnu hjá sér í 2
mánuði næsta vetur. Þó aðeins
með því skilyrði að dönsk hljórn-
sveit fengi að fara til íslands og
leika þar, í tvo mánuði. — Er
óráðið um þetta ennþá. En ef af
þessu getur orðið er það hljóm-
sveit Johnny Campell, sem myndi
koma hingað, en sú hljómsveit
hefur leikið á National Scala og
margir munu kannast við.
K.K.-sextettinn mun leika inn
á plötur á meðan þeir dveljast í
Danmörku, en Haukur Morthens
söngvari er söngvari hljómsveit-
arinnar.
Eins og að framan greinir fer
hljómsveitin til Englands um 20.
maí og mun m. a. halda hljóm-
leika í Festival Hall. — Hingað
til lands mun aftur koma brezk
hljómsveit undir stjórn Miss
Kathleen Stobart, sem leikur á
saxafón.
SparfsjóSur Eyrar-
sveilar í Grundarfirði
sfofnaður
GRAFARNESI, Grundarfirði, 3.
maí: — Nýlega var stofnaður hér
sparisjóður Eyrarsveitar í Grund
arfirði. — Var kosin bráðabirgða-
stjórn og hana skipa Emil Axels-
son, fomaður, Halldór Finnsson
og Pétur Sigurðsson, kaupfélags-
stjóri. — Fréttaritari.
— Úr dapleaa lífbis
Frh. af bls. 8.
Önnur dagsskráraíriði
MEÐAL ANNARA athyglis-
verðra dagskráratriða vil ég geta
ágæts erindis Guðmundar Þor-
lákssonar, cand. mag., um dýra-
flutninga landa á milli, er hann
flutti s.l. föstudag og upplestur-
inn á köflum úr sjálfsævisögu
Theodórs Friðrikssonar „í ver-
um“, er Arnór Sigurjónsson bjó
til flutnings og lesnir voru á laug
ardaginn var.
Hestamannafélagið FÁKUR
Skemmtifundur
í Tjarnarcafé föstudaginn 7. maí kl. 9 e. h. — Fjölmennið.
SKEMMTINEFNDIN
. ......••••••.••••■•..
Foreningen „Ðannebrog“
afholder sin store 5. maj fest i Sjálfstæðishúsinu i
aften kl. 20. Billetter faas i Goðaborg. Freyjugötu 1.
Telefon 82080. Bestyrelsen.
Námsstyrkur
úr Ættarminningarsjóði Halldóru Ólafs, til stúlkna, sem
stunda nám í verzlunarskóla í Reykjavik eða erlendis,
verður veittur 21. maí n. k. — Þær, sem sækja.vilja um
styrk þennan sendi umsóknir til Jóns Guðmundssonar
lögg. endurskoðanda, Hafnarstræti 8, Reykjavík fyrir
14. maí n. k.
Stjórn sjóðsins.
Reykjavíkurdeild Rauða Kross íslands
gengst fyrir ókeypis kennslu
,í hjálp í viðlögum
Námskeiðið mun standa yfir 6 kvöld 2 klst. í einu.
Þátttakendur gefi sig fram fyrir 10. þ. m. við skrifstofu
Rauða Kross íslands,
Thorvaldsensstræti 6 — (sími 4658)
sem gefur allar nánari upplýsingar.
Reykjavíkurdeild R.K.Í.
3—4 herb. íbúð óskast
14. maí. Get borgað 2—3000 krónur á mánuði. Tilboð
leggist inn til afgreiðslu blaðsins fyrii föstudagskvöld
merkt: ,,Iðnaðarmaður“ —875.
Afgreiðslustúlku
vantar nú þegar. ■
í dag kl. 1,30—3.
Upplýsingar á skrifstofunni
Kiddabúð
Vetrargarðurinn.
Vetrargarðurinn.
— Bezt að auglýsa í B'torgunblaðiðinu
DANSLEIKUR
í Vetrargarðinum í kvöld kl 9.
Hljómsveit Baldurs Kristjánssonar leikur.
Aðgöngumiðar eftir klukkan 8.
Fyrsta sendinyin af
umerísku
sumurkjólunum
er komin
FJÖLBREVTT IJRVAL
QJÍfou
Es4&aiótrœtí
KARLAKORINN FOSTBRÆÐUR
KVÖLDVnKH
(KABARETT)
í Sjálfstæðishúsinu föstudagskvöld klukkan 9
Gamanþættir, eftirhermur, gamanvísur, söngur o fl.
Dansað til klukkan 1.
Aðgöngumiða má panta í síma 81567 í dag. Aðgöngu-
miðasala verður opin í Sjálfstæðishúsinu á morgun,
fimmtud., kl. 4—7. Borð tekin frá um leið. — Sími 2339.
Bezta skemmtun drsins
Kvennadeild Sálarrannsóknafélags íslands
heldur
B AZ AR
í Góðtemplarahúsinu, (uppi) í dag klukkan 2 e. h.
Nú er tækifæri til þess að gera góð kaup á hentugum
barnafatnaði, áður en börnin fara í sveitina.
Bazarnefndin. ,