Morgunblaðið - 05.05.1954, Side 16
&
Úivarpsávarp
prófessors Ólafs Björnssonar.
i Sjá grein á blaðsíSu 7.
100. tbl. — Miðvikudagur 5. maí 1954
íerama
• •
jL
Stjórtjón,
I brennur
I Slökkvilið fengið frá Akureyri
Akureyri, 4. maí.
I MORGUN um kl. 9 kom upp eldur í aðalmjölskemmu síldar-
verksmiðju Kveldúlfs á Hjalteyri. Ekki tókst að ráða niðurlög-
nm eldsins fyrr en eftir hádegi, en þá var þak skemmunnar fallið
'jfm ög allt í henni brunnið, sem brunnið gat. Þar voru mikil verð-
mseti, bíll, vélar alls konar, snurpinætur o. m. fl. Er því tjónið af
cfdsvoðanum geysimikið.
HÁVAÐI og brestir
Kl. 9 í morgun héldu starfs-
'írngnn síldarverksmiðjunnar á
ÁJjiálteyri heim til sín í kaffi. Er
:|>eir voru skammt komnir frá
verksmiðjunni, heyrðu þeir bresti
<og 'hávaða neðan að, og er þeir
litu þangað, sáu þeir, hvar reyk-
'tir stóð upp úr mjölhúsinu og að
■elcfúr myndi kominn þar upp.
EJinn starfsmaður hafði unnið
“urp morguninn í mjölgeymslu-
« húsinu við viðgerðir á snurpinót-
"um. Hafði hann gengið inn í
smíðaverkstæði, sem er sam-
hyggt við mjölhúsið. Varð hann
á sama^tíma og hinir var' við
óvanalegan hávaða, er stafaði frá
þaki mjölhússins.
... Var hávaðinn af því að eldur
var að brjótast út um þakið og
asbestplötur þess að springa af
liitanum.
ELDURINN MAGNAÐIST
*LJÓTT
Var þegar hringt til Akureyr
ar og slökkviliðið þar beðið um
hjálp og allir, er eitthvað gátu
lijálpað hófust þegar handa um
að reyna að slökkva eldinn og
bjarga út því, sem bjargað varð.
Allar tilraunir til þess að slökkva
■eidinn reyndust árangurslausar
þvi að hann magnaðist mjög
fljótt.
Fátt eitt náðist út úr mjöl-
gkemmunni annað en bíll, er stóð
út við dyr.
STÓRT HÚS
Mjölskemman er stórt hús,
2400 ferm. að grunnfleti. Er hún
einn óafþiljaður geimur, nema
hvar tvær sérbyggingar eru í
austurhornum hússins, skildar
frá með steyptum veggjum og
lofti. í þessum byggingum eru
frésmíðaverkstæði, vélaverkstæði
fikrifstofa, tilrauna og teikni-
stofa og fleira. Hvoruga þessa
byggingu sakaði í eldinum að
nokkru ráði.
MIKIÐ TJÓN
í mjölskemmunni brunnu m.a.
sjö snurpinætur, 70—80 reknet,
ein fólksbifreið, traktor, r.okkr-
ar heyvinnuvélar, nokkrar lýsis-
skilvindur og allt þeim tilheyr-
andi, rafmagnsspil og benzínspil,
verðmætir vélahlutir margskon
ar, sekkjastaflari, tunnur og
timbur o. m. fl. Ekkert síldar
mjöl var í skemmunni.
Slökkviliðið kom á vettvang
klukkutíma eftir að eldsins varð
vart. Tókst því að bjarga þaki
austustu álmu skemmunnar, en
hún er byggð í fjórum álmum.
Þakinu er haldið uppi af stein-
súlum. Slökkvistarfið stóð fram
yfir hádegi og var þá að mestu
dautt í rústunum.
Norðan gola var á, annars þurrt
en fremur kalt veður. — Elds-
upptök eru ókunn. Málið er í
rannsókn. —Vienir.
Stjórnlaus bíll í
Bankastrsii
LAUST fyrir kl, 12 á hádegi í
gær, rann mannlaus vörubíll af
stað niður BankastrætL Bíllinn
rann upp á gaangstéttiaa á móts
við bókabúð Sigurðar K.ristjáns-
sonar, raksft þar á steánvegg neð-
an við verai’unina, sbraukst utan
í fólksbíl ©g skemraii, hann nokk
uð, og nawj staða.r á Ijösoistaur,
sem gekk inn í vSaaiiúsið án þó
þess að fcnotna.
Ekkert slys vaag® á fólki, þótt
mikil urœferð ’giaini um Banka-
stræti. — Bílistö^a vbrubílsins
hafði brmgðiði sbbt ianm í verzlun
í Bankasfiræti ag taáffi treyst al-
gerlega & Baœaala: MEsssss.
„ValSýr á grænni ireyjy'' á leiksviði a3 nýju
Sendisveinn verSur
fyrir bíl
í GÆRDAG varð einn af sendi-
sveinum Mbl. fyrir sendiferða-
bíl á Vesturgötunni. Bíllinn fór
yfir hjól drengsins og við árekst-
urinn meiddist hann lítilsháttar.
Bílstjórinn lét drenginn af-
skiptalausan og hugðist komast
undan, en drengnum tókst að ná
númeri bílsins og kærði til rann-
sóknarlögreglunnar, sem skömmu
síðar hafði hendur í hári bílsjór-
ans, sem eftir öllu að dæma, var
í órétti. Viðurkenndi hann þetta
þrot sitt.
Aflinn 1806 tonn-
u m fiieiri en í f yrra
í YFIROTl Fiskifélags fslands
um gang vertiðarmnar, segir m.
a. að afli ÞorLákshafnarbáta hafi
verið með eindærnum góður. —
Bátarnir hafa alls farið tæplega
400 róðra á vertíðirmí og þeir eru
alls með um 3700 tonn. Hæsti
báturinn, sem heitir ísleifur, er
með 650 tonn í 65 róðrum og
annar hæsti, Þorlákur, með rúm-
lega 600 tonn.
Þess er getið í skýrslunni að
aflamagnið sé nú orðið um 1000
tonnum meira en á sama tíma í
fyrra, er farnír höfðu verig um
450 róðrar.
ísólfur landar á
Seyðisfirði
SEYÐISFIRÐI, 4. maí. — Togar-
inn ísólfur landar hér í dag og
á morgun 180 tonnum af fiski í
herzlu og 100 tonnum af saltfiski.
Norðan átt hefur verið hér í viku
og veður ágætt. Snjór sést nú að-
eins á háfjöllum. — Benedikt.
Friðrik Olafsson
stórmóli í Tékkóslóvakíu
A' KVEÐIÐ hefur verið að Frið-
rik Ólafsson taki þátt í al-
þjóðaskákmóti, sem hefst í Tékkó
slóvakíu 29. þ. m. Er það undir-
búningur að skákmóti, sem síðar
verður haldið um réttinn til þess
að skora heimsmeistarann á
hólm. Fjórir efstu mennirnir
komast á það mót. Er þetta sam-
kvæmt upplýsingum, er blaðið
Ær láta lömbum í Húnavatnssýslu
Smifandi faraldur — bændur sleppa fénu
NORÐUR í Húnavatnssýslu hefur faraldur gosið upp í sauðfé
bænda. — Svo tugum skiptir hafa ær látið lömbum. Á Guð-
rúnarstöðum í Vatnsdal er kunnugt um, að milli 30 og 40 ær haía
undanfarið látið lömbum sínum á yfirstandandi sauðburðartíð.
Ágúst bóndi á Hofi í Vatns-
dal, fréttaritari Mbl., símaði blað
inu þessa frétt í gær. Gat hann
munu einna mest brögð að far-
aldri þessum í Stóradal og Auð-
kúlu í Svínavatnshreppi, og á
þess, að bændum þyki sýnt, að ( Syðri-Ey og Sölvabakka á Skaga-
strönd. Ágúst sagði, að faraldur
þessi sé bændum mikið áhyggju-
faraldurinn sé smitandi. Hafi
bændur því gripið til þess ráðs
að sleppa fénu úr húsum.
BÆNDIIM MIKIÐ
ÁHYGGJUEFNI
Þessi veiki hefir gert vart við
sig á allmörgum bæjum þar í
sýslunni. Auk Guðrúnarstaða,
efni, þar eð veikin muni nú all
miklu útbreiddari í fé húnverzkra
bænda en um langt skeið, en far-
aldur þessi gerir alltaf öðrti
hvoru vart við sig.
í gær var norðan kalsaveður
í Húnavatnssýslu, og ekki gróð-
urlegt um að lítast.
fékk hjá stjórn Skáksambands-
ins.
Þátttaka í móti þessu er bund-
in við ákveðin lönd. Eru það
Norðurlönd, Austur-Evrópulönd
(nema Rússland), Balkanlöndin
(nema Júgóslavíu og Grikkland)
og auk þess Egyptaland og Suð-
ur-Afríku.
Afráðið er að Guðmundur
Pálmason, sem nú stundar nám
í Stokkhólmi, fari með Friðriki
til Tékkóslóvakíu og verði þar
með honum þann tíma, sem mót-
ið stendur yfir, þar sem aðstaða
skákmanna, sem koma einir síns
liðs á slíkt mót sem þetta, er
mjög erfið.
Annað kvöld mun Þjóðleikhúsið hefja að nýju sýningar á lei'K
Jóns Björnssonar, „Valtý á grænni treyju“. Sem kunnugt er var
leikurinn sýndur fyrir jólin s.I. vetur við góða aðsókn og þegar
ákveðið að taka hann til sýningar aftur á þessu ári, en það hefur
dregizt nokkuð vegna hinnar óvenjumiklu aðsóknar að „Pilti og
stúlku“ og fleiri leikritum Þjóðleikhússins. Hér verður þó aðeiníí
um örfáar sýningar að ræða á þessu íslenzka leikriti. Myndin hér
að ofan er af Valtý bónda á Eyjólfsstöðum (Gestur Pálsson) og
Jóni sýslumanni Arngeirssyni á Egilsstöðum (Valur Gíslason).
Vlikið branatjón í Leður-
gerðinni í fyrrinótt
Kviknaði í út frá sfrokjárni
FYRRINÓTT kviknaði út frá strokjárni í Leðurgerðinni h.f. i
Borgartúni 3. — Varð mikið tjón af eldsvoða þessum á vélum
og efnivöru leðuriðjunnar, og mun verksmiðjan verða að hætta
starfsemi sinni um ófyrirsjáanlega langan tíma. —■ Skemmdir urðii
einnig í Þvottamiðstöðinni, sem er til húsa á sama stað.
í fyrradag er fólk var við fullunnum vörum, kventöskuna
vinnu í Leðurgerðinni, þurfti að og fleira. — Allt þetta efni og
taka rafstrauminn af húsinu I töskur eðilagðist meira og minna
vegna viðgerðar. Þetta var um af eldi eða vatnL — Margar vél-
I
Skákeinvígið
KJUSTNES
VÍFILSSTAÐIR
15. leikur Kristness:
Hf8—d8
klukkan fimm og var starfsfólkið
þá látið hætta vinnu. — Straum-
ur var aftur kominn á klukku-
stund síðar.
JÁRNH) GLEVMDIST
Það hefur komið í ljós, að
gleymzt hefur að taka eitt af
strokjárnunum í vinnusalnum úr
sambandi. — Járnið brenndi sig
niður úr strokjárnsborðinu og
kveikti I vinnusalnum, sem var
klæddur með teksi.
HÚSVÖRÐURINN VAKNAÐI
Klukkan um tvö um nóttina
vaknaði húsvörðurinn í húsinu,
en hann hefur íbúð í húsinu á
sömu hæð og vinnustofan, í ris-
hæð. — Er hann kom fram i
vinnusalinn, var þar allt fullt af
reyk og allmagnaður eldur.
Slökkviliðinu var gert viðvart
og kom það að vörmu spori. Eld-
urinn var þá meira og minna um
allan vinnusalinn, og á neðri hæð
inni, þar sem Þvottamiðstöðin er,
— var byrjað að loga í þvotta-
pokum. — Hafði eldur fallið
þangað niður gegnum gat sem er
í gólfinu.
MIKIÐ TJÓN
I vinnusalnum var mikið af
óunnu efni, einnig talsvert af
ar voru til töskugerðar og
skemmdust þær allar. — Varð
tjón Leðurgerðarinnar mjög til-
finnanlegt.
II
I ÞVOTTAMIÐSTÖÐINNI
í Þvottamiðstöðinni var einnig
tjón af eldi og vatni á þvotti og
raflögnum. — í íbúð húsvarðar
urðu vatnsskemmdir og loka
komst vatn í vörulager í kjallara
hússins.
Slökkviliðsmenn urðu að rjúfa
gat á þak hússins til að komast
fyrir eldinn og voru þeir í röska
klukkustupd að kæfa eldinn.
Fyrirtækin, sem þarna urðtt
fyrir tjóni, höfðu vátryggt efni,
vörur og annað.
Vertíð gengið vel
frá Reykiiuík
í VERTÍÐARYFIRLITI Fiskifé-
lags íslands segir að afli Reykja-
víkurbáta, en þeir eru 31, hafi
verið allgóður á vertíðinni og
öllu betri á línu en í net. Afla-
hæstu línubátar eru nú meg um
400 tonna afla það sem af er ver-
tíðinni, en ókunnugt er um
heildarafla Reykjavíkurbátanna.
Veðurúflif í dag;
NA kaldi, léltskýjað.