Morgunblaðið - 16.05.1954, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.05.1954, Blaðsíða 1
16 siður og Lesbók 41. árgangur. 110. tbl. — Sunnudagur 16. maí 1954 Prentsmiðja Morgunblaðsins Svipmyndir frá finnsku iðnsýningunni í Listamann; skálanum. 'i'í'J. (Ljósm. R. Vignir). í kjiliir aukinno wiiskipta koma vnntmdi menningar- §1 og vinálta opfiii.il fisssisku <*>---------- FYRSTA finnska iðnsýningin, sem haldin hefur verið hér á landi var opsiuð í gær kl. 2 síðdegis. Hófst athöfnin í Tjarnarbíó, sem var þéttskipað gestum. h. á m. voru forsetahjónin, ríkisstjórn- in, Penna Tervo verzlunar- og iðnaðarmálaráðherra Finna og sendiherrar erlendra ríkja hér á landi. Fór athöfnin mjög virðu- lega fram en að henni lokinni var gcngið til Listamannaskálans og sýningin skoðuð. Kl. 6 síðdegis var hún svo opnuð fyrir almenn- ing. VIDSKIPTIN HAFA I Þegar litið er á samskipti 25 FALDAST I Finnlands og íslands, er óhjá- Vilhjálmur Þór forstjóri bauð kvæmilegt að veita því eftirtekt, gesti velkomna til samkomunn- að útflutningur beggja landanna ar í Tjarnarbíói. Gaf hann síðan er tiltölulega einhæfur. í þessu forseta íslands orðið, en hann' flutti stutt ávarp. Kvað forset- inn sér ljúft og skylt að lýsa fögnúði sínum yfir opnun finnskrar iðnsýningar hér í Reykjavík og heimsókn hinna finnsku forystumanna og íslands- viha. Það væru á allan hátt góð skilyrði fyrir viðskiptum og vin- áttu milli finnsku þjóðarinnar og íslendinga. Viðskipti þessara þjóða hefðu 25. faldast á síðustu 8 árum. Þó væru enn ýmsir möguleikar enn ónotaðir. Forsetinn kvað sér Finnland í fersku minni eftir heimsókn sína þangað fyrir skömmu. Kvaðst hann þakka móttökurnar þar og bauð Finnana, sem hingað eru komnir inniléga velkomna. HLUTVERK IÐNSÝNINGARINNAR Næstur tók til má!s Eggert Kristjánsson, formaður Verzlun- arráðs íslands, en hann ásamt Vilhjálmi Þór, forstjóra og Olle Herold, sýningarstjóra, mynda framkvæmdastjórn sýningarinn- ar. Eggert Kristjánsson bauð hina finnsku gesti sérstaklega velkomna, þá Penna Tervo ráð- herra, Eduard Palin sendiherra Finna á íslandi og Erik Juuranto aðalræðismann Islands í Helsing- fors og frú hans. Lýsti hann síð- an aðdraganda sýningarinnar og undirbúningi. Síðan komst for- maður Verzlunarráðsins að orði á þessa leið: Á undanförnum árum hafa viðskiptin milli Finnlands og ís- lands farið ört vaxandi, og á 'árinu ,sem leið, var Finnland fjórða stærsta viðskiptaland okkar. En verzlunarsamningur sá, sem gerður var á milli land- anna snemma á þessu ári, gerir ráð fyrir enn auknum viðskipi- Um. . Láls katt VIRGINIU 15. maí: — Til- raunir Bandaríkjamanna og annarra V esturveldaf ulltrúa til að komast að samkomulagi við Rússa um Indó-Kína, Kór- eu, Þýzkaland, Austurríki og 1 kjarnorkumál hafa sýnt, svo! ekki verður um villst, vilja og 1 ætlun Rússa um að hneppa allar þjóðir heims í fjötra harð stjórnar og einræðisvalds, sagði Foster DuIIes utanríkis ráðherra Bandaríkjanna á fundi einum í dag. Ýmsar leiðir til samkomulags hafa verið reyndar, hélt hann áfram, en aldrei hafa Rússar vilj- að slaka hið minnsta til né sleppa einu né neinu af því sem þeir hafa sölsað undir sig með illu eða góðu. í hverju tilfelli leitast þeir ekki einungis við að tryggja völd sín á þeim svæðum er sþeir hafa, heldur og að ná undir sig nýj- um svæðum til að hnöppa fleiri og fleiri í fjötra. Dulles lagði áherzlu á að deil- an milli kommúnismans og hins frjálsa heims myndi hvorki „auð- leyst né fljótleyst“. Það yrði ekki geíið eftir. Bandaríkin myndu aldrei láta hneppa hundruð þús- und manna í fjötra harðstjórnar og ófrelsis án aðgerða. — Reuter. Verzlunarmálaráðherra Finna, Penna Tervo, flytur ræðu. sambandi má minna á þá stað- reynd, að á síðastliðnu ári fóru nálega 42% af heildarverðmæti síldarútflutnings íslendinga til Finnlands, sem að verðmæti nam ca 56V2% af heildarútflutningi okkar til þeirra. GAGNKVÆM ÞÖRF Ég sagði áðan, að útflutningur beggja landanna væri einhæfur. Þetta á einnig við, hvað snertir kaup okkar frá Finnlandi. En þar verða óhjákvæmilega yfir- gnæfandi aðalútflutningsvörur Finna, sem eru trjá- og pappírs- vörur. Yfir 90% af öllu bygg- ingatimbri, sem inn var flutt á síðastliðnu ári, var frá Finnlandi, en samanlagt námu trjá- og pappírsvörur, sem keyptar voru Framh. á bL. 2 StórilóS4 í írok BAGDAD, 15. maí. — 70 þúsund bændur í suðurhluta íraks hafa misst allt sitt af völdum gífur- legra flóða er orðið hafa í stór- fljótinu Euphrates. Ógna flóðin nú þéttbygðum svæðum syðst í landinu. Tjónið er þegar gífur- legt og hættan á mun stórfelld- ara tjóni er yfirvofandi, því auk eigna og búpenings bændanna er uppskeran öll í yfirvofandi hættu. — Reuter. Framkvæmdastjórn finnsku iðnsýningarinnar, talið frá vinstri: Olle Herold, sýningarstjóri, Eggert Kristjánsson form. Verzlunar- ráðs og Vilhjálmur Þór forstjóri. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) Eltsabefu heilsað með byssu- drunum og klukktial B r Komin heim úr 6 mánaða férðalagi LUNDÚNUM, 15. maí. — Frá Reuter. ÞEGNAR Elizabetar drottningar fögnuðu henni á eftirminnileg- an hátt er hún og maður hennar komu til Lundúna úr ferð sinni um samveldislöndin brezku. — Drottningin hefur ferðast um 50 þús. mílur og verið 6 mánuði að utan. Fagnaðaróp gífurlegs mannfjölda, sem safnazt hafði saman á báðum bökkum Themsár, bergmáluðu er drottning steig á land. Fyrirmenni heilsuðu þeim hjónum á hafn- arbakkanum og síðan hófst sigurganga hennar um götur Lundúna. Ógurleg sprenging Rio de Janeiro 7. maí. — Tal- ið er að 20 manns hafi farizt í ógurlegri sprengingu, sem varð í olíustöð á eyju einni í Río-fló- anum. Slökkvibát, sem vann að j slökkvistörfum hvolfdi og drukkn uðu nokkrir brunaliðsmennirnir. I „VIÐ VILJUM SJA DROTTNINGUNA“ Að eigin ósk ók hún í opnum vagni, þó kalt væri. Geysilegur mannfjöldi hafið safnazt saman við allar götur þar sem drottn- ingin ók. Mannfjöldinn var litlu minni en þegar krýning drottn- ingar fór fram. Þegar vagn henn- ar ók inn í hallargarðinn lék lúðrasveit þjóðsönginn. Augna- bliks þögn varð en síðan hróp- aði mannfjöldinn: „Við viljum sjá drottninguna“. Drottningin og maður hennar gengu fram á hallarsvalirnar og var ákaft fagnað, Mannfjöldinn hvarf ekki og síðar um daginn urðu þau hjónin að fara út á svalirnar og veifa til fólksins. FALLBYSSUSKOT OG KLUKKNAHLJÓMUR Drottningin kom til Englands á hafskipinu Britannia. Hundruð skipa, smárra og stórra, sigldu til móts við skip drottningar er það sigldi upp Themsfljót. Skip voru fánum skreytt, hundruS flugvéla úr brezka flughernum heilsuðu drottningu, kirkjuklukic ur hringdu og eimpípur skipa voru þeyttar og fallbyssuskot dundu. AUar voru móttökurnar með glæstum brag og munu seint gleymast. Til Indó-Kíiia PARÍS 15. maí: — Franska her- stjórnin hefur ákveðið að yfir- maður franska herforinCTjaráðs- ins, Elí hershöfðingi, skuli fara til Indó-Kína og kynna sér hern- aðarástandið þar og ræða við Navarr hershöfðingja Frakka þar eystra. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.