Morgunblaðið - 27.05.1954, Qupperneq 9
Fimmtudagur 27. maí 1954
MORGUNBLAÐHt
9
Hæstiréttur Bandankjunna úrskurðar aðskilnað hvítm
og svartra í skolum landsins einróma ólögmætan
ÞEIR eru margir hérlendis, sem
lesið hafa bók bandarísku skáld-
kounnar Harriet Beecher-Stowe,
„Kofi Tómasar fraenda“, en hún
kom út í íslenzkri þýðingu fyrir
nokkrum áratugum. I bókinni
lýsir skáldkonan á áhrifaríkan
hátt þjóðlífsmyndum frá suður-
ríkjum Bandaríkjanna fyrir
rúmri öld og dregur fram í skýr-
um og skörpum dráttum við hve
aum ævikjör blökkumennirnir
áttu að búa. Grunntónn bókar-
innar er rík samúð með hinum
þjökuðu þrælum, sem lifðu við
algjört réttleysi; áttu sér hlut-
skipti bandingjans, sem þrælaði
myrkranna á milli á baðmullar-
og sykurekrum í brennandi sól-
arhitanum við hin frumstæðustu
lífsskilyrði.
Það hefur verið sagt, að fáir
atburðir hafi lagt stærri skerf til
þess, að svertingjum í Bandaríkj-
Unum var gefið frelsi, en ritun
þessarar bókar. Hvað sem sann-
gildi þess líður, þá er það þó víst,
að bókin vakti alþjóðarathygli á
gvipstundu og sveípti upp stórum
öldum andspyrnu gegn þeim ævi-
kjörum, sem svertingjarnir áttu
við að búa á þessum árum, eink-
um í suðurríkjum Bandaríkj-
anna. Kjarni ádeilu Beecher-
Stowe fólst í þeim einföldu sann-
sndum, sem hún túlkaði svo
snilldarlega, að svertingjarnir eru
hinir einu og sömu menn og þeir,
sem náttúran hefur gefið ljósara
litaraft í vöggugjöf; í brjósti
blökkumannsins slær engu ógöf-
Ugra hjarta en í barmi hins auð-
uga, hvíta ekrueiganda; þrællinn
er ekki af óæðra kynstofni þótt
svartur sé, heldur á óhamingju
sína að sækja til þess, að skömmu
áður hafði hann lifað að hætti
frummannsins í myrkviðum
Súdanlanda, en verið seldur það-
an mansali vestur um haf.
♦ • ♦
EFTIR því sem árin liðu breytt-
ist þetta ástand mjög til batnað-
ar. Borgarastyrjöldin 1861—64
var háð að meginstefnu til þess
að veita svertingjum frelsi, og
hefur ekki að ástæðulausu verið
nefnd Þrælastríðið. Því lyktaði
svo sem kunnugt er meg því, að
þeir voru leystir úr ánauð og
veitt þjóðfélagslegt jafnrétti á
við hinn Ijósari hluta bandarísku
þjóðarinnar. Lengi framan af var
það jafnrétti þó lítið meira en
iynþáHamismunurmn far óðum minnkandi
orðin ein, seint sóttist með raun-
I hæfar umbætur, enda er það aug-
ljóst, að aldagömlum venjum og
umgengnisháttum verður ekki
breytt á fáum árum með heilli
þjóð.
Jafnt og þétt hefur þó próun-
in á undanförnum árum gengið
í þá átt, að bilið milli svartra og
hvitra hefur æ þrengzt. Svert-
ingjar hafa smám saman öðlast
bæði verklega og vísindalega
menntun á borð við hvíta menn,
þeir hafa skipað æ fleiri stöður
í æðri stigum þjóðfélagsins og
orðið hlutgengir á borg við hinn
hvíta mann. Þannig hefur marka
línan smám saman óskýrzt og
segja má, að í Norðurríkjunum
njóti negrar nú í öllum efnum
raunhæfs jafnréttis á við hvíta
samborgara sína. I Suðurríkjun-
um hefur aftur á móti nokkuð
eimt eftir af hinu gamla mis-
rétti, þau ríki eru vagga íhald-
seminnar í Bandaríkjunum og
þröngsýn þjóðfélagssjónarmið
ráða þar meiru.
Fyrir skömmu komst negra-
vandamálið á fremstu síður allra
stórblaða veraldar, og vakti al-
heimsathygli, í ríkari mæli en
oftast áður.
Tilefnið var líka þess virði,
þar sem segja má, að þar hafi
kynþáttaskilunum í Bandaríkjun-
um verið greitt rothöggið á eftir-
minnilegan hátt.
♦ • ♦
HÆSTIRÉTTUR Bandaríkjanna
kvað 17. maí upp dóm, sem féll á
þá leið, að aðskilnaður hvítra og
svartra skildi afnuminn að fullu
og öllu í skólum Suðurríkjanna,
þar sem hann var enn við lýði.
í dómnum fólst jafnframt ský-
laust bann við því, að greina að
skólabörn og námsmenn eftir lit-
arhætti í öllum bandarískum
skólum, sem njóta einhvers
styrks af opinberu fé.
Dómur þessi kemur til með að
hafa víðtæk áhrif í þá átt, að af-
nema kynþáttamismuninn og
brjóta niður síðustu hindranirn-
ar á þeim vegi.
Forsaga þessa máls er all-
athyg'lisverð og sýnir glöggt hve
föstum tökum stjórnvöld Banda-
l
I nokkrum suðurrikjanna hafa verið sérskólar fyrir börn blökku-
manna og þeim meinað að ganga í skóla með öðrum börnum. Hæsti-
réttur tók einróma málstað blökkumanna og batt enda á þennan
aðskilnað. Tvær og hálf milljón þeldökkra barna hljóta nú fullt
og endanlegt jafnréttl I uppeldismálum. Myndin sýnir þeldökk böm
við hlið hvítra félaga sinna á leikvellinum.
Lögfræðingurinn, sem vann mál-
ið af hálfu blökkumanna fyrir
hæstarétti, er sjálfur sveríingi,
Thurgood Marshall að nafni.
ríkjanna taka kynþáttavanda-
málið og hve fjarri sanni frá-
sagnir kommúnistablaða víðs veg
ar um heim um þau mál eru.
Málið kom fyrir hæstarétt frá
undirréttum í fjórum suðurríkj-
anna, og _yar upp tekið og rekið
af hálfu Framfarafélags blökku-
manna (National Assosiation for
áhrif í huga þeirra og hjarta, er
ógjörlegt reynist oft að uppræta
.... Aðskilnaður hvítra unglinga
og svartra í skólum er því ský-
laust byggður á ólögmætum for-
sendum“.
Þau ríki sem svo stendur á
fyrir verða því að hefjast handa
um að breyta löggjöf sinni í
þessum efnum, svo þau brjóti
ekki í bága við dóminn og stjórn-
arskrána.
A dóm þennan hefur verið litið
sem einn stærsta áfangann síðan
1808 að innflutningur blökku-
manna til Bandaríkjanna var
bannaður.
Sérlega áthyglisvert þykir, að
rétturinn skyldi vera samróma í
álitsgjörð sinni um málið, þar
sem kynþáttamálin eru viðkvæm
og hafa jafnan verið mikil deilu-
mál vestanhafs. Sýnir það ljós-
lega afstöðu, sem óvíst er, að
hefði orðið hin sama fyrir nokkr-
um áratugum.
í r.okkrum Suðurríkjanna, sem
þurfa nú að breyta skólakerfi
sínu sætti ákvörðun dómsins
nokkurri gagnrýni, einkum þó
frá ríkisstjóra Georgíu. — Hann
hefur lýst því yfir, að enn sem
fyrr munu blökkumannabörn
vera skilin að frá hvítum í skól-
Hæstiréttur Bandaríkjanna kvað 17. maí s.l. upp dóm, sem valdið
hefur þáttaskilum í kynþáttamálum landsins. Frá þeim degi var
bannað að aðskilja livíta nemendur og svarta í skólum landsins og
blökkumönnum veitt fullt jafnrétti á við aðra í kennslu og fræðslu-
málum. — Dómendur voru allir sammála um úrskurðinn.
the Advancement of Colored
People), sem hefur um áraskeið
verið framvörður í baráttunni
fyrir bættum kjörum hins þel-
dökka manns.
í tuttugu og níu af ríkjunum
voru sérstakir skólar fyrir blökku
menn en engin greinarmunur
gerður á í hinum ríkjanna.
Dóminn kvað hæstiréttur upp
í einu hljóði og sýnir það hve
sjálfsagt réttlætismál var talið,
að hér væri á ferðinni. Afleiðing
hans verður m.a. sú, að tvær og
hálf milljón blökkumannabarna,
sem áður sóttu sérskóla sina
mega nú eftir vild innritast í þá
skóla, sem þau lystir. Skóla þá
sem hér um ræðir í Suðurríkjun-
um sækja alis um 21 millj barna
og unglinga og er því ekki ofmælt
þótt sagt sé, að grundvallarbreyt-
ing í fræðslumálum hafi hér átt
sér stað.
í dómsorðinu komst forseti
réttarins, Earl Warren, áður ríkis
stjóri í Kaliforníu, m.a. svo að
orði: „Nú á tímum má telja það
vafasamt, að það barn, sem ekki
getur öðlaM þá menntun, sem
hugur þess stendur til, verði far-
sælt í lífí sínu og starfi. Á þeim
sviðum, sem ríkið hefur tekið að
sér að sjá um menntun barna og
unglinga, verða allir að eiga rétt
til skólagöngu á fullum jafflrétt-
isgrundvelli. Ef að börn blökku-
manna eru skilin frá jafnöldrum
sínum, eingöngu vegna þess, að
þau eru vaxin af öðrum kyn-
stofni, þá hlýtur það að vekja
með þeim skaðlega minnimáttar-
kennd, sem skilur eftir sig þau
um ríkisins, og muni ákvörðun
réttarins ve’-ða höfð að engu.Talið
er þó vestanhafs, að lítil líkindi
séu á, að sú hótun verði fram-
kvæmd, enda er hún í andstöðu
við lög og rétt, eins og málum er
nú komið.
Bandaríska vikuritið Time hef-
ur fagnað dónmum og talið hann
einn stærsta sigurinn í 90 ára
frelsisbaráttu negranna i Banda-
ríkjunum og í sama streng taka
önnur áhrifamestu blöð landsins,
hvort sem þau eru gefin út af
demókrötum eða republikönum.
♦ • ♦
AF BLÖÐUM kommúnista, hér á
landi sem annarsstaðar, hefur
mátt skilja, að bandaríski svert-
inginn væri enn á sama undir-
okunarstiginu, sem hinn rétt-
lausi þræll, er Harriet Beecher-
Stowe ritaði hina nafntoguðu bók
sína um.
Það líður varla svo vikan, að
Þjóðviljinn birti ekki einhverja
voðasöguna um svertingjamorð
og aftökur án dóms og laga* og
önnur slík nýheit í svipuðum
stíl.
Slíkur fréttaflutningur hefur
jafnan verið notaður til þess að
ráðast að Bandaríkjunum og bor-
ið þar niður, sem óneitanlega var
snöggan blett að finna.
Það er þó jafn ljóst, að meiri-
hluti svertingjamorðsagna þeirra,
sem gleðja blaðamenn Þjóðvilj-
ans, eru uppspuni frá rótum og
frásagnir þeirra af Hfskjörum
blökkumannanna voru e.t.v.
sanni nær fyrir hálfri öld, en eru
það ekki lengur.
Ekki þarf að fara lengra en í
hagskýrslur stjórnarinnar og til-
kynningar sem Framfarafélag
blökkumanna gefur sjálft út til
þess að sannfærast um að svo sé.
Árið 1870 var aðeins þriðjung-
ur svertingja læs og skrifandi.
1950 voru 94% þeirra læsir og
skrifandi borið saman við 97.5%
af allri þjóðinni. Barnafræðsla er
öllum veitt ókeypis jafnt svert-
ingjum sem öðrum og sækja nú
um tvær og hálf milljón svert-
ingja barnaskóla. — Svertingjar
gegna prófessorsstöðum við há-
skóla í öllum ríkjum Bandaríkj-
anna, hafa getið sér prýðilegt orð
sem vísindamenn og skarað fram
úr á flestum sviðum lista og
bókmennta.
♦ • ♦
í efnahagsmálum er hlutur
blökkumanna enn heldur siðri,
en á því hefur þó orðið mikil
breyting. I þeim launastéttum,
sem hafa í árslaun frá 1000—1500
dali er 14% af blökkumönnum,
en jafnframt rúm 13% af hvítum
mönnum. Þótt blökkumenn séu
ekki nema tíundi hluti banda-
rísku þjóðarinnar gegna þeir þó
11% af iðnaðar- og tæknistörf-
um, sem einhverja sérþekkingu
þarf til og um ein og hálf milljón
þeirra starfa í verklýðsfélögum.
Laun blökkumanna_eru hin sömu
og hvitra fyrir sömu vinnu.
Nokkra ályktun má og af því
draga, að þriðjungur allra svert-
ingjafjölskyldna á eigið hús til
íbúðar. 150 dagblöð eru í eign
blökkumanna í suðurríkjunum og
er stjórnað af þeim.
Mörg þfiú vandamál, sem erfið-
ast hefur gengið að leysa í Banda
ríkjunum á liðnum árum hafa
átt rætur sínar að rekja til kyn»
þáttavandamálsins. Smám saman
hafa kjör blökkumannanna batn-
að, þeir öðlast æ aukið jafnrétti
á við hina hvitu íbúa landsins og
verðugan framgang í vísindum og
tækni. Jafnréttisbaráttu blökku-
manna lýkur brátt. með fullum
sigri og ein órækasta sönnunin
um að svo verður er dómsorð
hæstaréttar, það er hann kvað'
upp hinn 17. maí.
—G.
50 ér síðan lífibú
Lamlsbsnkans
á isaflrSi !óh t!l slarfa
ÍSAFIRÐI, 15. maí. — í dag eru
50 ár liðin siðan útibú Lands-
banka íslands tók til starfa. —
Stjórnarráð íslands hafði staðfest
reglugerð fyrir útibúið 20. febr.
1904, en útibúið tók til starfa
15. maí sama ár.
Voru fyrstu húsakynni bankans
í húsi Sparisjóðsins við Banka-
götu, sem nú heitir Mánagata. —
Bankastjórar útibúsins hafa verið
þeir Þorvaldur Jónsson læknir
1904—14, Jón Auðunn Jónsson,
1914—23, Helgi GuðmundssOn.
1923—26, Sigurjón Jónsson 1926
—37, Guðjón Jónsson 1937—51
og Einar B. Ingvarsson 1951 Og
síðan.
Starfsemi útbúsins hefur vaxið
jöfnum skrefum, og er saga þess,
samtvinnuð sögu atvinnu og við-
skiptalífsins hér á Vestfjörðum,
Fyrsta starfsár bankans var heild
arumsetning hans 846 þús. kr. en
á s.l. ári var hún 281 millj. kr.
Á sama tíma hafa útlán bankans
aukizt úr 309 þús. kr. í árslok
1904 í 34 850 þús. í árslok 1953.
Innlánsfé útibúsins hefur hækk-
að úr 299 þús. kr. í 15.800 þús.
kr. á sama tímabili. — f útibúinu.
á ísafirði vinna nú sex starfs-
menn. —J.