Morgunblaðið - 16.05.1954, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.05.1954, Blaðsíða 8
8 MURGV íVBLAÐIÐ Sunnudagur 16. maí 1954 ntiMðfrifr Útg.: H.f* Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigui. Lesbok: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjaid kr. 20.00 á mánuði innanlands. í lausasölu 1 krónu eintakið. Útverðir Norðurlanda takast í hendur IFYRSTA skipti hefur nú verið efnt til finnskrar iðnsýningar hér á landi. Var hún opnuð hér í Reykjavík í gær. Má óhikað telja þessa sýningu merkan við- burð í viðskiptasögu þessara tveggja þjóða. íslendingar fagna henni og bjóða hina finnsku gesti, sem hingað hafa komig í sam- bandi við sýninguna, innilega velkomna til íslands. Með ísiendingum og Finnum er margt skylt. Lönd þeirra eru út- verðir Norðurlanda í vestri og austri. Báðar þjóðirnar hafa háð langa baráttu fyrir frelsi sínu og öðlast það um svipað leyti, í lok fyrri heimsstyrjaldarinnar. Báðar hafa þær einnig stofnað lýðveldi í löndum sínum. fslenzka og finnska þjóðin hafa því góð skilyrði til þess að skilja hvor aðra. Þær hafa háð sömu baráttuna og náð takmarkinu,' sem að var stefnt með henni. Við íslendingar höfum að vísu aldrei þurft að berjast fyrir frelsi okkar með vopn í hönd á vígvöll- um. En finnska þjóðin hefur orðið að fórna lífi mikils fjölda sona sinna og dætra í sinni bar- ! áttu. Hún hefur einnig orðið að leggja á sig þungar efnahagsleg- j ar byrðar, greiða geysilegar fúlgur í striðsskaðabætur að loknum styrjöldum, sem hún þó bar enga ábyrgð á sjálf. En hún hefur sigrazt á öllum erfiðleik- um og haldið áfram að byggja land sitt upp af dugnaði og fórn- t fýsi. j Finnska þjóðin verðskuldar vissulega aðdáun fyrir þrek sitt og glæsilega baráttu fyrir frelsi sínu og sjálfstæði. j Það er okkur íslendingum mikið ánægjuefni, að viðskipti okkar við Finna hafa farið mjög vaxandi undanfarin ár. Er nú svo komið að í árslok 1953 voru þeir orðnir 4. mesta viðskiptaþjóð okkar. Fluttum við það ár út vörur til Finn- iands fyrir nær 54 millj. kr., en keyptum af Finnum vörur fyrir 55,7 millj. kr. Árið 1946 nam heildarand- virði útflutnings okkar til Finnlands hins vegar aðeins 1,4 millj. kr. Það ár keyptum við af Finnum vöruru fyrir 2,4 millj. kr. Síðan hafa viðskipti þjóðanna farið jafnt og þétt vaxandi. Við höfum selt Finnum saltsíld, harð- fisk, freðfisk, niðursoðinn fisk, lýsi, freðsíld, fiskimjöl, karfa- mjöl, gærur, garnir, skinn og húð- ir. Þeir hafa hins vegar selt okk- ur trjávið, pappa, pappír, vélar, skófatnað, búsáhöld, veggfóður og ýmsar fleiri skyldar vörur. Athyglisvert er að yfir 90% af því byggingatimbri, sem notað er hér á iandi kemur frá Finnlandi. Nær allur sá pappír, sem íslenzk blöð eru prentuð á kemur einnig þaðan. Það er von íslenzku þjóðarinn- ar, að sú þróun, sem hófst í við- skiptum þessara þjóða að styrjöld inni lokinni haldi áfram. Finnska vörusýningin, sem nú er hafin hér mun áreiðanlega eiga sinn þátt í að glæða áhuga íslenzkra káupsýslumanna og almennings hér á landi fyrir finnskum vörum. Framvegis sem hingað til verða viðskipti þjóðanna að byggjast á gagnkvæmum vilja og þörf fyrir þær afurðir, sem íslendingar og Finnar framleiða. Báðar þessar þjóðir unna nor- rænni samvinnu og hafa lagt fram sinn skerf til hennar. Og einmitt hin vaxandi viðskipti ís- lands og Finnlands sýna það greinilega, að þjóðir þeirra vilja að norræn samvinna sé ekki að- eins í orði heldur einnig á borði. Hin efnahagslega samvinna, sem felst í vaxandi viðskiptum og gagnkvæmum vörukaupum Norð urlandaþjóðanna, þarf að aukast og verða miklu meiri en hún hef- ur verið til þessa. En við höfum ekki aðeins áhuga fyrir miklum viðskipt- um á sviði efnahagsmála við finnsku þjóðina. Við viljum eiga við hana sem ríkust menn ingarleg skipti. Við viljum kynnast sögu hennar, skáld- skap, fögrum listum og síðast en ekki sízt sjálfu landi henn- ar, Þúsundvatnalandinu fagra, sem er útvörður Norðurlanda í austrinu. Og við viljum kynna henni okkar sögu og menningu, iand okkar og lífs- viðhorf. Á grundvelli gagnkvæmrar þekkingar Finna og íslendinga á högum hvors annars í fortíð og nútíð munu vináttutengslin verða traustari og fjölþættari milli þeirra. Þannig munu út- verðir Norðurlanda takast í hendur yfir lönd og höf, efia norræna bræðralagshugsjón og gefa henni aukið gildi og lífsfyllingu. Veðdeild Bún- aðarbankans UNDANFARIN ár hafa ýmsir af sveitaþingmönnum Sjálfstæðis- flokksins flutt frumvörp um stofnlán fyrir landbúnaðinn. Sér- staklega hefur verið ætlunin að bæta aðstöðu frumbýlinga til þess að hefja búskap. Nokkur árangur varð af þessari baráttu Sjálfstæðismanna á síð- asta þingi. Samþykkt var frum- varp, sem flutt var af landbúnað- arnefnd Neðri deildar um við- auka við lög um Búnaðarbanka íslands. Samkvæmt lögum þessum skal ríkisstjórnin tryggja veðdeild bankans a.m.k. 1,2 millj. kr. fram lag á ári meðan henni hefur ekki með frambúðarráðstöfunum ver- ið séð fyrir því fé, sem henni er nauðsynlegt. Fé þetta má veðdeildin ein- göngu lána til jarðakaupa eftir- greindum aðiljum: 1. Bændum, sem eru að byrja búskap. 2. Bændum, sem verða að kaupa sér jarðnæði til þess að geta haldið áfram búskap. 3. Bændum, sem verða að inn- leysa til sín eignarhluta meðerf- ingja sinna í ábýlisjörð sinni. 4. Leiguliðum, sem eiga kost á að fá ábýlisjarðir sínar keyptar. Jón á Reynistað var fram- sögumaður landbúnaðarnefnd ar Neffri deildar, sem flutti frumvarp þetta. Gat hann þess að það væri aðeins bráða- birgðalausn. Finna yrði fram- búðarleið til þess að efla starf- semi veðdeildarinnar. Jussi Jalas finnur sama áhugann en aukna æfingu hjá hljómsveitinni Hinn finnski hljómsveilarsljári rabbar við Mbl. um tónfeikana í kvöld. FINNSKI hljómveitarstjórinn Jussi Jalas var fyrsti útlend- ingurinn sem stjórnaði hinni íslenzku sinfóníuhljómsveit fyrir fjórum árum. Hann er nú aftur kominn hingað til lands og mun stjóma hljómsveitinni á hljómleikum i Þjóðleikhús- inu í kvöld. Þar syngur óperu- sönngvarinn Antti Koskinen og söngva eftir Sibelius og Leevi Madetoja. • ;*r HEFUR ÁÐUR STJÖRNAÐ SINFÓNÍUHLJÓMSVEITINNI Mbl. kom sem snöggvast að máli við Jussi Jalas. Hann komst svo að orði: — Ég átti sérstaklega ánægju- ríkt samstarf með hljóðfæraleik- urunum, þegar ég var hér fyrir nokkrum árum, að það gladdi mig mjög að fá nú tækifæri til að heimsækja fsland að nýju og stjórna sömu hljómsveitinni. GÓÐUR ÁRANGUR AF REGLU BUNDNUM ÆFINGUM — Hvað viljið þér segja um sin- fóníuhljómsveitina hér að þessu sinni? — Þegar ég kom hingað fyrst var hljómsveitin á byrjunar- skeiði, í deiglunni ef svo mætti segja. Hljóðfæraleikararnir voru þá flestir óvanir að starfa í svo stórri hljómsveit. Samt tókst þeim vel þá og vænti ég þess að þeim takist ekki síður nú, því að við æfingar hefi ég fundið, XJelualancL óhrifar: Brattur hjalli. SUMARIÐ 1951 syntu 36000 ís- lendingar 200 metra bringu- sund og unnu norrænu sund- keppnina þar meg glæsilega. Nú hefur verið efnt til annarrar sundkeppni, sem stendur frá 15. maí til 15. september. Sú sund- keppni, sem nú er hafin, er frá- brugðin þeirri fyrri að því leyti, að nú má synda hvaða sund, sem vera skal. Af því að 4. hver íslendingur þreytti sundið seinast, verður okkar hlutur miklu erfiðari nú, þar sem fyrri úrslif verða nú lögð til grundvallar. Samtaka nú. ÞAÐ er ekki í anda víkingsins norræna að sýta né kvíða, og svo verður ekki heldur nú. Þess í stað skerum við upp herör og sýnum, svo að ekki verður um deilt, að við erum „mesta sund- þjóð í heimi“, eins og Svíar köll- uðu okkur þá. Mörg voru dæmi þess 1951, að aldrað fólk, sem ekki hafði synt áratugum saman, herti upp hug- ann og æfði aftur af kappi eins og á æskudögunum. Sama verður vafalaust sagan nú. Og þá ætti ekki að standa á ungu mönnun- um, sem allir eru syndir eins og selir. Við skulum muna, að við erum ekki aðeins að vinna að heiðri þjóðar okkar, heldur ræktum við um leið líkama og sál. Samtaka nú! Verndun fugla í eggtíðinni. MAÐUR hringdi til Mbl. á föstudag og skýrði svo frá, að drengur hefði vaðið útí sef í Sýðri-Tjörninni með barefli í hendi, og hafi stráksi ætlað að lemja á annarri álftinni. Til allrar hamingju kom fólk að og skakkaði leikinn. Maðurinn sagði, að þetta til- ræði við álftina ætti að minna foreldra á þá skyldu að brýna fyrir börnum að vera góð við fuglana, einmitt nú þegar varp- tíminn fer í hönd. — Ef það aft- ur á móti kemur á daginn, að börn og unglingar hrekki fugl- ana, þá verði lögreglan að koma til skjalanna og vernda fuglalífið. Þá var ég ungur. Hreppsómaga-hnokki hírðist inni á palli, ljós á húð og hár. Steig hjá lágum stokki stuttur brókarlalli, var svo vinafár. Líf hans var til fárra fiska metið. Furðulegt, hvað strákurinn gat étið. Þú varst líknin, móðir mín, og mildin þín studdi mig fyrsta fetið. (Örn Arnarson) Þunnt er móðureyra. Jussi Jalas hljómsveitarstjóri að þeir hafa nú fengið mikla æfingu í hljómsveitarleik. Það finnst líka fljótt árangurinn af því, að hljómsveitin æfir og held- ur tónleika reglubundið. Og ég finn, heldur Jussi Jalas áfram, að sami óvenjulegi áhug- inn og löngunin til að leggja sig alla fram ríkir enn meðal fcljóm- listarmannanna. Á NORRÆNU TÓNLISTAR- HÁTÍÐINNI Hinn finnski hljómsveitarstjóri kveðst minnast þess með ánægju er hann stjórnaði tveimur íslenzk um hljómsveitarverkum á nor- rænu tónlistarhátíðinni fyrir nokkrum árum. Það var Sögu- simfónían eftir Jón Leifs og hljómsveitarverk eftir Jón Nor- dal. Jussi Jalas er sem kunnugt er, starfandi hljómsveitarstjóri við finnsku óperuna og hefur á síðustu árum s+jórnað hljómsveit- um víðar um lönd m. a. í París og Hamborg. Innan skemms mun hann ferðast til Zúrich í Sviss- landi og stjórna þar sem gestur eini fremstu hljómsveit Evrópu. TENGDASONUR SIBELIUSAR Hann er tengdasonur hins heimsfræga finnska tónskálds Sibeliusar og spurði Mbl. eftir liðan hins aldna jöfurs. Antti Koskinen óperusöngvarí — Sibelius er nú 88 ára. Hann er góður til heilsunnar. Býr hann á sveitasetri um 40 km frá Hels- ingfors og kemur hann að vísu sjaldan til bo>'garinnar. — Vinnur hann að tónsmíðum? — Já, það gerir hann enn, en fer dult með það. Hefur hann nokkur síðustu ár ekki viljað láta í 1 jós hvaða tónverkum hann vinn ur að. TÓNVERKASKRÁIN — Hvað segið þér um verkefnin á tónleikaskránni í kvöld? — Þetta eru hátíðatónleikar í tilefni finnsku iðnsýningarinnar. Þegar svo er, er tónleikaskráin nokkuð með öðru móti en á venju legum sinfóníutónleikum. — Eitt er það tónverk, alkunn- ugt, sem er bæði á þesum tón- leikum og var einnig á hlutverka Framh. ó bls. 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.